Morgunblaðið - 24.11.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
27
um NORDIU
Enn
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
I síðasta þætti, 9. þ.m., var
byrjað að segja frá NORDIU 84.
Verður nú haldið áfram, þar sem
frá var horfið, en eins og áður
einungis stiklað á aðalatriðum.
Gullverðlaun fengu sex sýn-
endur, og var þeirra getið sér-
staklega síðast. Gyllt silfur
(vermeil) fengu 36, silfur 41, silf-
urbrons 36 og brons 18 sýnendur.
Alls urðu verðlaunin 137. Ekki er
ástæða til að rekja þetta nánar,
því að áhugasamir lesendur ættu
að útvega sér kynningarrit
NORDIU 84 (palmarés), þegar
það kemur út. Þar má fræðast
um þetta allt. Engu að siður geri
ég hér eina undantekningu og vil
víkja nokkrum orðum að þjóð-
legu deild NORDIU 84, en þar
voru sýnd íslenzk söfn með
margs konar efni.
Þar fékk safn Ebbe Eldrups
frá Danmörku hæstu verðlaun,
eins og greint var frá í fyrri
þætti, fyrir ísland 1827—1919.
Annar danskur maður, Orla
Nielsen, fékk syllt silfur fyrir ís-
land 1847—1933. Báðir þessir
menn eru mjög áhugasamir fs-
landssafnarar og eiga skemmti-
leg söfn með fallegu efni. Eink-
um er safn Eldrups mjög gott,
enda hefur hann m.a. lagt
áherzlu á að eignast gömul bréf.
Þriðji Daninn í hópi íslands-
safnara sýndi hér einnig. Var
það Torben Jensen. Hann hefur
aðallega beint áhuga sínum að
frímerkjum með mynd Kristjáns
konungs X. Hér valdi hann úr
yfirprentuð merki úr seriu kon-
ungs með afbrigðum og eins á
umslögum og bréfsnyfsum, þar
sem sjá mátti rétt burðargjald.
Fyrir þetta safn hlaut hann silf-
ur. Fjórði Daninn í hópnum var
Ole Svinth. Hann hefur einkum
sótzt eftir erlendum stimplum á
íslenzkum frímerkjum. A hann
mjög gott safn þess konar
stimpla. Á NORDIU 84 sýndi
hann stimpla frá Edinborg,
Björgvin og Kaupmannahöfn og
fékk silfurverðlaun fyrir.
Sænskur safnari, Ingvar And-
ersson frá Gautaborg, sem oft
hefur sýnt hér á landi, átti á
NORDIU 84 skemmtilegt safn af
elztu stimplum fyrir 1893, bæði á
stökum merkjum, bréfsnyfsum
og á umslögum. Er margt af
þessu efni hans nauðasjaldgæft.
Fyrir það fékk hann silfur, en að
auki heiðursverðlaun úr kera-
miki frá Gliti. Bandaríkjamaður,
George Sickels, sem er góðkunn-
ingi margra safnara hér heima,
eins og raunar allir áðurnefndir
íslandssafnarar, sýndi mjög sér-
stætt safn bréfa frá hernáms-
veldunum á íslandi 1940—45.
Bréfin eða umslögin eru sýnis-
horn frá herpóststöðvum víða
um land. Er margt af þessu efni
geysifágætt, eins og gefur að
skilja. Sickels fékk silfur fyrir
þetta safn og að auki heiðurs-
verðlaun, sem Olíufélagið Skelj-
ungur gaf, útskorinn ask eftir
Svein Ólafsson.
Þá er komið að þeim íslenzku
söfnurum, sem þátt tóku í þjóð-
legu deildinni. Ekki er við því að
búast, að þeir standi erlendum
söfnurum almennt á sporði.
Engu að síður sækja þeir stöðugt
í sig veðrið og söfn margra eru í
góðri framför. Þar tek ég alveg
sérstaklega til stimplasafn
Hjalta Jóhannessonar, enda þótt
hann fengi ekki nema silfur-
brons fyrir það á NORDIU 84.
Að mínum dómi er þetta sérlega
skemmtilegt safn, en uppsetning
mætti sums staðar vera betri og
texti mun styttri og áferðarbetri
en hann er. Ekki kæmi mér á
óvart, að Hjalti fengi fljótlega
silfur fyrir safnið, enda þarf hér
ekki nema herzlumun til.
Safn Sigurðar Þormars af ís-
lenzkum brúarstimplum er
geysimikið að vöxtum, enda
sýndi hann það hér í tvennu lagi
eða alls í 15 römmum. Til dóms
var þeim slegið í eitt, og fyrir
það fékk Sigurður silfur. Má
hann una mjög vel við þann dóm,
þvi að enn er fullmikið af „fíla-
telískum hlutum i safni hans,
þótt það hafi tekið miklum
stakkaskiptum frá í fyrra. Hér á
ég að sjálfsögðu við auðsæjan
tilbúning, einvörðungu gerðan
til þess að ná i stimpla frá fá-
förnum stöðum og afskekktum
84
póststöðvum. Allt um það verður
ekki fram hjá því gengið, að
stimplarnir eru ekta, þ.e. frá
réttum tíma. Eins má gjarnan
spyrja sjálfan sig, hvernig átti
að vera hægt að ná í stimpil frá
mjög afskekktri póststöð í fá-
mennri sveit nema bera sig eftir
„björginþi" sjálfur? Þetta skildi
Bíó-Petdrsen mjög vel á sínum
tíma, enda þótt margir safnarar
„fussi og sveii“ yfir þessu „pró-
dúkti“ hans. En hvað um það.
Umslög til hans eru nú víða í
söfnum manna, enda er örugg-
lega oft erfitt að sneiða hjá
þeim, þegar sýna þarf fágæta
stimpla. En sé þess nokkur kost-
ur, er vissulega bezt að forðast
þau og taka í staðinn örugg
notkunarbréf.
Jón Halldórsson sýndi enn 20
aurana sína með Safnahúsinu
frá 1925 með margvíslegum
stimplum og oft á heilum bréf-
um. Er ótrúlegt, hversu miklu
hann hefur náð saman og enn er
safnið í vexti. Fyrir það fékk Jón
silfurbrons. Jón hefur einnig
safnað íslenzkum bréfspjöldum
og átti hér fimn. ramma með
þeim. Þetta safn hans hlaut
brons.
Guðmundur Ingimundarson
sýndi hluta af mjög skemmtilegu
safni með póststimplum frá
Vestmannaeyjum. Er hér um að
ræða svonefnt átthagasafn, en
vitaskuld hlýtur því ævinlega að
verða þröngur stakkur skorinn,
þar sem það er bundið við eina
póststöð og þá stimpla, sem hún
hefur notað frá 1873. Það hlýtur
t.d. að vera mun auðveldara að
koma sér upp sæmilega fjöl-
breyttu átthagasafni úr einni
j ÍSLAND 650
sýslu, þar sem póststöðvar eru
eða hafa verið margar. Þrátt
fyrir þetta hefur Guðmundi tek-
izt að ná saman glettilega góðu
safni. Svo er það góðs viti, að það
er í stöðugri framför. Safnið var
hér í fjórum römmum og hlaut
bronsverðlaun. Að mínum dómi
er þessi átthagasöfnun anzi
skemmtileg tilbreyting frá
venjulegri frimerkjasöfnun og á
vafalaust eftir að aukast her á
landi, svo sem hefur orðið raunin
á í nágrannalöndum okkar.
Um NORDIU 84 má skrifa
langt mál, því að þar var margt
að skoða. Hætt er samt við, að
löng upptalning efnis yrði þreyt-
andi og missti raunar marks, þar
eð sjón er alltaf sögu ríkari. Um
fjölbreytni efnis og dóm dóm-
nefndar verður að vísa til sýn-
ingarskrár og væntanlegs loka-
rits NORDIU 84.
Fjögur frímerki 29. þ.m.
Síðustu frímerki íslenzku
póststjórnarinnar á þessu ári
koma út næsta fimmtudag. í til-
; önítinuíítnWjfi
• 1**4 / 14*4
ISi.AND 650
Suðurnesjabúar
Stofnfundur Rauöakrossdeilda á Suöur-
nesjum veröur haldinn í fundarsal Verka-
lýös- og sjómannafélags Keflavíkur, Hafn-
argötu 80, laugardaginn 24. nóvember kl.
14.00.
Rauöi kross íslands
Akureyri:
Kynning á samvinnuvörum
Á TÍU ára afmæli Landssambands íslenskra samvinnustarfsmanna á siðasta ári
var ákveðið að gangast fyrir kynningum
starfsmannafélaga samvinnufyrirtækja.
Fyrsta kynningin verður (dag og á
morgun í Félagsborg, samkomusal
Verksmiðja Sambandsins á Akur-
eyri, kynningin er frá kl. 14 til 18.
Aðgangur er ókeypis og öllum heim-
ill. Kynntar verða vörur frá Ullar-
verksmiðjunni Gefjun, Skinnaverk-
smiðjunni Iðunni, föt og skór frá
á íslenskum samvinnuvörum á vegum
ACT, vörur frá Mjólkursamlagi
KEA, Brauðgerð KEA, Kjötiðnað-
arstöð KEA, Efnagerðinni Flóru og
Efnaverksmiðjunni Sjöfn. Einnig
munu Samvinnutryggingar og hús-
næðissamvinnufélagið Búseti kynna
starfsemi sína.
(FréttatUkyaaiaf)
kynningu hennar er fyrst getið
tveggja jólafrímerkja, sem AI-
freð Flóki hefur teiknað. Eru
þau „sólprentuð" í Sviss. Á öðru
þeirra (600) er guðsmóðir með
barnið, en á hinu (650) er engill
með jólarós. „Myndirnar lýsa
helgi jólanna og túlka sígildan
boðskap þeirra,“ eins og segir í
tilkynningunni. Þetta eru fjórðu
jólin, sem íslenzk jólafrímerki
koma út, svo að trúlega verða
þau árviss atburður um næstu
framtíð. Ég tel því sjálfsagt, að
póststjórnin láti þau ævinlega
verða síðustu merki hvers árs.
Svo er þó ekki að þessu sinni
samkv. röðinni. Þar koma tvö
frímerki til að minnast 400 ára
afmælis Guðbrandsbiblíu. Raun-
ar hefðu þau átt að koma út á
liðnu sumri, því að prentun bibl-
íu Guðbrands biskups Þorláks-
sonar á Hólum, sem tekið hafði
tvö ár, lauk 6. júní 1584. Um
Guðbrand biskup er óþarft að
fjölyrða, en óhætt er að fullyrða,
að útgáfa biblíunnar og Nýja
testamentis Odds Gottskálks-
sonar 1540 hefur skipt sköpum í
sögu íslenzkrar tungu og þjóðar-
innar allrar. Er því ekki ófyrir-
synju, að islenzka póststjórnin
minnist fyrstu bibliuútgáfu
okkar á íslenzku með frímerkj-
um. Þröstur Magnússon teiknaði
þessi merki, en þau eru prentuð
með djúpprentun í Frakklandi.
Myndefnið er að sjálfsögðu sótt í
bibliuna. Má á öðru þeirra (650)
sjá upphaf af annarri bók Móse,
þar sem er upphafsstafur, skor-
inn út af biskupi eins og annað
skraut bókarinnar. A hinu
merkinu (750) er hluti af titil-
blaði biblfunnar.
Dagur frímerkisins 1984
verður haldinn 6. des. nk. Þann
dag verða sérstakir dagstimplar
í notkun á pósthúsunum í
Reykjavík og Ákureyri. Reynt
verður að segja nokkru nánar
frá þessum degi í þætti að viku
liðinni.
GENGIS-
SKRÁNING
NR.226
23. nóvember 1984
Kr. Kr. ToU-
Ein. KL 09.15 K*np Snb ge»gi
IDollari 39,410 39420 39300
1 SLpund 48427 48,461 49,096
1 Kin. doUari 29,912 29,995 29360
1 Dönsk kr. 3,6318 3,6420 3,6352
INorskkr. 44030 44155 44211
IScnskkr. 44693 44820 44211
lFLBirk 64630 64805 64900
1 Fr. franki 44738 44858 44831
1 Bd*. franki 0,6503 0,6521 0,6520
1S». franki 15,7969 153409 15,9193
1 HolL gyllini 11,6168 11,6492 11,6583
1 V+. nurk 13,1061 13,1427 13,1460
1ÍL Ura 042107 0,02113 0,02117
1 Anstnrr. sch. 14656 13708 13701
I Port encndo 04425 04432 04433
1 Sp. peseti 04337 04344 04350
1 Jap. yeo 0,16143 0,16188 0,16140
1 írafct pnnd 40,711 40324 40313
SDR. (SérsC
dnttarr.) 39,1893 394991
Betg.fr. 0,6474 0,6492
afslóttui d húsgögnum
I tileíni 1 árs afmœlis verslunarinnar veitum við
20% aímœlisafslátt á öllum vörum okkar fram til
mánaðamóta. Látið ekki happ úr hendi sleppa.
á>etrtó
Auðbrekka 9, Kópavogi,
sími 46460.