Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 35
35 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 * Islenska hljómsveitin: „Tvennir tímar“ á tónleikum um helgina Þriðju og fjórðu tónleikarnir á þessu starfsári íslensku hljómsveit- arinnar verða á Akranesi og f Reykjavík um helgina. Sænski stjórnandinn Kurt Lewin stjórnar á báðum tónleikunum og er þetta í annað sinn, sem fslenska hljóm- sveitin nýtur liðsinnis hans. En Lew- in stjórnaði jólatónleikum hljóm- sveitarinnar í fyrra við afar góðar undirtcktir gagnrýnenda, að sögn aðstandenda hljómsveitarinnar. Einleikari á tónleikunum verður Sigurður Snorrason, klarinettleik- ari og einsöngvari John Speight. Efnisskrá tónleikanna ber yfir- skriftina „Tvennir tímar" og bygg- ir hún á germanskri tónlist, ann- ars vegar frá 19. öld, með tónlist eftir Mozart og Dimler. Hins veg- ar verður leikin tónlist, sem samin var upp úr aldamótunum 1900 og er þar um að ræða verk eftir Eisl- er og Distler. Jafnframt verða flutt á tónleik- unum sönglög eftir Jón Leifs, sem sjaldan hafa heyrst, en Jón Leifs Sigurður Snorrason var einmitt við nám og störf í Þyskalandi á þessum tíma. Fyrri tónleikarnir verða á Akranesi, laugardaginn 24. nóv. klukkan 14.30. og á sunnudaginn verður efnisskráin endurtekin i Bústaðakirkju í Reykjavík klukk- an 17.00. Eru það jafnframt aðrir áskriftartónleikar starfsárs ís- lensku hljómsveitarinnar, en í ár verða miðar að tónleikum hennar einnig seldir við innganginn, með- an húsrúm leyfir. John Speight Ein glæsilegasta hársnyrtistofa á Norðurlöndum tekur til starfa í Reykjavík! Villi rakari, sem þjónaö hefur höfuðborgarbúum árum saman á Miklubraut, hefur hvergi sparað við undirbúning nýju stofunnar sinnar. í Aristokratanum er allt á heimsmælikvarða. Innréttingarnar stórglæsilegar, aðstaða fyrir viðskiptavini fyrsta flokks, tækin þau allra nýjustu og bestu, snyrtivörurnar af hæsta gæðaflokki - og síðast en ekki síst er svo vinnan afbragðs vönduð. Allt er á heimsmælikvarða. í Aristokratanum er boðið uppá alla almenna þjónustu í sambandi við hársnyrtingu, t.d. klippingu, permanent, strípur, litun o.fl. - bæði fyrir karla og konur. Auk þess er sér aðstaða í Aristókratanum fyrir þá sem vilja kynna sér hártoppa. Yfir 14 ára reynsla aðstandenda Aristokratans í sölu og meðferð hártoppa er einstök á íslandi. Vinsamlega pantið tíma í síma 68 79 60 og komist að raun um hvernig hársnyrtistofur eiga að vera! i- Sóknarfélagar Skrifstofan veröur aö mestu lokuö 26.-30. nóvember. Viötalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstædisflokksins í Reykjavík Laugardaglnn 24. nóvember, fró kl. 10—12, veröa tll vlðtals Páll Gtslason formaður framkvæmdanefndar bygglnga f þógu aldraöra. Guömundur Hallvarösson varaformaöur f hafnarstjórn og Þórunn Gestsdóttlr f barnavemdamefnd. Bíddu! Ertu atvinnulaus eða óánægður í starfi þínu? Daglaun starfsmanna á olíupöllum eru til dæmis um U.S. $500.-. Hefur þú áhuga á aö vinna á erlendri grund? Okkur vantar fólk viö margskonar iðnaö, t.d. byggingariönaó, olíuiönaö, feröa- mannaiönaö. Einnig vantar fólk í garöyrkju, störf, á veitinga- hús, í heimilishjálp og viö aö hugsa um dýr. Lækna og kennara vantar einnig, t.d. í U.S.A., Canada, Hawaii, Vestur-lndium, Ástralíu, Austurlöndum fjær og í mörgum lönd- um Evrópu. Margar tegundir atvinnu krefjast ekki menntunar eöa kunn- áttu. Ef þú hefur áhuga á aö fá nánari upplýsingar, þá biðjum viö þig aö skrifa okkur bróf meö 50 íslenskum krónum hjálögö- um fyrir póstburðargjaldi. Einníg biöjum viö þig aö senda okkur aukaumslag meö nafninu þínu og heimilisfangi svo aö viö get- um veitt fljótari þjónustu. BENAXATINF0RMATI0N SERVICE Box 75,208 Vesterbrogade, DK-1800 Copenhagen V. Danmark. Vinsamlegast sendið mér _ stk. upplýsingabœkling. HARMONÍKUUNNENDUR Vetrarfagnaöur F.H.U. verður á Hótel Borg laug- ardagskvöldiö 24. nóv. frá kl. 9. Heimsóknir spil- ara frá landsbyggðinni, líf og fjör og rómantík, þaö er óumdeild ánægja þar sem harmoníkan skipar öndvegi. Allir velkomnir. Skemmtinefndin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.