Morgunblaðið - 07.11.1984, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÖVEMBER 1984
Táknrænt fyrir Meistaramótið í Þýskalandi. Önnur langhiið hringvallarins undirlögð vatni og eru það fimm efstu keppendur í tölti sem þarna vaða elginn. Frá
vinstri talið: Andreas Trappe á Torfa, Anne Kegelmann á Rjúkanda, Bernd Vith á Örvari, Andrea Janisch á Gylfa og Þýskalandsmeistarinn, Hans Georg
Gundlach, á Skolla.
Staldrað við á þýska meistaramótinu í hestaíþróttum:
Framfarir í skeiöi og fímmgangi
greinilegar hjá Þjóðverjum
Hestar
Valdimar Kristinsson
Hafi menn staðið í þeirri trú að
hvergi vaeri slæmt veður á hestamót-
um nema á íslandi þá er það hinn
mesti misskilningur. Veðrið hefur að
vísu oft sett leiðinlegan svip á ýmis
stærri mót sem haldin hafa verið
hérlendis og ber þar hæst „Flóð-
hestamótið" svokallaða, öðru nafni
Fjórðungsmót austfirskra hesta-
manna sem haldið var á Fornustekk-
um 1977. Einnig mætti nefna ís-
landsmótið í hestaíþróttum 1983 og
undanfarin stórmót sem haldin hafa
verið á Hellu.
Ég undirritaður átti þess kost
að fylgjast með Meistaramóti
Þýskalands i hestaíþróttum á ís-
lenskum hestum snemma i sept-
ember sl. og komst ég þá að raun
um að víðar getur rignt en á ís-
landi. Þrátt fyrir mikil vatnsveð-
ursmót hér heima sló þetta þýska
mót öll met því segja má að allt
hafi rignt í kaf þessa tvo daga sem
mótið stóð yfir. Þegar líða tók á
sunnudag var um ‘A af hringvell-
inum undirlagður rúmlega ökkla-
djúpu vatni. Auk rigningar fengu
mótsgestir og keppendur vænan
skammt af roki þannig að það var
engu líkara en maður væri kominn
heim.
Þrátt fyrir öll þessi ósköp var í
senn fróðlegt og skemmtilegt að
fylgjast með keppninni, sjá nýja
hesta og knapa sem ekki hafa
keppt á Evrópumótum fyrr og þar
af leiðandi lítið þekktir hér heima.
Þegar mig bar að garði um tvö-
leytið á laugardag var nýbyrjuð
forkeppni í fimmgangi. Ekki var
hægt að koma bíl að áhorfenda-
stæðunum og fylgjast þar með
keppninni svo maður varð að
skríða í skjól sem reyndar var af
skornum skammti og ekki gerði
það hlutina auðveldari að hafa
skilið stígvélin eftir heima á
Fróni. Myndavélin fékk að mestu
hvíld í von um að betur viðraði á
sunnudeginum.
Keppnisreglur eru að ýmsu leyti
frábrugðnar í Þýskalandi miðað
við það sem gerist hér heima og
það fyrsta sem ég veitti athygli
var að röðun gangtegunda í for-
keppninni var frjáls líkt og er í
gæðingakeppninni hjá okkur.
Virtust sumir keppendur ekki
hafa gott vald á skeiðinu þótt
margar undantekningar fyndust
og þær góðar. Hefur veður og allar
aðstæður þarna vafalaust haft sitt
að segja en eigi að síður sáust oft
snilldartaktar eins og t.d. þegar
Walter Feldmann jr. sýndi stóð-
hestinn Prata fra Hlöðutúni sem
er vægast sagt mjög erfiður
keppnishestur. Var oft á tíðum
teflt á tæpasta vað og við lá að
hesturinn stykki út úr hringnum.
En í úrslit komust þeir eftir mik-
inn darraðardans. Þarna var líka
mættur Kerly Zingsheim með
stóðhestinn Fifi, sem dæmdur var
úr leik á síðasta Evrópumóti fyrir
meinta ólöglega lyfjagjöf. Vakti
hesturinn þar mikla athygli og var
talinn mjög sigurstranglegur. Fifi
er lágvaxinn og frekar hálsstuttur
en með úrvals brokk og stökk,
ágætis tölt og skeið. Tæplega held
ég þó að hesturinn þætti boðlegur
stóðhestur hér heima. Ekki var
eins mikill glans yfir honum nú
enda kannski ekki heiglum hent
að vera ávallt með hest í sliku
formi sem hann var í Roderath.
í öllum greinum voru tvöföld
úrslit þ.e. keppt var í 1,—5. sæti og
6.—10. sæti. Keppendur í fimm-
gangi komu mun betur út í úrslit-
um, kom það manni á óvart hversu
góðir skeiðreiðarmenn Þjóðverjar
eru að verða. í úrslitum um 1.—5.
sæti voru þeir Walter Feldmann á
Prata, Karly Zingsheim á Fifi,
Vera Reber á Frosta, Heins Pins-
dorf á Dýra-Rauð og Gert
Schimpe á Black. Varð röðin í
samræmi við það sem hér er upp-
talið.
Milli keppnisgreina dundaði
maður sér við að skoða skrána og
taldi ég saman hversu margir
keppnishestanna, sem skráðir
voru, eru fæddir hér heima. Var
niðurstaðan sú að af þeim 105 sem
skráðir voru til leiks reyndust 54
vera fæddir á Islandi, 45 fæddir í
Þýskalandi, 4 fæddir í Danmörku
og einn fæddur í Hollandi. Sýnir
þetta svo ekki verður um villst að
þýsk hrossarækt er í örum vexti
og virðist sem hlutur íslensk
fæddra hesta fari sífellt minnk-
andi.
Eftir fimmganginn var keppt í
frjálsum hlýðniæfingum og voru
keppendur þar frekar fáir. Greini-
legt var að áhugi fyrir hlýðni-
keppni var mikill í Þýskalandi ef
marka má þann fjölda sem með
fylgdist og æfingarnar voru út-
færðar af smekkvísi og kunnáttu.
Meðal keppenda var eldri kona,
sennilega milli fimmtugs og sex-
tugs, og fór ekki á milli mála að sú
kunni á þessu tökin. Sýndi sig
þarna að aldurinn þarf ekki að
vera þrándur í götu þegar keppt er
í hlýðniæfingum. Hlýðnikeppni á
vaxandi vinsældum að fagna hér
heima og verður það að teljast
jákvæð þróun því þær eru undir-
staða góðrar reiðmennsku.
Síðast á dagskrá laugardagsins
var skeið og fór það fram spotta-
korn frá hringvellinum við hliðina
á stórum kornakri og þurftu menn
að ganga mestan hluta leiðarinar
og það í leirdrullu. Jarðvegurinn
þarna er mjög leirkenndur og þeg-
ar vætir verður úr þunnfljótandi
leðja. Það reyndust fleiri illa skó-
aðir en tíðindamaður Morgun-
blaðsins og þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir til að fá léð stígvél
reyndist það útilokað.
Keppt var í 250 metra skeiði,
gæðingaskeiði, og var skeiðbraut-
in túnræma við hlið akursins. Var
hún mjög þung yfirferðar og tím-
arnir eftir því lélegir. Annars er
það frekar algengt að brautir þær
sem keppt er á í Evrópu á íslensk-
um hestum séu frekar slæmar,
lausar í sér og þungar yfirferðar.
Af þeim hestum sem kepptu I
skeiðinu má nefna nokkra sem
kunnir eru hérlendis. Karl Arnold,
maður um sextugt, keppti á Eljari.
Walter Feldmann jr. keppti á
tveimur stóðhestum þeim Prata
frá Hlöðutúni, sem 1 áður var
minnst á, og Vini frá Víðidal, sem
sýndur var á Fjórðungsmótinu að
Það sýndi sig best hversu þrautþjálfaðir bestarnir eru því þegar þeir komu á fullri ferð í pollana
var undantekning að hestur tapaði takt á töltinu. Hér eru það Hans Georg Gundlach og Skolli
sem láta sig hafa það á móti vatni og vindi.
Tvö nýstirni skutu upp kollinum á þessu móti, þau Andrea Janisch og Gylfi sigruðu í fjórgangi
og urðu númer tvö í tölti.