Morgunblaðið - 24.01.1985, Síða 1
64SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
19. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Belgar ráð-
færa sig við
bandamenn
Bnusel, 23. jsníar. AP.
Belgíumenn hefja á morgun, fimmtudag, viðræður við bandamenn sína í
ríkjum Atlantshafsbandalagsins um tímasctningu uppsetningar fyrstu 16
stýriflauganna af 48, sem fyrirhugað er að koma fyrir þar í landi.
t þessu skyni heimsækir Leo
Tindemans utanrikisráðherra tt-
alíu, Bretland, Holland og V-Þýzka-
land næstu daga. t þessum ríkjum
verða settar upp 572 meðaldrægar
stýri- og Pershing II-flaugar til að
vega á móti hundruð sovézkra SS-
20 flauga sem Sovétmenn beina nú
að skotmörkum í Evrópu.
Viðræður við önnur bandalags-
riki eiga sér stað siðar, en ætlunin
er að þeim verði lokið áður en
Belgíumenn ákveða sig i marzlok
hvenær fyrstu 16 flaugarnar verða
settar upp í Florennes-flugstöðinni.
Um 700 bandarískir hermenn und-
irbúa þar uppsetningu flauganna.
Ráð var fyrir gert í áætlunum
NATO að fyrstu flaugarnar yrðu
settar upp i Belgíu um miðjan
marz, en einhver seinkun er fyrir-
sjáanleg. Wiifried Martens forsæt-
isráðherra sagði í Washington á
dögunum að uppsetningu allra
flauganna yrði lokið fyrir árslok
1987. Hann ítrekaði á þingi i vik-
unni að flaugarnar yrðu settar upp
Pravda, málgagn sovézka komm-
únistaflokksins, sagði ktofning
meðal NATO-ríkja vegna viðræðna
stórveldanna um takmörkun víg-
búnaðar. Evrópuríkin vildu ganga
lengra í þvi að takmarka geim- og
kjarnorkuvopn en Bandaríkin.
Ronald Reagan Bandarikjaforseti
sagði i kvöld að Bandaríkjamenn
hefðu óskað eftir því við Sovétmenn
að fyrsti samningafundur um
takmörkun vígbúnaðar færi fram i
Genf í marzbyrjun, en Rússar hefðu
engin svör gefið enn.
Kynt undir aldintrjám
Ávaxtabændur i Flórída hafa gripið til þess ráðs að kveikja elda og stilla oliuofnum upp á milli trjánna í
þeirri von að reykurinn verji trén og uppskeruna. Frosthörkur í Flórída hafa þegar valdið ávaxtabændum
gífurlegu tjóni. Sjá nánar „Metkuldar i Flórida" á bls. 24.
Pundið
aldrei
lægra
London, 23. janúar. AP.
Dollar hækkaði í verði gagn-
vart öllum helztu gjaldmiðlum
enn á ný og hefur brezka sterl-
ingspundið aldrei verið verð-
minna gagnvart dollar, eða
1,1125 pund í hverjum dollar.
Gull lækkaði og kostaði únsan
300,75 dollara. Orðrómur um
að OPEC-ríki myndu lækka
olíuverð, sem myndi neyða
Breta til olíuverðlækkana, olli
verðlækkun pundsins.
Ver ítrekar sakleysi
vegna aftöku Aquinos
Muila. 23. janúar. AP.
„Ég var viðbúinn
þessu, eins og
góðum hermanni
sæmir,“ sagði
Fabian C. Ver
hershöfðingi, yf-
' pm irmaður herafla
Filippseyja, er
hann og 25 aðrir
menn í her lands-
ins höfðu verið
ákærðir fyrir morðið á Benignc
Aquino, stjórnarandstöðuleið-
toga, á flugvellinum í Manila 21.
ágúst 1983 og Roberto Galman,
sem yfirvöld lýstu í upphafi sem
banamanni Aquino.
Gefin var út ákæra á hendur
Ver og mönnum hans í dag.
Eiga 17 sakborninganna yfir
höfði sér dauðadóm, þar af einn
hershöfðingi. Ver og sjö aðrir,
þ.á m. hershöfðingi, verða sótt-
ir til saka fyrir tilraun til að
hylma yfir málið og ljúga fyrir
rannsóknarrétti. Eru þeir
tæknilega sakaðir um morð, en
verði þeir dæmdir sekir eiga
þeir yfir höfði sér 24—40 ára
fangelsi.
í samtali frá vistarverum
sínum í forsetahöllinni kvaðst
Ver saklaus og sagðist ekki
hafa átt von á því að vera
ákærður. Sagðist hann engan
ótta bera í brjósti þar sem mál
þetta mundi fá eðlilega dóms-
meðferð.
„Það vantar höfuðpaurinn á
listann yfir ákærðu," sagði Ag-
apito Aquino, bróðir Benigno,
sem sakað hefur Marcos forseta
um að standa á bak við sam-
særið.
Ver, sem er 64 ára, hefur í tvo
áratugi verið nánasti sam-
starfsmaður Marcosar. Meiri-
hluti nefndar, sem vann í 10
mánuði að rannsókn á morðinu
á Aquino, komst að þeirri
niðurstöðu að stofnað hafi verið
til samsæris innan hersins um
að myrða Aquino við heimkom-
una. Ákæra saksóknara er
byggð á skýrslu nefndarinnar
og niðurstöðum.
Miklir liðsflutningar
Víetnama í Kambódíu
Aranyapratbet, Thailandi, 23. janúar. AP.
VÍETNAMAK hafa stóreflt lidsstyrk sinn nærri stöóvum Rauðra khmera
í Kambódíu og sækja innrásarsveitir þeirra nú einkum fram í vesturhluta
Kambódíu, að sögn thailenskra liðsforingja. Hefur thailenzkum her-
sveitum verið skipað í viðbúnaðarstöðu þar sem óttast er að átökin í
Víetnam færist inn á thailenskt yfirráðasvæði.
Á síðustu vikum hafa Víet- átaka kom enn í dag skammt frá
namar sexfaldað hermanna-
fjölda sinn í nágrenni búða
Rauðra khmera, úr 500 í 3.000,
þrefaldað skriðdrekafjölda úr 10
í 30, og standa enn yfir liðsflutn-
ingar til átakasvæðanna. Til
landamærum Thailands. Rauðu
khmerarnir héldu áfram að gera
árásir á stöðvar Víetnama í því
skyni að trufla liðsflutninga
þeirra til höfuðvígis skæruliða I
Pnom Malai-fjöllunum.
Önnur skæruliðahreyfing
Kambódíumanna, Þjóðfrelsis-
fylking khmera, gerði ennfremur
árásir á Víetnama á mikilvæg-
um birgðaflutningaleiðum í
norðvesturhluta Kambódíu. Vi-
etnamar svöruðu árásum beggja
fylkinga með stórskotahríð.
Tímaritið Far Eastern Econ-
omic Review segir í nýjasta hefti
sínu að Víetnamar hafi ákveðið
að sýna meiri sveigjanleika I
samskiptum við aðrar þjóðir.
Séu þeir í þann mund að bjóða
Bandaríkjunum upp á friðar-
samninga ýmiss konar og snúa
sér í auknum mæli til vestrænna
ríkja í þeirri von að stórauka
viðskipti við þau. Tilgangurinn
mun einnig að fá Bandaríkja-
menn inn á að útiloka Rauðu
khmerana frá pólitískri lausn
Kambódíudeilunnar.
Sjá leiðara á miðopnu.
Pólskur
njósnari
rekinn
frá París
París, 23. janúar. AP.
STANISLAS Janczaka hermála
fulltrúi pólska sendiráðsins í París
og starfsmaður pólsku leyniþjónust-
unnar hefur verið rekinn úr landi
fyrir að njósna um starfsemi pólskra
útlaga í París, sem samstarf áttu við
Samstöðu, óháðu verkalýðssamtök-
in, sem bönnuð voru með herlögum.
Janczaka var handtekinn er
hann átti fund með pólskum inn-
flytjenda í París 7. janúar. Var
hann sendur til Parísar í þeim til-
gangi að njósna um starfsemi
pólskra útlaga þar og afla upplýs-
inga um fjármál þeirra, stuðn-
ingsmenn og franska samstarfs-
menn þeirra.
Leiðtogar Samstöðu og félagar í
samtökunum, sem staddir voru I
Frakklandi þegar gripið var til
herlaga heimafyrir, stofnuðu sam-
starfsnefnd í París og fengu bæði
húsnæði að láni og ýmsan stuðn-
ing hjá frönsku verkalýðssam-
tökunum.