Morgunblaðið - 24.11.1984, Blaðsíða 48
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
tttttmÞIafrife JÉ
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI, SIMI 11633
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Framfærsluvísitalan:
Mælir 13
til 16%
verðbólgu-
hraða
KAUPLAGSNEFND hefur reiknað út
vísitöhi framfcrslukostnaöar midao
Tið verðlag f nóvemberbyrjun. Reynd-
ist hún ven 112 stig, hafoi hiekkað
um 1,28% frá október og 3,03% frá
ágúst Haekkunin frá október sýnir
16,5% verðbólguhraða á 12 mánaða
tímabili en hiekkun vísitölunnar sl.
þrjá mánnði sýnir 12,7% verðbólgu-
hraða i 12 manaða tímabili.
í fréttatilkynningu frá Hagstofu
ísiands segir að hækkun vísitölunn-
ar á milli október og nóvember stafi
af hækkun húsnæðisliðs vísitölunn-
ar (0,3%), af hækkun ýmissa þjón-
ustuliða (0,5%) og af hækkun ým-
issa vöruliða (0,5%).
Víkingar
sigruðu
VÍKINGUR sigraði spinska lið-
ið Coronas í Evrópukeppni bik-
arhafa í handknattieik í gær-
kveldi með 28 mörktim gegn 21.
í hálfleik var staðan 15 mörk
gegn 10, Víkingum í vil.
Að sögn fréttamanns Morg-
unblaðsins, sem var viðstadd-
ur leikinn, voru Víkingar
áberandi betri, en leikurinn
fór fram í Tenerife á Kanarí-
eyjum.
Eftir þennan sigur eiga
Vfkingar góða möguleika á að
komast áfram í keppninni, en
síðari leikur liðanna verður á
sunnudagskvöld.
Sji nánar i síðu 47.
Háhyrningar til Brasilíu
Morgunblaðið/Bjarni Eirfksaon.
Tveir hahyrningar fóru í gcr með Boeing 737-þotu Arnarflugs fri Kefla-
vík til Frankfurt, en þaðan fara þeir með Lufthansavél til Sao Paulo í
Brasilíu, þar sem þeir veroa fyrstu hvalir til sýnis í sædýrasafni í S-Amer-
íku. Háhyrningarnir eru karl- og kvenkyns, u.þ.b. þriggja til fjogurra ira
og er hvor um sig rúmt tonn að þyngd. Þeir voru veiddir fyrir um iri og
hafa verið síðan í Sædýrasafninu f Hafnarfirði. Hér er verið að flytja
háhyrningana um borð, en þotan var sérstaklega leigð til þessara flutn
inga.
Áhríf olíuverðshækkunar á rekstrarafkomu útgerðan
Eykur útgjöld útgerð-
ar um 400 milljónir kr.
— Hugmyndir uppi á LÍU-þingi um stofnun olíufélags útgerðarmanna
HÆKKUN gasolíu um 20%og svart-
olíu um 28% befur í f»r með sér 400
mjlljóna króna útgjaMaaukningu
Uglan af EMborginni er hin vinalegasta við matmóður sína, Hildi Metus-
alemsdottur. Nokkuð er þó kvartað yfir matvendninni í henni, hún fulsar
við flestu ððru en hrirri kindalifur, en Hildur bauð henni einmitt upp i
uppálialdsniatinn þegar stilla þurfti upp fyrir Ijósmyndun. Ævar.
Með uglu í brúnni
MirMi, 22. aireaber.
SKIPVERJAR i Eldborginni fengu óvenjulegan gest í heimsókn' er þeir
voru i loðnuveiðum norður í höfum. Var þetta ugla sem eitthvað virtist
anu að. Handsömuðu þeir ugluna og kom í Ijós að hún var með feiti í
nðrinu.
Var hún hjá þeim í brúnni í
besta yfirlæti og undi sér bara
vel. Þeir lönduðu aflanum á Eski-
firði eins og þeir hafa oftast gert
í haust og komu uglunni í land til
konu skipstjórans, Hildi Metúsal-
emsdóttur, og hefur uglan verið
þar í fóstri í nokkra daga. Þetta
er sennilega brandugla og ætlar
Hildur að koma henni til fugla-
fræðings til hreinsunar á fiðrinu.
Heldur borðar uglan lítið það er
helst að hún borði hráa kindalif-
ur. Hún er orðin gæf en þegar
ókunnugir nálgast hana skellir
hún í góm og hvæsir. — Ævar.
fyrir útgerðina, að sogn Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LÍÚ. A ao-
alfundi LÍÚ, sem stóð yfir í gær, var
samþykkt að mótmæla hækkun
þessari harðlega og beina því til full-
trúa LÍÚ í verðlagsriði sjivarút-
vegsins að samþykkja ekki fiskverð,
nema tryggt verði, að það standi
undir þessum kostnaðarauka.
Miklar umræður urðu á aðal-
fundinum um olíuverð og kom þar
meðal annars fram hugmynd um
oliufélag útgerðarmanna, „OLÍÚ".
Á fundinum var tillögu frá Emil
Thorarensen á Eskifirði þess efnis
visað frá, en hann sagði, að út-
gerðin hefði ekki lengur efni á því,
að halda uppi þremur olíuforstjór-
um. Rétt væri að sameina oliufé-
lögin í eitt, hugsanlega með yfir-
stjórn LÍÚ. Eins og málum væri
nú háttað væru nánast i hverju
þorpi ein kirkja, skóli, félagsheim-
ili og þrjár olíustöðvar. Það gæti
ekki verið þörf fyrir þær allar.
Einar Kristinsson frá Keflavík
sagði, að rétt væri að stefna að því
að stofna olíufélag útgerðar-
manna. Misvitrir stjórnmálamenn
hefðu hingað til og ennþá skellt
skuldinni á stöðu útgerðarinnar,
bæði með ákvörðunum um stjórn-
un, gengisfellingum og ýmiskonar
hagsmunapoti. Nú væri staða út-
gerðarinnar þannig, að gripu út-
gerðarmenn ekki í taumana, kæm-
ist hún á vonarvöl. Það yrði að
koma í veg fyrir að útgerðarmenn
yrðu hengdir í stað stjórnmála-
mannanna', sem bæru alla ábyrgð-
ina.
Bensín og olía hækka í dag:
Hækka um 13 til 28 %
— Bensínlítrinn kostar 25,80 kr.
Á FUNDI verðlagsriðs í gær var samþykkt að heimiia hækkun i bensíni,
gasolíu og svartolíu í dag. Bensínlítrinn kostar nú 25,80 krónur, hækkaði um
13,6% Gasolían hækkaði um 20,2% og svartolían 28,4% Hækkanirnar voru
samþykktar með 5 atkvæðum gegn 3. Fulltroar ASÍ og BSRB í riðinu
greiddu atkvæði gegn hækkununum.
Fyrir verðlagsráði hefur um
tíma legið beiðni olíufélaganna
um hækkun á bensínlítranum úr
22,70 í 27,10 kr., eða um 19,4%.
Samþykkt var að heimila hækkun
í 25,80 kr. eða um 13,6%. Olíufé-
iögin fóru fram á hækkun gasolíu-
lítrans úr 8,90 í 12,40 kr. eða um
39,3% en samþykkt var að heimila
þeim að hækka gasoliulítrann í
10,70 kr. eða um 20,2%. Þá óskuðu
olíufélögin eftir að fá að hækka
svartolíu úr 8.100 kr. í 12.000 kr.
hvert tonn eða um 48,1% en verð-
lagsráð heimilaði þeim hækkun í
10.400 kr. eða um 28,4%.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
sagði í samtali við blaðamann
Mbl. í gær að meginástæða þess-
arar hækkunar bensín- og olíu-
verðs væri hækkun Bandaríkja-
dollars, hann hefði hækkað um
35% siðan bensín- og olíuverð
hefði síðast verið ákveðið. Sagði
hann að mismunur á beiðni olíufé-
laganna og verðlagsráðs fælist
fyrst og fremst í þvf að verðlags-
ráð gerði ráð fyrir hægari endur-
greiðslu þess halla sem er á svo-
kölluðum innkaupajöfnunarreikn-
ingi olíufélaganna. Oliufélögin
hefðu í áætlunum sínum miðað við
að hallinn yrði jafnaður á 3 mán-
uðum en verðlagsráð hefði lengt
þann tíma i 9 til 10 mánuði. Þá
sagði Georg að álagning olíufélag-
anna á bensín og olíu hefði verið
skert nokkuð eða um það bil 20
aura á hvern bensin- og gasolíu-
lítra.