Morgunblaðið - 24.11.1984, Síða 48
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SiMI 11633
HIEKKURIHBMSKEDJU
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
wmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmw^m
Framfærsluvísitalan:
Mælir 13
til 16%
verðbólgu-
hraða
KAUPLAGSNEFND befur reiknað út
vúritölu framfærslukostnaðar miðað
Tið verðlag í nóvemberbyrjun. Reynd-
ist hún vera 112 stíg, hafði hækkað
um 1,28% frú október og 3,03% frá
ágúst Hækkunin frá október sýnir
16,5% verðbólguhraða á 12 mánaða
tímabili en hækkun vísitölunnar sl.
þrjá mánnði sýnir 12,7% verðbólgu-
hraða á 12 mánaða tímabili.
1 fréttatilkynningu frá Hagstofu
íslands segir að hækkun vísitölunn-
ar á milli október og nóvember stafí
af hækkun húsnæðisliðs vísitólunn-
ar (0,3%), af hækkun ýmissa þjón-
ustuliða (0,5%) og af hækkun ým-
issa vöruliða (0,5%).
Háhyrningar til Brasilíu
Morgunblaðið/Bjarni Eirfksson
Tveir háhyrningar fóru í gær með Boeing 737-þotu Arnarflugs frá Kefla-
vík til Frankfurt, en þaðan fara þeir með Lufthansavél tíl Sao Paulo í
Brasilíu, þar sem þeir verða fyrstu hvalir til sýnis í sædýrasafni í S-Amer-
íku. Háhyrningarnir eru karl- og kvenkyns, u.þ.b. þriggja til fjögurra ára
og er hvor um sig rúmt tonn að þyngd. Þeir voru veiddir fyrir um ári og
hafa verið síðan í Sædýrasafninu f Hafnarfírði. Hér er verið að fíytja
háhyrningana um borð, en þotan var sérstaklega leigð til þessara fíutn-
inga.
Víkingar
sigruðu
VÍKINGUK sigraði spánska lið-
ið Coronas í Evrópukeppni bik-
arhafa f handknattleik í gær-
kveldi með 28 mörkum gegn 21.
í hálfíeik var staðan 15 mörk
gegn 10, Víkingum í vil.
Að sögn fréttamanns Morg-
unblaðsins, sem var viðstadd-
ur leikinn, voru Víkingar
áberandi betri, en leikurinn
fór fram í Tenerife á Kanarí-
eyjum.
Eftir þennan sigur eiga
Víkingar góða möguleika á að
komast áfram í keppninni, en
sfðari leikur liðanna verður á
sunnudagskvöld.
Sjá nánar á síðu 47.
Uglan mf Eldborginni er hin vinalegasta við matmóður sfna, Hildi Metús-
alemsdóttur. Nokkuð er þó kvartað yfir matvendninni í henni, hún fúlsar
við flestu öðru en hrárri kindalifur, en Hildur bauð henni einmitt upp á
uppáhaldsmatinn þegar stilla þurfti upp fyrir Ijósmyndun. Ævar.
Með uglu í brúnni
KmmrM, 22. aiveaiber.
SKIPVERJAR á Eldborginni fengu óvenjulegan gest í heimsókn er þeir
vorn á loðnuveiðum norður í höfum. Var þetta ugla sem eitthvað virtist
ama að. Handsömuðu þeir ugluna og kom í Ijós að hún var með feiti f
fiðrinu.
Var hún hjá þeim í brúnni f er sennilega brandugla og ætlar
besta yfirlæti og undi sér bara Hildur að koma henni til fugla-
vel. Þeir lönduðu aflanum á Eski- fræðings til hreinsunar á fiðrinu.
firði eins og þeir hafa oftast gert Heldur borðar uglan lítið það er
f haust og komu uglunni í land til helst að hún borði hráa kindalif-
konu skipstjórans, Hildi Metúsal- ur. Hún er orðin gæf en þegar
emsdóttur, og hefur uglan verið ókunnugir nálgast hana skellir
þar í fóstri í nokkra daga. Þetta hún í góm og hvæsir. — Ævar.
Hækka um 13 til 28%
Bensrn og olía hækka í dag:
— Bensínlítrinn kostar 25,80 kr.
Á FUNDI verðlagsráðs í gær var samþykkt að heimila hækkun á bensíni,
gasolíu og svartolíu í dag. Bensínlítrinn kostar nú 25,80 krónur, hækkaði um
13,6%. Gasolían hækkaði um 20,2% og svartolían 28,4% Hækkanirnar voru
samþykktar með 5 atkvæðum gegn 3. Fulltrúar ASÍ og BSRB í ráðinu
greiddu atkvæði gegn hækkununum.
Fyrir verðlagsráði hefur um
tíma legið beiðni olíufélaganna
um hækkun á bensínlítranum úr
22.70 í 27,10 kr., eða um 19,4%.
Samþykkt var að heimila hækkun
í 25,80 kr. eða um 13,6%. Olíufé-
lögin fóru fram á hækkun gasolíu-
lítrans úr 8,90 í 12,40 kr. eða um
39,3% en samþykkt var að heimila
þeim að hækka gasolíulítrann í
10.70 kr. eða um 20,2%. Þá óskuðu
olíufélögin eftir að fá að hækka
svartolíu úr 8.100 kr. í 12.000 kr.
hvert tonn eða um 48,1% en verð-
lagsráð heimilaði þeim hækkun í
10.400 kr. eða um 28,4%.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
sagði í samtali við blaðamann
Mbl. í gær að meginástæða þess-
arar hækkunar bensín- og olíu-
verðs væri hækkun Bandaríkja-
dollars, hann hefði hækkað um
35% síðan bensín- og olíuverð
hefði siöast verið ákveðið. Sagði
hann að mismunur á beiðni olíufé-
laganna og verðlagsráðs fælist
fyrst og fremst í því að verðlags-
ráð gerði ráð fyrir hægari endur-
greiðslu þess halla sem er á svo-
kölluðum innkaupajöfnunarreikn-
ingi olíufélaganna. Olíufélögin
hefðu í áætlunum sínum miðað við
að hallinn yrði jafnaður á 3 mán-
uðum en verðlagsráð hefði lengt
þann tíma í 9 til 10 mánuði. Þá
sagði Georg að álagning olíufélag-
anna á bensín og olíu hefði verið
skert nokkuð eða um það bil 20
aura á hvern bensín- og gasolíu-
lítra.
Ahríf olíuveröshækkunar á rekstrarafkomu útgerðar:
ar um 400 milljónir kr.
— Hugmyndir uppi á LÍU-þingi um stofnun olíufélags útgerðarmanna
HÆKKUN gasolíu um 20 % og svart-
olíu um 28% hefur í för með sér 400
milljóna króna útgjaldaaukningu
fyrir útgerðina, að sögn Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LÍÚ. Á að-
alfundi LÍÚ, sem stóð yfír í gær, var
samþykkt að mótmæla hækkun
þessari harðlega og beina því til full-
trúa LÍÚ I verðlagsráði sjávarút-
vegsins að samþykkja ekki fiskverð,
nema tryggt verði, að það standi
undir þessum kostnaðarauka.
Miklar umræður urðu á aðal-
fundinum um olíuverð og kom þar
meðal annars fram hugmynd um
olíufélag útgerðarmanna, „OLlÚ“.
Á fundinum var tillögu frá Emil
Thorarensen á Eskifirði þess efnis
vísað frá, en hann sagði, að út-
gerðin hefði ekki lengur efni á því,
að halda uppi þremur olíuforstjór-
um. Rétt væri að sameina olíufé-
lögin í eitt, hugsanlega með yfir-
stjórn LÍÚ. Eins og málum væri
nú háttað væru nánast í hverju
þorpi ein kirkja, skóli, félagsheim-
ili og þrjár olíustöðvar. Það gæti
ekki verið þörf fyrir þær allar.
Einar Kristinsson frá Keflavík
sagði, að rétt væri að stefna að því
að stofna olíufélag útgerðar-
manna. Misvitrir stjórnmálamenn
hefðu hingað til og ennþá skellt
skuldinni á stöðu útgerðarinnar,
bæði með ákvörðunum um stjórn-
un, gengisfellingum og ýmiskonar
hagsmunapoti. Nú væri staða út-
gerðarinnar þannig, að gripu út-
gerðarmenn ekki í taumana, kæm-
ist hún á vonarvöl. Það yrði að
koma í veg fyrir að útgerðarmenn
yrðu hengdir f stað stjórnmála-
mannanná, sem bæru alla ábyrgð-
ina.
Eykur útgjöld útgerð-