Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
MorgunblaÖið/Júlíus
Fluttir burt með krana
MJÖG HARÐUR árekstur varð síðdegis f gær á mótum Bergstaða-
strætis og Bragagötu. Lentu þar saman jeppi og fólksbíll með þeim
afleiðingum, að jeppinn valt og lagöist nær saman. Fólksbfllinn
skemmdist minna en báðir bflarnir voru fluttir á brott með krana.
Ökumaður annars var fluttur á slysadeild. Um meiðsli hans var ekki
gjörla vitaö í gærkvöld.
Aðalfundur LÍÚ:
300 milljónir til húsbyggj-
enda í byrjun desember
Húsbyggjendur, sem hafa beðið
eftir lánum sínum frá húsnæðis-
málastjórn, fá lán sín loks borguð
fljótlega eftir mánaðamótin. „Það
hefur verið fundin lausn á þessu
máli — 300 milljónir króna hafa ver-
ið útvegaðar til að borga lántakend-
um í næsta mánuði samkvæmt venju
þar um,“ sagði Alexander Stefáns-
son, félagsmálaráðherra, f samtali
við blm. Morgunblaðsins í gær.
„Það verður gefin út um þetta til-
kynning á mánudaginn."
Félagsmálaráðherra sagði að
útborganir á lánum hefðu dregist
úr hömlu vegna fjárskorts stofn-
unarinnar og eins þess, að miklu
fleiri umsóknir höfðu borist en ráð
hafði verið fyrir gert. „Við erum
komnir langt fram yfir lánsfjárlög
en það varð einfaldlega að finna
flöt á málinu — stofnunin hafði
gefið út vottorð um lánshæfni
ÍSLENZKA karlasveitin á Ólympíu-
skákmótinu í Saloniki í Grikklandi
tefldi í gær við Tékka. Helgi Ólafs-
son tefldi við Hort og eftir biðstöðu
sigraði Helgi Hort. Islenzka sveitin
mun líklega mæta Ungverjum á
morgun.
eignanna, fólk hafði treyst því og
tekið á sig skuldbindingar," sagði
Alexander. „Flestir fá úrlausn i
desember."
Á öðru borði tefldi Margeir
Pétursson við Smejkal og endaði
skákin i jafntefli. Á þriðja borði
tefldi Jóhann Hjartarson við
Ftatnik, þar blasti við jafntefli,
þegar skákin fór i bið. Karl
Þorsteins tefldi á fjórða borði
gegn Mokry. Eftir timahrak
mátti Karl gefast upp, þegar
skákin var að fara i bið.
Ólympíuskákmótið f Grikklandi:
Helgi vann Hort
Leggur til aflamark til
eins árs í stað tveggja
Á AÐALFUNDI LÍÚ, sem lauk í
Reykjavik f gær, var samþykkt með
87 % atkvæða gegn 17% að mæla með
því að fiskveiðum á næsta ári verði
stjórnað á hliðstæðan hátt og á þessu
ári. Hins vegar var felld tillaga þess
efnis að aflamarkið verði látið gilda
til tveggja ára í stað eins. Svipuð
ályktun var samþykkt á Fiskiþingi í
upphafl þessa mánaðar. Þá sam-
þykkti aðalfundurinn að álíka afla-
marki og gildir í ár yrði úthhitað á því
næsta.
Afkoma útgerðarinnar var eitt
helzta umræðuefni aðalfundarins
og urðu um það efni harðar deilur,
einkum hvað varðaði sérstaka
fyrirgreiðslu við þau skip, sem nýj-
ust eru í flotanum og skuldaaukn-
ing vegna gengisfellinga hefði bitn-
að mest á. Tillaga þess efnis frá
Krístjáni Pálssyni frá ólafsvik var
felld með miklum meirihluta og
boðaði hann ásamt Þorsteini Jó-
hannessyni, Garði, Herði Pálssyni,
Keflavík og Jóni Magnússyni, Pat-
reksfirði, til sérstaks fundar vegna
þess máls að loknum aðalafundin-
um.
Á aðalfundinum voru samþykkt-
ar eftirfarandi leiðir til að tryggja
rekstrargrundvöll útgerðarinnar:
• Áð fiskverð hækki verulega frá
þvi sem nú er.
• Raunvextir lækki stórlega frá
því sem nú er enda er sjávarútveg-
urinn engan veginn i stakk búinn
til að mæta síhækkandi raunvöxt-
um þar sem rekstrargrundvöllur
atvinnugreinarinnar hefur ekki
verið tryggður. Fundurinn fagnar
því, að Fiskveiðasjóður hefur lækk-
að vexti af stofnlánum og sam-
ræmt lánakjör og gengisáhættu
lána sjóðsins.
• Olíuverði verði haldið í lág-
marki, útgerðir njóti stórviðskipta
sinna í lægra olíuverði og allar
opinberar álögur á oliuverð verði
afnumdar. Ennfremur krefst fund-
urinn þess að endurskoðun á verð-
lagningu olíuvara verði flýtt og það
haft að leiðarljósi að sú endurskoð-
un leiði til verðsamkeppni milli
söluaðilanna.
• Fundurinn fer fram á við stjórn-
völd að útgerðin fái i sinn hlut
þann hluta gengismunar, sem felst
í því hráefni, sem lá í fiskbirgðum í
landinu við siðustu gengisfellingu, í
stað þess að láta bankana hirða
hann að stórum hluta. Á undan-
förnum mánuðum hefur myndast
verulegur halli á innkaupa-
jöfnunarreikningi oliu. Fundurinn
leggur til að gengismun verði með-
al annars varið til að greiða þann
hluta á halla innkaupajöfnunar-
reikningsins, sem kominn er til
vegna útgerðar.
• Gengi verði skráð þannig að vel
rekin fyrirtæki í sjávarútvegi hafi
eðlilegan rekstrargrundvöll.
• Geti ríkisvaldið ekki tryggt út-
veginum viðunnandi rekstrar-
grundvöll meðal annars með fram-
angreindum lagfæringum, telur
fundurinn eðlilegt að gjaldeyris-
verslun verði gefin frjáls, þannig
TVEIR piltar um tvítugt voru hand-
teknir í Reykjavík laust eftir hádegi á
fímmtudag og viðurkenndu þeir við
yflrheyrslur, að hafa hótað að
sprengja begningarhúsið við Skóla-
vörðustíg í loft upp. Báðir hafa veríð í
haldi þar I húsinu vegna þjófnaðar-
brota.
Það var aðfaranótt sl. mánudags,
að maður hringdi til lögreglunnar i
að þeir, sem gjaldeyris afla, geti
notið fulls arðs af starfsemi sinni.
• Þá beindi fundurinn því til
stjórnar samtakanna að þegar nýtt
fiskverð liggi fyrir verði tekin af-
staða til þess hvort unnt sé að
halda áfram útgerð á grundvelli
þess fiskverðs og hugsanlegra
ráðstafana í kjölfar þess.
Kristján Ragnarsson var endur-
kjörinn formaður LÍÚ án mót-
framboðs.
Reykjavik og tilkynnti að sprengju
hefði verið komið fyrir í hegn-
ingarhúsinu og að sprengjan myndi
springa eftir eina klukkustund. Leit
var þegar gerð í húsinu en ekkert
fannst þar.
Svo vildi til, að lögreglumaður á
Miðborgarstöð lögreglunnar hafði
þessa nótt séð til tveggja „góðkunn-
ingja lögreglunnar* i simaklefa þar
Samkvæmt upplýsingum kunn-
áttumanna i skák, er það mjög
góður árangur íslenzku sveitar-
innar að ná jafntefli við tékkn-
esku stórmeistarasveitina, þar
sem hún vann silfurverðlaun á
síðasta Olympiuskákmóti, sem
haldið var i Luzern í Sviss fyrir
tveimur árum. í dag tefla Islend-
ingar við Ungverja.
Staðan er mjög óljós á mótinu
vegna biðskáka, en íslendingar
eru í 5. sæti. Það má teljast til
tíðinda í þessari umferð i gær, að
líkur benda til að brezka sveitin
sigri sovézku sveitina.
íslenzka kvennasveitin tefldi
við Spánverja í gær og hlaut að-
eins hálfan vinning á móti tveim-
ur og hálfum vinningi spönsku
stúlknanna.
við húsið og þegar símtalið hafði
verið rakið i klefann lögðu menn
saman tvo og tvo. Leit var gerð að
piltunum og var annar þeirra hand-
tekinn á heimili sinu upp úr hádegi
á fimmtudag. Við yfirheyrslur ját-
aði hann aðild sína að málinu og
var hinn handtekinn i framhaldi af
því, skv. upplýsingum lögreglunnar
í Reykjavik. Piltarnir voru látnir
lausir í gær.
Hótuðu að sprengja upp Hegningarhúsið:
Símtalið rakið í símaklefa
við lögreglustöðina
Nýstárleg landssöfnun hafin:
Þjóðin sameinist um að gefa
Hallgrímskirkju orgel
— sem verði höfuðprýði kirkjunnar og þjóðar-
stolt, að sögn forsvarsmanna söfnunarinnar
„ÞESSARI söfnun er hrint af stað meó það markmið fyrír augum að sameina
þjóðina um að gefa Hallgrimskirkju orgel, sem benni hæfir og yrði höfuð-
prýði hennar og þjóðarstolt," sagði Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri, m.a. á
fundi með fréttamönnum þar sem kynnt var nýstárleg söfnun, sem nú er
hafin fyrir orgeli í Hallgrímskirkju. Ingólfur er einn af flmm einstaklingum,
sem eiga frumkvæði að þessari söfnun, ásamt dr. Sigurbirni Einarssyni
biskup, Guðrúnu Helgadóttur alþingismanni, Knut Ödegárd forstjóra Nor-
ræna hússins og Salome Þorkelsdóttur alþingismanni.
Söfnunin verður með þvi sniði,
að áhugamenn um þetta málefni
skora hver á annan um framlag að
upphæð krónur 1.000 eða meira.
Söfnunin er þvi keðjuverkandi og
til að greiða fyrir framkvæmd
verður starfrækt skrifstofa fyrir
sjóðinn í Hallgrímskirkju og má
koma framlögum til sjóðsins beint
þangaö, auk þess sem skrifstofan
sendir giróseðla til þeirra er tekið
hafa áskorun. Áhugamenn um
söfnunina þurfa þó ekki að biða
eftir áskorun heldur geta tilkynnt
stuðning sinn á skrifstofu sjóðs-
ins. Nöfn gefenda verða birt viku-
lega i dagblöðum, nema nafn-
leyndar sé óskað og getur því öll
þjóðin fylgst með framvindu söfn-
unarinnar. Jafnframt verða nöfn
gefenda og framlög færð i sér-
staka skrautbundna bók, sem
varðveitt verður i kirkjunni um
ókomna tíð.
Knut ödegaard, forstjóri Nor-
ræna hússins, átti hugmyndina að
þessari söfnun og kvaðst hann
hafa gert það sem áhugamaður
um íslenska menningu, auk þess
sem hann liti á það sem eitt af
sínum hlutverkum i starfi for-
stjóra Norræna hússins að vinna
fyrir islenskt menningarlíf. Dr.
Sigurbjörn Einarsson biskup
sagði að Hallgrimskirkja væri
þjóðarhelgidómur Islands og með-
al annars reist með það fyrir aug-
um að styrkja samband listar og
kirkju. Hún væri helguð minningu
eins mesta listamanns, sem þjóðin
hefur átt. Sakir stærðar og yfir-
bragðs væri hún ágætlega til þess
fallin að verða musteri göfugrar
tónlistar og skila stórbrotnustu
kirkjutónsmiðum. En forsenda
þess væri þó, að hún ætti eins full-
komið orgel og völ er á og einmitt
þess vegna hefði þessari söfnun
HorgunbUMS/RAX
Forvígismenn söfnunarinnar, frá vinstri dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup,
Ingólfur Guóbrandsson, forstjóri, Guðrún Helgadóttir, alþingismaóur og
Knut Ddegaard skáld og forstjóri Norræna hússins.
hrint í framkvæmd.
Ingólfur Guðbrandsson tók i
sama streng og sagði m.a. að ís-
lendingar hefðu reist Hallgríms-
kirkju í minningu Hallgrims Pét-
urssonar og væri hún eins og
Passíusálmarnir eign þjóðarinnar
allrar og sameiningartákn. „Tak-
ist vel til með lokafrágang Hall-
grímskirkju standa vonir til að
hún verði jafnframt musteri æðri
tónlistar á heimsmælikvarða, þar
sem hin fegursta lofgerð í tónum
mun hljóma um aldir. Auk góðs
hljómburðar er vandað orgel ein
af frumforsendum þess að sá
draumur rætist,“ sagði Ingólfur. I
þessu sambandi má einnig geta