Morgunblaðið - 13.01.1985, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
39
hann hafi glataö kynngi og krafti.
Ted Hughes er að eðlisfari sagð-
ur maður ómannblendinn og sú at-
hygli sem bandarískir fjölmiðlar
hafa sýnt honum og þó alveg sér í
lagi einkamálum hans, eftir að
hann var útnefndur lárviðarskáld,
hefur farið mjög fyrir brjóstið á
honum. Af skiljanlegum ástæðum
kaerir hann sig ekki um að ræða í
síbylju erfitt og flókið samlíf
þeirra Sylviu Plath. Engu að síður
hefur hann þó séð um útgáfu á
ljóðum sem hún lét eftir sig og
sömuleiðis bréfum hennar ýmsum.
Þrátt fyrir að hann vilji forðast
afskipti utanaðkomandi af einka-
lifi sínu, hefur hann sýnt að hann
er reiðubúinn að axla það sem
fylgir útnefningunni. Hann telur
sérstaklega mikilsvert að kynna
ungu kynslóðinni ljóðlist fyrr og
síðar og hann hefur farið í skóla
og stofnanir fyrir ungt fólk, lesið
upp og skýrt ljóð og þykir gera það
af stakri prýði.
Hughes er margfróður maður
og áhugasamur um ótal efni.
Hann hefur áhuga á dulrænum
fyrirbærum, nýjum aðferðum í
landbúnaði, menningarsögu eski-
móa og svo mætti lengi telja. Þar
sem hann er víðlesinn og áfjáður í
að afla sér æ meiri þekkingar,
segja þeir sem til þekkja að hann
sé skemmtilegur og alþýðlegur í
samræðum. Hann er ekki upp-
næmur fyrir frægð og viðurkenn-
ingu og þessi útnefning verður
sjálfsagt ekki til að breyta neinu
hvað þvi viðkemur.
Hann mun væntanlega verða
trúr sinu og halda þvi striki sem
hann álítur réttast að fyigja. Val
hans er í senn spennandi og gæti
orðið enskri nútímaljóðagerð inn-
blástur og þraut.
(Eadumgt úr Ik Ohacrrcr iJL
Jófcuu Krintjóndúttir.)
Sekt fyrir
að selja
eiturfisk
DANSKUR sjómaAur, sem seldi
1800 kassa af brisling og 700 kassa
þorslts, sem voru mengaðir af sinn-
epsgasi, befur verió dæmdur f 20
þúsund danskra Itróna sekt, að sögn
norska blaðsins Piskaren, sem vitn-
ar til Dansk Fiskeri Tidende.
Sjómaðurinn laug þvi til að hafa
veitt afla sinn í Norðursjónum, en
hann veiddi hann í Eystrasalti og
meðal aflans var sinnepsgas-
sprengja. Allur brislingsfarmur-
inn hafði verið verkaður i verk-
smiðju er uppgötvaðist að hann
var mengaður af sinnepsgasi. Var
fyrirtækinu lokað daglangt meðan
það var hreinsað fyrir áframhald-
andi fiskverkun.
Dómurinn yfir sjómanninum
byggðist á „ólöglegum veiðum“
þar sem bannað var að veiða á þvi
svæði í Eystrasaltinu þar sem
sinnepsgassprengjurnar er að
finna.
175 þúsund
farþegar til
íslands 1984
FARÞEGAR sem komu til t«l««H«
meó skipum og flugvélum áriA 1984
voru alls 175.018 talsins, þar af voru
íslendingar Ueplega 90 þúsund og
útlendingar rúmlega 85 þúsund. Er
það um 18 þúsund farþegum fleira
en komu til landsins árið 1983.
Af útlendingum voru Banda-
ríkjamenn langfiestir, rúmlega 27
þúsund. Næstir komu Vestur-
Þjóðverjar 9.615, Bretar 9.398,
Danir 7.759, Svíar 6.699, Norð-
menn 6.055, Frakkar 4.846, Sviss-
lendingar 2.689 og Finnar 2.003.
önnur þjóðlönd áttu færri full-
trúa i íslandsferðum, en alls kom
hingað til lands fólk frá 106 lönd-
um.
Þá þekkir þú þessa skemmtilegu tilfinningu, sem
fylgir því aö standa óvænt meö fullar hendur
fjár eða RANGE ROVER beint úr kassanum.
Það munar um minna.
Og í happdrætti SÍBS eru möguleikarnir miklir,
þar hlýtur fjóröi hver miöi vinning og stundum
meir. Auk venjulegra vinninga, veröur dregiö í októ-
ber um sérstakan HAUSTVINNING - RANGE R0VER
aö verömæti ein og hálf milljón krónur.
Svo sannarlega handfylli ekki satt?.
En þaö munar líka um hvern seldan miða, því aö
nú beinum viö öllum kröftum aö byggingu nýrr-
ar endurhæfingarstöðvar aö Reykjalundi.
Miöinn kostar 120 krónur.
í happdrætti SÍBS veistu hvar verömætin liggja.
_________________________________.A—
Happdrætti SIBS
Hefur
í happdcetri ?
e. R o