Morgunblaðið - 24.01.1985, Blaðsíða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANtJAR 1985
Mikill áhugi á loðdýraræktinni:
Veitt 20 ný
loðdýraleyfi
MARGIR bændur hafa nú áhuga á að hefja loðdýrarækt. Úthlutunarnefnd
loðdýraleyfa veitti nýlega 18 aðilum leyfi til að hefja loðdýrarækt og 2 leyfi til
stækkunar búa. Flestir vilja hefja refarækt en einnig hefur áhugi á minka-
rækt aukist.
Tíu aðilum var synjað um leyfi
til loðdýraræktar, flestum vegna
óvissu í fóðurmálum, að sögn
Sveinbjörns Eyjólfssonar, fulltrúa
í landbúnaðarráðuneytinu. Af
þeim 20 sem leyfi fengu nú sóttu
15 eingöngu um leyfi til refa-
ræktar, 2 til minkaræktar ein-
göngu og 3 til bæði refa- og
minkaræktar. Fjöldi refa er 875 en
1.195 minkar. Flestir hyggjast
hefja loðdýraræktina næsta
haust.
Flest búin eru í N-Múlasýslu, 7
talsins, 3 eru í Árnessýslu, 2 á
Snæfellsnesi og í V-Barðastrand-
arsýslu en eitt í Skagafirði, Eyja-
firði, S-Þingeyjarsýslu, N-Þing-
eyjarsýslu, Rangárvallasýslu og
Reykjavík. Flestir byrja með 40
refi en einstaka bændur fengu
leyfi til að byrja með 100 refi. Að-
spurður um við hvað nefndin mið-
aði þegar hún ákvæði fjölda dýra
hjá hverjum og einum, sagði
Sveinbjörn að flestir vildu byrja
smátt og fá þá tækifæri til að
auka við sig síðar ef aðstæður
leyfðu. Nefndin hefði heimild til
að takmarka bústærð við 2 heils-
ársstörf, það er svokölluð fjöl-
skyldubústærð, en á þetta hefði
lítið reynt enn sem komið er.
40—50 ofbeldismyndir
verða teknar úr umferð
AÐ UNDANFÖRNU hafa skortun
armenn Kvikmyndaeftirlits ríkisins
metið kvikmyndir á myndböndum
hér á landi. Að sögn Níelsar Árna
Lund, forsvarsmanns kvikmyndaeft-
irlitsins, hefur komið í Ijós að á
markaðnum eru að minnsta kosti
40—50 ofbeldismyndir. Mun kvik-
myndaeftirlitið láta lögregluyfirvöld
vita um hvaða myndir það telur að
taka eigi úr umferð um næstu mán-
aðamót.
Níels sagði þær myndir sem
kvikmyndaeftirlitið gerði athuga-
semdir við væru ekki nema 1—2%
af þeim myndum sem hér væru á
myndbandaleigum. Innihéldu þær
oft mjög grófar misþyrmingar á
fólki, oft nauðganir og oft væru
sýnd morð á börnum eða börn not-
uð til að fremja ódæði. Oft væru
þetta vel gerðar myndir og sen-
urnar eðlilegar. Sagði hann að það
hefði sýnt sig erlendis að bein
fylgni væri á milli sýninga ofbeld-
ismynda og ofbeldisverka.
Níels sagði að mikilvægt væri
að fólk stæði með kvikmyndaeft-
irlitinu í þessu starfi og gat þess
að starfsfólk myndbandaleiganna
sýndi þessu yfiríeitt skilning.
Davíð Oddsson borgarstjóri:
Framsókn leiki ekki tveimur skjöldum
ÞAÐ ER mjög mikilvægt að pólitískt
andrúmsloft sé Sjálfstæðisflokknum
hagstætt og staða þjóðmála vinni
með honum, sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri á fundi fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í
fyrrakvöld.
Hann sagði ríkisstjórnina hafa
farið vel af stað og náð mikilvæg-
um árangri í hjöðnun verðbólgu og
stöðugleika í efnahagslífi framan
af og fram á síðasta ársfjórðung
liðsins árs. Síðan hafi sigið á hina
verri hliðina og stöðugleikinn
raskast.
Borgarstjóri sagði jafnvel for-
sætisráðherra ganga fram fyrir
skjöldu í hlutverki stjórnarand-
stöðu og málgagn hans, NT, væri
yfirfullt af ósmekklegum dylgjum
í garð sjálfstæðismanna. Ég legg á
það áherzlu, sagði borgarstjóri, að
ég er ekki að mæla fyrir stjórn-
arslitum en á hinn bóginn verður
ekki við það ástand búið sem verið
hefur undanfarandi. Það er tími
til kominn að Framsóknarflokkur-
inn hætti að leika tveimur skjöld-
um.
HVAÐA KEPPNI?
Aö undanförnu hafa í auglýsingum birst ummæli
tveggja mætra rallkappa par sem peir segja aö í keppni
sé betra aö aka afturhjóladrifnum bíl.
Flestir bílstjórar vita hins vegar aö í öllum almennum
akstri hefur framhjóladrif yfirburöi yfir afturhjóladrif-
iö ekki síst í snjó og annarri ófærö.
Afturhjóladrif er í góðu lagi fyrir rallkappa ef þeir svo
kjósa. Framhjóladrifiö er hins vegar þaö eina rétta fyrir
okkur hina í allan venjulegan akstur þar sem eina
keppnin er aö komast klakklaust á leiöarenda, líka þeg-
ar snjóar.
KAUPTU FRAMHJOLADRIF, VELDU
ÖRYCCIÐ LÁTTU AÐRA UM ÁHÆTT-
UNA.
Unol
ER AUÐVITAÐ FRAMHJÓLADRIFINN
Unol 45 Super á götuna
kr. 280.000.-
KOMDU OC KÍKTU Á KJÖRIN.
aona
rEGHl I
VfLHJÁLMSSON HF.I
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.