Morgunblaðið - 22.11.1984, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984
• Þorgils Óttar hinn snjalli Knumaður FH ar mað ieikreyndari mönnum liösins. Hér hafur hann skoraö í Evrópulaik maö FH. Þorgils hafur
laikiö 131 laik maö liöi FH.
FH leikur sinn 42. Evrópuleik á sunnudag:
Tekst FH aö sigra
ungversku meistarana?
Leikið í
kvöld
TVEIR laikir fara fram í úrvals-
daildinni í körfuknattlaik í
kvöid. ÍS og ÍR leika (íþrótta-
húsi Kannaraskólans kl. 20.00
og Haukar og UMFN í Hafnar-
firöi á sama tíma. Staöan í úr-
valsdaildinni ar þessi:
l/MFN $ 5 1 517—406 10
Hukar 4 3 1 347—315 6
Vahir 5 3 2 425—395 6
KR 4 2 2 301—288 4
IR 5 1 4 357—401 2
ÍS 4 0 4 265—407 0
Á sunnudagskvöldiö fer fram
stórleikur í handknattleik í Laug-
ardaLshöllinni. Þá mœta FH-ingar
hinu frœga liöi Honved í Evrópu-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik. Fyrri leikur liöanna fór fram í
Budapest síöastlióinn iaugardag
og lyktaöi honum meö naumum
sigri Honved, 29—27. FH á því
góöa möguleika á aö sigra i leikn-
um hér heima og komast áfram í
keppninni. Lió FH ar sterkt um
þassar mundir og hefur undir-
búiö sig af kostgœfni fyrir Evr-
ópukeppnina.
Leikur FH á sunnudaginn er 42.
í rööinni af Evrópuleikjum FH.
FH hefur unniö 17 leiki, gert tvö
jafntefli og tapað 22.
Honved — ungverska liöiö, sem
er mótherji FH nú, er eitt fraegasta
félagsliö Evrópu fyrr og síðar. Liöiö
hefur spilaö í úrslitum í Evrópu-
keppni nokkrum sinnum og oröiö
Evrópumeistari tvisvar sinnum.
Síöast var Honved Evrópumeistari
1982.
FH og Honved hafa dregist sam-
an tvisvar sinnum áöur i Evrópu-
keppni og eru mörgum minnis-
stæöir leikir FH og Honved 1967,
þegar FH tapaöi leiknum í Ung-
verjalandi, 20—13, í einum blóö-
ugasta leik sem íslenskt félagsliö
hefur tekiö þátt í. i heimaleik FH,
sem leikinn var fyrir fullri Laugar-
dalshöll 12. febrúar 1967, spiluöu
FH-ingar líklega besta leik sem ís-
lenskt félagsliö hefur leikiö og sigr-
uöu FH-ingar 19—14.
Á tímabili í seinni hálfleik haföi
FH-ingum tvívegis tekist aö vinna
upp sjö marka tapiö úti og
stemmningin í Laugardalshöllinni
slik aö menn muna ekki annaö
eins.
Aðalfundur
knattspyrnudeildar ÍR verður haldinn, þriðjudaginn
27. nóv., í félagsheimili ÍR viö Stekkjabakka kl. 20.00.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Erla
skoraði
sautján
TVEIR leikir fóru fram í 1.
deild kvenna í handknattleik
um afðuatu helgi. FH aigraöi
ÍBV, 29:15, og Fram aigraöi
Vestmannaeyjalióiö, 34:12.
Kristjana Aradóttir skoraöi
átta mörk fyrir FH og Kristín
Pétursdóttir fimm. Eyrún Sig-
þórsdóttir var markahæst IBV-
stúlknanna, skoraöi sex mörk,
gegn FH.
i leik Fram og IBV bar þaö
helst tíl tíöinda aö Erla Rafns-
dóttir skoraöi hvorki fleiri né
færri en sautján mðrk. Guöríö-
ur Guöjónsdóttir skoraöi sex.
Eyrún varö aftur markahæst
hjá fBV, geröi sex mörk.
Fraa 5 5 0 0 159-67 10
Vahir 5 4 0 1 106-88 8
FH 4 3 0 1 110—58 6
KR 3 111 54—55 3
Víkngvr 4 10 3 56-96 2
ÍA 4 10 3 64-96 2
Ibv 5 0 2 3 73—110 2
Þér Ak. 4 0 13 52—104 1
Betri kaup
I dag eins og áöur eru leikmenn
Honved starfandi hermenn sem
gerír þá aö nokkurs konar atvinnu-
mönnum í íþróttinni. Þeir eru meö
blöndu af eldri og yngri leik-
mönnum. Honved vann ungversku
deíldarkeppnina meö miklu öryggi
í fyrra, 4. áriö í röö. Voru aö sjálf-
sögöu fyrir ofan ungverska liöiö
Tatabanja, sem sló FH út úr Evr-
ópukeppni í fyrrahaust, og þóttu
engir aukvisar í íþróttinni.
I
1/1 dós 1/2 dós 1/4 dós
verð: verð: verð:
Grænar baunir kr. 27.90 kr. 17.50 kr. 12.70
Maiskorn kr. 51.95 kr. 33.60 kr. 23.20
Rauðkál kr. 46.90 kr. 27.90 kr. 20.50
Gulræturog grænarbaunir kr. 35.90 kr. 21.90 kr. 15.80
HAGKAUP
Dómarar leiksins eru norskir og
heita þeir Per Erik Sjong og Jan
Rolf Ludvigsen.
Leikurinn á sunnudaginn hefst
klukkan 20.30 og veröur spilaö í
Laugardalshöllinni.
Þaö er mikill hugur í leik-
mðnnum FH og ef næst upp lík
stemmning meðal áhorfenda og í
heimaleiknum 1967 yröi þaö stórt
skref í þátt aó koma FH áfram í
Evrópukeppninni. Þaö væri stór
rós í hnappagat islensks hand-
knattleiks ef islensku félagsliöi
tækist aó slá þrautþjálfaöra at-
vinnumenn eöa hermenn frá Aust-
ur-Evrópu út úr Evrópukeppninni.
Forsala á leikinn hefst í Hafnar-
firöi á föstudaginn kl.
17.00—19.00. í íþróttahúsinu viö
Strandgötu og i Kaupfélaginu viö
Miövang. Forsölu veröur haldiö
áfram á laugardag milli kl.
15.00—18.00 í íþróttahúsinu við
Strandgötu.
Miöasala hefst í Laugardalshöll
á sunnudag kl. 18.00.
i