Morgunblaðið - 24.11.1984, Side 36

Morgunblaðið - 24.11.1984, Side 36
36 fclk f fréttum MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 rSr, með lampann“ dæma var Florence ekki falleg kona, ósköp hvers- dagsleg í útliti þótt andlegt atgervi hennar hafi verið óvenjulegt. Þannig reyni ég líka að túlka hana,“ segir Jaclyn. Það eru Bretar sem standa að gerð myndarinn- ar, og leikarar þar í landi eru hinir æfustu yfir að bandarísk kona skuli vera fengin tii að leika Florence Nightingale, þá konu sem er enskust af öllum að und- anskilinni Viktoríu drottn- ingu. Jaclyn lætur það þó ekki á sig fá og segist bara vilja vara kollega sína i Englandi við því að gera sig hlægilega. Við upptökurnar notar Jaclyn engan farða og hárið er hnýtt í hnút í hnakkan- um. „Þegar sonur minn tveggja ára kom einu sinni með barnfóstrunni til að sjá upptökurnar horfði hann á mig undrandi og sagði svo: „Ég vil fara heim til réttu mömmu minnar". Kannski það bendi til að ég túlki hlutverkið rétt.“ Nú þegar Dynasty er komið á margar myndbandaleigur borgarinnar fannst „fólki í frétt- um“ ekki úr vegi að víkja svolítið að henni Krystle eða Lindu Evans sem fer með eitt af aðalhlutverk- unum t þeim þáttum. Þessa dag- ana hefur hún miklar áhyggjur af barnleysinu. Hún getur keypt flest allt sem hugur hennar girn- ist, en börn á hún engin, enn sem komið er og sér ekki fram á að eignast þau í náinni framtíð. Lindu finnst sem tíminn sé að hlaupa frá sér þvi nú er hún orðin fertug og ekki seinna vænna. Sag- an segir að fyrir hálfu ári hafi hún haldið að sá eini rétti væri kominn sem hún gæti eignast börn og buru með og það var Richard Chamberlain, en hann á að hafa hraðað sér í burtu þegar hún gaf það i skyn að hún vildi börn. Fylgdarsveinn hennar þessa dagana er pizzustaðaeig- andinn George Santo Pietro, en með honum vill hún ekki eignast afkomendur. Hún heldur þó ennþá i vonina að einn daginn komi sá rétti og hún geti hætt í Dyn- asty, lifað fyrir þann eina sanna og börnin. En það verður að vera á næstunni, annars er það ol seint, vill hún meina. Lina hefur verið gift tvisvar, fyrst John Der- ek og síðan Stan Herman, millj- ónamæringi nokkrum. Um þau hjónabönd segir hún að þá hafi hún aldrei þorað að verða ófrfsk og hjónaböndin hafi verið mistök. Hljómsveitin Hrím Hilmar J. Hauksson, Wilma Young og Matthías Kristiansen. HUÓMSVEITIN HRÍM „Konan Bandaríska leikkonan Jaclyn Smith, sem kunn er fyrir leik sinn í sjónvarpsflokknum „Charlies Angels", hefur nú verið valin til að fara með hlutverk annars engils i sjónvarpinu. Er þar um að ræða mynd um Florence Nightingale, „konuna með lampann“, sem fyrst varð til þess að líkna sjúkum mönnum og særðum á skipulegan og vísindalegan hátt. „Þetta er mjög erfitt hlutverk. Eftir myndum að Jadyn Smith — sjálfri sér lík og Florence Nightingale. Þjóðlög af ýmsum toga Mick Jagger leikur í Dallas Mick Jagger hefur fallist á að koma fram i nokkrum þáttum í „Dallas", sem nú hafa verið sýndir i Bandaríkjunum í nokkuð á fimmta ár. „Ég á hvorki að forfæra skóla- stúlkur né leika saklausan smalastrák," sagði Jagger, sem á að koma fram í gervi auðugs Englendings með krikket, golf og fagrar konur sem helstu áhugamálin. „Eg hef áður sýnt að ég er góður leikari," sagði Jagger ennfremur, en hann hefur komið fram í kúrekamynd sem heitir „Kelly-bræðurnir". LINDA EVANS EÐA KRYSTLE Bíður eftir þeim eina sanna Iklvj ar hljómsveitir spretta I ^lupp af og til, og oftar en ekki er um að ræða danshljóm- sveitir, sem flytja að mestu það sem tískan krefst og væntir hverju sinni. Stöku sinnum skýt- ur þó upp kolli eitthvað þessu frábrugðið, eitthvað sem ekki er bundið þungarokki tíðarandans. Hljómsveitin Hrim er af þessum toga og má kenna tónlist hennar við þjóðlagaflutning. Til að for- vitnast nokkuð nánar um upp- runa og viðfangsefni þeirra fé- laga sem þarna eru á ferðinni tók blm. tvo þeirra stuttu tali. Hvenær var þessi hljómsveit. stofnuð? „Hún varð til 1981 um haustið og upphaflega vorum við með- limirnir fimm talsins en erum þrjú sem stendur. Tónlistarstefnuna mörkuðum við í upphafi má segja og hún er að halda sig að mestu viðþjóðlög af ýmsum toga, frá írlandi, Skotlandi og Norðurlöndunum, en auk þess hefur sveitin haft á efnisskrá fjölda frumsaminna laga í anda þjóðlaga. Lögin og textarnir eru oftast eftir okkur Hilmar J. Hauksson og Matthías Kristiansen. Wilma Young sem er ættuð frá Hjaltlandseyjum þriðji meðlimur hljómsveitar- innar hefur einbeitt sér að því að leita að og finna erlend lög er hæfa okkur. Hafið þið leikið erlendis? Já, við fórum okkar fyrstu utanlandsferð árið 1982. Þá fór- um við til Grænlands á vegum Norræna félagsins til þess að taka þátt í hátíðahöldum vegna 1000 ára afmælis íslendinga- byggða þar. í október það sama ár var farið til Oslo og Gauta- borgar til að skemmta íslending- um og í mars 1983 til Stokk- hólms í sömu erindagjörðum. í lok júní ’83 fór hljómsveitin með m/s Eddu til Skotlands, þar sem hún tók þátt í mikilli þjóðlaga- hátíð í Glasgow. Að henni lok- inni héldum við til Danmerkur. í sumar fórum við til Glasgow og á þjóðlagahátíð til Finnlands. Þaðan lá leiðin aftur til Dan- merkur. í fyrravetur byrjaði Hrím að herja á Gauk á Stöng og Djúpið auk annarra staða hér f borg og nú spilum við reglulega á Gauknum og höfum einnig verið að leika á Hellinum. Við gáfum út plötuna Barnagull sem nú er uppseld og um næstu mánaða- mót kemur út ný hljómplata frá okkur „Möndlur" sem er þó ekki jólaplata eins og nafnið kann að gefa til kynna. A henni verða 16 lög, flest samin af okkur félög- um.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.