Morgunblaðið - 24.01.1985, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
Fimdur um
Norðurlönd
sem kjarnorku-
laust svæði
ANNAÐ kvöld klukkan 20.30
veröur haldinn fundur að Borg-
artúni 6, þar sem fjallað verður
um Noröurlöndin sem kjarn-
orkulaust svæði.
Trine Edklun frá Noregi
gerir þar grein fyrir samtök-
unum „Trakat Nu“ en samtök-
in hafa það á stefnuskrá sinni
að á þessu ári verði tekin af-
staða til þess hvort Norður-
lönd verða lýst kjarnorku-
vopnalaust svæði.
Eiður Guðnason alþingis-
maður setur fundinn en síðan
munu ýmsir taka til máls og í
lokin fara fram umræður und-
ir stjórn Guðrúnar Helgadótt-
ur alþingismanns og Ingi-
bjargar Hafstað kennara.
(Úr (réttatilkynningu)
Tveir starfnmenn Naustsins í Reykjavík halda hér á Þorrabakka. Á
honum eru svið, slátur, hákarl, hrútspungar og fjölmargt annað sem
íslendingar gæða sér gjarnan á um þorrann.
Þorri gengur í
garð á morgun
ÞORRI gengur í garð á morgun.
Það var lengi trú manna, að ef þorri
væri stilltur og frostasamur, myndi
vora vel.
Það er langt frá því að menn
hafi látið sér nægja að huga að
veðurlagi á þorra. Margir siðir
tengjast þorranum og er sagt frá
einum allundarlegum í Þjóðsög-
um Jóns Árnasonar frá 19. öld:
„Það var skylda bænda að fagna
þorra eða bjóða honum í garð
með því að þeir áttu að fara
fyrstir á fætur allra manna á
bænum þann morgun sem þorri
gekk í garð. Áttu þeir að fara
ofan og út í skyrtunni einni, vera
bæði berlæraðir og berfættir, en
fara í aðra brókarskálmina og
láta hina svo lafa eða draga hana
á eftir sér á öðrum fæti, ganga
svo til dyra, ljúka upp bæjar-
hurðinni, hoppa á öðrum fæti í
kringum allan bæinn, draga á
eftir sér brókina á hinum og.
bjóða þorra velkominn í garð eða
til húsa. Síðan áttu þeir að halda
öðrum bændum úr byggðarlaginu
veislu fyrsta þorradag."
Þessi siður mun líklega aflagð-
ur með öllu hér á landi, en veislur
halda menn í tilefni af þorra og
nefna „þorrablót". Siður þessi
mun hafa legið niðri víðast hvar á
landinu lengi vel en fékk byr und-
ir báða vængi á tíma sjálfstæð-
isbaráttunnar. Nú virðast flestir
landsmenn sætta sig vel við að
blóta þorra, þótt guðhræddum
mönnum hafi áður þótt siður
þessi vondur og heiðinn.
Bændur ættu e.t.v. að huga að
því, sem sagt er í bókinni íslensk-
ir þjóðhættir eftir Jónas Jónas-
son. Þar stendur, að hundur, sem
alinn sé á þorra eða góu verði
bestur, því þá sé hann mátulega
gamall til að venja hann við
lambfé á vorin.
Ungir skákmenn með forustu
Olíuskipið „Torasund**, sem um er rætt í fréttinni, en það er systurskip
Kyndils.
Kaupverð nýja Kynd-
ils óvenju hagstætt
— segir Magnús Ármann hjá skipa-
miðluninni Gunnar Guðjónsson
IJNGIR og efnilegir skákmenn hafa
tekið forustu á Skákþingi Reykja-
víkur. Andri Áss Grétarsson, sem
varð 16 ára fyrr í mánuðinum, og
Þröstur Þórhallsson, 15 ára gamali,
eru með 4 vinninga ásamt Dan
llanssyni, sigurvegaranum á Nkák-
þingi Islands 1983, að loknum fjór-
um umferðum.
í 4.-7. sæti eru Þröstur Berg-
mann, Lárus Jóhannesson, Baldur
A. Kristinsson og Hilmar Karls-
son með 3‘A vinning. Baldur er að-
eins 14 ára gamall. Ungir skák-
menn setja æ meiri svip á skák-
mót hér á landi. Þröstur hefur
staðið sig með ágætum á mótum
og Andri Áss var j fremstu röð á
alþjóðlegu unglingamóti í Hamar
um áramótin. Fimmtán skákmenn
hafa hlotið 3 vinninga.
Tefldar verða 11 umferðir á
Skákþingi Reykjavíkur eftir
Monradkerfi. Alls taka 90 skák-
menn þátt í mótinu og er teflt á
sunnudögum, miðvikudögum og
föstudögum.
Kvennaáratug-
urinn gerður
upp á tveim-
ur ráðstefnum
Kvennaáratug Sameinuðu þjóð-
anna lýkur á þessu ári og eru m.a.
áformaðar af því tilefni tvær ráð-
stefnur í Nairobi í Kenýa í sumar.
Annars vegar hin opinbera ráðstefna
SÞ dagana 15.—26. júlí, þar sem
sendinefndir frá hinum ýmsu lönd-
um líta yfir og gera upp árangurinn
af kvennaáratugnum. Hins vegar
verður, eins og í Mexíkó og Kaup-
mannahöfn, hliðarráðstefnan For-
um-85 með frjálsri þátttöku dagana
8.—17. júlí og verða þar umræður og
umræðuhópar um margvísleg mál-
efni kvenna.
Innan samstarfsnefndar ís-
lenskra kvenna til undirbúnings
verkefna á árinu er starfandi
svonefndur alþjóðahópur, sem
m.a. hefur rætt hugsanlega ferð
kvenna frá íslandi á Forum-85. í
frétt frá hópnum segir m.a. að
samkvæmt lauslegri könnun verði
fargjaldið vart undir 40 þúsund
krónum og er þá eftir dvalar-
kostnaður í ráðstefnuborginni.
Eru konur sem hug hafa á því að
fara til Nairobi beðnar um að hafa
samband við Jafnréttisráð.
„ÓHÆTT er að fullyrða, að kaup-
verð nýja Kyndils hafi verið óvenju
hagstætt,“ sagði Magnús Ármann
hjá skipamiðluninni Gunnar Guð-
jónsson sf. er Morgunblaðiö bar
undir hann fréttir þess efnis að
greitt hafl verið of hátt verð fyrir
olíuskipið Kyndil, sem kora til lands-
ins á sunnudaginn. Gunnar Guð-
jónsson sf. hafði milligöngu um
kaup skipsins, en kaupendur eru
olíufélögin Skeljungur og Olís.
Magnús Ármann sagði í samtali
við Morgunblaðið um mál þetta:
„Staðhæft er, að hinn nýi Kyndill
sem áður hét „Torafjord" og var í
norskri eign, hafi upphaflega ver-
ið afhentur eigendum vorið 1982,
en hið rétta er að skipið var upp-
haflega afhent eigendum í janúar
1983.
Einnig er því haldið fram að
systurskip „Kyndils", sem heitir
„Torasund", sé nú til sölu fyrir 20
milljónir norskar og því sé kaup-
verð „Kyndils", sem var 27,5 millj-
ónir, of hátt sem nemur mismun-
inum. Hið rétta er, að olíufélögun-
um stóð til boða að kaupa „Tora-
sund“ á svipuðu verði og gefið er
upp í umræddri grein og skoðuðu
fulltrúar félaganna skipið. Hinn
nýi „Kyndill“ var tvímælalaust
talinn vænlegri skipakostur en
„Torasund" til kaups. „Torasund"
er tæplega einu og hálfu ári eldri
og er með ýmsa mjög umtalsverða
galla, s.s. að skipið er með umtals-
verðar botnskemmdir, önnur í
Ijósavél og annar ketill skipsins er
ónýt, og skipið hefur legið í u.þ.b. 7
mánuði í hálfgerðu reiðileysi í
kjölfar gjaldþrots útgerðar skips-
ins. Einnig má bæta við að nýi
„Kyndill" er mikið fullkomnara
skip en „Torasund".
Ekki kemur fram í fréttum að
verð nýja „Kyndils" til fyrri eig-
anda var 37 milljónir norskar við
afhendingu fyrir réttum tveimur
árum og einnig að verð fyrir sams-
konar nýtt skip í dag er 44 til 45
milljónir.
Jóhann Hjartarson hlaut 70.000 krónur
úr Verðlaunasjóði Landsbanka íslands
Morgunblaðið/RAX.
Lúðvík Jósepsson, fráfarandi formaður bankaráðs Landsbanka íslands,
afhendir Jóhanni Hjartarsyni, alþjóðlegum skákmeistara, 70.000 króna
verðlaun úr Verðlaunasjóði Landsbanka íslands.
JÓHANNI Hjartarsyni, alþjóðleg-
um skákmeistara, var í gær veitt
70.000 króna verðlaun úr Verð-
launasjóði Landsbanka íslands.
Verðlaunasjóðurinn var stofn-
aður árið 1982 er Landsbanki ís-
lands gaf 100.000 krónur til
myndunar sjóðs sem veita skyldi
fé til skákverðlauna. Reglugerð
fyrir sjóðinn var sett 2. nóvem-
ber 1982 og var þá ákveðið að
verkefni hans yrðu í fyrsta lagi
að veita fé til skákverðlauna til
árlegra landsmóta um skólaskák
og að veita ákveðna fjárhæð til
sérhvers íslendings er næði al-
þjóðlegum titli skákmeistara eða
stórmeistara eftir stofnun sjóðs-
ins. Stjórn sjóðsins skipa forseti
og varaforseti Skáksambands fs-
lands og einn fulltrúi frá Lands-
banka Islands.
Fyrst var úthlutað úr sjóðnum
í maí 1983 vegna útslitakeppni í
skólaskák sem haldin var í
Hafnarfirði. Verðlaunin voru
farseðlar á úrslitamótið og
ennfremur á skákmót erlendis.
Önnur úthlutun var með sama
hætti er úrslitamót fór fram í
Bolungarvík í maí 1984.
Jóhann Hjartarson er fyrsti
íslendingurinn sem útnefndur
hefur verið alþjóðlegur skák-
meistari af Alþjóðlega skáksam-
bandinu (FIDE) eftir að sjóður-
inn var stofnaður. Á nýliðnu ári
sigraði hann m.a. í tveimur al-
þjóðlegum skákmótum hér á
landi og varð íslandsmeistari í
skák 1984. Jóhann er 22 ára
gamall lögfræðinemi og hefur
þegar náð tveimur áföngum af
þremur að stórmeistaratitli.
Lúðvík Jósepsson fráfarandi
formaður bankaráðs Lands-
banka íslands afhenti Jóhanni
verðlaunin. Hann sagði m.a. að
frumkvæði að stofnun Verð-
launasjóðs hafi komið frá skák-
unnendum. Með þessum verð-
launum væri verið að sýna að
vilji væri fyrir hendi til að
styrkja íslenska skákmenn. Þeir
legðu oft mikið erfiði og mikinn
kostnað á sig og þeir ættu svo
sannarlega skilið að fá viður-
kenningu. Hann vonaði að þessi
verðlaun yrðu einhver hjálp.
Jóhann Hjartarson þakkaði
fyrir verðlaunin og sagðist líta
svo á að þau væru viðurkenning
til allra íslenskra skákmanna.
Að lokum færði Þorsteinn
Þorsteinsson forseti Skáksam-
bands íslands Landsbanka-
mönnum þakkir fyrir hönd sam-
bandsins.
Nú stendur yfir í afgreiðslusal
Landsbankans í Austurstræti
sýning á tillögum sem bárust í
hugmyndasamkeppni um merki
bankans, sérstakt afmælismerki
og minjagrip í tilefni af 100 ára
afmæli Landsbanka íslands 1.
júlí 1986.