Morgunblaðið - 24.01.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
Fatlaðir brugðu á hvers konar íþróttaleiki I fþróttahúsinu á Egilsstöðum. MorgunbUíií/ólafur Hermann Níelsson, formaður UÍA, og Ólafur Jensson, formaður íþróttasam-
bands fatlaðra.
Egilsstaðir:
íþróttaiðkun mikilvægur þátt-
ur í endurhæfingu fatlaðra
— segja forsvarsmenn íþróttasambands fatlaðra
EgiinUMam. 19. janúw.
Forsvarsmenn íþróttasambands
fatlaðra kynntu bér I dag starfsemi
sína, möguleika fatlaðra almennt til
íþróttaiðkana og gildi íþrótta fyrir
endurhæfingu þeirra. Kynning þessi
var gerð í samvinnu og samráði við
Ungmenna- og íþróttasamband Aust-
urlands og Svæðisstjórn Austur-
lands um málefni fatlaðra.
Að sögn Hermanns Níelssonar,
formanns UÍA og ólafs Jenssonar,
formanns íþróttasambands fatl-
aðra fór kynning þessi fram i máli
og myndum í morgun og þangað
boðaðir fatlaðir á Austurlandi, að-
standendur þeirra og aðrir er mál-
ið varðar helst. Síðdegis var síðan
komið saman i íþróttahúsinu á
Egilsstöðum til íþróttaiðkana.
Fréttamaður Mbl. náði þar sem
snöggvast tali af Eddu Bergmann
— sem vann til bronsverðlauna í
sundi á Ólympiuleikum fatlaðra á
síðastliðnu ári.
„Ég byrjaði að stunda sund
fyrir einum 6 árum og það hefur
gjörbreytt lifi mínu. Eg lamaðist
af völdum lömunarveikinnar 1944
og lá algjörlega rúmföst í 3'Æ ár
og síðan tók hægur bati við — en
hækjunum gat ég ekki sleppt fyrr
en ég hafði stundað sundíþróttina
um árabil undir leiðsögn mins
ágæta þjálfara, Erlings Jóhanns-
sonar. Raunar stefndi ég alls ekki
að keppni i upphafi. Samt sem áð-
ur hefi ég nú víða tekið þátt í
sundkeppni fatlaðra og orðið vel
ágengt bæði hér heima og erlend-
is, m.a. unnið til gullverðlauna á
Stoke-leikunum.“
Er þjálfunin þá ekki hörð þegar
út i svona keppnisíþrótt er komið?
„Jú, það fer gifurlegur tími i æf-
ingar, einkum fyrir mót. Helst
þarf ég að æfa mig daglega — og
syndi þá gjarnan um 3 km. Það er
þó ekki keppnin sem slík sem
skiptir meginmáli í íþróttaiðkun-
um fatlaðra heldur þeir möguleik-
ar sem iþróttaiðkun gefur fötluð-
m
Þægindi
Flugleiðir bjóða þér aö velja á milli hótela í Glasgow
eða Edinborg. Þessi hótel eru öll tyrsta flokks, en ódýr
engu að síður. Við viljum sérstaklega vekja athygli þína
á splunkunýju og stórglæsilegu hóteli ( Glasgow sem
heitir Skean Dhu. Gisting á þessu ágæta hóteli er
ótrúlega ódýr.
Skemmtun
Glasgow státar af afbragðs góðum veitingastöðum og
pöbbum í hefðbundnum skoskum st(l. Á fjölum leikhús-
anna er alltaf eitthvaö spennandi. Einnig er líklegt að
þú lendir á skemmtilegum hljómleikum.
Verð
Ofangreindar verðtölur fela í sér flug og gistingu í 2
manna herbergi á Skean Dhu. Morgunverður er innifal-
inn, en flugvallarskattur bætist við. Sérstakur afsláttur
er veittur fyrir börn.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagl
Stofna samtök
og helga sig
Wallenberg
HÓPUR fólks, bæði kristnir og gyð-
ingar, sem hafa helgað sig minningu
sænska stjórnarerindrekans Raoul
Wallenbergs, hafa stofnað „Raoul
Wallenberg-samtökin". Voru sam-
tökin stofnuð formlega 17. janúar, í
tilefni af því að þá voru rétt 40 ir fri
þvíað sovéskir hermenn handtóku
Wallenberg i Búdapest i Ungverja-
landi í stríðslok og hafa þeir hvorki
litíð manninn af hendi né gefið skil-
merkilega skýrshi um örlög hans.
Wallenberg, sem bjargaði 100.000
gyðingum fri vísum bana, hefúr sést
nokkrum sinnum að þvf er glöggir
menn telja, í sovéskum fangelsum.
Margir eru þeirrar skoðunar að
Wallenberg kunni að vera enn i lífi.
Á fréttamannafundi sagði tals-
maður samtakanna, að félagar
þeirra teldu Wallenberg vera á
lífi, það hefði oft sést til hans og
jafnvel náðst við hann samband,
en Sovétmenn hafa einungis sagt
að hann hafi látist skömmu eftir
að þeir handtóku hann. Segja
Wallenbergmenn að hann sé í
haldi í Gulag-eyjaklasanum.
Samtök þessi munu gefa út
tímarit, láta vinna myndsegul-
bönd og kvikmyndir um „hin stór-
kostlegu afrek þessa manns sem
hefði erft eitt voldugasta fjöl-
skyldufyrirtæki Svíþjóðar. Þá
segja talsmenn samtakanna, að
saga Wallenbergs ieiði hugann að
mannréttindum fyrr og nú og
hversu mjög jyeim sé ábótavant.
Einnig bjóði þessi samtök upp á
mjög svo timabæra möguleika
fyrir tcristna og gyðinga að vinna
naman r«ð máli sem varðar ekki
bara I»á liópa, Iieídur alla iarð-
arbúa.