Morgunblaðið - 24.01.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.01.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985 Dauða- geislar r Eg vil byrja þetta fimmtu- dagsspjall á því að þakka sjónvarpinu fyrir endurkomu Derricks. Sannarlega vel af sér vikið hjá þýðverskum frændum vorum að berja saman framhalds- þátt er sífellt kemur á óvart, þótt þar sé ætíð fylgt sömu formúl- unni. Þannig má segja að höfund- ar þessa framhaldsþáttar fylgi í höfuðdráttum vinnuhætti Sir Arthur Conan Doyles, höfundar Sherlock Holmes. En sá vinnu- háttur felst í því að leiða fram á sviðið kláran leynilögreglumann er raðar saman brotum í morð- gátu, uns lausnin finnst. Sögur samdar f slíkum anda nefnast leynilögreglusögur eða „detective stories". Hér er eigi pláss til að fara nánar út í þann bókmennta- dálk er telur leynilögreglusögur, njósnasögur, æsisögur, glæpasög- ur og svonefndar dularfullar sögur (mystery stories), en æði oft finn- ast mér svokallaðir „menningar- vitar“ beina ljósinu frá slíkum bókmenntum. Þannig hefir Nób- elsnefndin hvað eftir annað gengið framhjá sagnameisturum á borð við Graham Greene og Georges Simenon, en þessir snillingar hafa gjarnan beitt fyrir sig leyni- lögreglusagnatækni, í því augna- miði að ná til heimsins. En slíkt þykir víst ekki fínt í heimi menn- ingarvitanna, sem eru sennilega fyrir löngu búnir að gleyma því að Nóbelsverðlaunasjóðurinn varð til vegna uppfinningar og sölu morð- valdsins dýnamits. Þessi dapur- lega staðreynd leiðir hugann að Kastljósi Einars Sigurðssonar fréttamanns, er fylgdi fast á hæla Derriks leynilögreglumanns á þriðj udagskveldið. Kastljósið í þessum Kastljósaþætti, beindi Einar fréttamaður athyglinni að stríðsrekstri sem annarsvegar er háður á landamærum Thailands og Kambódíu og hinsvegar á nokru „hærra plani" eða við endi- mörk gufuhvolfsins. Mér varð hugsað til ummæla ónefnds bandarísks geimfara, er ég hlýddi í fyrrgreindum þætti á „stjörnu- stríðsræðu" Reagans forseta. Geimfarinn mælti eitthvað á þessa leið: Þegar ég horfði ofan út geimnum á þetta agnarkríli sem við nefnum Jörð, þá varð mér hugsað til þess hversu fárániegt stríðsbröltið er í raun og veru og því lengur sem ég starði á þennan depil í alheiminum, því sannfærð- ari varð ég um gildi geimferða, um gildi þess að sjá mannlífið frá hærra sjónarhóli og skilja um leið þörfina á því að sætta alla menn þá örskotsstund er þeir dvelja á þessar geimörðu. Sú kemur tíð Það er kannski engin furða þótt ýmsir geimfarar hafi hneigst að friðarstarfi og trúmálavafstri. En nú líður senn sú tíð að vér getum horft með stolti til þessarra hugdjörfu riddara himinsins. Her- stjórunum nægir nefnilega ekki að leggja undir sig jörðina, þeir verða lika að sýna mátt sinn og megin, upp í himinhvolfinu. Þannig lýsir James Hartinger, yfirmaður loft- varna Bandaríkjanna, því yfir í viðtali við U.S. News & World Report (19. desember 1983), að þegar sé hafin bygging stjórn- stöðvar fyrir aðgerðir í himin- geimnum. f téðu viðtali upplýsir Hartinger hershöfðingi ennfrem- ur að sennilega eyði rússneskir herstjórar enn meira fé í hlið- stæðar aðgerðir. f hafdjúpi læðast kjarnaflaugar, f jörðu bíða enn fleiri flugtaks og senn blika dauðageislar á himni. Hvar endar þetta allt saman? Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Útvarp kl. 14.00: „Ásta málari“ Lestur hafinn á heimildarsögu Gylfa Gröndal ■I f dag byrjar Þóranna 00 Gröndal lestur heim- ildasögunnar „Ásta rnálari" eftir Gylfa Gröndal, en bókin er skrifuð eftir frumdrög- um Ástu sjálfrar og fleiri heim- ildum. Ásta Árnadóttir, sem er fyrsta íslenska konan sem tekur próf í iðngrein, fæddist í Narfa- koti í Njarðvíkum árið 1883 en fluttist á miðjum aldri til Vest- urheims þar sem hún var búsett til dauðadags 1955. Ásta afréð að gerast húsamálari svo að hún fengi kaup á við karlmenn og gæti stutt móður sína, en hún varð ung ekkja með stóran barnahóp. Ásta lauk sveinsprófi í mál- araiðn í Kaupmannahöfn árið Ásta málari með pensil og málningarfotu 1907 og síðan meistaraprófi í sömu grein í Hamborg. Hún var því langt á undan sinni samtíð í jafnréttismálum, enda vakti það athygli á kvennaárinu 1975, þegar bókin um Ástu kom út, að 17 ára stúlka skyldi um alda- mótin hefja af eigin rammleik þá baráttu, sem loks hefur feng- ið byr undir vængi á síðustu ár- um. En ef til vill vekur persónu- saga Ástu málara ekki síður eftirtekt en atorka hennar og áræði. Líf hennar var viðburða- ríkt og ævintýralegt, og sagt er frá ástum hennar og örlögum af einlægni og tilfinningahita. Þannig kemst Ásta sjálf að orði í lok bókarinnar: Ég hef fengið minn skammt af meðlæti og mótlæti. Líf mitt hefur verið eitt óslitið ævintýr. Því var ekki til einskis lifað. Fyrrverandi þingmenn Vesturlands segja frá — spjallað við Ásgeir Bjarnason ^■■H 1 dag hefst n30 fyrsti þáttur af *“ sjö í þáttaröð- inni fyrrverandi þing- menn Vesturlands segja frá. Umsjónarmaður er Eðvarð Ingólfsson og í þessum fyrsta þætti ræðir hann við Ásgeir Bjarna- son, sem sat á þingi fyrir Framsóknarflokk frá 1949 til 1978. Eðvarð sagði í samtali við Morgunblaðið að þætt- ir þessir yrðu í léttum dúr og fjölluðu fyrst og fremst um þingmennina sjálfa, þeirra uppvaxtarár, áhugamál o.fl. Verður lít- illega vikið inn á þingferil þingmannanna en að öðru leyti slegið á léttari strengina. í næstu sex þáttum, sem verða á hálfs mánað- ar fresti, ræðir Eðvarð við Halldór E. Sigurðsson, Framsóknarflokki, Jónas Árnason, Alþýðubanda- lagi, Ingiberg J. Hansson, Sjálfstæðisflokki, Braga Nielsson, Alþýðuflokki, Jósep Þorgeirsson, Sjálfstæðisflokki og Bene- dikt Gröndal, Alþýðu- flokki. ÚTVARP Fimmtudagur 24. jartúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurðar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Sigurjón Heiðarsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Trltlarnir á Titringsfjalli" eft- ir Irina Korschunow. Kristln Steinsdóttir les þýðingu slna (4). 9J® Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Eg man þá tlð" Lög frá liðnum árum. Umsjón: Her- mann Ragnar Stefánsson. 11.30 Fyrrverandi þingmenn Vesturlands segja frá. Eð- varð Ingólfsson ræðir við Asgeir Bjarnason. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12J0 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 13JJ0 Barnagaman. Umsjón: Sigrún Jóna Knstjánsdóttir. 13.30 Tónleikar. 14.00 „ Asta málari" eftir Gylfa Gröndal. Þóranna Gröndal byrjar lesturinn. 1430 A frfvaktinni. Þóra Mar- teinsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 1530 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 1630 Sfödegistónleikar. a. Divertimento I A-dúr eftir Joseph Haydn. Concentus musicus kammersveitin I Vln leikur; Nikolaus Harnoncourt stj. b. Strengjakvartett I a-moll 19.15 A döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 1935 Krakkarnir I hverfinu 6. Soffia sér um búðina Kanadlskur myndaflokkur I þrettán þáttum, um atvik I llfi nokkurra borgarbarna. Þýð- andi Kristrún Þórðardóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 2030 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós Þáitur um innlend málefni. op. 41 nr. 1 eftir Robert Schumann. (talski kvartett- inn leikur. 17.10 Slðdegisútvarp. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál. Siguröur G. Tómasson flytur þáttinn. 19.50 Tónlist. 20.00 Hvlskur. Umsjón: Hörður Sigurðarson. 20.30 Frá tónleikum Sinfónlu- hljómsveitar Islands I Há- skólablói. (Beint útvarp frá Umsjónarmaður Ólafur Sig- urösson. 21.10 Grfnmyndasafniö Leiksýningln Skopmyndasyrpa frá árum þöglu myndanna. 2135 Hláturinn legir llfið Ellefti þáttur. Breskur myndaflokkur I þrettán þáttum um gaman- semi og gamanleikara I fjöl- miðlum fyrr og slðar. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 21.55 Lára (Laura) fyrri hluta tónleikanna.) Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Einsöngvari: Nic- olai Gedda. Kynnir: Jón Múli Arnason. 2135 „Löngum er óg einn á gangi" Dagskrá um örn Arn- arson skáld á aldarafmæli hans. Helgi Már Barðason tók saman. Lesari ásamt honum Gyða Ragnarsdóttir. (Aður futt 29. des. 1984.) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 2235 Milli stafs og hurðar. Um- Bandarlsk blómynd frá 1944, s/h. Leikstjóri Otto Preminger. Aðalhlutverk: Gene Tierney, Dana Andrews, Clifton Webb, Judith Anderson og Vincent Price. Ung kona finnst myrt og lögreglan hefur rannsókn málsins. Beinist grunurinn fljótlega að nokkrum nánum vinum hinnar látnu. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 2330 Fréttir i dagskrárlok sjón: Hilda Torfadóttir og Olafur Torfason. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 24. janúar 10.00—12.00 Morgunþátt- ur Stjórnendur: Kristján Sigur- jónsson og Sigurður Sverr- isson. 14.00—15.00 Dægurflugur Nýjustu dægurlögin. Stjórnandi: Leópold Sveins- son. 15.00—16.00 I gegnum tlöina Stjórnandi: Ragnheiður Dav- Iðsdóttir. 16.00—17.00 Bylgjur Framsækln rokktónlist. Stjórnendur: Asmundur Jónsson og Arni Danlel Júll- usson. 17.00—18.00 Einu sinni áður var Vinsæl lög frá 1955 til 1962 = Rokktlmabilið. Stjórnandi: Bertram Möller. 20.00—24.00 Kvöldútvarp. SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 25. janúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.