Morgunblaðið - 23.01.1985, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1985
t
Móöir mln,
INGIBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sólheimum 23,
andaöist aö morgni 22. janúar I Landspitalanum.
Friðþjófur Björnaaon.
+ Móöir okkar, MAGNEA GUÐRÚN INGIMUNDARDÓTTIR, . andaöist á Hrafnistu mánudaginn 21. þ.m. Jórunn Karlsdóttir, Ásdls Siguröardóttir.
+ Fósturfaöir okkar, ANDRÉSJAKOB BJARNASON, framkvæmdastjóri, Jörfabakka 32, andaöist á heimili sinu laugardaginn 19. janúar. Jónlna Haraldsdóttir, Hjálmar Haraldsson.
+ Eigtnmaöur minn og faöir okkar, GUNNAR HÉDINN JAKOBSSON, andaöist á heimili sínu, Baldursgötu 31, 17. janúar sl. Jarösungiö veröur frá Grensáskirkju föstudaginn 25. janúar kl. 3.00. Guörún Sumarliöadóttir, börn og ættingjar.
+ Faöir okkar, ODDUR KRISTJÁN RÍKHAROSSON, varö bráökvaddur á elliheimilinu Ási, Hverageröi, aöfaranótt 21. janúar. Fyrir hönd vandamanna. Súsanna Oddsdóttir, Anita Oddsdóttir, Gréta Oddsdóttir.
+ Frændi okkar, GESTUR JÓNSSON, Villingaholti, veröur jarösunginn frá Villingaholtskirkju laugardaginn 26. janúar kl. 2 e.h. Systkinabörn og aórir aöstandendur.
+ Þann 21. þessa mánaöar andaöist SÉRA MARTEINN JAKOBSSON (VROOMEN) I Hollandi. Messa til minningar um hann veröur sungin i Dómkirkju Krists konungs, Landakoti, sunnudaginn 27. janúar kl. 10.30. Hinrik biskup Frehen, Sóra A. George.
+ Fósturmóöir mín. viktorIa kristjánsdóttir, Sólheimum 23, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. janúar kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Langhoitskirkju eöa aörar liknarstofnanir. Fyrir hönd ættingja, Guörún Ákadóttir.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.
Jóhanna Gunnars-
dóttir — Minning
Fædd 23. ágúst 1921
Dáin 12. janúar 1985
I dag verður gerð útför Jóhönnu
Gunnarsdóttur, Hörgshlíð 18. Hún
lést hinn 12. þessa mánaðar eftir
harða baráttu við erfiðan sjúk-
dóm, sem vart varð við í október
síðastliðnum. Jóhanna fæddist í
Reykjavík 23. ágúst 1921, dóttir
hjónanna Ragnheiðar Bogadóttur
og Gunnars Ólafssonar, bifreiða-
stjóra, sem bæði lifa dóttur sína.
Foreldrar Ragnheiðar voru Ragn-
heiður Sigurðardóttir úr Flatey á
Breiðafirði og Bogi Sigurðsson,
kaupmaður í Búðardal, en foreldr-
ar Gunnars Vigdís Ketilsdóttir úr
Kotvogi og Ólafur Ásbjörnsson,
kaupmaður úr Njarðvík.
Systkini Jóhönnu eru Hulda,
Ingibjörg, Ragnheiður, Elísabet og
Ólafur. Jóhanna giftist 1958
Gunnari Guðmundssyni, aðalbók-
ara, og áttu þau einn son, Gunnar.
Þau slitu síðar samvistum.
Jóhanna hóf ung að árum að
starfa hjá frænda sínum Ásbirni
Ólafssyni, og hjá fyrirtæki hans
vann hún síðan allan sinn starfs-
dag. Þar stjórnaði hún af skör-
ungsskap og varð þeim minnis-
stæð sem henni kynntust. Margar
ferðir fór hún á vegum fyrirtækis-
ins til útlanda, sem í senn voru í
viðskiptaerindum og til að mennt-
ast. Um tíma dvaldi hún í Banda-
ríkjunum til að nema enska tungu,
og bjó hún þá hjá frænku sinni,
Ragnheiði Jónsdóttur Ream.
Fundum okkar Jóhönnu bar
fyrst saman 1954. Þá sá ég og
reyndi hvílík stoð og stytta hún
var fjölskyldu sinni. Umhyggja
hennar fyrir fólki sínu var hrein
og tær og þeim mun áhrifameiri
fyrir þá sök, að hún lét ekki
stjórnast af tilfinningasemi. Hún
var hinn dugmikli athafnamaður,
sem var því vön, að eftir orðum
hennar væri farið. Rithönd Jó-
hönnu er mér minnisstæð eins og
fleirum vegna þess.að hún var í
senn fögur og þróttmikil.
í haust ræddi Jóhanna oft um
það, hversu hún ætlaði að fagna
þeim áfanga, er Gunnar, sonur
hennar, lyki stúdentsprófi. Þá
skyldi halda fjölskylduhátíð. En
grimm geta örlögin verið, þar sem
Gunnar var við dánarbeð móður
sinnar á sa.ma tíma og skólafélag-
ar hans tóku við prófskírteinum
sínum.
Jóhanna Gunnarsdóttir varð
öðrum gæfa. Því er það þungbært
þeim sem áttu vináttu hennar, að
kveðjustund skuli svo snögglega
upp runnin. Huggun er það þó
harmi gegn, að eiga minninguna
um hana, minningu sem verður
dýpri og skýrari vegna þess æðru-
leysis og kjarks, sem hún sýndi til
hinstu stundar.
Á þessari stundu leitar hugur-
inn til einkasonar hennar, Gunn-
ars, sem mest hefur misst. Megi
minning um mikilhæfa móður
verða honum huggun í harmi.
Bragi Hannesson
I útfararsálmi Hallgríms Pét-
urssonar segir svo: „Hvenær sem
kallið kemur kaupir sig enginn
frí.“
Þessi löngu sögðu orð, en sem
eru alltaf jafn ný, komu okkur
starfsfólkinu í heildverslun Ás-
bjarnar Ólafssonar í hug, er við
fréttum að Jóhanna Gunnarsdótt-
Jón Yngvi Yngva-
son — Minning
Það fyrsta sem mér flaug í hug
við andlátsfregn vinar míns Jóns
Yngva Yngvasonar var: „Þá er
hann kominn til Guðs.“ Því hjálp-
ræði Hans nær út yfir endimörk
jarðar og lengra og hærra en við
skynjum. Til þess kom Hann í
heiminn til að láta mennina vita
að hann tæki alla að sér, hrjáða og
vansæla, því ekki þurfa heilbrigðir
læknis við. Til þess kom Hann að
við í lífi og dauða hefðum hann að
leiðarljósi sem gæfi okkur náð,
frið og miskunn á öllum okkar
ferðum. Sæluboðorðin eru eins og
sögð um Jón Yngva, því miskunn
hógværð og friður voru hans aðal:
Sælir eru fátækir í anda, því
þeirra er himnaríki. Sælir eru
hgoværir því þeir munu landið
erfa. Sælir eru miskunnsamir því
þeim mun miskunnað verða. Sælir
eru hjartahreinir því þeir munu
Guð sjá. Sælir eru friðflytjendur
því að þeir munu Guðs synir kall-
aðir verða. Leit Jóns í lífinu hlaut
að verða ójarðbundin því hann
þarfnaðist einhvers meira og til-
gangsríkara en stundar vafsturs.
Eg varð þeirrar hamingju aðnjót-
andi að búa á sama stað og Jón og
fékk að kynnast prúðmennsku
hans og lítillæti. Hann reiddist
aldrei svo aðrir vissu af. Hann
hækkaði aldrei róminn en rödd
hans var þýð og hljómsterk og
hann álasaði aldrei neinum.
Jón var mikill listamaður og
+
Viö þökkum Innilega auösýnda samúö og vinsemd viö andiát og
útför
ANNIE HELGASON,
Sörlaskjóli 74,
Raykjavlk.
Sérstaklega viljum viö þakka starfsfólki Hafnarbúöa góöa umönnun
á undanförnu ári.
Cecilia Helgason,
Inger Helgason
og systkinabörn.
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
SIGRÍDAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Evjólfur Glslason,
Gisli Eyjólfsson, Sigrföur Guónadóttir,
Alfreð Eyjólfsson, Guöjónfa Bjarnadóttir,
Guömundur I. Eyjólfsson, Sigrún Bjarnadóttir,
Gylfi Eyjólfsson, Guörún Þorgeirsdóttir,
Asgeir Eyjólfsson, Sjöfn Eyfjörö,
barnabörn og barnabarnabörn.
ir væri svo skyndilega burt kölluð
héðan af heimi. Vissum við þó að
hún átti við þungan sjúkdóm að
stríða, en á meðan er líf er ævin-
lega von.
Að Jóhönnu heitinni er mikill
sjónarsviptir, og þá ekki síst héð-
an úr fyrirtækinu, sem hún af frá-
bærri eljusemi hafði unnið í meg-
inhluta æfi sinnar.
Eigi munum við freista þess að
lýsa æfiferli og margslungnum
persónuleika hennar, það munu
sjálfsagt aðrir gera.
Með örfáum orðum en af heilum
hug kveðjum við Jóhönnu Gunn-
arsdóttur með virðingu og þökk
fyrir allt 3em hún var okkur, í
löngu og ánægjulegu samstarfi.
Blessuð veri minning hennar.
Við vottum háöldruðum foreldr-
um hennar, systkinum og vensla-
mönnum öllum okkar dýpstu sam-
úð og síðast en ekki síst sólargeisl-
anum hennar, drengnum unga
sem var henni eitt og allt.
Samstarfsfólk heildvcrslunar
Ásbjarnar Ólafssonar hf.
málaði, teiknaði, skrifaði, lék á
hljóðfæri og fleira. Þekking hans
á bókum var svo víðtæk, að hvaða
háskóli sem er hefði orðið stoltur
af skáldsagna- og ljóðlistarkunn-
áttu hans. Hann var gæddur gjöf-
um langtum meira en almennt
telst enda maðurinn ekki venju-
legur á neinn hátt. Ég þakka Guði
fyrir að hafa fengið að kynnast
þessum öðlingi, listarkunnáttu
hans, ljúflyndi hans mun standa
mér fyrir hugskotssjónum meðan
vegferð mín endist. Guð blessi alla
sem unna honum.
Vina
Jarðarfarar-
skreytingar
Blóm, kransar, krossar.
Græna höndin
Gróörastöð viö Hagkaup,
sími 82895.