Morgunblaðið - 25.11.1984, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
55
Morgunblaðið/Júllus.
~ J**- l s SfiÉbB
Laugardalurinn. Lóðin er afmörkuð af Holtavegi og SuðurlandsbrauL
Morgunblaðið/Júllus.
Morgunblaðið/RAX.
Tillögur Borgarskipulags voru til sýnis (Hiskólabiói sL fimmtudagskvöld á tónleikum Sinfónfuhljómsveitar íslands.
í byrjun næsta árs. „Norræni
menningarsjóðurinn hefur veitt
samtökunum styrk sem nemur 300
þúsund dönskum krónum til aö
taka þátt f standa straum af
kostnaði við samkeppnina," sagði
Ármann. Aðspurður um það
hvernig fjáröflun hefði miðað
hingað til og hvert framhaldið
yrði á því sviði svaraði Ármann:
„Fjáröflun í stórum stíl hefur
ekki farið af stað enn sem komið
er. Við höfum ekki talið það
raunhæft fyrr en það lægi ljóst
fyrir hvar húsið ætti að standa.
Hins vegar hafa margir styrkt
samtökin með beinum fjárfram-
lögum og við höfum fengið greidd
félagsgjöld rúmlega eitt þúsund
félaga.
Ég er bjartsýnn á að vel takist
til við að afla fjár til byggingar-
innar þegar þar að kemur. Það er
augsýnilegt að mörgu fólki er það
mikið hjartans mál að f Reykavík
rísi veglegt tónlistarhús, eins og
sést best á því að yfir tvö þúsund
manns hafa heitið því með undir-
skrift sinni að leggja málefninu
lið. Fyrst í stað voru stjórnmála-
menn efins um að stórvirki af
þessu tagi gæti heppnast með víð-
tækri samstöðu, en borgarstjóri
hefur þó lýst því yfir að bygging
tónlistarhúss verði næsta stóra
verkefni borgarinnar og fjármála-
ráðherra hefur sýnt okkur já-
kvæðan stuðning. Eg er því fullur
bjartsýni.
Þá má geta þess að í undirbún-
ingi eru styrktartónleikar Fíl-
harmoníunnar í London i Royal
Festival Hall, þar sem ráðgert er
að Ashkenazy muni leika og
André Premin stjórna. Það var fíl-
harmonían sjálf sem hafði frum-
kvæði að þvi að halda þessa tón-
leika. Hljómsveitin kom til ís-
lands í vor á listahátíð og frétti af
þvi að hér væri hugsjónafólk sem
vildi reisa nspilaborg“ og ákvað
strax að styðja við bakið á okkur.
Eins og menn vita er þetta ekki
beint ódýrasta hljómsveit í heimi
og er þetta i fyrsta skipti á ferli
hennar sem hún hefur boðið upp á
„gratís konsert". Ennfremur áætl-
ar Martin Berkofsky, okkar ágæt-
asti túlkandi Liszt, tónleika til
styrktar húsinu f byrjun næsta
árs í Þjóðleikhúsinu," sagði Ár-
mann.
SALARSTÆRÐ
OG RKKSTRAR-
GRUNDVÖLLUR
Undirbúningsstjórn Samtaka
um byggingu tónlistarhúss réði i
sumar Rekstrarstofu J. Ingimars
Hanssonar til að gera könnun á
rekstrarmöguleikum tónlistar-
hússins í framtíðinni. Blaðamaður
hafði samband við Ingimar Hans-
son og innti hann eftir helstu
niðurstöðum.
„Það var þrennt sem okkur var
falið að gera,“ sagði Ingimar. „1
fyrsta lagi að skoða hvaða salar-
stærð værí heppilegust, i öðru lagi
hvort til greina kæmi að reka i
húsakynnunum einhvers konar
aðra starfsemi en tónlistarflutn-
ing og loks í þriðja lagi, hvað
reksturinn myndi kosta þegar
húsið væri að fullu tilbúið.
Niðurstöður okkar eru i sem
fæstum orðum á þá leið, að til að
byrja með virðist vera grundvöllur
fyrir einn 1.400—1.500 manna sal,
en seinna mætti bæta við minni
sal, sem tæki 200—300 manns i
sæti. Ennfremur mæltum við með
því að í húsinu yrði rekin ýmis
önnur starfsemi, sem væri til þess
fallin að laða gesti að. Þá á ég við
veitingarekstur, verslanir og ann-
að af því tagi, og væri þessi starf-
semi fjármögnuð algerlega af
utanaðkomandi aðilum. Það var
loks okkar lokaniðurstaða, að i
framtfðinni ættu tekjur af tónlist-
arflutningi og annarri nýtingu
hússins að geta staðið undir
rekstri þess,“ sagði Ingimar.
Break-dans-
inn í Kína
Pekia*. 23. Bóveaiber. AP.
NÚ HEFUR nýjasta dansæðið,
þ.ejLS. bandaríski break-dans-
inn, einnig unnið sér sess í
Kína.
í grein i tímaritinu
Huangiu, sem er í eigu hins
opinbera, er dansinum lýst og
saga hans rakin, allt með
mjög jákvæðu oröalagi, og
hvorki meira né minna en
þrjár heilsíður teknar undir
efnið.
Break-dans, sem á kin-
versku nefnist „bu rui ke wu“
(wu = dans), verður þó að iðka
af varfærni að mati Huangiu.
Mikilvægt er að hita líkamann
vel upp með teygjum í svo sem
stundarfjórðung áður en farið
er að dansa. Þar að auki mæl-
ir kínverska blaðið með því að
klæðst sé sérstökum hlífðar-
búningum til að forðast
meiðsli.
Vestrænir dansar, hverju
nafni sem nefndust, voru
bannaðir i Kína meðan á
menningarbyltingunni stóð
1966—76. En frá þeim tima
hafa dansar eins og foxtrott
og vals og „hópdansar" eins og
jenka orðið gífurlega vinsælir.
Hundruð milljóna Kínverja
kynntust svo break-dansinum
fyrst, þegar þeir sáu sjón-
varpsútsendingarnar frá
ólympíuleikunum í Los Ang-
eles.
Mikiö úrval forrita
(yfir 60 titlar)
10% afsláttur til skólafólks
CRT Z-80A
Rom Monitor: 4K-byte
Rom Character generator: 2K-byte
Ram Program: 64K-byte
Ram v-Ram 4K-byte
Grafik 80x50 punkt-
ar (8 litir).
40 stafir í línu
og 25 línur.
Fullkomið segulband
(1,200 bit/sec).
Innbyggö klukka.
Einnig innbyggöur
plotter meö fjórum
litum.
Staölaö lyklaborö
(íslenskt letur fáan-
legt).
Einnig fylgir Basic og
10 leikir.
HLJÐMBÆR
HUÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999