Morgunblaðið - 07.11.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
47
Melgerðismelum í fyrra. Norbert
Stelzer keppti á Litla-Stjarna frá
Stóra-Hofi en nokkuð er um liðið
síðan hann var seldur til Þýska-
lands. Litli-Stjarni á núgildandi
Þýskalandsmet í 250 metra skeiði,
sem er 23,0 sek. og var sett í Neu-
bronn í sumar. I þessum sama
spretti skeiðaði Prati á 23,1 sek. og
sýnir þessi árangur að Þjóðverj-
arnir eru óðum að saxa á forskot
íslendinga í skeiðinu og aðeins
tímaspursmál hvenær þeir brjóta
23 sekúndna múrinn. Einn íslend-
ingur var meðal keppenda, Gunn-
ar Örn ísleifsson, sem stundar
dýralæknanám í Hannover.
Keppti hann á hesti sem kallast
Eiríkur-Rauði og var hann eitt-
hvað í keppni hér heima. Ekki er
hægt aö ljúka þessari upptalningu
án þess að nefna Fjölni frá Dýr-
finnustöðum sem keppti í skeiði á
síðasta Evrópumóti fyrir Þýska-
land. Hefur hann um árabil verið
einn fljótasti skeiðhestur Þjóð-
verja. En úrslit urðu þau í 250
metrunum að þar sigraði Walter
Feldmann á Vini frá Víðidal og
tíminn var 26,6 sek. Annar varð
Hannes Dipold á Fjölni á 27,0 sek.
og í þriðja sæti athyglisverður dú-
ett, Vera Reber á Frosta sem ekki
er vitað hvaðan er þó mun víst að
hann sé fæddur á ísiandi. Frosti
þessi er ákaflega jafnvígur á allar
gangtegundir og voru þau í úrslit-
um í fimmgangi. í gæðingaskeið-
inu sigraði Walter Feldmann jr. á
Prata frá Hlöðutúni, annar varð
Karly Zingsheim á Fifi og í þriðja
sæti Hannes Dipold á Fjölni.
í fjórgangnum skeðu þau undur
og stórmerki að Hans Georg
Gundlach, Evrópumeistari í tölti
og fjórgangi, varð að láta í minni
pokann fyrir Andreu Jánisch sem
keppti á þýskfæddum stóðhesti
sem kallaður er Gylfi og er þar á
ferðinni yfirburðahestur. Ef reyna
á að lýsa þessum hesti má segja að
hann sé ekki óáþekkur Byl frá
Kolkuósi en þó töluvert betri en
hann var þegar hann var upp á
sitt besta. Ekki er ósennilegt að
þessi hestur eigi eftir að keppa á
næsta Evrópumóti fyrir Þýska-
land. í það minnsta þarf mikið til
að vinna þá Gundlach og Skolla
jafnvel þó Skolli hafi ekki verið
jafngóður og hann var á Evrópu-
mótinu í fyrra. í töltinu héldu þeir
Gundlach og Skolli sínu.
Það eru svo sem ekki neinar
fréttir að Þjóðverjar séu góðir í
tölti og fjórgangi og standi öðrum
þjóðum framar í þessum greinum.
Er því ekki að neita að þetta fer
svolítið í taugarnar á íslendingum
og bíður maður spenntur eftir því
að einhver geri eitthvað í málun-
um þó ekki væri nema bara til að
minnka bilið á milli okkar og
Þjóðverja. Hér hefur aðeins verið
minnst á tvo þeirra sem voru í
úrslitum en þarna voru fleiri góðir
hestar. Bernd Vith, fyrrverandi
Evrópumeistari í fjórgangi og
tölti, var með hestinn örvar og
urðu þeir þriðju bæði í tölti og
fjórgang. 1 Þýskalandi er mönnum
leyfilegt að vera með meira en
einn hest í keppni og var Gundl-
ach með annan í úrslitum í tölti,
Torfa sem fæddur er í Þýskalandi
og er undan Hrafni 737 frá Krögg-
ólfsstöðum. í töltúrslitum sat
Andreas Trappe Torfa og urðu
þeir í fimmta sæti og að síðustu
má minnast á hestinn Rjúkanda,
sem Anne Kegelmann keppti á en
þau voru í úrslitum bæði í tölti og
fjórgangi. Einkum var það yfir-
ferðin sem var góð hjá Rjúkanda
og virtist hann geta hrist alla
keppinautana af sér. Anne Keg-
elmann varð fjórða í báðum grein-
unum.
Þá hefur verið minnst á helstu
keppnisgreinar mótsins og jafn-
framt þær sem keppt er í hér
heima. En það var fleira á boðstól-
um þarna í Gut Ellenbach og má
þar nefna sérstaka töltkeppni sem
Þjóðverjar kalla, aus aus, og er sú
keppni ætluð fyrir ung hross og
hross sem ekki eru komin langt á
veg í töltþjálfun svo og fimm-
gangshesta sem sjaldan komast f
úrslit í tölti því fjórgangshestarn-
ir eru oftast sterkari á þeim víg-
stöðvunum. Samkvæmt skrá átti
að keppa í því sem Þjóðverjar
kalla tölt, rennen. Fer sú keppni
fram á hringvellinum og er kapp-
reið á tölti. Tveir hestar eru inni á
vellinum í einu og er tekinn tími á
þeim. Átti þessi keppni að fara
fram á sunnudag að loknum úr-
slitum í hinum hefðbundnu grein-
um. Flúðu flest allir áhorfendur af
svæðinu eftir úrslitin og sá er
þetta skrifar líka svo ekki er vitað
hvort þessi keppni hefur farið
fram eður ei. Unglingar voru
þarna í keppni og var gaman að
horfa á þá því greinilegt er að þeir
hafa hlotið góða menntun og
þjálfun í reiðmennsku og sýndist
manni þeir standa spori framar í
þessum efnum en jafnaldrar
þeirra hér á fslandi. Veldur þar
sjálfsagt hinn mikli aðstöðumun-
ur til reiðkennslu, þýsku krökkun-
um í vil.
Eftir að hafa fylgst með þessu
þýska meistaramóti fékkst enn ein
sönnun þess að Þjóðverjar eru
hægt og sígandi að saxa á forskot
okkar í fimmgangi og skeiði og
miðað við að ekkert verði gert í
málunum eigum við enga mögu-
leika á móti þeim í fjórgangi og
tölti. Það er ekki nóg að tala um
að hér sé nóg af góðum fjór-
gangshestum, sem gætu staðið í
öllum þessum þýsku hestum, það
verður að gera eitthvað I málun-
um. Sennilega eru tvær megin-
ástæður fyrir því hvernig komið
er fyrir okkur á þessum vettvangi.
í fyrsta lagi virðast fáir eða engir
tíma að senda okkar sterkustu
fjórgangshesta erlendis á Evrópu-
mót og í öðru lagi hefur sú fram-
för sem hófst í reiðmennskunni
upp úr 1970 stöðvast og hefur ríkt
stöðnun og jafnvel afturför hin
síðustu ár. Það er ekki nóg að
rjúka upp til handa og fóta eftir
hvert Evrópumót og uppgötva þá
staðreynd að við séum að missa af
lestinni eins og gerst hefur eftir
tvö síðustu Evrópumót. Sú skoðun
meöal erlendra að íslendingar eigi
ekki til nógu góða fjórgangshesta
virðist eiga vaxandi fylgi að fagna
og er það ekkert skrýtið.
Það var á aðalfundi Félags
tamningamanna fyrir nokkrum
árum sem segja má að áðurnefnd
stöðnun hafi náð hámarki. Tveir
félagar komu með tillögu þess efn-
is að félagið gengist fyrir því að
ungur og efnilegur reiðmaður yrði
sendur erlendis í reiðskóla með
stórum hestum og myndi læra
þjálfun grunngangtegundanna,
(fet, brokk og stökk) til hlítar og
kæmi siðan heim til útbreyðslu
þeirrar visku sem hann yrði að-
njótandi í náminu. Það er
skemmst frá því að segja að þessi
tillaga var kolfelld og viðhöfðu
ýmsir þekktir reiðmenn stór orð
um að við hefðum ekkert að læra
af þessum útlendingum og gáfu
jafnvel ýmsir í skyn að það væru
frekar þeir sem gætu lært ýmis-
legt af okkur. Var einnig á það
minnst að við ættum frekar að
kynna okkur „Western" reið-
mennsku heldur en að sækja
kunnáttu í klassíska reiðskóla á
meginlandinu. Ekkert hefur bólað
á þeirri línu ennþá hérlendis, sem
sagt, ekkert var gert í málinu.
Síðan þetta átti sér stað hafa
þessir sömu menn og fleiri verið
að uppgötva smátt og smátt mik-
ilvægi grunngangtegundanna í
íþróttakeppni og einnig hitt að út-
lendingarnir, þá sérstaklega Þjóð-
verjar, standa okkur einnig feti
framar í þjálfun töltsins, sem ekki
telst til grunngangtegunda og þeir
eru sífellt að ná betri tökum á
skeiðinu og er aðeins tímaspurs-
mál hvenær þeir ná okkur.
Ekki er víst að allir geri sér
grein fyrir mikilvægi þess að við
stöndum okkur vel á Evrópumót-
um sérstaklega en þessi mót eru
ein mesta auglýsing sem við eigum
kost á varðandi útflutning hrossa
héðan. Því miður virðast yfirvöld
ekki gera sér fulla grein fyrir
þessu ef marka má stuðning hins
opinbera við þátttöku íslands í
Evrópumótum og hestamennsk-
una í landinu. Væri í þesssu sam-
bandi fróðlegt að gera samanburð
á hestamennskunni og öðrum
íþróttagreinum og má jafnframt
benda á að aðrar íþróttagreinar
standa ekki í jafn nánu sambandi
við neina atvinnugrein og hesta-
mennskan gerir. Einnig mætti
hagsmunafélag hrossabænda gefa
þessum hlutum meiri gaum því
það er fyrst og fremst þeirra hag-
ur ef útflutningur hrossa eykst að
einhverju marki. Það er ljóst að
þátttaka íslands í Evrópumótum
er ekki einkamál fárra manna með
ólæknandi hestadellu.
Með léttri músik, vel útferðum efingum og fallegu brosi leysti þessi stúlka
vel af hendi frjálsu hlýðniefíngarnar sem njóta mikilla vinselda ytra.
Tjaldið fellur eða svona allt að því. Allveglegt tjald var sett upp fyrir
áhorfendur en það stóðst ekki veðurhaminn enda stóð vindurinn beint inn í
það.
Einn íslendingur var meðal keppenda, Gunnar Örn (sleifsson, sem hér sést
fyrir miðri mynd reða við tímaverði að loknum fyrra spretti í skeiðinu. Það
er Hannes Dipold, kunnur skeiðreiðarmaður, sem snýr baki í Ijósmyndar-
ann.
Ný kynslóð
SfiyiFdmiigjiyiD
,Gj&0ö®©<3>tRl Sx
Vesturgötu 16,
sími 1 3280.
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
Sfiyjuímcgjiuiir <J)(£:irc®©®irii
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480
Kartöfluflögur
Heildsölubirgðir:
Agnar Ludvigsson hf
Nýlendugötu 21
Sími 12134