Morgunblaðið - 07.11.1984, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
Sigurður Þorsteins-
son — Kveðjuorð
Fæddur 11. apríl 1946
Dáinn 20. október 1984
Þriðjudaginn 30. október var til
moldar borinn ástkær vinur
okkar, Sigurður Þorsteinsson,
kallaður Diddi af vinum sínum.
Diddi var sonur Þorsteins Sig-
urðssonar, útgerðarmanns, og
konu hans, Ágústu Valdimars-
dóttur. Auk hans áttu þau eina
dóttur, Þóru, sem nú er enn á lífi.
Leiðir okkar Didda lágu fyrst
saman fyrir tæpum þrjátíu árum,
þegar hann hóf búskap með
Gústu, vinkonu okkar, Ágústu
Vigfúsdóttur. Þau gengu í hjóna-
band þann 25. desember 1955, og
áttu seinna fimm börn saman:
Þorstein (kvæntur Kolbrúnu Héð-
insdóttur), Kristínu (gift Aðal-
steini Sigurjónssyni), Vigfús,
Lindu Ósk og Ágúst, sem nú er
aðeins tíu ára, og sér ekki aðeins á
bak góðum föður, heldur einnig fé-
laga sínum og vini, þvi samband
þeirra feðganna var einstaklega
gott. Auk þessara barna átti
Gústa einn son fyrir, Bjarna Þór,
og gekk Diddi honum i föður stað.
Reyndist Diddi sérlega góður fað-
ir, og hann var fjölskyldumaður
mikill. í fjölskylduna hafa þegar
bæst fjögur barnabörn, sem sakna
nú afa síns, en hann var þeim ætíð
ljúfur leikfélagi. Þar sem börnin
þeirra Gústu og Didda eru á svip-
uðu reki og okkar, höfum við haft
gott samstarf með uppeldið, og
skipst á að gæta þeirra.
Diddi var ávallt kátur og hress í
góðra vina hópi, og hafði á tak-
teinum skemmtisögur og hnyttin
orðatiltæki, enda heimsóknir hans
ætíð kærkomnar, og margar
ánægjustundirnar höfum við haft
saman gegnum árin. Okkur brá
því við fyrir rúmu ári, þegar Diddi
fékk hjartaáfall, og var fluttur í
sjúkrahús, þar sem hann dvaldi
nokkurn tíma. Hann jafnaði sig þó
aftur ótrúlega fljótt, og héldum
við að hann hefði náð heilsunni á
t
SÓLVEIG ELÍSABET JÓNSDÓTTIR
frá Stóra-Sandfelli,
Hátúni 12, Reykjavík,
lést í Borgarspitalanum. sunnudaginn 4. nóvember.
Systkini hinnar látnu.
t
Eiginmaöur minn,
LÝDUR GUDMUNDSSON,
loftskeytamaöur,
lést á heimili sínu, Flókagötu 10, sunnudaginn 4. nóvember.
Guðrún Siguröardóttir.
t
Faöir okkar,
SVEINN EINARSSON,
veióistjóri
frá Miðdal,
er látinn. Jarðarförin veröur auglýst síöar.
örn Sveinsson,
Sigrióur Sveinsdóttir,
Valgerður Sveinsdóttir,
örlygur Sveinsson,
Einar Sveinsson.
t
Eiginkona mín, móöir, fósturmóöir og amma,
SIGRÍÐUR ÞORVARÐARDÓTTIR,
Reynimel 92,
er andaöist þann 25. október, var jarösungin föstudaginn 2. nóv-
ember. Þökkum innilega auösýnda samúö.
Sigurjón Jónsson,
Ingibjörg Sturludóttir, Ástþór Einarsson,
Ragnheióur Þorvaróardóttir, Einar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Systir okkar og mágkona
HÓLMFRÍDUR JÓHANNESDÓTTIR,
sjúkraliði,
Gautlandi 19,
lést 5. september sl. Jarðarförin hefur fariö fram.
Viö þökkum öllum þeim er heiöruöu minningu hennar og vottuöu
okkur samúö.
Jóhanna Margrét Jóhannesdóttir,
Sigurgeir Jóhannesson,
Geróur Guómundsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
t
Þökkum Innllega auösýnda samúö vlö andlát og útför
JÓHÖNNU BJARNADÓTTUR,
hjúkrunarkonu.
Guófríóur Bjarnadóttir,
Bjarni Björnsson, Ingibjörg Garóarsdóttir,
Bragi Björnsson, Katrln Magnúsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför
GfSLA GESTSSONAR,
fyrrv. safnvaróar.
Anna Gísladóttir, Geir Kristjánsson,
Sigrún Gísladóttir, Jóhann Már Maríusson,
Gestur Gíslason, Erla Halldórsdóttir,
Margrát Gísladóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför
RUNÓLFS ÍVARSSONAR,
kaupmanns,
Stýrimannastíg 11.
Fyrir hönd vandamanna,
Ragna fvarsdóttir,
Oddur Sigurósson.
t
Þökkum innilega öllum þeim mörgu sem auösýndu okkur samúö
og vináttu viö andlát og jaröarför
GUÐRÍÐAR ÁRNADÓTTUR,
Kársnesbraut 55, Kópavogi.
Einnig þökkum viö öllum þeim sem léttu henni sjúkdómsleguna.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks, sem hún naut ein-
stakrar umönnunar hjá í veikindum sinum.
Góöur Guö blessi ykkur öll.
Guójón Jónatansson
og aórir aóstandendur.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem velttu okkur aöstoö og hluttekn-
ingu viö fráfall eiginmanns, fööur og tengdafööur,
ÁSMUNDAR EIRÍKSSONAR,
Ásgaröi, Grímsnesi.
Sigríóur Eiríksdóttir,
Eygló Lilia Ásmundsdóttir, Hermann Brynjólfsson,
Gunnar Aamundsson, Þórdís Ásgeirsdóttir,
Eiríkur Ásmundsson,
Guömundur Ásmundsson,
Margrét Ásmundsdóttir,
Áslaug Ásmundsdóttir,
Kjartan Már Ásmundsson.
t
Innilegar þakkir færum við þeim, sem auðsýndu okkur samúö og
vináttu viö andlát
JÓNS M. GUÐMUNDSSONAR,
Grund í Garöabæ,
er lézt þann 3. október 1984.
Halldóra Skúladóttir,
Arndía J. Jónsdóttir, Siguröur Siguröarson,
Ragnheióur Jónsdóttir, Pátur Einarsson,
Gerður Helga Jónsdóttir, Herjólfur Guöjónsson,
Guðmundur Jónsson,
Jón Halldór Jónsson,
Dóra Björg Jónsdóttir.
ný, þar sem hann bar sig vel og lét
fátt á sig fá.
Nú seint í sumar eyddu þau
hjónin með okkur fimm yndisleg-
um dögum í sumarbústaðnum
okkar, og nutum við þess tíma sér-
staklega vel, því þar var glatt á
hjalla og mikið spjallað. En skjótt
skipast veður í lofti. Nú þegar
haustaði, og laufin tóku að falla,
fölnaði lífsblóm Didda, og þegar
síst varði skall slagið aftur á.
Hann lést fáum dögum seinna.
Elsku Gústa okkar, Gústi litli,
og þið hin, sem eftir sitjið með
sáran söknuð í hjarta. Megi Guð
styrkja ykkur í sorg ykkar, og
megi minning okkar um góðan
mann og kæran vin ætíð vera með
okkur.
Hilmar, Sísí og fjölskylda
MinningarsjóÖur
Brynjars Valdemarssonar:
Færði Krist-
neshæli hjarta-
línuritstæki
Akureyri, 2. nóvember.
í G/ER, 1. nóvember, á 57. afmæl-
isdegi Kristneshælis í Eyjafirði, var
því fært að gjöf vandað hjartalínu-
ritstæki. Gefandi var Minningar-
sjóður Brynjars Valdemarssonar,
fyrrum yfirlæknis Kristness, sem
lést 27. maí sl. Brynjar hafði starfað
á Kristnesi í 25 ár samfleytt, þegar
hann lést, að undanskildu einu ári,
sem hann var við framhaldsnám.
Bjarni Arthúrsson, fram-
kvæmdastjóri Kristness, þakkaði
gjöfina og minntist Brynjars með
nokkrum orðum. Hann sagði hann
hafa verið „læknir af köllun",
helgað Kristnesi starfskrafta sína
og alla tíð fylgst sérlega vel með á
þeim sviðum sem sjúklingum
Kristness kom best.
GBerg
Fjölbreytt
skólalíf í
Stykkishólmi
StTkkinhólmi. 31. okL
SKÓLARNIR í Stykkishólmi hófu
starfsemi sína í sepL eins og venju-
lega.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
kennaraliði. Gunnar Svanlaugsson
sem áður hefir kennt við Reyk-
holtsskóla, hefir verið ráðinn yfir-
kennari Grunnskólans, en skóla-
stjóri er hinn sami og áður Lúðvfg
Halldórsson. Nýja skólabyggingin
þokast vel áfram enda unnið þar
eftir getu og standa vonir til að
hún komi öll í gagnið næsta haust
ef allt fer svo sem áætlað er. Hluti
hennar hefir þegar verið tekin í
notkun fyrir handavinnukennslu.
Tónlistarskólinn er nú að hefja
sitt 20. starfsár og eru þar tveir
fastráðnir kennarar og þrír stund-
akennarar. Nú er í undirbúningi
samningur um rekstur framhalds-
skóla Vesturlands. Er gert ráð
fyrir að framhaldsdeildir grunn-
skótanna verði hluti þess fram-
haldsskóla. Fréttaritari.
Bréfapóstur í
eðlilegt horf
Allur bréfapóstur landsmanna á
nú að vera kominn í eðlilegt horf
eftir þá röskun sem varð á póst-
samgöngum í verkfalli BSRB, að því
er póstmeistarinn í Reykjavík, Björn
Björnsson, tjáði blm. Mbl. í gær.
„Allur bréfapóstur sem barst í
verkfallinu og fram á þennan dag
á að vera kominn út,“ sagði Björn.
„Hins vegar erum við ekki búin að
koma út þeim sjópósti og flug-
bögglapósti, sem hefur borist eftir
að verkfalli lauk og erum nú að
vinna að því. Starfsfólk hefur lagt
mikið á sig til þess að koma
póstmálum í eðlilegt horf sem
fyrst, unnið á tvöföldum vöktum
alveg frá verkfallslokum og alla
helgina," sagði póstmeistari.