Morgunblaðið - 13.01.1985, Page 1
112SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
10. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nýja Kaledóníæ
Neyðar-
ástand
NoMma, 12. juiw. AP.
Landstjórnin í Nýju Kaledóníu
lýsti yfir neyðarástandi í morgun eft-
ir að lögreglumenn felldu tvo leið-
toga innfæddra, sem berjast fyrir
sjilfstæði eyjaklasans, eftir 16
stunda uppþot sem evrópskir inn-
flytjendur sem fylgjandi eru áfram-
haldandi yfirráðum Frakka stóðu
fyrir.
Bannaðar voru mótmælagöngur
og fundir fleiri en fimm manna á
almannafæri. Jafnframt var til-
kynnt útgöngubann frá klukkan
19 til 6 á morgnana. Vopnaburður
er og ólöglegur.
Bakarinn
slapp vegna
brauðleysis
Vndaenre, 12. juúr. AP.
Bakarinn í Vendoeuvre á þorps-
búum að þakka að þurfa ekki að
dúsa vikum saman í fangelsi vegna
vangreiddra meðlaga.
„Ommurnar og mömmurnar
föðmuðu mig að sér í dag,“ sagði
Marc Fricaud bakari í dag, fyrsta
vinnudaginn eftir vikulanga fang-
elsisvist. Fengu þorpsbúar hann
lausan úr prísundinni vegna
brauðskorts í bænum.
Fricaud voru þó ekki gefnar upp
sakir og á hann eftir að afplána
samtals 24 daga af refsivist sinni.
En til að hægt verði að tryggja
þorpsbúum nægar brauðbirgðir
varð að samkomulagi að bakarinn
sæti inni á fimmtudögum og
sunnudögum, þegar bakarí hans
væri hvort eð er lokað, og lyki
þannig refsingunni.
Fricaud var sendur í steininn 3.
janúar fyrir að greiða ekki fyrrum
konu sinni 700 franka á mánuði
með tveimur dætrum þeirra. Fékk
hann sex mánaða dóm, þar af
fimm mánuði skilorðsbundna.
Fricaud, sem þorpsbúar kalla
Marco, naut vinsælda fyrir að
færa mönnum brauðin heim, en
þorpsbúar eru margir við háan
aldur og eiga erfitt um vik í frost-
unum og ófærðinni. Þá fannst
þorpsbúum dómurinn óréttlátur
þar sem dæturnar búa nú hjá föð-
ur sínum.
Símamynd/AP.
I skautahlaupi á skurdunum
Sama kuldatíðin er áfram í Evrópu og sjá veðurfræðingar ekki enn fyrir endann á þessum gjósti norðan frá Sfberiu. Margir reyna þó að gera gott úr
öllu eins og t.d. þessir Amsterdambúar, sem skemmta sér hér við skautahlaup á skurðinum.
Kuldakastið í Evrópu:
Mannskæð umferðar-
og sjóslys fylgifískar
Frankfurt og víóar, 12. janúar. AP.
EKKERT lát er á vetrarrfkinu um mest alla Evrópu, en þaö
hefur nú staðið vikum saman. Á þriðja tug manna hefur látið
lífið síðasta sólarhringinn fyrir beina eða óbeina tilstilli vet-
urs konungs. Þá hafa um 180 manns látist. Umferðarslys á
klakalögðum og þokumyrkum hraðbrautum Vestur Þýska-
lands hafa einkum bætt við tölu látinna.
Fjögur umferðarslys þar sem I urðu á hraðbrautinni milli
alls 240 bifreiðir komu við sögu I Kölnar og Bonn, 9 manns létu
Veldur aspirín stór-
hættulegum sjúkdómi?
WaxhirextoB, 12 janúar. AP.
VÍSINDAMENN i Washington hafa lýst yfir að samkvæmt
athugunum sínum kunni að vera tengsl á milli neyslu
aspiríns gegn inflúensu og hlaupabólu annars vegar og
stórhættulegri veiki sem nefnist „Reyes syndrome“ hins
vegar.
Vísindamennirnir segjast
reyndar vera sannfærðir og
segja athugunina benda til þess að
taki börn með fyrrgreinda
sjúkdóma asprín, séu 25 sinnum
meiri líkur á því að þau fái Rey-
es syndrome. Niðurstöður
þeirra hafa orðið til þess að
bandaríska heilbrigðisráðu-
neytið mun skylda aspirínfram-
leiðendur til að prenta varnar-
orð á vöru sína.
Talsmaður vísindamannanna
sagði að það yrði aldrei sannað
að tengslin væru fyrir hendi þó
líkurnar væru yfirgnæfandi.
Reyes syndrome er afar sjald-
gæfur sjúkdómur sem börn
taka helst í kjölfar inflúensu og
hlaupabólu. Aðeins 190 tilfelli
voru greind í Bandaríkjunum á
síðasta ári og eitt af hverjum
fjórum börnum lést af þess
völdum, en mörg hinna hlutu
varanlega heilaskaða.
lífið og ónafngreindur lögreglu-
maður sagði að þeir væru „hætt-
ir að telja" alla hina slösuðu.
Aðkoman var óhugnanleg, fjöldi
bifreiða í ljósum logum og sum
líkin svo brunnin að ómögulegt
var að bera kennsl á þau. Þó
þótti ganga kraftaverki næst að
slysin urðu ekki fleirum að fjör-
tjóni.
Dauðsföllin urðu í sex lönd-
um, m.a. Belgíu, Ítalíu, Júgó-
slavíu og Ungverjalandi. Búist
er við að tala látinna hækki til
muna áður en yfir lýkur, því
veðurspáin er ekki hagstæð. Af
þeim sökum m.a. reikna Tyrkir
ekki með því að 10 fiskibátar
sem reru í fyrradag skili sér.
Ekkert hefur til þeirra spurst,
en 2 til 3 voru um borð í hverj-
um. Veður var slæmt er sjó-
mennirnir reru, stífir vindar og
kuldi.
Aðeins á Spáni kom glæta,
snjókoman breyttist í regn og
hinir miklu kuldar síðustu daga
rénuðu. Um skeið voru þeir
mestu kuldar sem mælst hafa á
Spáni síðan árið 1956. 26 manns
létu lífið og tjón á ávaxta- og
grænmetisuppskeru er talið
nema 117 milljónum dollara.
Námamenn
streyma
til vinnu
Londoú, 12 jnnúnr. AP.
STJORN brezku kolanámanna til-
kynnti að 2.336 námamenn hefðu snú-
ið baki við verkfallinu og horfið til
vinnu sinnar. Fleiri hafa ekki snúið til
vinnu á einni viku frá í nóvember, er
mikill fjöldi námamanna hætti verk-
fallsþátttöku.
Verkfall brezkra námamanna
hefur staðið í 10 mánuði í dag. Alls
eru í dag 71 þúsund námamenn af
189 þúsund að störfum. Um 50 þús-
und námamenn tóku aldrei þátt í
verkfallinu eða sneru til vinnu á
fyrstu vikum þess, og frá því sið-
asta samningalota fór út um þúfur í
októberlok hafa 19.578 námamenn
snúið baki við verkfallinu.
Til átaka kom við námur í Wales
og Skotlandi, einkum við Sexbjöllu í
Wales þar sem 12 námamenn sneru
til vinnu, hinir fyrstu frá því í marz
í fyrra.