Morgunblaðið - 24.11.1984, Page 30

Morgunblaðið - 24.11.1984, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 Minning: Guðný Magnúsdóttir frá Ivarshúsum Kveðja frá Kvenfélagi Akraness „Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sin úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er.“ V.B. í dag kveðjum við kvenfélags- konur á Akranesi mætan félaga, Guðnýju Magnúsdóttur, sem lést 18. nóvember sl. Langri ævi er lokið. Miklu dags- verki skilað, þegar líkamsþróttur- inn dvinar er hvíldin kærkomin. Hún var fædd að Iðunnarstöð- um í Lundarreykjadal 27. október 1902. Þar ólst hún upp í stórum systkinahóp, en lengst af átti hún heima i ívarshúsum á Akranesi. Hún var góðum gáfum gædd, fróð- leiksfús, glaðlynd og dugnaðar- forkur til allra starfa. Hún var ein af stofnendum Kvenfélags Akra- ness og bar hag félagsins mjög fyrir brjósti. Sýndi hún það i verki við ýmis tækifæri. Á 50 ára afmæli félagsins, sem haldið var 19. júni 1976, var Guðný kjörin heiðursfélagi þess, ásamt 6 öðrum stofnendum. Það var lítill vottur virðingar og þakklætis fyrir langt og fórnfúst starf. í þeim fagnaði færði dóttursonur hennar, Vignir Jóhannsson, kven- félaginu í afmælisgjöf listaverk eftir sig. Það er varðveitt og til sýnis i bókasafninu á Akranesi. Þar er einnig að finna mikið safn íslenskra steina, sem ein af dætr- um Guðnýjar hefur safnað og gef- ið Akranesbæ. Ung að árum gekk hún að eiga dugnaðar- og greindarmanninn, Guðbjarna Sigmundsson. Brúð- kaup þeirra var haldið á Jóns- messu, þegar sól hverfur ekki af himni, og ég held að eins hafi líf þeirra verið, þótt stundum hafi syrt, þá birti upp og hamingjusól þeirra yljaði þeim í meir en 60 ára sambúð. Þau hjón áttu miklu barnaláni að fagna. Börnin þeirra níu bera þess vott að Guðný var mikil og góð móðir. Heimilið var henni heilagt. Þann reit ræktaði hún vel og hlúði þar að öllum gróðri, með sinum mjúku móður höndum. Ég minnist 60 ára hjúskapar- afmælis þeirra hjóna. Þar var saman kominn stór og görvulegur hópur afkomenda þeirra og tengdabarna. Þar ríkti mikil gleði og hamingja, en glöðust allra voru þó demantsbrúðhjónin síungu, með bros á vör og glampa i augum. Á þeim degi gátu þau svo sannar- lega fagnað miklu og gifturíku ævistarfi. Nú hafa klukkurnar kallað. Fögru lífi er lokið. Komin er kveðjustund. Kvenfélag Akraness þakkar af alhug, Guðnýju Magn- úsdóttur, samfylgdina og störfin i þágu félagsins. Við biðjum Guð að blessa minningu hennar. Ástvin- um hennar, barnahópnum stóra og eiginmanninum aldna, vottum við innilega samúð. Anna Erlendsdóttir. Fyrir nær 63 árum flutti piltur utan af Akranesi unnustu sina unga frá Borgarfirði til síns heimabæjar. Brúðkaup þeirra var haldið á fögrum vordegi á Jóns- messu og var það upphafið að ein- staklega farsælu hjónabandi er þau nutu i 62 ár. Brúðurin unga var Guðný Magnúsdóttir frá Fossatúni í Bæj- arsveit, en hún lést á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 18. nóvember eftir erfiða sjúkdómslegu. Guðný fæddist að Iðunnarstöð- um i Lundarreykjadal 27. október árið 1902. Var hún ein 9 barna hjónanna Elísabetar Gisladóttur og Magnúsar Gunnlaugssonar sem þar bjuggu. Vegna veikinda á heimilinu var henni komið fyrir, þriggja mánaða gamalli, i Fossa- túni hjá föðurbróður sínum Sveinbirni Gunnlaugssyni og konu hans Guðrúnu Ingimundardóttur. Hjá þeim dvaldi hún til þriggja Hann Mundi er dáinn. Við vinir hans höfum margt að minnast, það hrúgast upp i hugann ótal margt á langri leið. Fyrstu kynni mín af Munda, eins og hann var oftast kallaður var þegar hann giftist móðursystur minni, Stein- unni Sigurbjörnsdóttur kaupfé- iagsstjóra í Grímsey. Voru hennar ára aldurs er hún fór aftur til for- eldra sinna. Hún festi ekki yndi þar og fór aftur að Fossatúni 5 ára gömul, ólst hún þar upp til fullorð- insára. Ung kynntist Guðný pilti utan af Skaga sem var í kaupavinnu á næsta bæ. Felldu þau hugi saman og með honum flytur hún til Akraness sem varð hennar heima- bær upp frá því. Pilturinn var Guðbjarni Sigmundsson tengda- faðir minn. Það voru hamingju- söm ung hjón og bjartsýn sem hófu búskap i ívarshúsum árið 1922. Akranes var á þeim tíma dæmi- gert sjávarpláss við Faxaflóa. 1 þá daga var fiskileysi í flóanum og fóru karlmenn í ver til Sandgerðis og dvöldu þar á vetrarvertíð. Eig- inkonur voru heima og önnuðust börn og sinntu búsmala. Sennilega hefur lif eiginkvenna i fátæku sjávarþorpi verið eitt hið erfiðasta hér á landi og þó hefur saga þeirra sjaldan verið sögð. Vegna fjarvista eiginmanna kom í þeirra hlut að sinna störfum heima við. Þær lærðu að treysta á eigin dómgreind og voru því marg- ar sjálfstæðari i orðum og athöfn- um en konur eru jafnvel enn í dag. Fiskur gekk i Faxaflóa á ný um miðjan þriðja áratuginn. Þá var róið úr heimahöfn og fiskur verkaður af heimamönnum. Eftir 1930 komu kreppuárin, þá kom at- vinnuleysið og fiskileysi. Var þetta ástand viðloðandi fram að stríðsárum. Á þessum árum voru fjöiskyldur barnmargar og lá mikil ábyrgð á herðum húsmóðurinnar. Þær sáu um fjármál heimilisins og réðst afkoma heimilisins af hagsýni þeirra. Verkaskipting hjóna var skýr og má segja að konur nytu fullrar viðurkenningar fyrir sinn hlut heima fyrir. Uppeldi barna var í þeirra höndum. Flestir höfðu einhverjar skepnur og þegar hús- bændur fóru á síldveiðar fyrir norðan, sem var algengt, þá var það eiginkvenna að sjá um hey- skapinn. Kartöflurækt í hinum víðfeðmu sendnu görðum var nauðsynleg til tekjuöflunar fyrir stórar fjölskyldur. Við það unnu ættingjar ávallt velkomnir á þeirra heimili hvort var á Akur- eyrL í Reykjavík eða úti í Gríms- ey. Utför Guðmundar fer þar fram á morgun, sunnudag. Ég sendi Steinu og Hafliða, syni þeirra, mínar samúðar kveðjur. Skjöldur Þorgrímsson. allir smáir og stórir. Klæðnað á fjölskylduna þurfti að sauma, við- gerðir tóku einnig drjúgan tíma. Allt var gjörnýtt. Haustverk voru tímafrek, en erfiðastir þóttu þvottarnir. Litið hefur verið á þessi kvenna- störf sem sjálfsögð og næsta lítils virðT En þau hafa öðru fremur styrkt undirstöður þjóðfélagsins, því mæður okkar hafa viðhaldið hefðum sem er dýrmæt menning- ararfleifð, rætur þjóðarinnar. Störf þessi öll vann tengdamóð- ir mín svo vel að aðdáun vakti í þorpinu. Hún var fríð kona, glað- lynd og ætíð mjög jákvæð og í full- komnu andlegu jafnvægi. Fremur var hún lágvaxin, grönn lengst af og létt og snör í hreyfingum. Hún var mjög starfsöm kona og hafði frábæra skipulagshæfileika og vannst því allt vel. Börnin hjálpuðu til við störfin eftir því sem þau höfðu getu til. Þau fengu öll eitt ákveðið starfssvið, en hún gætti þess vel að þeim væri ekki ofgert. Ætíð fann hún tíma til lesturs góðra bóka og var því vel lesin og einstaklega fróð. Hún sagði oft, að sín heitasta ósk hefði verið að menntast. En hún var, vegna sinna góðu gáfna og sí- felldrar þekkingarleitar, fjöl- menntuð kona. Trúuð kona var hún alla tíð og bar mikla umhyggju fyrir þeim sem erfitt áttu. Hún hafði einnig mjög ákveðnar skoðanir á stjórn- málum og fylgdi öðrum stjórn- málaflokki en bóndi hennar. Þótti sumum það næst goðgá. Stjórnmál voru ekki ágreiningsmál á heimil- inu, þó man ég að hún svaraði bónda sínum eitt sinn: „Það er þin skoðun góði minn, min skoðun er önnur." Þannig var málið útrætt. Guðný tók einnig mikinn þátt i félagsmálum og var virkur félagi í Kvenfélagi Akraness. í ívarshús- um var alltaf mjög gestkvæmt og hafði tengdamóðir min alltaf tíma fyrir gesti sína. Þaðan fór enginn án þess að hafa þegið veitingar. Þær hafa löngum vakið undrun og aðdáun samferðamanna þessar konur sem ætíð finna tima frá störfum sinum til að sinna hugð- armálum sínum. Það er þó aðeins á síðustu timum að mönnum hefur loks orðið ljóst, að þarna eru kon- ur með fágæta stjórnunarhæfi- leika. Sömu hæfileika og þarf til að reka stórfyrirtæki. — Það gætu þessar konur gert með sömu ágæt- um og karlar. Þennan aðdáunarverða hæfi- leika hafa börn Guðnýjar erft i ríkum mæli og reyndar ekki að- eins frá móður heldur einnig frá föður sínum. Þau hjónin Guðný og Guðbjarni voru sístarfandi og voru samhent við aðhlynningu barna sinna. Þau voru mjög sam- rýnd og var mikið ástríki á milli þeirra. Hann var ætíð pilturinn hennar og hún stúlkan hans. Þessi voru gæluorð þeirra til hvors ann- ars alla tið. Þau eignuðust 11 börn, af þeim létust tvær dætur ungar úr skæðri barnaveiki með aðeins 10 daga millibili. Níu börn komust til full- orðins ára. Sveinn giftur Gyðu Páisdóttur, Guðrún Fjóla gift Jó- hannesi Guðjónssyni, Vigdis gift Jóhanni Bogasyni, Lilja gift Jóni Hallgrimssyni, Erna gift Magnúsi ólafssyni, Sigmundur giftur Mar- gréti Þorvaldsdóttur, Sveinbjörn giftur Sigriði Magnúsdóttur, Sturla giftur Sjöfn Pálsdóttur og Hannesína gift Eggerti Steinþórs- syni. Einnig var fóstursystir Guð- bjarna, Jónína Guðvarðardóttir, hjá þeim í heimili til fullorðins- ára. Hún er gift Þórði Hjálmssyni. Guðný og Guðbjarni unnu hörð- um höndum við að koma börnum sinum til manns og veittu þeim stuðning til þess sem hugur þeirra stefndi til. Þau nutu líka ríkulega umhyggju barna sinna og afkom- enda. Guðný naut góðrar heilsu fram á síðasta ár. Hún átti góða ævi og hamingjurika en oft erfiða. Ástar og virðingar naut hún i ríkum mæli frá eiginmanni, börn- um og afkomendum. Við eigum henni öll svo margt að þakka, og eru henni innilega þakklát fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Margrét Þorvaldsdóttir t Faöir okkar, HARALDUR Þ. RICHTER, Sólbargi vió Langholtavag, sföast vistmaöur á Hvítabandinu, lést I Landspitalanum 23. nóvember. Sofffa E. Richtar, Samúel Richter, Sigurjón Richter. t Eiginkona min og móöir okkar, SVANHILDUR ÓSK TORFADÓTTIR, Melgeröi 35, Kópavogi, lést i Landspitalanum aö morgni 22. nóvember. Sverrir Sigurjónsson, Quórún Linda Sverrisdóttir, Sverrir Már Sverrisson, Margrát Grímsdóttir. t Faöir mlnn, KRISTJÁN SIGURDSSON, Blönduhlíö 10, lést I Borgarspitalanum C.Ö morgni 23. nóvember. Svala Kriatjánsdóttir. t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, RÓ8U GUÐMUNDSDÓTTUR, Þinghólsbraut 34, Kópavogi. Anna R. Jónatansdóttir, Vernharöur Aöalsteinason, Guömundur Jónatansson, Maria Guömundsdóttir, Helgi Jónatansson, Þorgerður Einarsdóttír og barnabörn hinnar látnu. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. I minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Innllegustu þakklr fyrir samúö og hlýhug vlö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa, SVEINS EINARSSONAR veiöistjóra. örn Sveinsson, Sigrfóur Sveinsdóttir, Valgeröur Sveinsdóttir, örlygur Sveinsson, Einar Sveinsson, Guörún Eggertsdóttir og barnabörn. Anna Júlíusdóttir, Jón Jóhannsson, Guöjón Tómasson, t Kveöjuathöfn um móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, STEFANÍU GUÐJÓN8DÓTTUR frá Litla-Vatnshorni, erlést 19. þ.m.,ferframfráFossvogsklrk)u kl. 10.30 f.h. mánudaginn 26. nóvember. Útför hennar veröur gerö frá Stóra-Vatnshornskirkju þriöjudaginn 27. nóvember kl. 14.00. Ragnheíóur Hannesdóttir, Ólafur Hannesson, Ása Gfsladóttir og barnabörn. Vfglundur Sigurjónsaon, Nanna Jónsdóttir, Guðmundur Jóns- son — Kveðja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.