Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
59
m.FsTfit
íllíiM
7/ w/
Jl
tftk^AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nvTlJAfnini~LiKi\
// if
Að höggva
Páll H. Árnason skrifar:
Nú er lengi búið „að höggva
stórt“ á hendur ríkisstjórninni og
málefnum hennar, frá þeim boð-
aða baráttudegi 1. sept. Og af því
tilefni minnist maður þess, að á
hátíðisdegi verkamanna, 1. maí í
vor, hvíldi enginn friðarandi yfir
ræðuhöldunum á Lækjartorgi:
„Við viljum engan frið, það geta
fleiri höggvið stórt en stjórnin, og
það skal sýnt þann 1. sept.“
Líklegt er að skæruliðaforingj-
ann, er svo mælti, hafi þá verið að
dreyma um endurheimt vald til
þess að geta uppvakið gamalt
herbragð sitt, að setja afgreiðslu-
bann á útflutningsvörur okkar,
eða eitthvert annað álíka þjóðhollt
bjargráð. „Litla þjóð, sem átt í vök
að verjast, vertu ei við sjálfa þig
að berjast", sagði eitt góðskáldið
okkar, og gaf okkur þar með heil-
ræði, sem lífsnauðsyn var að
framfylgja. En þjóðin fór með
heilræðið líkt og kirkjan með
kærleikann, þegar hún setur á
oddinn að dýrka sem heilagan
sannleika, „Guðs orð,“ allt hið
misvitra málskrúð Biblíunnar,
sem lætur algóðan Guð varpa
fyrstu helsprengjunum er sagnir
skýra frá, beint af sínum blikandi
himni, yfir óþægu börnin sín í Só-
dómu og Gómorru, svo að allt líf
og gróður varð að rjúkandi eyði-
mörk, að sögn Abrahams. Og kona
Lots varð að saltstöpli af því að
hún leit við á flóttanum og sá eyð-
inguna. Mér hefir stundum hvarfl-
að í hug hvort hugmyndin að
nátttröllunum okkar eigi þangaö
rætur að rekja. Og Drottinn laðar
sjaldnast til hlýðni við sig með
kærleika, heldur hræðir og þving-
ar með hryllilegustu plágum; svo
sem breytir vatni í blóð og myrðir
alla framburði í heilu þjóðfélagi,
bæði fólks og fénaðar. Og kristnin
er látin viðurkenna grimmdina
með hinum dáðu orðum „guð-
hræðsla" og „guðsótti", sem tákna
rétta trú og eilífan helvítiseldinn í
baksýn, fyrir þá fordæmdu.
Þvílík stjórnunarfyrirmynd
þjóðhöfðingjum hnattar okkar, er
hafa líka kunnað að nota sér
þrælsóttann. Já þvílíkur regin-
munur á slíkum vítisverkum eða
kærleiksboðun og þjónustu Jesú
frá Nasaret, er virðist hafa komið
til að umskapa Guðsmyndina. En
Móðir Theresa er raunsannasti
fulltrúinn fyrir kenningar hans,
enda nú bjartasta sólin í allri
kristindómsmóskunni. Hún sér
Guðs blessað barn í hverjum
óhrjálegasta aumingja, sem á vegi
hennar verður og hagar lífi sínu í
samræmi við það, honum til hjálp-
ar. Ættum við nógu marga hennar
líka myndi ekkert hungur til á
jörðinni, engar helsprengjur til,
ekkert kynþátta- og trúflokkahat-
ur og engin banvæn barátta þríf-
ast milli „hægri“ og „vinstri"
stefna, er skipta þjóðunum nú,
meira en nokkuð annað, í fjand-
samlegar fylkingar.
Líklegt finnst mér að rætur þess
fjandskapar sé að rekja til Biblíu-
legra hugmynda um Dómsdag, þar
sem dómsvaldið dregur menn að-
eins í tvo dilka, til hægri og
vinstri, Himnaríkis eða Helvítis.
Og þó er óhugsandi annað en í
sérhverju friðarríki búi þessar
tvær stefnur saman jafn réttháar,
rétt eins og hægri og vinstri hönd
þjóna í eindrægni sama líkaman-
um. Hvenær á íslenska þjóðin ekki
í einhverjum innbyrðist ófriði?
Virðist það ekki oftast mesta
hjartans mál hverrar stjórnar-
andstöðu að bregða fæti fyrir ríkj-
andi stjórn og stjórnarathafnir og
koma henni frá, hvað sem það
kann að kosta þjóðarheildina. Það
heyrist oft og mikið raupað af
framtaki og dugnaði þjóðarinnar
frá lýðveldisstofnun og mikil hafa
umbrotin verið, en grunnurinn og
innviðirnir ekki eins traustir og
skyldi. Er ekki líkast því að for-
ystumenn okkar á hinu háa Al-
þingi hafi með margri sinni marg-
stórt
feldislagasetningu ekki gert sér í
upphafi ljóst hvert hún myndi
leiða í framkvæmd. Til dæmis
niðurgreiðslur og útflutnings-
uppbætur, sem áttu að leysa
vanda er án slíkra laga hefði
sennilega lagað sig sjálfkrafa að
þörfum þjóðfélagsins í einfald-
leika sínum. Eða vísitöluöngþveit-
ið, sem engin stjórn gat búið við
án þess að falsa. Enda hugmynda-
fræðileg formúla sett á svið til að
reikna laun eftir, burtséð frá
raunhæfri greiðslugetu þjóðfé-
lagsins. Þjóðin þannig í áraraðir
vanin við að lifa eftir fölskum
kaupmætti og svo allt sukkið falið
með erlendum eyðslulánum, jafn-
vel í mesta góðæri. En ófullkomið
menneðlið sannar að það tekur
fljótar við sér til óhófseyðslu en til
einfaldra og heilbrigðra lifnaðar-
hátta á ný. Og svo ötullega var
gengið að verki með rýrnun krón-
unnar að einn daginn var strikað
yfir 99 aurana hennar og hún
gjörð að 1 eyri og þúsundkallinn
að tíkalli.
Allir sjá hvað slík efnahagskoll-
steypa býður uppá mikið svindl.
Nú hefur ríkisstjórnin, fyrir
augnablikið, fest krónuna í sessi
og greitt verðbólgunni rothögg (þó
ekki til dauða, því miður). Þá rís
öll stjórnarandstaðan upp með
hagsmunahópaforingja i broddi
fylkingar og heimtar kjarabætur í
krafti verkfallsþvingunar, sem út-
lit er fyrir að leiði verðbólgu og
vísitöluvíxlhækkunarskrúfu, til
vegs í þjóðfélaginu á ný.
Og ekki skal gleymd þessi sjálf-
sagða prósentuhækkun launa, sem
í flestum verkföllum er látin reka
lestina, til þess að auka launa-
mismuninn og traðka á þeim lág-
launuðu. Ég hefi alltaf verið lág-
tekjumaður og vanist við að lifa
mig inn í þau gömlu sannindi að
„nóg á sá, sér nægja lætur“, en
áhyggjuleysi vegna einfaldra lifn-
aðarhátta mun eiga stóran þátt í
lífsgleði og háaum aldri margra.
Kerfið og Steindórsstöðin
SÆv. bflstjóri á BSR skrifar:
Mikið hefur verið rætt og ritað
um hið svokallaða Steindórsmál
og úthlutun atvinnuleyfa til leigu-
bílstjóra. Steindórsmenn hafa
haldið uppi lúmskum áróðri í
þessum málum og oft mjög
ósmekklegum og óspart reynt að
höfða til samúðar fólks. Þeir hafa
meðal annars sagt að verið sé að
svipta stóran hóp manna atvinn-
unni. Þessi stóri hópur eru 24
menn, sumir í annarri atvinnu,
með aksturinn sem aukavinnu.
(Það er ekki beðið um samúð t.d.
þó fólki í fiskvinnu sé sagt upp
störfum svo hundruðum skiptir.)
Þeir hamra stöðugt á því að kerfið
leiki þá grátt og heimta að því
verði breytt þeim í hag, svo að þeir
geti grætt á því.
Það er leitt til þess að vita að
þessir menn skyldu ekki virða dóm
Hæstaréttar íslands, eins og raun
ber vitni. Því miður í skjóli sam-
gönguráðherra, með áróðri og
þrýstingi í nafni samúðar og písl-
arvættis. Þessir menn vilja ekki
hlýta lögum og reglum. Þeir vilja
vera forréttindahópur, sem vill
braska með réttindi, sem aðrir
verða að ávinna sér með aðlögun-
artíma, eftir röð.
Steindórsmenn tala um slæma
þjónustu við fólk og að þeir einir
aki þegar færð versnar. Þarna er
enn einn lúmski áróðurinn. Þó svo
að allir þeirra bílar séu í akstri, en
ekki nema helmingurinn af hinum
stöðvunum, eru það 24 bílar frá
þeim, en 270 frá öðrum stöðvum.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir,
þykjast þessir menn bjarga öllu.
Lágkúrulegar eru aödróttanir
þeirra um að aðrir leigubílstjórar,
upp til hópa, stundi sprúttsölu. Al-
varlegastur er þó sá áróður og
þrýstingur þeirra að reglugerðin
um takmörkun leigubifreiða í
Reykjavík verði afnumin og allur
leigubílaakstur verði stjórnlaus og
gefinn frjáls. Þá er ég hræddur
um að kvartað yrði um slæma
leigubílaþjónustu í Reykjavík þeg-
ar minnst væri að gera. Það myndi
þýða að rekstrargrundvöllur
þeirra rúmlega 540 leigubíla, sem
nú eru starfræktir í Reykjavík,
brysti og Steindórsbílanna líka, ef
til kæmi.
Þáttur samgönguráðuneytisins í
síðustu úthlutun, eins og svo oft
áður, er til skammar. Þeir létu
kolbrjóta reglugerðina til að þókn-
ast lögbrjótunum á Steindóri.
Samkvæmt reglugerðinni voru að-
eins 7 leyfi laus til úthlutunar, en
ráðuneytið lét úthluta 33 leyfum.
Eru reglugerðir sem ráðherra
undirritar bara ómerk plögg?
Þetta hlýtur að teljast furðuleg
framvinda mála. Samgönguráðu-
neytið höfðaði mál á hendur Bif-
reiðastöðinni Steindóri sf. og vann
það, en ráðherra hefur sýnt lög-
brjótunum mikið umburðarlyndi
og undanlátssemi, sem Stein-
dórsmenn hafa lítið þakkað, nema
síður sé.
Þessir hringdu . .
Jólarós
í óskilum
Kona í Kópavogi hringdi og hafði
þetta að segja:
Síðastliðinn laugardag var kom-
ið með jólarós heim til mín og hún
skilin þar eftir ómerkt. Ég var
ekki heima og tóku börn við send-
ingunni. En ég er alveg sannfærð
um að þessa jólarós hefur einhver
annar átt að fá og er líklegast að
sá sem kom með hana hafi farið
húsavillt.
Það er mér mikið kappsmál að
blómið komist í hendur réttra að-
ila og vona því að sá, sem kom með
það í rautt hús við Hlégerði í
Kópavogi hafi samband I síma
42682.
Rósin
Hönnun: Rolt Sinnemark
Töfrar ljósbrotsins
njóta sín til fulls
í tærum Kosta Kristal.
Bankastræti 10, sími 13122
íböda)
V____I_J
Blaöburöarfólk
óskast!
í eftirtalin hverfi:
Skeifuna
og lægri tölur viö Grensásveg.
s
Metsö/ublað á hverjum degi!