Morgunblaðið - 23.01.1985, Blaðsíða 27
Stefnuræða Reagans:
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1985
27
Amnesty
Intemational:
997 manns í
Perú saknað
London, 22. janúar. AP.
AF HÁLFU Amnesty lnternational
er því haldið fram að 997 nafn-
greindir karlmenn, konur og börn,
hafi horfið sporlaust eftir að her-
menn eða lögreglusveitir hafi hand-
tekið viðkomandi í afskekktu héraði
í suðurhluta Perú, sem sett var undir
beina stjórn hersins fyrir tveimur ár-
um.
í skýrslunni, sem heitir
„Mannhvarf og pólitískar aftökur
af hálfu stjórnarherja á neyðar-
ástandssvæðinu í Andesfjöllum",
segir að auk hinna 997, sem sakn-
að er, sé vitað um að rúmlega 400
manns hafi verið teknir af lífi, oft
að undangengnum pyntingum, í
Ayacucho, og er óttast að sú tala
eigi enn eftir að hækka.
Segir í skýrslunni að herinn
hafi gripið til útrýmingarherferð-
ar skömmu eftir að hafin var sókn
gegn hryðjuverkasamtökum maó-
ista. Samtökin sjálf bera, aö sögn
Amnesty, ábyrgð á mörgum aftök-
um og þau haía einnig pyntað
óbreytta borgara.
Ronald Reagan
Láttu okkur athuga hverjan þanfir þínan enu á sviði hugbúnaðan og
tölvukenfa. ViÖ hjálpum þén að undinbúa janðveginn þannig að
þegan þú kaupin tölvu þá nýtist hún sem allna best.
Okkar þekking í þína þágu
Hjá okkun slænðu þrjár í einu höggi:
1. Hugbúnað 2. Tölvun 3. Pjónustu
Viðbrögð á
ýmsa vegu
Tuggu fagnaö
Fjallhestar í Wales hafa orð á sér fyrir að vera einrænir og hlédrægir, en þegar Christopher Collins vitjaði hesta
sinna nálægt Merthyr Tydfil á dögunum urðu fagnaðarfundir. Snjókoman að undanförnu hefur valdið því, að
lítið er af grasi til að bfta og tuggan, sem Collins færði hestum sínum, var vel þegin.
Skemmdarverk unnin á bönkum
Moskvm, Peking, Bruxael og vftar, 22. jnnúar.
AP.
VIÐBRÖGÐ við stefnuræðu Ron-
alds Reagan Bandaríkjaforseta, sem
flutt var á mánudaginn, hafa verið
með ýmsu móti. Sovéska fréttastof-
an Tass fordæmdi „tóninn" í ræð-
unni og sagði Reagan uppfullan af
stríðsæsingi að vanda, Kínverjar
sögðu flestum Bandaríkjamönnum
betur borgið undir forsæti Reagans
en einhvers annars frambjóðenda og
í Evrópu er skrafað og skrifað um
inntak ræðunnar, ekki síst í forystu-
greinum blaða þar sem stefnur eru
oft markaðar.
Tass úthúðaði Reagan fyrir
„stríðsæsingar" og bar honum á
brýn að heita þjóð sinni að haldið
yrði áfram að rannsaka möguleik-
ana á því að koma upp varnarkerfi
gegn kjarnorkuvopnum í geimn-
um. Sagði Tass að Sovétleiðtogar
hefðu margsinnis og fyrir löngu
lýst yfir að það kæmi ekki til
greina að ræða afvopnun nema að
blátt bann yrði sett við staðsetn-
ingu vopna i geimnum. Sakaði
Tass Reagan um að reyna að spilla
komandi afvopnunarviðræðum áð-
ur en þær hæfust.
Kínverska menningarmála-
dagblaðið Guangming greindi frá
því í leiðara, að Bandaríkin væru
eins vel stæð og frekast væri kost-
ur undir forsæti Reagans, en hann
ætti erfið verkefni fram undan,
m.a. að rétta greiðsluhalla við út-
lönd og að ná afvopnunar-
samkomulagi við Sovétríkin.
Kínverska blaðið bætti því við að
það væri alls ekki einhugur á bak
við Reagan í sjálfum Bandaríkj-
unum og stafaði það fyrst og
fremst af ströngum efnahagsað-
gerðum sem hefðu bitnað nokkuð
á mið- og lágstéttarfólki.
Blöð í Evrópu allri fjölluðu um
embættisendurtöku Reagans og
voru skoðanir skiptar, allt eftir
því hvaða lönd áttu f hlut og einn-
ig stjórnmálaskoðunum hvers
blaðs. Línan var þó, að þrátt fyrir
stór og herská orð í byrjun síns
ferils, hefði Reagan reynst vera
þolinmóðari og hyggnari forseti
en á horfðist í fyrstu.
Berlín, 22. janúar. AP.
FJÓRIR bankar í Vestur Berlín uróu
fyrir baróinu á skemmdarvörgum í
dögun í dag, eldsprengju var varpaó
inn í einn þeirra, en rúóur brotnar í
hinum þremur. Manntjón varó ekk-
ert, en eignatjón var ekki metió
opinberlega. Slökkva tókst eldinn
sem tendraóur var í einum bank-
anna áóur en spjöll urðu.
Það var í Marienfelde sem
eldsprengju var varpað inn um
glugga á banka, en grjótkastið átti
sér stað í Grúnewald og Tempel-
hof. Lögreglan í Berlín vinnur að
rannsókn málsins, en í dag neitaði
hún að tjá sig um hvort samband
væri milli skemmdarverkanna og
þeirrar hryðjuverkaöldu sem farið
hefur um landið að undanförnu og
er eignuð „rauða hernum" sem er
afsprengi „Baader-Meinhof" sam-
takanna. Það er þó álit margra
sérfræðinga að svo sé.
Rétt byrjun
reynlst best
GÍSLI J. JOHNSEN
TÖLVUBÚNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF
SMIÐJUVEGI 8 - P.O. BOX 397 - 202 KÓPAVOGI - SlMI 73111
n i