Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
Tvær hljóð-
myndir
Mynd kemur upp í huga „fjöl-
miðlagagnrýnandans" (afsakið
orðbragðið en eitthvert starfsheiti
verða víst allir að hafa). Undirrit-
aður situr í mjúku bílstjórasæti
gamals amerísks-kagga er siglir
inn þjóðveg 101, og hefir rétt
rennt fram hjá skilti er segir:
þjóðvegur 101 er fegursti þjóðveg-
ur heims. Það er hlýtt í bílnum,
þrátt fyrir loftkælinguna, enda
sólin hátt á himni, einna líkust
hundraðkerta ljósaperu sem hefir
verið skrúfuð í festinguna að ei-
lífu. í eyrum glymur hávær diskó-
músík. Sum sé ekta Hollywood-
stemmning frá sjötta áratugnum.
En vegurinn framundan virðist
aldrei ætla að taka enda, og brátt
þreytast eyru mörlandans á diskó-
inu. En hann man ekki eftir því,
að í henni Ameríku eru yfir átta
þúsund útvarpsstöðvar, og hyggst
því slökkva á tækinu, en slær þess
í stað af einhverri slysni á sjálf-
leitarann, nálin þýtur til í viðtæk-
inu. Þá man mörlandinn eftir því,
að hann er staddur utan áhrifa-
svæðis Ríkisútvarpsins. Já, það er
gaman að lifa í henni Hollywood
og nú er lamið og barið á sjálfleit-
arann, en þá gerist undrið, það er
nefnilega alveg sama hvar nálin
staðnæmist, diskódrullan vellur
úr tækinu og að lokum gefst mör-
landinn upp, og slekkur rétt eins
og þegar sinfóníurnar voru að
gera útaf við hann heima á Fróni.
En þetta gerðist nú áður en rás 2
sá dagsins ljós.
Undirritaður er staddur í hót-
elherbergi í Lundúnaborg. Það er
dumbungur í lofti og neonljós
næturinnar vart horfin af spegli
götunnar. Flugið er ekki fyrr en
seinnipartinn, og smá bið á hótel-
inu. Af rælni kveikir mörlandinn á
útvarpinu, og er fyrr en varir
sokkinn ofan í umræður um einka-
skóla í Bretlandi, og pantar því
ekki morgunverðinn, fyrr en seint
og síðarmeir. Þá er umræðan um
breska skólakerfið orðin nokkuð
langdregin, og minnugur þeirra
orða ónefnds hússtjórnarkennara
að holt sé að hlýða á létta tónlist
undir borðum, skiptir mörlandinn
um rás og viti menn, úr tækinu
seitlar létt klassísk tónlist. Svo er
að pakka og þá dugir ekkert nema
poppið, og ekki bregst breska
ríkisútvarpið skyldu sinni, fremur
en Nelson forðum.
Kæru lesendur, ég hef brugðið
upp þessum ólíku „hljóðmyndum"
úr safnþró minninganna, svona
meira í gamni en alvöru. Þær
staðfesta ekki persónulegt álit
mitt á svokölluðu „frjálsu" útvarpi
annarsvegar og „einokunarút-
varpi" hinsvegar. Ég vil aðeins
benda á að vandrataður er vegur-
inn milli frelsis og helsis. Frelsi í
útvarpsmálum sem helgast af
óljósum kröfum óskilgreinds
hlustendahóps, getur að mínu
mati smám saman leitt til helsis
því þá er ansi hætt við að ein-
hverskonar „vinsældamoðmulla"
verði ofaná, þannig að, þótt skipt
sé um rás, þá erum við í rauninni
alltaf að hlusta á sama diskóið, sé
diskó á annað borð í tísku þá
stundina. Með öðrum orðum, að-
eins ein stöð stendur mönnum til
boða þrátt fyrir fjölda rása, og þá
er stutt í einokunina.
Um lagasetningu
Ég bið háttvirta alþingismenn
að hafa þetta í huga þá þeir setja
lög um frjálslegri útvarpsrekstur.
Minnist þess að það eru aðeins
dýrin sem eru alfrjáls, í þeim
skilningi, að þau lúta af eðlishvöt
lagasetningu náttúrunnar, við
mennirnir erum bundnir af þeirri
lagasetningu er helgast af skyn
semi vorri. Stundum vill eðlishvöt-
in taka yfir í mannlegu samfélagi,
þá er það ykkar, kæru alþingis-
menn, að ganga allsgáðir til verka,
og feta þannig fremur i fótspor
Njáls en Gunnars.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
íslensk
tónlist
og
viðtöl
1 Morgunþátt-
ur Rásar 2 er í
dag í umsjá
Kristjáns Sigurjónsson-
ar og Sigurðar Sverris-
sonar. Að sögn þess síð-
arnefnda verður þáttur-
inn með hefðbundnu
sniði í dag. „Á fimmtu-
dögum er venjan sú, að
spiía ísienska tónlist
fyrsta hálftímann og
kynna einhverja hljóm-
sveit eða tónlistar-
mann,“ sagði Sigurður.
„Við Morgunþáttarmenn
reynum að hafa einhver
10,M)
sérkenni á þættinum
dag hvern, t.d. er gesta-
plötusnúður á miðviku-
dögum og vinsælda-
listinn á föstudögum,
svo fátt eitt sé nefnt."
Sigurður sagði, að í
Morgunþættinum í dag
yrði spjallað við að-
standendur Revíuleik-
hússins, sem sýna Litla
Kláus og Stóra Kláus í
Hafnarfirði. „Við fáum
sjálfsagt fleiri í heim-
sókn, en hverjir það
verða ræðst af því hvað
okkur þykir forvitnilegt
í fréttum við blaðalestur
áður en við skellum
okkur í útsendinguna,"
sagði Sigurður. „Það er
því oft lítill fyrirvari
fyrir þá sem koma í við-
töl, en fólk hefur undan-
tekningarlaust tekið við-
talsbeiðnum mjög vel.“
Beint
útvarp frá
Alþingi
2000
í kvöld verður
útvarpað beint
frá sölum Al-
þingis, þegar rædd verð-
ur vantrauststillaga á
hendur ríkisstjórninni.
Flutningsmenn tillög-
unnar eru Svavar Gests-
son (Alþbl.), Kjartan Jó-
hannsson (Alþfl.), Guð-
mundur Einarsson
(Bl.jafn.) og Kristín
Halldórsdóttir (Kvl.). í
umræðunum í kvöld
verða tvær umferðir og
fær hver flokkur 30 mín-
útur til umráða saman-
lagt, 15—20 mínútur í
fyrri umferð og 10—15
mínútur í seinni umferð.
Fyrstur talar fyrsti
flutningsmaður tillög-
unnar, Svavar Gestsson,
síðan Steingrímur Her-
mannsson, forsætis-
ráðherra, og næstir
þingmenn Alþýðuflokks,
Bandalags jafnaðar-
manna, Sjálfstæðis-
flokks og loks þingmað-
ur Samtaka um kvenna-
lista. AIls munu umræð-
ur þessar standa í 3
tíma.
Músík, sem
minnir á haustið
Oddur Björns-
son, leikrita-
skáld, verður
með fyrstu Músíkvöku
sína í kvöld kl. 23.10.
Hann sagðist ætla að
spila tónlist, sem minnti
á haustið, t.d. eftir Rich-
ard Strauss og Leif Þór-
arinsson. „Það verður
svona hitt og þetta úr
klassískri tónlist í þætt-
inum,“ sagði Oddur. „Ég
spila einnig leikhústón-
list og læði jafnvel
Ijóðalestri inn á milli.
Þetta verður alla vega
ekki popp, né heldur
jazz, enda sér Jón Múli
um hann.“ Oddur sagði,
að þáttur hans yrði á
dagskrá útvarps hálfs-
mánaðarlega, en ekki
væri ákveðið hve margir
þættirnir yrðu, en þeir
2310
yrðu eitthvað fram eftir
vetri.
ÚTVARP
FIMMTUDMSUR
8. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Baen.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurtregnir.
Morgunorö: — Sigurvelg
Georgsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Breiðholtsstrákur fer I
sveit" eftir Dóru Stefánsdótt-
ur
Jóna Þ. Vernharösdóttir les
(7).
9J20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
11.00 Ég man þá tfö
Lög frá liönum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 „Sagt hefur paö veriö
H j á I m a r Arnason sér um
þátt af Suöurnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynnlngar. Tón-
leikar
13.20 Barnagaman
Umsjón: Gunnvör Braga.
13.30 Tónleikar
14.00 „A Islandsmiöum" eftir
Pierre Loti
Séra Páll Pálsson á Berg-
þórshvoli les pýöingu Páls
Sveinssonar(11).
14.30 A frlvaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
192S Veröld Busters.
Nýr flokkur. — Fyrsti þáttur.
Danskur framhakfsmynda-
flokkur I sex þáttum, geröur
eftir samnefndri barnabók
eftir Bjarne Reuter og Bille
August sem komiö hefur út I
islenskri þýöingu Ólafs
Hauks Slmonarsonar. (Nord-
vision — Danska sjónvarp-
ið.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
16.20 Slðdegistónleikar
a. Sónata I A-dúr fyrir selló
og planó eftir Franz Schu-
bert. Gisela Depkat og Raffi
Armenian leika.
b. Trló I Es-dúr op. 40 fyrir
fiðlu, horn og planó eftir Jo-
hannes Brahms. Thomas
Brandis, Norbert Haupt-
mann og Tamás Vásáry
leika.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
FOSTUDKGUR
9. nóvember
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaöur Helgi E.
Helgason.
21.10 Skonrokk.
Umsjónarmenn Anna Hlnr-
iksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
2140 Hláturinn lengir Iffiö.
Annar þáttur. Breskur
myndaftokkur I þrettán þátt-
um um gamansemi og gam-
anleikara I fjölmiðlum fyrr og
sföar. Þýöandi Guöni Kol-
beinsson.
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur.
20.00 Utvarp frá Alþingi:
Tillaga til þingsályktunar um
vantraust á rlkisstjórnina.
Umræöan skiptist I tvær um-
ferðir og hefur hver þing-
flokkur samtals 30 mfn.
ræðutlma.
23.10 Músfkvaka
22.10 Saigon á ári kattarins.
Ný bresk sjónvarprsmynd.
Leikstjóri Stephen Fears.
Aöalhlutverk: Judy Dench,
Frederic Forrest og E.G.
Marshall. Myndin gerist á
lokastigi styrjaldarinnar I VI-
etnam. Bresk kona, sem
starfar I banka I Saigon,
kynnist bandarlskum leyni-
þjónustumanni og þau leika
bæði nokkurt hlutverk I
brottflutningi Vesturlanda-
búa frá borglnni. Þýöandi
Kristrún Þóröardóttir.
00.00 Fréttir I dagskrárlok.
Tónlistarþáftur I umsjá Odds
Björnssonar.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS 2
FIMMTUDAGUR
8. nóvember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Fyrstu þrjátlu mlnúturnar
helgaðar Islenskrl tónlist.
Kynning á hljómsveit eða
tónlistarmanni. Viðtöl ef svo
ber undir.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—154» Eftir tvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
15410—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög aö
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
164)0—17.00 Jóreykur að vest-
an
Litið inn á Bás 2 þar sem
fjósa- og hesthúsamaöurinn
Einar Gunnar Einarsson lltur
yflr farinn veg og fær helstu
hetjur vestursins til að taka
lagið.
174)0—164» Gullöldin - iðg
frá 7. áratugnum
Vinsæl lög frá árunum
1962—1974 — Bltlatlmabil-
ið.
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
SJÓNVARP