Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985 Lokastaðan á svædamótinu U 99 Skák Margeir Pétursson SVÆÐAMÓTI Norður- landa lauk í Gausdal í Nor- egi fyrir síðustu helgi. Mót- iö var afskaplega jafnt og spennandi og strax um miðbikiö var sýnt að hverf- andi líkur væru á því að ein- um keppanda tækist að stinga hina af og hreppa eina örugga sætið á milli- svæðamóti sem teflt var um. Raunin varð líka sú að við Simen Agdestein frá Noregi urðum jafnir og efst- ir eftir geysilega harða keppni og verðum við að tefia einvígi um örugga sæt- ið, en sá sem tapar einvígi okkar verður að tefla nýtt einvígi við þann sem verður annar á svæðamóti í ísrael sem hefst innan skamms. Svo sem sjá má af meðfylgj- andi töflu var óvenju lítið um jafntefli á mótinu, a.m.k. mun minna en á alþjóðlegum mótum af sambærilegum styrkleika. Það var því fremur sorglegt að mótið skyldi vera teflt á svo af- skekktum stað sem Gausdal, því áhorfendur voru sárafáir. Það sem einna mesta athygli vakti var að Bent Larsen var sleginn út, en hann hefur teflt á öllum millisvæðamótum síðan 1965 og þar af unnið þrjú! Það hefur því vafalaust verið mikið áfall fyrir hann að vera sleginn út strax á svæðamóti, en hann mun nú hyggja á grimmilegar hefndir á Reykjavíkurskákmót- inu í febrúar. Nærvera hans gaf svæðamótinu að sjálfsögðu stór- aukið gildi og þar tefldu flestall- ir sterkustu skákmenn Norður- landa, að Andersson undanskild- um. Hann kemst beint á milli- svæðamót vegna hárra skákstiga sinna. Við íslendingarnir vorum allir í toppbaráttunni en stríðs- gæfan snerist þeim Jóhanni og Helga í óhag á mikilvægum augnablikum. Eg fékk óskabyrjun með því að vinna Larsen I æsispennandi skák, sem ég get ekki stillt mig um að birta hér með mun ýtar- legri skýringum en þegar hún kom fyrst hér í hlaðinu. Skákin er bæði frumleg, skemmtileg og gölluð, sem sagt skák sem áhorf- endum líkar vel og hefði hún því átt betur heima á afmælismóti Skáksambandsins í febrúar en í norskum afdal. Hvítt: Bent Larsen Svart: Margeir Pétursson Tarrasch-vörn 1. c4 — Rf5, 2. g3 — e6, 3. b3 Slikar vængtaflsbyrjanir voru töluvert vinsælar fyrir 12—15 árum, en hafa nú að mestu vikið fyrir beinskeyttari byrjunum. Larsen er kreddufullur áhang- andi þessarar leikjaraðar og lendir nú í afbrigði af Tarrasch- vörn, sem talið er bitlaust fyrir hvítan, og það ekki í fyrsta skipti. 3. — d5, 4. Rf3 — c5, 5. Bg2 — Rc6, 6. (M) — Be7, 7. cxd5 — exd5, 8. d4 — 0-0, 9. Bb2 — Re4 Annar ágætur möguleiki er 9. — He8, 10. Rc3 — Bg4. Þannig hef ég oft teflt, en fannst of freistandi að láta reyna á hvað Larsen hefði í pokahorninu gegn leikaðferð þeirri sem Kasparov beitti gegn honum á stórmótinu í Niksic 1983. 10. Rc3 — Bf6, ll.Ra4 — b6 Þessi tilraun til að styrkja miðborðið varð mjög þekkt eftir áðurnefnda skák Larsens og Kasparovs (en hafði reyndar áð- ur verið notuð á sovézku móti) sem tefldist þannig 11. — He8, 12. Hcl - b6, 13. dxc5 - Bxb2, 14.Rxb2 - bxc5,15. Ra4 - Ba6!, 16. Hel - c4, 17. Rh4?! - (17: Rd2! er betra. í skákinni Arl- andi-Karl Þorsteins, heims- meistaramóti unglinga 1984, náði hvítur yfirhöndinni eftir 17. — Dg5,18. Rxe4 — dxe4,19. bxc4 — Had8, 20. Db3 - Rd4, 21. De3 — Da5?!, 22. Hedl!) Da5,18. Rf5 — g6,19. Rd4 — Hac8 og svartur stendur vel að vígi. 11. — b5? er hins vegar gildra sem margir hafa fallið í: 12. Rxc5! — Rxc5,13. Hcl og svartur er í miklum vandræðum. 12. Hcl — Ba6, 13. dxc5 — Bxb2, 14. Rxb2 — bxc5, 15. Rd3!? 15. Ra4 — He8, hefði leitt til sömu stöðu og hjá Larsen og Kasparov. Þessi nýi leikur Dan- ans virðist ekki blása nýju lífi i afbrigðið. — He8, 16. Hel Tveir Kúbumenn tefldu nýlega þannig 16. Rf4 — Rb4, 17. Rd2 — Rxa2, 18. Rxe4 — Rxcl, 19. Rc3 — g5, 20. Dxcl — gxf4, 21. Bxd5 og flækurnar reyndust hvítum hagstæðar. 16. — d4 hefði því verið mun sterkara. 16. - Db6! Þarna stendur drottningin vel og 17. Rf4 má nú svara með 17. — d4,18. Rd5 — Dd8. Þá forðast svartur gildruna 17 — De7?, 18. Rxc5 — Rxc5!, 19. Dc2 og hvítur nær mun betri stöðu. Eftir 17. — Db6 má svara 18. Rxc5? með Rxc5, 19. Dxd5 - Re4!, 20. Dxc6 — Dxf2+, 21. Khl - Bxe2, 22. Hc2 - Bxf3!, 23. Hxf2 - Rxf2+, 24. Kgl — Bxc6. 17. e3 — Had8, 18. Bfl — c4! Hvassara en 18. — d4, sem þó myndi einnig gefa svörtum góða stöðu, því eftir 19. exd4 — cxd4 gengur 20. Hxc6? ekki vegna 20. — Dxc6, 21. Rb4 - Db6,22. Rxa6 — d3! og livítur fellur á sjálfs sín bragði. 18. — d4 hefur hins vegar þann galla að hvitur er reiðubú- inn til að skorða svarta frípeðið af og Rd3 stendur vel. 19. Rf4 — Rb4, 20. Hal Þvingað því eftir 20. a3? er Ra2! sterkt. — Df6, 21. Kg2 Svartur hótaði að ieika 21. — Rd3. — Rc3? Eftir nákvæma byrjanatafl- mennsku lendir svartur nú gjör- samlega á villigötum. Mun sterkara var að notfæra sér an- kannalega kóngsstöðu hvits og leika 21. — Bb7! Eftir þann leik stendur svartur mun betur. Helstu afbrigðin eru: 1) 22. Dd4? - Rc2 2) 22. Rd4 - g5 (22. - Rc6!?), 23. Rh3 6 Bc8, 24. g4 — h5 með yfir- burðastöðu. 3) 22. Kgl - g5, 23. Rh5 - Df5, 24. h3! (eini leikurinn) — d4! og flækjurnar sem fylgja í kjölfarið virðast svörtum í hag. 4) 22. h4 — d4!, 23. exd4 — Rc3, 24. Dd2 - Bxf3+, 25. Kxf3 - Dc6+, 26. Kg4!? — Re4! og hvítur er glataður. 22. — Dcl! Larsen gripur auðvitað tæki- færið, en fellur ekki í gildruna 22. Dd2? - Rcxa2, 23. Hxa2 - c3. Nú hefði svartur átt að snúa frá villu síns vegar og leika 22. — Re4 eða 22. - d4!? — Rcxa2?!, 23. Da3 - cxb3, 24. Dxb3 Af einhverjum furðulegum ástæðum reiknaði ég aðeins með 24. Bxa6 — Dxa6, 25. Dxb3 — Dc4 er ég lék 21. — Rc3? Nú var öruggast að leika 24. — Bxfl+, 25. Kxfl - Dc3, 26. Dxc3 - Rxc3, 27. Hxa7 með heldur betra endatafli á hvítt, en ég gerði til- raun til að halda frumkvæðinu: — Bc4!, 25. Bxc4 — dxc4, 26. Dxc4 — Hc8, 27. Db3 - Dc3, 28. Da4 Larsen teflir að sjálfsögðu til vinnings. eftir 28. Dxc3 — Hxc3, 29. He2 — Ha3 er svartur í eng- um vandræðum en nú fór hið afvegaleidda svarta riddarapar að valda mér þungum áhyggjum. Hvítur hótar einfaldlega 29. He2 og 28. — Db2? má svara með 29. Hxa2! Ég lék eina leiknum: — Dc4, 29. Hebl?! 29. Dxa7?! var vægast sagt hæpið vegna hins lúmska leiks 29. — Dc6! með tveimur hótun- um: 30. — Ha8, 31. Dd4 — Rc2 og 30. — g5, 31. Re2 — g4. Larsen hafði nú þegar eygt möguleika á kóngssókn og hafnaði því örugg- um leikjum á borð við 29. Rd4 og 29. h4. Að öllum líkindum hefur hann ofmetið stöðu sína. — a5 30. Dxa5!? Fórnar skiptamun en það fannst vart önnur leið til að tefla til vinnings, því 30. Hb2 er svar- að með 30. — Rcl! — Ha8, 31. Dh5 — Rc2 32. Hb6!! Tíminn var nú orðinn afar knappur og Larsen hikaði lengi fyrir þennan djarfa en nauðsyn- lega leik. Hann hafði upphaflega ætlað sér að leika 32. Hb7 en sá nú að eftir 32. — Rxal, 33. Rg5 getur svartur einfaldlega leikið 33. - Dc6. — Rxal Ef einhverjum hefur fundist svarta riddaraparið afkáralega staðsett á a2 og b4 hlýtur hinum sama gjörsamlega að blöskra núverandi staðsetning þeirra á al og a2. Ég hélt reyndar að slík- ar stöður gætu aðeins komið upp í skákdæmum, eða þá hjá byrj- endum sem hefðu misskilið markmið skákarinnar og talið að það væri að koma riddurunum upp í borð hjá andstæðingnum. 33. Rg5 - h6, 34. Hxh6! Eina leiðin til að halda áfram sókninni. Ef Larsen hefði unnið skákina hefði hún ábyggilega orðið ódauðleg. - gxh6, 35. Dxh6 — Ha6 Eftir þennan leik átti ég að- eins 15 sekúndur eftir, en Larsen átti ca. 2 mínútur sem hann eyddi mestu af á næsta leik sinn. 36. Dh7+ — Kf8, 37. e4!? Reynir að grugga vatnið í tímahrakinu. Eftir 37. Rfe6+ — Dxe6, 38. Rxe6+ — Hexe6, 39. Dh8+ — Ke7, 40. Dxal -kemur upp vandmetin staða sem er sennilega jafntefli. — HI6!, 38. Rd5 — Hxf2+, 39. Kxf2 — Dd4+, 40. Kf3? Svartur hefur ratað á einu vörnina og í síðasta leik fyrir tímamörkin finnur Larsen ekki eina leikinn, enda enginn tími til að hugsa: 40. Kg2! hefði haldið jafntefli sbr. afbrigðin: 1) 40. - Dd2+, 41. Kh3 - Dxg5, 42. Dh8+ - Dg8, 43. Dh6+ — Dg7, 44. Dd6+ (Larsen sá ekki þessa snjöllu vendingu) — Kg8, 45. Rf6+ — Kh8, 46. Df4!! og hvít- ur heldur jöfnu. 2) 40. — Dg7,41. Dh4 með hótun- inni 42. Rf6. 1 þessari stöðu hef- ur hvítur fullnægjandi mótvægi því 41. — Dg6 má svara með 42. Dh8 og 41. - f6 með 42. Rxf6! — Dg7, 41. Df5 41. Dh4 mátti nú svara með 41. - f6! í þessari fáránlegu stöðu fór skákin í bið. Svartur er að vísu hrók yfir en mér leist ekki meira en svo á stöðuna, því á kóngs- vængnum er það hvítur sem hef- ur liðsyfirburði og riddarapar hans gerir honum kleift að búa til óteljandi gildrur. í hléinu sagði Jóhann Hjartarson vafa- laust réttilega að það þyrfti geðsjúkling með ofsóknarbrjál- æði til að tefla svörtu stöðuna. (Hvílík hvatning!) Okkur Jó- hanni og Helga tókst þó að finna góða varnaráætlun fyrir svartan og í framhaldinu gafst Larsen upp þegar riddaraparið góða var komið í leikinn: — Dg6 (biðleikurinn sem var þvingaður), 42. Df4 — Rc2, 43. Rf6 — Hd8, 44. De5 — Rd4+, 45. Kg2 - Rc6, 46. Db2 — Rab4, 47. h4 — Ke7! og hvítur gafst upp. s 10 1± 12 AGÞESTEIN (No'ey) MP\RGE\R PÉTUKSSON L A RS EN CDannmórkLc) JÓHANN HTARTARS. HBLOI QIF\F5S0N HANSEN CDannórku) ÖSTEN 5TADCNore.<ji) SCNUSSLER CSv'h'oZ) ERNST (Sr't>j6&) VR JÖL f\ Cf~ir\n ) l/VESTERINEN (Rwl.) MOEN (Noraqi) STIÓ- 25-Qö 25ZS 2520 2530 2515 1505 2325 2^55 zvso 2500 2V2Q 2330 VINN. ftÖÐ 1-Z. 1-2. 5-T £± S_ ±_ ia w /2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.