Morgunblaðið - 24.01.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
15
Esjan fékk á sig brotsjó:
Tveir gámar útbyrðis
og skemmdir í lest
ESJA, skip Skipaútgerðar ríkisins,
fékk á sig brotsjó, vestur af Straum-
nesi að morgni mánudags síðastliðins
og runnu tveir gámar útbyrðis af þil
fari skipsins og hurfu í greipar Ægis.
í gámunum voru vörur til fyrirtækja á
Dalvík og Vopnafirði, en ekki er vitað
nákvæmlega hversu mikið tjón hlaust
af óhappi þessu.
Guðmundur Einarsson, forstjóri
Skipaútgerðar ríkisins. sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
nokkrar skemmdir hefðu einnig
orðið í lest skipsins við þetta
óhapp. Er Esja kom til Akureyrar
síðdegis í gær var hafist handa við
að kanna hversu mikið tjón hlaust
hér af, en engar niðurstöður liggja
enn fyrir í þeim efnum.
Guðmundur sagði að það hefði
verið lán í óláni að gámar þeir, sem
útbyrðis fóru, hefðu ekki haft að
geyma persónulegar eigur, enda
gætu slík tjón oft verið óbætanleg.
Aðspurður sagði Guðmundur að
ekki væri vitað hvort óhappið með
gámana mætti rekja til vanrækslu
á írágangi, en líkur bentu þó til að
svo væri ekki, né heldur vegna
þeirra skemmda sem urðu í lest
skipsins.
AframVHdngurl
Víkingurvann sér á dögunum, sæti í 8 liöa úrslitunum Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik.
Framundan er nú grimm barátta um sæti í 4 liða úrslitunum,
tveir leikir við Júgóslavnesku bikarmeistarana CRVENKA. Þetta verða
hörkuleikir þar sem ekkert verður gefið eftir.
VÍKINGUR: CRVENKA i Laugardalshöll
Föstudaginn 25. janúar kl. 20:30
Sunnudaginn 27. janúar kl. 20:30 J
Áhorfendur skipta sköpum.
Nú er allt að vinna. Við hvetjum áhorfendur til að koma i
og taka virkan þátt í leikjunum. Þannig fæst meiri skemmtun, meiri
barátta og betri árangur.
Það eru einmitt þessi atriði, sem erlend lið óttast mest.
Áfram Víkingur
TRYGGINGAR
Miðasala i Hóllinni baða daga frá kl. 17:00
veitt nokkur þjónusta vegna sér-
stöðu þess. Felst hún aðallega í
svokallaðri ADL-þjálfun (athafnir
daglegs lífs). Einnig er þar veitt
önnur þjónusta þar sem heimil-
ismenn dvelja þar lengri tíma sól-
arhringsins en almennt gerist á
sambýium.
Gert er ráð fyrir að 6 einstakl-
ingar geti dvalið á Sambýlinu í
senn.
Við sambýlið starfa 11 starfs-
menn í 7,4 stöðugildum og þar af 4
þroskaþjálfar í 2,4 stöðugildum.
Forstöðumaður er Málfríður
Þorkelsdóttir þroskaþjálfi.
Af annarri starfsemi á vegum
svæöisstjórnarinnar má nefna
leikfangasafn Vesturlands í Borg-
arnesi sem starfrækt hefur verið
frá ársbyrjun 1982. Þar fer fram
kennslu- og leiðbeiningarstarf-
semi í þágu fatlaðra barna og
barna sem eiga í tímabundnum
þroskaerfiðleikum. í hlutverki
safnsins felst einnig útlán leik-
fanga sem stuðlað getur að aukn-
um þroska viðkomandi barna,
ásamt því að foreldrum og að-
standendum er veitt aðstoð og
leiðbeining um notkun leikfangan-
na. Safnið lánar einnig leikföng til
leikskóla, grunnskóla og annarra
stofnana, nánar tiltekið sér-
kennslu. Forstöðumaður sansins
er Laufey Jónsdóttir þroskaþjálfi.
Einnig er í undirbúningi að
koma á fót vernduðum vinnustað á
Akranesi og hefur þegar verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Viðar
Vésteinsson.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á
Vesturlandi er skipuð og starfar
samkvæmt lögum um málefni
fatlaðra nr. 41 frá 1983. í stjórn-
inni sitja: Svandís Pétursdóttir
formaður, Snorri Þorsteinsson,
Kristófer Þorleifsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Guðjón Ingi Stef-
ánsson, Halldór Sigurðsson og
Kristborg Haraldsdóttir. Fram-
kvæmdastjóri svæðisstjórnarinn-
ar er Eyjólfur Finnsson Borgar-
nesi.
J.G.
Sambýli fyrir fjölfatlaða
tekið í notkun á Akranesi
ÞORBERGUR
Akranesi, 14. janúar.
SAMBÝLI fyrir fjölfatlaöa var form-
lega tekið í notkun sl. laugardag á
Akranesi að viðstöddum fjölda
gesta, m.a. félagsmálaráðherra, Al-
exander Stefánssyni, þingmönnum
kjördæmisins og sveitarstjórnar-
mönnum.
Svandís Pétursdóttir formaður
svæðisstjórnar um málefni fatl-
aðra á Akranesi bauð gesti vel-
komna og lýsti aðdraganda þess-
arar byggingar svo og byggingar-
sögu hennar. Félagsmálaráðherra
flutti ávarp og opnaði sambýlið
formlega. Jóhannes Ingibjartsson
lýsti húsnæðinu fyrir viðstöddum
og að lokum flutti séra Björn
Jónsson sóknarprestur á Akranesi
ávarp og bæn. Að þessari athöfn
lokinni var viðstöddum boðið til
kaffisamsætis og fluttu þar ávörp
Valdimar Indriðason alþingismað-
ur, Sigurfinnur Sigurðsson for-
maður stjórnarnefndar um mál-
efni fatlaðra og Gíslný Bára
Þórðardóttir þroskaþjálfi fulltrúi
starfsfólks á sambýlinu.
Fyrsta skóflustungan að húsinu
var tekin 6. október 1982, en þessi
lóð varð fyrir valinu af nokkrum
lóðum sem Akraneskaupstaður
hafði boðið til þessa verkefnis og
felldi hann einnig niður bygg-
ingargjöld.
Húsið, sem var fjármagnað af
Framkvæmdasjóði fatlaðra, var
reist í þremur áföngum, þ.e. í
fyrsta áfanga, október til desem-
ber 1982, voru framkvæmd jarð-
vegsskipti og grunnur steyptur, í
öðrum áfanga, mars til hausts
1983, voru veggir reistir og húsið
gert rúmlega fokhelt og í þriðja
áfanga, janúar til júní 1984, var
gengið frá húsinu að innan.
Húsið er einlyft íbúðarhús, 341
m2 og 1473 m3 að stærð. Þar er
rúm fyrir 6 einstaklinga í einbýl-
isherbergjum. Að öðru leyti eru
þar öll venjuleg herbergi íbúðar-
húss, þ.e. stofa, borðstofa, eldhús,
þvottahús, snyrtingar, böð og
nauðsynlegar geymslur. Allt er
húsið hjólastólagengt og hefur það
að sjálfsögðu í för með sér all-
mikla rýmisaukningu.
Útveggir hússins eru steyptir og
eingangraðir að innan á hefðbund-
inn hátt. Innveggir eru úr tré og
hljóðeinangrun milli herbergja.
Það er borið upp af límtrésbit-
um. Að innan er það klætt furu-
panel en að utan lituðu prófilstáli.
Húsið er hannað á vegum Verk-
fræði- og teiknistofunnar sf.
Akranesi, bæði arkitekta- og verk-
fræðiteikningar, sem einnig hafði
yfirumsjón með verkinu.
Bygging hússins fór fram að
loknum útboðum. Verktaki við
grunn var Trésmiðja Guðmundar
Magnússonar. Pípulagnir á henn-
ar vegum voru í höndum pípu-
lagna Karvels og Páls. Trésmiðjan
Jaðar varð hlutskörpust í útboði
um að reisa húsið. Hún tók einnig
að sér alla gerð innréttinga.
Alexander Stefánsson, félagsmála-
ráðherra flytur ávarp.
GUÐMUNDUR
Sambýli fjölfatlaðra á Akranesi.
Ásamt henni stóðu eftirfarandi
aðilar að framkvæmdum: Pípu-
lagnir: Pípulagningaþjónustan sf.,
múrverk: Gísli Kvaran og Krist-
ján Hannibalsson, blikksmíði:
Blikksmiðja Guðmundar Hall-
grímssonar, Raflagnir: Raflagna-
þjónusta Sigurdórs Jóhannssonar,
málning Málningarverk sf. Bygg-
ingarkostnaður er u.þ.b. kr.
8.800.000,-.
Allar framkvæmdir voru undir
stjórn Svæðisstjórnar málefna
þroskaheftra á Vesturlandi, síðar
Svæðisstjórn málefna fatlaðra.
Formaður Svandís Pétursdóttir.
Sambýli fjölfatlaðra á Akranesi
er reist á vegum Svæðisstjórnar
málefna fatlaðra á Vesturlandi.
Er framtakið sérstakt að því leyti
að það er fyrsta sinnar tegundar á
landinu, þar sem það er byggt og
rekið með fjölfatlaða sérstaklega í
huga. Markmið Sambýlisins er
það sama og annarra sambýla á
landinu, þ.e. að leitast er við að
skapa heimilisanda t.d. með því að
hafa eininguna smáa í sniðum og
að þjónusta sé sótt út fyrir veggi
sambýlisins. Þó er á Sambýlinu
Sr. Björn Jónsson, sóknarprestur á
Akranesi, flytur ávarp.
Morgunblaðid/Jón Gunnlaugsson.
Svandís Pétursdóttir, formaður
svæðisstjórnarinnar flytur ávarp.