Morgunblaðið - 24.11.1984, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
Riddarar
hring-
borðsins
Það var sannarlega ánægjulegt
að sjá framan í blessaða alþingis-
mennina og ráðherrana, á
fimmtudagskvöldið var. Það er
allt annað líf að hafa mennina
fyrir framan sig í stofunni, en að
hlusta á rödd þeirra í útvarpinu.
Tel ég að fyrrgreindar sjónvarps-
umræður frá Alþingi þar sem
fjallað var um stefnuræðu forsæt-
isráðherra, séu mikilsverður
áfangi í átt að virku lýðræði á Is-
landi. Hér fær þjóðin, beint í æð,
ef svo má segja, hin ólíku sjónar-
mið er endurspegla þann vilja er
liggur væntanlega að baki kjöri
alþingismanna. Er alveg bráð-
nauðsynlegt, að hin marglitu sjón-
armið, er ríkja í sölum hins háa
Alþingis, fái þannig notið sín við
og við í áhrifamesta fjölmiðli
lands vors. Hvurnig á annars, aö
nást trúnaðarsamband, milli
hinna þjóðkjörnu fulltrúa og lýðs-
ins? Kjósendur verða að þekkja
svolítið til þeirra manna, er fara
með löggjafar og framkvæmda-
vald í landi voru, og þeirra stefnu-
miða er þeir bera fyrir brjósti
hverju sinni. Sjónvarpið er býsna
áleitinn miðiil, er dregur í senn
fram veikleika og styrk, hvers
ræðumanns, og því kjörinn vett-
vangur lýðræðislegrar umræðu.
Sumt sat eftir
Nóg um það. Daginn eftir slíkar
umræður er orðavaðallin að mestu
gleymdur, og steinkassinn við
Austurvöll aftur orðinn að leynd-
ardómsfullu musteri hinna inn-
vígðu. Þó sátu nokkrar setningar
eftir í huga mér, þá ég át grautinn
út í almenningi, morguninn eftir
stefnuræðuna. Minnist ég sérstak-
lega, orðræðu ungs alþingis-
manns, er Kristófer Már Krist-
insson heitir. Kannski vegna þess
að þessi ungi maður var með
slaufu, en allir hinir með bindi.
Nei, það var ekki bara slaufan sem
vakti áhuga minn á þessum ræðu-
manni. Hann fór nýjar leiðir i
málflutningi og beitti að auki
fyrir sig fáguðu og næsta skáld-
legu tungutaki. Minntist varla á
efnahagsörðugleikana, en gaf þess
í stað heldur ókræsilega mynd af
stjórnarkerfi landsins. Hélt Krist-
ófer Már því fram, að embættis-
menn hérlendir, störfuðu I anda
dönsku embættismannastéttar-
innar, er hér réði rikjum áður
fyrr. Og ekki nóg með það, að emb-
ættismennirnir væru nánast
steingervingar, stjórnmálamenn-
irnir væru svo hugmyndasnauðir,
að þeir fetuðu hugsunarlaust þá
slóð sem vörðuð er „niðurstöðum"
úr smiðju embættismanna þeirra
er nú smíða sér virki við Arnarhól.
Virkisstjórarnir
Var raunar áberandi meðal
þeirra þingmanna, er tóku til máls
í fyrrgreindum umræðum um
stefnuræðuna, andúð í garð virkis-
stjóranna við Arnarhól. Töldu
ýmsir þingmenn að oddviti ríkis-
valdsins væri nánast „fjarstýrður"
af riddaranum í „svarta kastalan-
um“. Segiði svo að við lifum í lit-
lausri tölvuöld. Aldeilis ekki.
Hvítu riddararnir í Alþingishús-
inu eiga í stríði við svarta riddara
í mikilfenglegum köstulum er
bankar nefnast. Stigamenn hafa
hreiðrað um sig í bensínstöðvum
og verslunarhöllum að mati þess-
ara „hvítu riddara" á sama tíma
og lýðurinn fer blysfarir til að
mótmæla aðför drekans eldspú-
andi. Ævintýrið fannst mér full-
komnað, er blakkhærð álfakona
skaust uppí ræðustólinn og „svei-
aði“ drekanum mikla. Hefðu verið
gustuk að rétta henni kúst að svífa
á, yfir verðbólgubálið útifyrir.
Ólafur M
Johannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Tónlistar-
krossgátan
Jón Gröndal
1 K00 verður með
A O þátt sinn,
Tónlistarkrossgátuna, á
dagskrá Rásar 2 á morgun
kl. 15. í þætti Jóns gefst
hlustendum kostur á að
spreyta sig. Ef þeim tekst
að finna réttu svörin, þá
sendi þeir lausnirnar til
Ríkisútvarpsins, Rás 2,
Hvassaleiti 60, 108
Reykjavík, merktar
„Tónlistarkrossgátan".
MEGAS
■ í kvöld sýnir
10 sjónvarpið
ldukkustund-
arlagan þátt, sem tekinn
var upp á söngskemmtun
Megasar i Austurbæjar-
bíói hinn 9. þessa mánað-
ar
Megas var mikið á
sjónarsviðinu fyrir nokkr-
um árum, en dró sig í hlé
og hætti alveg að koma
fram opinberlega. Hann
kom síðan aftur fram sem
söngvari og lagasmiður
þegar hann söng með
Bubba Morthens lagið
Fatlafól og hefur starfað
nokkuð með hljómsveit-
inni Ikraus. A söng-
skemmtuninni í Austur-
bæjarbiói flytur Megas
gömul lög sin og ný, t.d.
Paradísarfuglinn og
Krókódílamanninn, ásamt
mörgum öðrum. Honum
til aðstoðar eru nokkrir
tónlistarmenn. Upptöku
þáttarins stjórnaði Viðar
Víkingsson.
Elliott Gould, sem leikur einn bandarisku berlæknanna i kvikmyndinni MAA*S*H,
gerir bér tilraun til að snaeða með prjónum. Kóresk ungfrú fylgist með af kostgæfni.
ÚTVARP
Good-hjónin, Tom og Barbara.
í sælureit
I kvöld verður
OA 40 sýndur þriðji
þáttur breska
gamanmyndaflokksins
um Good-hjónin, sem
breyta um lifsstil og hefja
búskap i bakgarðinum. í
síðasta þætti bauð yfir-
maður Toms honum að
koma aftur til vinnu hjá
fyrirtækinu, sem fram-
leiðir plastdýr til að setja
i kornflögupakka. Tom
var ekki á þeim buxunum,
enda eru hann og eigin-
kona hans sannfærð um
að hægt sé að lifa á eigin
framleiðslu. Þau hafa nú
fengið sér hænsni, en þeg-
ar Tom ætlaði að fórna
einu þeirra i kvöldmatinn,
þá tókst ekki betur til en
svo, að skotið úr skamm-
byssunni hæfði ekki og
þau hjónin urðu að láta
sér nægja að skipta á
milli sín einu eggi. Fram-
leiðsla smjörs úr geita-
mjólk tókst ekki heldur
sem skyldi og endaði með
að geitin fékk framleiðslu
sina til baka. En i kvöld
fáum við að sjá hvernig
búskapurinn gengur.
M-A-S-H
WB Kvikmynd
00 sjónvarpsins í
kvöld er banda-
risk gamanmynd frá 1970.
Hún fjallar um nokkra
herlækna, sem starfa á
neyðarspítala Banda-
ríkjahers skammt frá
viglínunni i Kóreu-
stríðinu. Læknar þessir
líta á stríðið sem
stundarbrjálsemi og haga
sér eftir þvi. Sjónvarpið
hefur áður sýnt allmarga
sjónvarpsþætti úr sam-
nefndum gamanmynda-
flokki, en þættir þessir
hafa verið svo lengi á
dagskrá bandarískra
sjónvarpsstöðva, að sumir
segja að lengd þeirra sé
þrisvar sinnum meiri en
lengd Kóreustriðsins
sjálfs. Með aðalhlutverk i
myndinni fara Elliott
Gould, Donald Suther-
land, Tom Skerritt, Sally
Kellerman og fleiri, en
þýðingu annaðist Þrándur
Thoroddsen.
LAUGARDAGUR
1. desember
720 Veöurfregnir. Fréttlr.
Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og
kynnir. 7.25 Leikfimi. Tón-
leikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurtregnir.
Morgunorö: — Halla Kjart-
ansdóttir talar.
IJ0 Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9J0 Oskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir (10.00
Fréttir. 10.10 Veöurtregnir.)
Oskalög sjúklinga, frh.
11.00 Stúdentamessa I kapellu
Háskóla Islands. Séra Sig-
uröur Siguröarson sóknar-
prestur á Setfossi þjónar fyrir
altari. Haraldur M. Krist-
jánsson stud. theol predik-
ar. Organleikari: Jón Stef-
ánsson.
12.00 Dagskrá. Tónlelkar. Til-
kynningar.
12- 20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
teikar
13- 40 fþróttaþáttur. Umsjón:
Hermann Gunnarsson.
1400 „Frelsi, jöfnuöur og rétt-
læti“, hátiöardagskró 1. des-
ember I Fétagssstofnun stúd-
enta. Hallfrlöur Þórarins-
dóttir stúdent setur hótlöina.
Háskólakórinn flytur kafta úr
Sóleyjarkvæöi Jóhannesar
úr Kötlum viö tónllst Péturs
Pálssonar. Ogmundur Jón-
asson fréttamaöur ftytur há-
tlöarræöu. Strengjasveit frá
Tónlistarskólanum I Reykja-
vlk leikur. Stúdentaleikhúsið
ftytur leikþátt. Séra Baldur
Kristjánsson talar. Vlsnavinir
syngja og leika.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
1820 Islenskt mál. Jón Hilmar
Jónsson flytur þáttinn.
1620 Bókaþáttur. Umsjón:
Njöröur P. Njarövlk.
16.00 Hildur
Fjórði þéttur. Endursýning
Dönskunámskeiö I tlu þátt-
um.
1620 Iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
1820 Bróöir minn Ljónshjarta.
Þriöji þáttur.
Sænskur framhaldsmynda-
flokkur I fimm þáttum, gerö-
ur eftir sðgu Astrid Lindgren.
Þýöandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
1920 Fréttaágrip á táknmáii
20.00 Fréttir og veöur
2020 Auglýsingar og dagskrá
2040 I sælureit
Þriöji þáttur.
Breskur gamanmyndaflokk-
ur I sjö þáttum.
17.10 Islensk tónlist. a. „Minni
Islands", forleikur op. 9 eftlr
Jón Leifs. Sinfónluhljómsveit
Islands leikur, William
Strickland stj. b. „Alþingis-
hátföarkantata 1930" eftir
Pál (sólfsson. Guömundur
Jónsson, Þorsteinn 0.
Stephensen, Karlakórinn
Fóstbræður, Söngsveitin
Fllharmónla og Sinfónlu-
hljómsveit Islands flytja;
Róbert A. Ottósson stj. c.
Lög úr „Pilti og stúlku" eftir
Þýöandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.10 Megas
Frá söngskemmtun I Austur-
bæjarbiói föstudaginn 9.
þessa mánaöar.
Upptöku stjórnaöi Viöar Vlk-
ingsson.
22.10 Nýtt úr heimi tlskunnar
Þýskur sjónvarpsþáttur
Nokkrir þekktustu tfskuhönn-
uöir I Parfs sýna haust- og
vetrartlskuna I ár.
Þýöandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
23.00 Spltalallf
(M*A*S*H)
Bandarlsk gamanmynd frá
1970.
Leikstjóri Robert Altman.
Emil Thoroddsen. Sinfónlu-
hljómsveit Islands leikur; Páll
P. Pálsson stj.
1820 Tilkynningar
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
1920 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
1925 Veistu svarið? Umsjón:
Unnur Ólafsdóttir. Dómari:
Hrafnhildur Jónsdóttir.
(RÚVAK.)
2020 Utvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson. Gunnar Stefáns-
Aöalhlutverk Donald Suther-
land, Elliott Gould, Tom
Skerritt, Sally Kellerman,
Robert Duvall, Jo Ann Pflug,
Gary Burghof og René Au-
berjonois.
A neyöarspitala Bandarlkja-
hers, skammt frá vlgllnunni I
Kóreustrlðinu. starfa nokkrlr
herlæknar sem llta á strlöiö
sem stundarbrjálsemi og
haga oröum slnum og gerö-
um samkvæmt þvl.
Sjónvarpiö hefur áöur sýnt
allmarga þættl úr samnefnd-
um gamanmyndaflokki sem
geröur var I framhaldi þess-
arar biómyndar.
Þýöandi Þrándur Thor-
oddsen.
0025 Dagskrárlok.
son les þýöingu Freysteins
Gunnarssonar (7).
2020 Harmonikuþáttur. Um-
sjón: Bjarni Marteinsson.
2020 Minningar frá 1. desem-
ber 1918. Séra Jón Skagan
flytur..
21.10 „Safnaö I handraöann"
Guörún Guðlaugsdóttir talar
viö Ftagnar Borg myntfræö-
ing.
2120 Kvöldtónleikar. Þættlr úr
slgildum tónverkum.
22.15 Veðurfregnlr. Fréttlr.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
„Svo margt veltur á
rauðum hjólbörum".
Dagskrá um William Carlos
Willams. Ilf hans og Ijóð. Arni
Ibsen tekur saman og þýöir.
Flytjandi ásamt honum Viöar
Eggertsson.
23.15 Operettutónllst.
2420 Miönæturtónleikar.
0020 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RAS 2 til kl.
3.00.
RÁS 2
LAUGARDAGUR
24. nóvember
24.00—00.50 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
0020—0320 Næturvaktin
Stjórnandi: Kristln Björg
Þorsteinsdóttir.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá I Rás 2
um allt land.)
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
24. nóvember