Morgunblaðið - 24.01.1985, Page 2

Morgunblaðið - 24.01.1985, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANtlAR 1985 Hoybye Christiansen, starfsmaður á Laxalóni, með einn hvítingjalaxinn sem þar er alinn. Morgunblaðið/Friðþjófur. Laxalón: Hoybye með nýklakin hvítingjaseiði í vinstri hendinni en venjuleg laxa- seiði í þeirri hægri. Litamunurinn er greinilegur. Fyrstu hyítingjaseiðin hafa séð dagsins ljós Gætu ordið verðmætur útflutningur SEIÐI eru þessa dagana að koma út úr hrognum hvítingjalaxanna á Laxalóni og eru þau öll hvítingjar eins og foreldrarnir. Á sínum tíma komu um 400 hvítir laxar út úr klaki á Laxalóni og hefur þeim verið haldið sér síðan með það fyrir augum að rækta hvítingja- stofn. en slíkur stofn mun ekki vera til í eldi annars staðar í heim- inum. „Við höfum haldið þeim sér, en ekki vitað hvers virði þetta er. Númer eitt var að vita hvort þeir tímguðust og hefur nú komið í ljós að svo er. Hvað tekst að gera úr þessu verður bara að koma i ljós,“ sagði Ólafur Skúlason á Laxalóni. Laxalónsmenn eru nú með 100 þúsund hvítingjahrogn í klaki, og ef þau verða alin í slát- urstærð eru þau efniviður í 300—400 tonn af hvítingjalaxi, „gulinum laxi“, sem ef til vill gæti verið útflutningsvara. Er- lendis er til hvítur regnbogasil- ungsstofn og gengur hann á mun hærra verði en venjulegur regnbogasilungur. „Hvort fólki líkar þessi litur á laxinum vitum við ekkert um, en ætlum okkur að komast að. í framhaldi af þvi verða teknar ákvarðanir um hvað gert verður við þennan hvítingjastofn okkar," sagði Ólafur. Ólafur G. Einarsson um ásakanir forsætisráðherra: Verður að eiga jafnt við þingflokk Framsóknar Ýmsir gætu litið í eigin barm hvað varðar frásagnir af því sem er að gerjast í ríkisstjórn ÓLAFUR G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæóisflokksins, seg- ir, aö forsætisráðherra hafi verið kunnugt um að skjal það, sem dreift var á þingflokksfundi Sjálfstæðis- flokksins, og sagt hefur verið frá í Lýst eftir bifreið LÖGREGLAN í Reykjavík auglýsti eftir bifreiðinni X-5571, sem er Will- ys Jeepster-bifreið árgerð 1967, blágrá að lit með svörtum toppi. Bifreiðin hefur veriðt týnd frá því um hádegisbil sl. sunnudag. Þeir sem kunna að hafa orðið var- ir við bifreiðina frá því á sunnu- dag vinsamlega láti lögregluna í Reykjavík vita. Regnbogasil- ungur á Banda- ríkjamarkað LAXELDISSTÖÐIN á Laxalóni hef ur undanfarnar vikur selt 40 til 60 kíló af regnbogasilungi á viku til Bandaríkjanna fyrir milligöngu frystihússins Voga hf. í Vogum. Fyrsta sendingin fór í desember og fæst mjög gott verð fyrir sil- unginn að sögn Ólafs Skúlasonar á Laxalóni. Síðustu 2 ár hefur Lax- alón selt regnbogasilung á innan- landsmarkaði og vart haft undan eftirspurn. Árið 1983 fóru 10 tonn til sölu innanlands, 30 tonn á síð- asta ári og í ár er áætlað að 50 tonn af regnbogasilungi verði framleidd til sölu innanlands. Mbl., hafi verið safnað saman í lok fundarins og tekið í vörslu hans sjálfs. f ásökunum forsætisráðherra þess efnis, að þingflokki Sjáifstæðis- flokksins sé ekki treystandi fyrir neinu plaggi komi fram, að hann treysti ráðherrum flokksins og for- manni og því hljóti ásökununum að vera beint að sér sem formanni þing- flokks og í því sambandi sagði hann: „Ég biðst alfarið undan því að hafa íátið það af hendi við nokkurn mann.“ Ólafur G. Einarsson sagði m.a.: „Það hefur komið fram hjá Stein- grími að honum sé kunnugt um að plaggið frá honum var afturkallað vegna þess að menn kærðu sig ekki um að hafa slíkt plagg undir höndum. Hann segir í viðtali við NT að hann treysti ráðherrunum og formanni flokksins og það er þá væntanlega ekki borið á aðra en mig, þar sem ég sem þingflokks- formaður tók þessi skjöl í vörslu mina, en ég biðst alfarið undan því að hafa látið þau af hendi við nokkurn mann. Þessi ásökun hans, að ekki sé treystandi þingflokki sjálfstæðismanna, verður því að eiga jafnt við þingflokk framsókn- armanna, eins og hann lét reyndar liggja að í öðru viðtali." Ólafur gerði einnig að umræðu- efni dreifingu skjala á þing- flokksfundum og sagði: „Ég vil gjarnan láta þá skoðun mína í ljós, að á meðan svona plogg eru á vinnslustigi, hvort heldur þau koma frá forsætisráðherra eða einhverjum öðrum, þá eigi ekki að dreifa þeim í þingflokkunum. Það er engum til góðs og helst á ekki að ræða þau fyrr en tillögurnar eru betur mótaðar en þær voru í þessu tilviki frá forsætisráð- herra." Ólafur G. Einarsson sagði að lokum: „Annars sýnist mér vegna ásakana forsætisráðherra, að SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur boðað verkfall undirmanna á kaupskipum frá og með klukkan 11 fyrir hádegi miðvikudaginn 30. janú- ar næstkomandi. Verkfallið mun hafa þær afleiðingar að strax fyrstu daga verkfallsins munu kaupskip stöðvast og smám saman mun allur kaupskipaflotinn stöðvast ef ekki nást samningar á milli aðila. llpp úr samningaviðræðum slitnaði í fyrra- kvöld og hefur ríkissáttasemjari ekki boðað til fundar í deilunni. „Við teljum að sú stund sé runn- in upp að við þurfum að ná mála- lokum í þessari deilu. Við höfum verið að ræða við útgerðirnar frá því í byrjun desember og orðið tímabært fyrir okkur að þrýsta á,“ sagði Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, aðspurður um ástæður þess að verkfall var nú boðað. ýmsir gætu litið í eigin barm í sambandi við frásagnir af því sem er að gerjast hjá ríkisstjórninni. Nefni ég þar engin nöfn og ekki einu sinni fyrsta stafinn." Jón H. Magnússon, formaður samninganefndar kaupskipaút- gerðanna, sagði: „Okkur finnst þetta heldur kaldar kveðjur frá viðsemjendum okkar. Við vorum í miðjum klíðum í samningaviðræð- um í gær þegar við fundum að þeir höfðu misst áhugann og virtist eins og þeir hefðu þá þegar ákveð- ið að fara í verkfall. Þeir vilja endilega fara í verkfall og verða auðvitað að ráða því sjálfir, en mér finnst þarna vera farið heldur frjálslega með verkfallsvopnið sem á að vera neyðarúrræði í kjaradeilum." Ekki er ljóst hvað í raun bar mikið á milli aðila þegar upp úr viðræðunum slitnaði í fyrrakvöld. Vinnuveitendur hafa boðið sömu launahækkun og varð á almenna vinnumarkaðnum, það er um 15% ofan á nóvemberlaun, auk sömu áfangahækkana. Einnig hafa þeir viljað einfalda launakerfið hjá Tvö tilboð í Bjarna Herjólfsson Akureyri, 24. janúar. STJÓRN Útgerðarfélags Akureyringa hf. ákvað í dag að gera *'lhoð í skut- togarann Bjarna Herjoll'sson, sem slegin var Landsbanka íslands á nauðungaruppboði seint á síðastliðnu ári. Þá er talið að útgerðarfélag KEA hafi einnig hug á skipinu en selja Snæfellið í staðinn. GBerg. Verður Sæ- dýrasafninu breytt í lax- eldisstöð? „VIÐ sjáum okkur ekki annað fært en að leggja Sædýrasafnið niður þó óljúft sé. Við höfum fengið sérfræð- ing til þess að meta hvort hægt sé að hafa fiskeldi í stöðinni. Ýmsir í lax- eldi hafa sýnt málinu áhuga, en það er enn á umræðustigi," sagði Hörður Zóphaníasson, stjórnarformaður Sæ- dýrasafnins, í samtali við blm. Mbl. Á síðastliðnu ári komu um 60 þúsund manns í safnið og voru tekjur um 4'/2 milljón króna. „Við fjárfestum mikið áður en við opnuðum aftur og því miður býður „kerfið" ekki upp á langtímalán til svona starfsemi. Við höfum orðið að reka þetta á skammtímalánum, og enginn rekstur getur staðið und- ir slíku. Langtímalán hefðu tryggt rekstur safnins," sagði Jón Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Sæ- dýrasafnins í samtali við blm. Mbl. „Við höfum haft góðar tekjur af sölu háhyrninga undanfarin ár. En síðastliðið ár vorum við óheppnir með kaupanda að háhyrningum og lentum í málaferlum," sagði Jón Gunnarsson. Deilur komu upp við umboðsmann vegna sölu á háhyrn- ingi án samráðs við safnið. For- ráðamenn safnsins töldu þetta brot á samningum og riftu. Umboðs- maðurinn fór í mál við safnið og vann það og varð Sædýrasafnið fyrir allmiklu tjóni vegna þessa. „Þetta áfall ásamt rekstrarerfið- leikum knýr okkur til þess að leggja safnið niður. Það eru mér óskapleg vonbrigði að leggja árar i bát, því ég hef um árabil barist fyrir þessum rekstri. Fólk hefur kunnað að meta þessa starfsemi — ekki síst börn. Þeirra vegna er sárt að loka,“ sagði Hörður Zóphanías- son. undirmönnum til samræmis við þær breytingar sem urðu hjá yfir- mönnum 1979, það er að breyta tilfallandi yfirvinnu í fastar greiðslur. Sjómenn fara fram á að vera ekki lakar settir en hafnar- verkamenn. Þá telja þeir eðli vinnunnar samkvæmt ekki hægt að miðað launakerfið að öllu leyti við það sem er hjá yfirmönnum. Sjómenn hafa að sögn Guðmundar lýst sig reiðubúna til að meta skattafrádrátt, svipaðan og fiski- menn fá, sem kjarabót. „Þessi deila snýst fyrst og fremst um samanburð, en ekki hvort fólk getur lifað af launum sinum," sagði Jón, en Guðmundur sagði: „Hvað geta menn gert sig ánægða með eftir það sem á undan er gengið í þjóðfélaginu svo sem gengisfellingu, geysilegt launa- skrið og kjaradóm? Hvers er hægt að krefjast af okkur ef svona er gengið á undan?" Stöðvast kaupskipaflotinn?: Undirmenn í verk- fall 30. janúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.