Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
37
Camillo Sesto sést iöulega f fylgd meö Audrey, en
sjálf segist hún ekkert vera á leiöinni aö altarinu.
Audrey ásamt Judy systur sinni og Ruth móöur
sinni sem studdi hana í gegnum árin í aö komast á
toppinn.
AFTON COOPER
ÚR DALLAS
Ákvað að verða fræg þriggja ára
Afton Cooper eöa Audrey Land-
ers ööru nafni.
Menn muna eflaust eftir Af-
ton Cooper unnustu Cliff
Barnes úr Dallas-þáttunum. Af-
ton heitir með réttu Audrey
Landers og hefur nú unnið sér
góðan orðstír sem söngkona.
Móðir hennar Ruth Landers
sagði í viðtali við blað nýlega að
þriggja ára hefði Audrey sagst
vilja verða fræg stjarna. Móðir
hennar ákvað að gera allt sem
hún gæti til að láta þann draum
rætast sem var í rauninni gam-
all draumur hennar líka. f dag
þegar Audrey og systir hennar
Judy eru báðar orðnar frægar er
móðirin Ruth framkvæmda-
stjóri þeirra. Ruth er austurrísk
og ól upp báðar dæturnar alein,
því að sögn móðurinnar hvarf
faðirinn einn daginn út um
dyrnar og hefur ekki látið sjá
sig síðan. Dagurinn gekk þannig
segir Ruth að eftir vinnu kom
hún heim, lék við telpurnar, lag-
aði mat og svæfði svo. Svo var
það er Audrey var tólf ára að
hún söng í sjónvarpinu með
skólanum sínum á The Merv
Griffin Show. Þaðan lá leiðin í
sjónvarpsþætti en svo kom þetta
koll af kolli, skólinn sat þó
framar öllu. Báðar segja þær
systur að þær hefðu aldrei náð
svona langt ef hjálp mömmunn-
ar hefði ekki komið til. En Au-
drey er ekki á þeim buxunum að
gifta sig strax, eða ekki fyrr en
ég er búin að þéna mér það
mikla peninga að ég þurfi ekki
að hafa áhyggjur af framtíðinni,
sagði hún.
SIGRÚN
STEINÞÓRSDÓTTIR
Þekkt
nafn í
norskri
veflist
Iktv’lega birtist viðtal við Sig-
I w-únu Steinþórsdóttur í
norsku blaði, þar sem rakinn er
listferill hennar. Hún hefur ver-
ið búsett í Noregi undanfarin ár.
Eftir að hafa verið skiptinemi í
Bandaríkjunum sem unglings-
stúlka, fór hún í heimsókn til
vinkonu sinnar í Rjukan, Nor-
egi, og kynntist þar núverandi
eiginmanni sínum, Bernt Eggen.
Sigrún opnaöi um miðjan
sjöunda áratuginn vefstofu í
Stafangri og í dag er Sigrún orð-
in eitt af þekktari nöfnum í
norskri veflist. Aðspurð hvort
hún saknaði íslands, sagði hún
að það væri margs að sakna og
segist alltaf fara heim af og til
því þaðan fái hún einnig andann
yfir sig. Hún er íslenskur ríkis-
borgari og viil ekki breyta því.
Hún segist vera glöð í Noregi, en
það sé þó ekki hennar fóstur-
jörð. Þó Sigrún vinni með vefn-
að, þá er hún hrifin af listmálun
og höggmyndalist og finnst gott
að vinna með tónlist. Umhverfið
og náttúran eru uppsprettan í
myndgerð hennar ekki síst það
sem í huganum býr frá íslandi.
Náttúran virkar mjög á samspil
lita í myndum hennar og sam-
skipti mannsins og náttúru er
mér óþrjótandi lind varðandi
efnistök segir Sigrún. ísland er
mér ætíð ofarlega í huga, lita-
dýrðin, jöklarnir og jarðmynd-
anir. Andans örvun sæki ég í
firði, fjöll, fjöru og haf. Ég
gleðst yfir því að geta búið í
nánd við hafið, segir Sigrún svo
að lokum.
COSPER
— Bfl, hvað ættum við svo sem með hann að gera?
Blaóburöarfólk
óskast!
í eftirtalin hverfi: Úthverfi
Skeifan og laegri Bleikjukvísl
tölur viö Grens- Kópavogur
®sve9- Álfhólsvegur frá
52 og Melaheiöi.
Fjölskyldutilboð í kvöld
\
Þúfærð.3.
fyrir
Súpa og þrjár safaríkar steikur
í einum og sama rétti.
Andasteik Orange
Lambakótilettur
Bergére
Bolangise Wellington.
Aðeins kr. 365.-
Börn innan 12 ára borðafrítt
með foreldrum.