Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
Einkasjónvarp
í undirbúningi
í Frakklandi
VGGNA vaxandi þrýatings frá al-
menningi gerir Francois Mitterrand,
forseti Frakklands, væntanlega
grein fyrir því í þessari viku, með
hvaða hætti komið verði á fót frjáls-
um sjóvarpsstöðvum í landinu, sem
keppa eiga við þær þrjár sjónvarps-
rásir, er franska ríkið starfrækir.
Markmiðið er að koma á svipuðu
fyrirkomulagi og í Bretlandi, þar
sem bæði hið opinbera og einkaaðil-
ar reka sjónvarpsstöðvar.
Mitterrand skýrði hinn 4. janú-
ar sl. frá þeim áformum sínum að
leyfa einkaaðilum að hefja sjón-
varpsrekstur, en gerði að öðru
leyti ekki nánari grein fyrir þess-
um áformum. Samkvæmt heimild-
um innan frönsku stjórnarinnar
tók forsetinn þessa ákvörðun
vegna þrýstings frá nokkrum
ráðherrum sinum, stórum fjöl-
miðlafyrirtækjum, sveitarfélögum
og ólöglegum „sjóræningja“-sjón-
varpsstöðvum, sem þotið hafa upp
víðs vegar um Frakkland.
Ef leyfður yrði einkarekstur á
sviði sjónvarps, þá væri það fyrsta
skrefið í þá átt að binda endi á þá
ríkiseinokun á frönsku sjónvarpi,
sem komst á eftir heimsstyrjöld-
ina síðari. Þetta kæmi í kjölfar
þeirrar ákvörðunar stjórnarinnar
1f>«2 að leyfa 1000 útvarpsstöðvar
einkaaðila, sem starfa við hlið
ríkisreknu útvarpstöðvanna.
Þeirri skoðun hefur vaxið ás-
megin að losa þurfi franskt hljóð-
varp og sjónvarp undan stjórn
ríkisins. Hinn 10. desember sl.
fóru um 100.000 manns - aðallega
ungt fólk - í mótmælagöngu gegn
tímabundnu banni við starfsemi
nokkurra FM-útvarpsstöðva í Par-
ís. „Það sýndi okkur, hve við-
kvæmt þetta deilumál er,“ er haft
eftir einum af ráðgjöfum Mitterr-
ands í málefnum fjölmiðlanna.
Margar sjónvarpsstöðvar á veg-
um einkaaðila hafa þegar hafið
ólöglegar útsendingar, en þeim
hefur jafnan verið lokað fljótlega
af lögreglunni. Þessir einkaaðilar
vilja fá að koma á fót ýmist stað-
bundnum eða svæðisbundnum
stöðvum eða þá stöðvum, sem ná
til landsins alls og eiga þessar
stöðvar að fá að treysta á auglýs-
ingjatekjur með afkomu sína.
Enda þótt ekki hafi enn verið
tekin ákvörðun um mörg einstök
atriði, þá er það markmið stjórn-
arinnar að koma upp kerfi, hugs-
anlega þegar snemma á næsta ári,
þar sem leyfðar verða sjónvarps-
stöðvar einkaaðila jafnt sem sjón-
varpsstöðvar á vegum ríkisins.
Höfðu betur gegn Bakkus
Hér á myndinni eru þrjár kunnar konur, Lisa Minelli, Elizabeth Taylor og Betty Ford, tvær leikkonur og
fyrrverandi forsetafrú, sem allar eiga það sameiginlegt að hafa verið áfengissjúklingar. Þegar Betty hafði
unnið bug á alkóhólismanum setti hún á fót stofnun fyrir þá, sem ratað höfðu í sömu ógæfu og hún, og síðan
hefur unnist þar margur sigurinn ( stríðinu við Bakkus konung. Þær Liza og Taylor kunna báðar að segja
sögur af því.
Dagblað í Indlandi:
„Indverjar eiga
engin leyndarmál
Þau eru öll í umferð hingað og þangað“
Nýju Delhí, 23. jasúar. AP.
HÁTTSfc'riTIM embættismanni í
indverska varnarmálaráðuneytinu,
Bandaríski sjóherinn tók þessa mynd af sovéskum kjarnorkukafbát í Atlantshafinu í október 1970. Eldur hafði
riski sjóherinn tók þessa mynd af so'
tið upp um borð og margir látið lífið.
Sovétmenn leyndu
alvarlegum slysum
kjarnorkukafbáta
NÝBIKT skjöl bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA leiða í Ijós að á
árunum 1966—1981 lentu kjarn-
orkuknúnir kafbátar Sovétmanna
fjórum sinnum í alvarlegum slys-
um, sem aldrei var frá greint
opinberlega. Það var bandaríska
sjónvarpsstöðin CBS, sem skýrði
frá þessu fyrir nokkrum dögum.
Skjöl CIA leiða ennfremur í
ljós ný atriði í sambandi við slys
það er henti sovéska ísbrjótinn
Lenin fyrir tæpum tveimur ára-
tugum. Nú er ljóst að kjarn-
kleyft efni í kjarnaofni skipsins
bráðnaði og hættuleg geislun
siapp út; 30 manns létust og
margir til viðbótar slösuðust. I
ljósi þessara upplýsinga verður
að telja atvik þetta eitt alvarleg-
asta kjarnorkuslys fyrr og síðar.
Árið 1966 lak geislavirkt efni
frá kjarnorkuknúnum kafbát er
hann var staddur skammt frá
Poljarnyj, sem er ekki langt frá
höfuðstöðvum Norðurhafsflot-
ans á Kólaskaga. Áhöfnin varð
skelfingu lostin og einhverjir úr
sveit viðgerðarmanna kunna að
hafa látið lífið vegna geislunar.
Einhvern tíma á árunum
1966—1968 kom upp mikill eldur
í kjarnorkuknúnum kafbát, sem
var á siglingu undir heims-
skautaísnum á Norðurpólnum.
Margir slösuðust, en ekki er vit-
að til þess að geislavirkt efni
hafi lekið út.
í október 1976 kviknaði í
kjarnorkuknúnum kafbát, sem
var á siglingu í Atlantshafi. Þrír
úr áhöfninni létu lífið.
Snemma í september 1981
sendi kjarnorkuknúinn kafbátur
í Eystrasalti frá sér neyðar-
merki og var dreginn til hafnar í
Sovétríkjunum í skjóli myrkurs.
Margir úr áhöfninni létust vegna
„alvarlegra geislaáhrifa".
í CIA-skýrslunni, sem CBS
vitnaði til, koma ennfremur
fram nákvæmari upplýsingar, en
hingað til hefur verið unnt að
afla, um tildrög og afleiðingar
sjö annarra kjarnorkuslysa, er
hent hafa sovéska kafbáta sl.
hálfan annan áratug.
Heimild: Jane’s Defense Weekly
19. janúar.
þeirri deild þess, sem hefur með
vopnaframleiðsluna að gera, hefur
verið skipað að láta af störfum með-
an verið er að kanna hlut hans í
njósnamálinu mikla.
M.C. Sarin, yfirmanni vopnafram-
leiðsludeildar varnarmálaráðu-
neytisins, var skipað að hætta störf-
um eftir að aðstoðarmaður hans var
handtekinn um síðustu helgi en hon-
um er gefið að sök að hafa látið
leyniskjöl af hendi við erlenda
menn. A.m.k. fimm aðrir starfsmenn
varnarmálaráðuneytisins hafa verið
handteknir fyrir sömu sakir.
Indverska fréttastofan segir, að
rúmlega 60 háttsettir embættis-
menn i stjórnarskrifstofum, her
og leyniþjónustunni séu grunaðir
um njósnir og að auk þess sé verið
að athuga mál um 2000 óbreyttra
borgara, sem unnið hafa að ein-
hverjum verkefnum fyrir hið
opinbera.
Dagblaðið The Hindustani
Times segir, að hollenskur kaup-
sýslumaður, sem nefndur er
Coomar Narain, hafi keypt ljósrit
af leyniskjölum hersins og komið
þeim áfram í hendur Alain Bolley,
hermálafulltrúa franska sendi-
ráðsins, sem nú er farinn úr landi.
Meðal upplýsinganna var að finna
áætlanir um hvernig öryggis
Gandhi, forsætisráðherra, skyldi
gætt, frásagnir af umræðum í rík-
isstjórninni og tillögur um þróun
leysitækni og hernaðarlegan við-
búnað til að mæta hugsanlegri
innrás frá Pakistan.
Ýmsar vinkonur Narains liggja
einnig undir grun en þær héldu að
sögn margar og veglegar veislur
fyrir embættismenn ríkisstjórnar-
innar. Sumar kvennanna fara nú
huldu höfði vegna þessa máls.
Við húsleit á heimilum þeirra,
sem handteknir hafa verið, hafa
fundist um 300 leyndarskjöl upp á
þúsundir blaðsíðna og er í þeim
m.a. fjallað um vopnakaup Ind-
verja, kjarnorku- og geimrann-
sóknir, tæknilega samvinnu við
önnur riki, starfsemi leyniþjón-
ustunnar, afstöðu stjórnarinnar
til Sri Lanka og Pakistan, við-
kvæm umræðuefni á ríkisstjórn-
arfundum og hermál.
Sonarsyni Axels
Springer rænt
Cbur, Sviss, 23. janúar. AP.
SVEN-AXEL Springer, nítján ára son-
arsvni vestur-þýzka útgefandans Axel
Springer, sem var rænt í fjallaþorpi í
Sviss á mánudag, var látinn laus á
flugvellinum í Ziiricli í kvöld, að sögn
lögreglu.
Lögregla rauf í kvöld tveggja sól-
arhringa fréttabann af atburðinum
og sagði fjölskyldu piltsins í Miin-
chen hafa fengið skilaboð frá ræn-
ingjunum, þar sem krafizt var 15
milljóna þýzkra marka í lausnar-
gjald. Þremur stundum seinna
spurðist út að hann hefði verið lát-
inn laus.
Óljóst er hverjir stóðu að ráninu,
en Axel Springer hefur ítrekað orðið
fyrir árásum vinstri róttæklinga.
Tjón hefur verið unnið á byggingum
fyrirtækis hans í Hamborg og
V-Berlín í mótmælaaðgerðum og
fjallakofi hans í Sviss var brenndur
til grunna 1975.
Sven-Axel er sonur Sven Spring-
er, kunns Ijósmyndara sem fyrirfór
sér fyrir fáeinum árum.
Útgefandinn Axei Cesar Springer
styður á öxl sonarsonar síns, Axels
Svens Springer, við útför foður Axels
Svens, sonar Axels Cesar, 1980.
Símamynd/AP.