Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
50
Gunnar Gunnarsson, Sigríður H. Porsteinsdóttir og Haukur F. Hannesson.
Kaupmannahöfn:
Þrír ungir tónlistar-
menn halda tónleika
Jóiuthús, 14. desember
TÓNLEIKAR voru haldnir í Jóns-
húsi 12. des. sl. og léku þar þrír
ungir íslenzkir tónlistarmenn, sem
' stunda tónlistarnám hér í borg. Voru
það Haukur F. Hannesson sellóleik-
ari, Sigríður Helga Þorsteinsdóttir,
sem leikur á fíðlu og Gunnar Gunn-
arsson á fíautu. Fengu þau hinar
beztu viðtökur áheyrenda.
Verk margra tónskálda voru á
efnisskránni, ýmist tríó, samleiks-
eða einleiksverk. Lék Sigríður
fiðlukonsert eftir Mozart nr. 3 í
G-dúr, 1. þátt, við undirleik Kirst-
en Frimodt, kennara og undirleik-
ara við Konunglega danska tón-
listarháskólann, en Sigríður nem-
ur hér í vetur hjá prófessor Milan
Vitek og lauk áður fiðlukennara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1982.
Gunnar Gunnarsson lék 3 verk á
flautu sína, Fantasíu nr. 2 eftir
Teleman, Oisaux Tendres, fjörug-
an fuglasöng eftir Rivier og Syr-
inx eftir Debussy um skógarpúk-
ann, sem lokkar til sín dísirnar.
Gunnar Gunnarsson lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1979 og stundar nú
framhaldsnám hjá Toke Lund
Christiansen, sem er 1. flautuleik-
ari í Sinfóníuhljómsveit danska
útvarpsins. Þá kennir Gunnar
einnig við tónlistarskóla í Hró-
arskeldu.
Einn þeirra þriggja er hér að-
eins í stuttu námsleyfi og nú á
förum heim. Það er Haukur F.
Hannesson, sem er sellóleikari í
Sinfóníuhljómsveit íslands. Hauk-
ur stundaði nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og við Guild-
hall School of Music and Drama í
London og lauk þaðan einleikara-
og kennaraprófi 1982 og var síðar
við framhaldsnám við sama skóla.
f Kaupmannahöfn hefur hann ver-
ið nemandi próf. Asger Lund
Christiansen, sem er prófessor við
konservatoríið í Árósum, en bú-
settur í Höfn. Á tónleikunum lék
Haukur 4 verk við undirleik Rob-
ert Hofstetter, sem er organisti
við Hans Egede kirkjuna, Arioso
eftir Bach, Svaninn eftir Saint-
Sáens og verk tveggja höfunda,
sem skrifuðu mest fyrir selló, Squ-
ire og Bréval. Þá spilaði hann úr
svítu nr. 1 fyrir einleiksselló eftir
Bach. í upphafi og í lokin spiluðu
hinir efnilegu ungu listamenn
Lundúnatríó Haydns.
G.L.Ásg.
Sól er góð jólagjöf
Sólböðin
okkar hafa
endanlega
ágætí sitt
Nú er vitað að ljósaböð
í hófí eru holl.
Við leggjum ríka áherslu á ráðgjöf og starfsfólk
okkar er ávallt reiðubúið að leiðbeina þér.
VISA OG KRETTT-
KORTAÞJÓNUSTA
NYJAR
PERUR
Sólbaösstofa
Astu B. Vilhjáhns
Grettisgötu 18,
sími 28705.
|
Pv f
Morgunblaðið/Júlíus.
F.v. Jón Hjaltason, veitingamaður, Friðgeir Jónsson, yfírmaöur tækja-
deildar íþróttamiðstöðvarinnar og Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri.
íþróttamiöstöð
rís í Öskjuhlíð
Fyrsti áfangi með 12 keilubrautum tilbúin í janúar
UM ÞESSAR mundir er unnið við
byggingu fyrsta áfanga íþrótta-
miðstöðvar í Öskjuhlíð, skammt
fyrir ofan Bflaleigu Loftleiða, þar
sem m.a. verður aðstaða fyrir
keiluleik. Er það Sælkerinn-Oðal
sf. sem stendur að framkvæmdum
þessum en framkvæmdastjóri er
Asgeir Pálsson.
Að sögn Ásgeirs hefur íþrótta-
miðstöðin hlotið nafnið Öskju-
hlíð. Gólfflötur húsnæðisins er
tæpir fimm þúsund fermetrar en
þessi fyrsti áfangi er 1300 fer-
metra salur, sem fyrst og fremst
er ætlaður fyrir keiluleik. Verða
brautirnar alls 12 talsins og hver
þeirra 18 metrar á lengd. Auk
þess verða í salnum knattborð og
ýmis önnur afþreying og veit-
ingar verða seldar. Hafist var
handa við fyrsta áfangann í júní
sl. og er áætlað að að ljúka hon-
um í janúar.
Ásgeir sagði ennfremur að í
framtíðinni væri ætlunin að
koma á fót í Öskjuhlíð alhliða
íþrótta- og tómstundastarfsemi
fyrir fólk á öllum aldri.
Fyrsta áfanga íþróttamiðstöðvarinnar, í baksýn byggingar Flugleiða.
Iðnaðarmenn að störfúm f keilusainum.
K
rizia uomo
THORELLA
Laugavegs Apóteki
THORELLA
Miðbæ við Háaleitisbraut