Morgunblaðið - 25.11.1984, Page 3

Morgunblaðið - 25.11.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984 3 Orgel í Hallgrímskirkju: Vona að þessi fjársöfnun mæti víðtækum skilningi — segir dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup „HALLGRÍMSKIRKJA er þjóð- arhelgidómur íslands, helguð minningu eins mesta listamanns sem þjóðin hefur átt og reist með það í huga meðal annars, að styrkja samband listar og kirkju. Gn til að geta orðið must- eri göfugrar tónlistar og til að geta skilað stórbrotnustu kirkju- tónsmíðum þarf hún að eiga eins fullkomið orgel og völ er á,“ sagði dr. Sigurbjörn Einars- son, biskup, í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins, en dr. Sigurbjörn er einn af forvígis- mönnum þeirrar söfnunar, sem nú hefur verið hafin fyrir orgeli í þessa stærstu og glæsilegustu kirkju landsins. „Bygging Hallgrímskirkju er nú komin á lokastig og þá liggur fyrir að ganga frá innra búnaði hennar og tygja hana að öllu leyti til þess hlutverks, sem biður hennar,“ sagði dr. Sigurbjörn ennfremur. „Þar er einna efst á blaði að fá orgel til kirkjunnar, sem fylliiega samsvari stærð hennar og stöðu, sem þjóðarhelgidóms. Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup. Það er víst, að Hallgríms- kirkja verður ágætlega fallin til tónlistarflutnings og hún hefur fengið ungan og mjög færan organista, Hörð Askels- son, sem þegar hefur unnið stórvirki í söngmálum kirkj- unnar, við erfið ytri skilyrði. Hann er iíklegur til þess að laða aðra tónlistarmenn til samstarfs, sérstaklega kirkju- organista, en orgel Hallgríms- kirkju verður ekki einokað á neinn veg. Það á að veita öðr- um góðum organistum tæki- færi til listtjáningar auk þess sem Hallgrímskirkja verður kjörin til þess, að þar verði flutt mestu kirkjutónverk, sem til eru. Þau hafa mörg verið flutt hér á undanförnum árum, en höfuðborgin á ekkert hús, sem sé hæfileg umgjörð við túlkun slíkra verka eða geti skilað þeim nægilega vel. Ur þessu bætir Hallgríms- kirkja að því tilskildu, að þar sé hljóðfæri af fullkomnustu gerð. Þess vegna er full ástæða til að vona að þessi fjársöfnun mæti víðtækum skiiningi og hljóti góðar und- irtektir," sagði dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup. Þessi mynd er af nokkrum fjárveitinganefndarmönnum og starfsmönnum Reykjavíkurborgar í heimsókn f sjúkraþjálfun Borgarspítalans. Pálmi Jóns- son formaður fjárveitinganefndar er á miðri mynd. Fjárveitinganefnd í kynnisferð um höfuðborgina Fjárveitinganefnd Alþingis skoð- aði á fimmtudag ýmis mannvirki Reykjavíkurborgar, þ.e. mannvirki sem ríki og borg standa sameigin- lega að, en þetta var f fyrsta sinn sem Fjárveitinganefnd Alþingis fer í sérstaka skoðunarferð um höfuð- borgina, þótt það hafi tíðkast um langt árabil að nefndin heimsæki byggðir landsins árlega. Davfð Oddsson borgarstjóri var fararstjóri í heimsókn fjárveitinganefndar, en skoðunarferðin stóð daglangt. Heimsókn fjárveitinganefndar hófst í fundasal borgarstjórnar þar sem borgarstjóri, Davíð Oddsson, flutti erindi um starf- semi Reykjavíkurborgar á sviði stjórnskipulags og fjármála, borg- arritari lýsti fjárhagslegum sam- skiptum ríkis og borgar og borgar- verkfræðingur gerði grein fyrir verklegum framkvæmdum og næstu verkefnum. Þá fór Fjárveit- inganefnd í heimsókn í menning- armiðstöðina í Gerðubergi, skoð- aði nýju hverfin í Grafarvogi, heilsugæslustöðina f Asparfelli, íþróttamannvirkin f Laugardal, þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Dalbraut og Borgarspítalinn var heimsóttur. Á föstudagskvöld sat fjárVeitinganefnd boð borgar- stjóra í Höfða. Stundin er runnin upp og Frí-klúbbsfélagar \ og gestir þeirra kveöja sumariö og heilsa vetri meö glæsilegri ^\Frí-klúbbshátíö meö bráöhressu fólki í Broadway I ?'*** írr I ',ú®'ð7500’ DWAT ti— RÚLLUGJALD FRÍ-KLÚBBSINS ER AÐEINS KR. 100, EN ER VENJULEGA KR. 170. Ath.: Lægsta matar- verö á vegum Frí- klúbbsins aöeins kr. 385 — og glæsi- leg skemmtun meö fjörugu fólki. Hinn síhressi Hermann Gunn- arsson kynnir, Iramkvæmdastj. Frí-klúbbsins, Pálmi Pálmason, stjórnar, en honum tll aöstoöar veröa hinir rómuöu Frí- klúbbsfararstjórar Erlingur Karlsson (Spánn), Katrín Páls- dóttir (Portúgal), Ingibjörg Hjaltalín (ítalía), Jens Einarsson (Spánn), Hildigunnur Gunnars- dóttir (Portúgal) og Jónína Benediktsdóttir. Kl. 19.00: Húsiö opnaö og tekið á móti gestum meö lystauka. Frí-klúbbsfararstjórar sumarsins taka á móti „sínu fólki“ og vísa gestum inn. Sala bingó- spjalda. Kl. 19.30: Frumsýning nýrrar kvikmyndar: „Frí-klúbburinn á sólarströndum ’84“ — Ingólfur Guöbrandsson, forstjóri Útsýnar, kynnir. Kl. 20.00: Veizlan hefst meö suörænu sniöi, gómsætum réttum og Frí-klúbbsfjöri. Ýmsar verölaunaveitingar og fjölbreytt skemmtiatriöi, m.a. sérstök tízkusýning og danssýning. Vetrarstarf Frí-klúbbsins kynnt. Stór-bingó meö Útsýnarferðum næsta árs í verölaun. Modelkeppnin Ungfrú og Herra Útsýn 1985 hefst. Dansinn stiginn meö Frí-klúbbsfjöri til kl. 01.00. Ný 8 manna hljómsveit Gunnars Þóröarsonar og söngvar- arnir Björgvin Halldórsson, Sverrir Guöjónsson og Þuríöur Siguröardóttir. MATSEÐILL A: Sérstakur þríréttaður •ælkeramatseðill é sérveröi, kr. 650. Matseöill A: Koníakslöguö humarsúpa. Lambabuffsteik m/ristuöum sveppum, baconsteiktum kart- öflum, gljáöum gulrótum, blómkáli m/ostabráö, salati og rauövínssósu. Fytlt bökuö epli m/kókosfyllingu og rjóma. Verö kr. 650.-. Ódýr en Ijúffengur Fri-klúbbsmatseöill í spænskum grísaveizlustíl: Aöeins kr. 385. Matseöill B: Svínakjöt, kjúklingar m/salati, sósu og blönduöu grænmeti. Verö aöeins kr. 385. Sérstakt Frí-klúbbstilboö. Ath.: Ákveöiö hvorn matseöilinn þiö veljið um leiö og pantaö er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.