Morgunblaðið - 13.01.1985, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
Minning:
Annie Helgason
Hinn 7. þessa mánaðar var til
moldar borin háöldruð kona sem á
sér að baki látiausan en litríkan
æviferil. Með henni er að ganga til
viðar merkilegt menningarskeið í
sögu íslendinga.
Annie Helgason fæddist í
Reykjavík 1. desember 1895, dóttir
hjónanna Jóns Helgasonar og
Mörtu Maríu Licht.
Jón Helgason sem þá var
prestaskólakennari varð síðar for-
stöðumaður Prestaskólans, pró-
fessor cg loks biskup. Hann var
sonur hjónanna Helga Hálfdan-
arsonar forstöðumanns Presta-
skólans Einarssonar prófasts á
Eyri við Skutulsfjörð og konu
hans Þórhildar Tómasdóttur pró-
fasts Sæmundssonar á Breiða-
bólstað. 1 ætt þessari er margt
embættismanna, presta, lækna og
lögfræðinga, karla og kvenna,
ásamt öðru merkisfólki sem
ávaxtað hefur sitt pund og skilað í
arf til afkomenda sinna. Ættar-
svipur er víða sterkur og kemur
m.a. fram i stefnufestu, léttri
lund, hvassri gamansemi, skap-
höfn sem oft blómgast þegar há-
um aldri er náð.
Marta María Licht var dóttir
Hans Henrik Licht sóknarprests í
Horne á Fjóni og konu hans Ann-
anie Vogelius sem Annie var heit-
in eftir. Eru það prestaættir í
marga ættliði. Ekki þekki ég ættir
þær þótt kunnar séu í Danmörku.
Ein frændkona af þessum stofni
er þekkt hér á landi sem er Jonna
Louis-Jensen prófessor i íslensku
máli og bókmenntum við Hafnar-
háskóla.
Um þær mundir sem Jón Helga-
son var við framhaldsnám í Hafn-
arháskóla dvöldust systir hans og
mágkona i Höfn á heimili tilvon-
andi tengdamóður hans sem þá
var orðin ekkja. Jón var léttur i
lund og ritaði heim mörg gaman-
söm ljóðabréf. Fjallaði hann oft
um heimasætuna Mörtu Mariu.
Þar kom þó að hann hætti að
minnast á hana. Grunaði aðstand-
endur hans fljótt hvað á seyði
væri enda gekk hann nokkru siðar
að eiga hana.
Þegar heim kom settu þau fyrst
saman bú í Bankastræti 7, sama
húsi og foreldrar hans höfðu búið
í, en þá var faðir Jóns fyrir ekki
löngu fallinn frá. Þar fæddist
Annie, elst systkinanna fimm. Hin
voru Hálfdán prófastur á Mosfelli,
Þórhildur hjúkrunarkona i
Reykjavík, Páll raffræðingur í
Hafnarfirði og Cecilia húsfreyja á
Lindarhvoli i Þverárhlíð ein eftir-
lifandi systkinanna.
í Bankastræti bjó fjölskyldan
um áratuga skeið eða þar til hún
hafði komið upp húsi i Tjarnar-
brekkunni, húsaröð þar sem hið
næsta bjó Álfheiður Briem systir
Jóns og Þórhildur móðir hans þar
til hún lést árið 1923.1 hinum hús-
unum fyrir miðri Tjörninni
bjuggu vinir og tengdafólk. Bisk-
upshúsið rauða er nr. 26 við Tjarn-
argötu.
Heimili Jóns Helgasonar bisk-
ups má segja að hafi verið byggt
um þjóðbraut þvera. Jón var þrátt
fyrir embættisframa, annir og
fræðistörf frændrækinn og sóttu
hann heim ættmenn hans margir.
Dvöldust sum frændsystkini lengi
á heimilinu og var samband þeirra
alla tíð með ágætum. Biskups-
skrifstofan var á heimilinu og
þangað komu prestar landsins
ásamt mörgum sem biskup hafði
kynnst á vísitasíuferðum sínum.
Var þar oft mikill erill. Jón
Helgason var mikill guðfræðing-
ur, sagnfræðingur, sérfræðingur í
byggð og sögu Reykjavíkur, af-
kastamikill rithöfundur og málari.
Þekkingarleitin bar hann víða og
hafði hann daglegt samband við
fjölda manna, af öllum stéttum
við athuganir sínar á sögu Reykja-
víkur.
Jón Helgason var kirkjufrömuð-
ur með ríkan metnað fyrir þá
stofnun sem hann hafði stjórn á.
Ekki voru allir ánægðir með
stefnu hans eða sættu sig við þær
kröfur sem hann gerði til kirkj-
unnar þjóna. Leiddi sumt til
deilna þar sem tekist var málefna-
lega á um guðfræði og kirkjuleg
efni sem hljómar framandi í okkar
samfélagi þar sem kirkjulegur
metnaður ber keim af stofnana-
pólitík. Þótti ýmsum þá birta yfir
kirkjunni.
Meðal metnaðar Jóns Helgason-
ar fyrir hönd kirkjunnar var að
þar skyldi fyllstu sparsemi gætt í
öllum greinum. Var sagt að hann
hefði áunnið sér það traust hjá
fjárveitinganefnd að þegar álit
hans lá fyrir var það samþykkt.
Sjálfur var hann mönnum eftir-
dæmi og gætti í embættisrekstri
sínum svo mikils aðhalds að mjög
þrengdi að hans eigin efnahag.
Segja má að öll fjölskyldan hafi
verið starfsmenn kirkjunnar, í
skrifstofuhaldi, gestamóttöku og
fleiri greinum. Um eitt skeið var
bróðurdóttir Jóns skrifstofustúlka
í biskupsskrifstofunni. Ásta Tóm-
asdóttir var óánægð með laun sín
sem voru 75 kr. á mánuði. Biskup
vildi ekki bera fram tillögu um
hækkun og gréiddi hann 75 kr. úr
eigin vasa til að haldast á aðstoð-
inni og hafa starfsmanninn
ánægðan. Það var ekki fyrr en
löngu síðar að Guðmundur
Sveinbjörnsson skrifstofustjóri
komst á snoðir um þetta og gekkst
í ieiðréttingu málsins.
Aðsjálni þessi setti svip á heim-
ilið. Sjálfur var biskup lítt heima í
fjármálum þess. Hann var vakinn
og sofinn við önnur viðfangsefni.
Kona hans og dætur sáu um þau.
Sparsemi konu hans var ekki að-
eins dyggð. Hún var nauðsyn.
Á heimilinu var mikil glaðværð,
gamanmál, söngur og hljóðfæra-
sláttur. Því báru börnin vitni. Þau
hlutu menningu í heimanmund en
nutu ekki öll langrar skólamennt-
unar.
Annie settist i Menntaskólann í
Reykjavík og tók þaðan gagn-
fræðapróf. Síðar gekk hún líka í
Kvennaskólann til að ávinna sér
kunnáttu i hannyrðum og öðrum
kvenlegum dyggðum. Siðar dvald-
ist hún við nám í Danmörku og
Sviþjóð.
Sagan segir að biskupshjónin
hafi ekki verið á eitt sátt um hver
lifsbraut dótturinnar skyldi verða.
Þegar þau ræddu um málið sagði
Marta María: „Annie skal giftes.“
Þá svaraði maður hennar: „Men
kære Marie, der skal jo to til.“
Þessi litla flökkusaga, sönn eða
ósönn, segir þó meira en ýmislegt
annað um lífshlaup Annie. Hún
var góðum gáfum gædd, mörgum
hæfileikum prýdd, dugandi verka-
maður og eins og margir frændur
hennar, hispurslaus og óhrædd við
að láta skoðanir sínar í ljós. Hún
krafðist mikils af sér og ætlaðist
til hins sama af öðrum.
Þegar Annie var þriggja ára
komu fram sjúkdómseinkenni sem
hljóta að hafa haft áhrif á allt
hennar líf. Sjúkdómur var í tauga-
kerfi sem olli því að hún gretti sig.
Enginn kunni við þessu ráð. Hún
var ávítuð sem barn en allt kom
fyrir ekki. Smám saman varð
þetta hluti af hennar persónu-
leika, allir sem hana þekktu hættu
að veita þessari fötlun athygli,
hún hvarf fyrir kostum hennar.
Samferðamennirnir mátu hana
fyrir það sem gott var í fari henn-
ar en það gerðu ekki alltaf þeir
sem minna þekktu hana. Það var
ekki fyrr en hún var komin á efri
ár að hún fékk lyf sem réð bót á
fötlun hennar að mestu.
Ég ólst upp í nánasta umhverfi
Annie frændkonu minnar. Ég
veitti litla athygli sérkennum
hennar. Eitt sinn átti ég leið með
vinahópi um Ingólfsstræti. Þar
mættum við Annie þar sem hún
kom út af skrifstofu lögmanns í
Arnarhvoli þar sem hún starfaði.
Allt í einu var ég í vanda, ég var
hluti af strákahópi og mátti ekki í
þeim hópi vamm mitt vita. En ég
var lika frændi hennar. Enn
minnist ég hve mjög mér létti þeg-
ar ég afréð að heilsa henni, að þess
tíma sið, með því að þrífa ofan
höfuðfatið og hneigja mig. Félag-
arnir sáu nú allt í einu frænku
mína í nýju ljósi og bjartara.
í Tjarnargötunni var sterkt
samfélag á fyrstu áratugum ald-
arinnar. í húsunum við Tjörnina
var fjöldi barna á liku reki. Þeirra
milli myndaðist vinátta og náin
tengsl. Fjölskyldurnar sóttu hver
aðra heim og áttu félagsskap af
ýmsu tagi. Margt hefur breyst í
Tjarnargötunni en vináttusam-
band þeirra sem bjuggu þar i
nágrenni endist fram á þennan
dag þótt fólkið hafi dreifst og týni
óðum tölunni.
Þarna bjó biskupsfjölskyldan til
1945 þegar bæði biskupshjónin
voru fallin frá. Þórhildur og Annie
giftust aldrei en bjuggu á heimili
foreldra sinna þar til yfir lauk.
Eftir það var gamla húsið selt og
þær systur fluttust í Sörlaskjól
þar sem þær festu kaup á lítilli
risibúð og settu upp heimili með
sama menningarblæ og fyrr.
Bjuggu þær þar meðan þeim ent-
ist líf og heilsa. Þórhildur andað-
ist 1979 og Annie 27. desember sl.
Eftir að Annie lauk námi starf-
aði hún um skeið í Höfn og
Stokkhólmi. Eftir það hóf hún
störf hjá oliuverslun og síðar um
skeið í skrifstofu biskups. Eftir
það starfaði hún alla tið hjá sama
vinnuveitanda þótt heiti embætt-
isins breyttist í aldanna rás. Fyrst
hjá bæjarfógeta, síðar á Lög-
mannsskrifstofunni og eftir að
embættinu var skipt í skrifstofu
borgardómara. Ekki þekki ég náið
til starfa Annie þar. Mikið var lát-
ið af hæfileikum hennar sem rétt-
arskrifara á þeim tíma er öll rétt-
arhöld voru handskrifuð í doðr-
anta. Reyndi þá mjög á skrifarann
ef allt átti vel að ganga. Hún var
vel látin af samstarfsmönnum sín-
um og umgekkst þar háa og lága
sem jafningja. Á heimili Annie
hitti ég stundum fyrir sam-
starfsmenn hennar. Hef ég oft
dáöst að þvi hve gott samband
tókst og vinátta milli samstarfs-
fólks hennar á ungum aldri og
hennar sem komin var á efri ár.
Reyndust þeir margir henni vel
fram á síðustu daga hennar.
Þegar halla tók undan fæti hin
síðustu ár kom I ljós vilji margra
frændsystkina hennar til að
endurgjalda með hjálpsemi það
sem hún hafði verið þeim með ein-
um eða öðrum hætti.
Hið síðasta reyndi mest á Cec-
ilíu systur hennar, Inger ekkju
Páls bróður hennar og aldavin-
konu fjölskyldunnar önnu Krist-
mundsdóttur. Hún var búin að
vera fjölskyldunni stoð í hátt í
fimm tugi ára eða frá því að hún
ung réðst til starfa hjá biskups-
fjölskyldunni í Tjarnargötu. Vin-
áttan og hjálpfýsin héldust þótt
hún hefði fyrir löngu horfið til
annarra starfa. Þá reyndist sam-
býlisfólkið í Sörlaskjóli 74 þeim
systrum vel til hinsta dags.
Það var skarð fyrir skildi í
Tjarnargötunni þegar biskups-
fólkinu fækkaði og það hvarf það-
an. Enn er eyða í Sörlaskjólinu og
i brjóstum vina og frænda þegar
þær biskupssystur hafa enn flust i
betri stað.
Eggert Ásgeirsson
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
*g82*
Á VILLER0Y & BOCH
FLISUM
Rýmum fyrir nýjum flísum, og seljum restar á tilboðsverði.
Nú er hægt að gera hagstæð kaup á hinum vinsælu Villeroy og
Boch vegg- og gólfflísum, með 15-50% afslætti.
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
ER
BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.