Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 24
24
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
Metkuldi
í Flórída
New York, 23. janúar. AP.
FROSTAKALDIR vindar norðan frá
einkum austurhluta þeirra, og hefur
Flórída. Aö minnsta kosti 145 manns
daga.
A Flórída hefur verið hart frost í
þrjá daga og stefnir í stórslys í
ávaxtaræktinni, sem er umfangsm-
ikill atvinnuvegur í ríkinu. Þar og í
nálægum ríkjum hefur frostið farið
niður í 13 gráður dag eftir dag og
Bandaríkja-
her hættir
við Colt-45
BANDARÍSKI herinn hefur loks-
ins fallizt á það, sem lan Fleming,
höfundur bókanna um James
Bond, hefur mælt með árum sam-
an. Hefur herinn ákveðið að
hætta við Colt-45 marghleypuna,
sem yfirmenn og herlögreglu-
menn hafa venjulega borið og
taka í þess stað upp minni byssu
af gerðinni Beretta, sem er ítölsk.
Með þessari ákvörðun hersins
var bundinn endir á margra ára
deilur um þetta atriði. Var
þetta rökstutt m.a. með því, að
Beretta-byssan væri léttari, ör-
uggari og nákvæmari en Colt-
45, sem herinn hefur notað allt
frá árinu 1911.
Sumir yfirmenn í hernum
vildu halda fast við Colt-45, en
enn aðrir kvörtuðu yfir óná-
kvæmni hennar og hve þung
hún er. Einn komst meira að
segja þannig að orði: „Ég er viss
um, að þessi gerð byssu hefur
skotið fleiri Bandaríkjamenn en
óvini.“
heimskauti næða enn um Bandaríkin,
frostið ekki fyrr mælst jafn mikið á
hafa lafist af völdum veðursins síðustu
hafa menn engin dæmi um slíkan
kulda fyrr. Bandaríska geimferða-
stofnunin hefur af þessum sökum
frestað flugi geimferjunnar, en til
stóð að senda hana á loft frá Cana-
veral-höfða í dag.
í Norðausturríkjunum snjóaði í
dag og þótti fæstum ábætandi.
Fannfergið var víða mikið fyrir, en
nú þurfa menn að vaða mjöllina í
mitti. Umferðartruflanir eru gíf-
urlegar og nú er víða orðinn
vatnsskortur vegna þess, að fólk
lætur sífellt renna úr krönum til að
ekki frjósi í leiðslunum.
Veðurfræðingar sjá þess engin
glögg merki, að kuldakastinu muni
linna næstu daga.
í Mflanó á Ítalíu hafa verið miklir kuldar og fannfergi meira en elstu menn rekur minni til. Voru ítalir mjög vanbúnir
og var því herinn kvaddur á vettvang til að ryðja af götunum. Er öllum tiltækum tækjum beitt við það, jafnvel
skriðdrekum, eins og hér má sjá.
Fimmtíu deyja daglega
úr kóleru í Eþíópíu
Addia Ababa, 23. janúar. AP.
AÐ MINNWTA kosti 50 manns
deyja nú daglega úr kóleru í njálp-
arbúðum í héraðinu Wollo í norður-
hluta Eþíópíu. Er óttazt að veikin
kunni að breiðast út til annarra
hjálparbúða sem komið hefur verið á
fót til aðstoðar þeim er orðið hafa
hart úti af völdum hungursneyðar-
Discovery:
Frostið
frestun
('ape ( anaveral, Ftórída, 23. janúar. AP.
FROST olli öðru sinni 24 stunda
seinkun á fyrirhuguðu flugtaki
geimskutlunnar Discovery, sem
átti að fara í fyrsta hernaðarleið-
angur sinn í dag, miðvikudag, að
því er NASA, bandaríska geimvís-
indastofnunin, tilkynnti síðla
þriðjudags.
Skömmu fyrir miðnætti til-
kynnti stofnunin, að fresta yrði
ferðinni vegna „sérlega óhag-
stæðra veðurskilyrða" sem hefðu
í för með sér hættu á ísingu, og
kvað áætlað að aftur yrði reynt
síðdegis á fimmtudag.
Vegna hernaðarleyndar var
ekki nákvæmlega greint frá
brottfarartíma.
Loftárás
íraka
Bígdad, 23. jan. AP.
ORRUSTUÞOTUR íraka réðust í
dag á skip fyrir sunnan olíuhöfn
írana á Kharg-eyju í Persaflóa.
Kkki var skýrt frá því hverrar þjóð-
ar skipið væri, en tekið fram, að
árásarþoturnar hefðu „hitt beint í
mark“.
Yfirvöld í Bahrain héldu því
hins vegar fram í dag, að þar
hefði ekki heyrst neitt neyðar-
kall frá skipi á þeim tíma, sem
írakar segjast hafa gert loft-
árásina.
olli
flugtaks
I áhöfn skutlunnar að þessu
sinni eru fimm liðsforingjar úr
hernum og er markmiðið með
ferðinni m.a. að koma njósna-
hnetti á braut um jörðu, og á
hann að safna upplýsingum um
Sovétríkin.
Með því að halda brottfarar-
tímanum leyndum vonast flug-
herinn til að geta komið í veg
fyrir að Sovétmenn fylgist með
njósnahnettinum.
innar í landinu. Er haft eftir
ónafngreindum mönnum, sem vinna
að hjálparstarfinu, að hætta sé á að
veikin breiðist víða, þar sem stjórn
Eþíópíu „taki ekki skýrslur um veik-
ina alvarlega".
Þúsundir manna, sem þegar eru
mjög veikburða af matarskorti,
halda áfram að streyma til hjálp-
arbúðanna á hverjum degi. Hefur
þetta enn meiri hættu á alvarleg-
um sjúkdómum í för með sér en
sjálf offjölgunin á fólki í búðun-
um.
Haft er eftir Susan Barber, sem
starfar við hjálparstofnun kaþ-
ólsku kirkjunnar í Bandaríkjun-
um, að eins og alltaf séu það börn-
in sem eru í mestri hættu. Þá eru
taugaveiki, mislingar og blóð-
kreppusótt mjög útbreidd.
Séra Cliff Benzel, sem starfar
við aðra hjálparstofnun, hefur
komizt svo að orði, að nú standi
baráttan ekki hvað sízt um það að
tryggja að stór hluti yngri kyn-
slóðarinnar í Eþíópíu verði ekki
fyrir heilaskemmdum sökum nær-
ingarskorts.
Frá hjálparstarfinu í Wollo í Eþíópíu. Hungruðu barni gefinn matur.
England:
Eldurinn var ekki
í imbakassanum
Hirmincham, 23. janúnr. AP.
GEORGE Thurlov og fjölskylda
hans í borginni Birmingham í
Englandi voru svo gagntekin af
bandariska sjónvarpsþættinum
„St. Elsewhere". að þau létu aldrei
neitt trufla sig þegar hann var á
dagskrá. Jafnvel þótt eldurinn bál-
aði um glugga og göng lét hún það
ekki slíta sig frá skerminum nema
hvað húsbóndinn brá sér aðcins
frá til að hringja á slökkviliðið.
Þegar slökkviliðið kom á
vettvang hljóp George út í dyr
og veifaði í ákafa eins og til að
vekja athygji á því hvar eldsvoð-
inn væri. „Ég spurði hann hvar
bálið væri og hann sagði, að það
væri í svefnherberginu svo að ég
sendi inn tvo menn með reyk-
grímu enda kófið mikið og kol-
svart," sagði Paul Cullen, varð-
stjóri í slökkviliðinu. „Þá spurði
ég hann hvort fleira fólk væri í
húsinu og hann sagði, að kona
sín og dætur tvær væru í næsta
herbergi við svefnherbergið.
„Guð minn góður," varð mér að
orði og sendi inn tvo menn til
viðbótar til að bjarga konunum.
„Þegar mennirnir komu inn í
herbergið sátu mæðgurnar fyrir
framan sjónvarpstækið, sem rétt
grillti í gegnum mökkinn, og
önnur dóttirin var meira að
segja að reykja sígarettu. Móðir-
in hóstaði ákaflega en ég veit
ekki hvort það stafaði heldur að
reyknum frá eldinum eða sígar-
ettunni," sagði Cullen.
„Það tók okkur um hálftíma
að ráða niðurlögum eldsins en á
meðan tyllti fjölskyldan sér
niður á garðvegginn. Þegar allt
var um garð gengið rauk hún inn
aftur og hefur líklega náð að sjá
síðustu atriðin í sjónvarpsþætt-