Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985 £ru fósturdeyðingar nauðsyn? eftir Jón Val Jensson Á sl. sumri skrifaði ég nokkrar greinar hér í blaðið um fóstur- deyðingar. í kjölfar þeirra fékk ég fáein bréf vestur á ísafjörð, en tvö þeirra komu heldur óþægilega við mig. Voru þau svo illskeytt, að það má mikið vera, ef þau varða ekki við lögin um friðhelgi einkalífs. Bæði voru þau merkt stafnum „J“, en auk þess var í síðara bréfinu ljósrituð klausa með undirskrift- inni „Tómas David Björnsson". Á lítt áberandi stað í öðru bréfinu stendur orðið Sarah, en vegna þess að það er sett inn í Biblíutilvitnun (eina margra ruglingskenndra af því tagi í bréfunum), hélt ég, að verið væri að vísa á einhvern hátt til Söru, konu Abrahams, í Gamla testamentinu. Bæði bréfin voru að nokkru leyti á ensku. Þann 3. þ.m. birtist svo í Vel- vakanda langt bréf um fóstur- deyðingar, undirritað Sarah Jó- hanns. Ýmislegt í því bréfi minnti á efni níðbréfanna, sem mér voru send, svo sem þvaðrið um „karl- rembu" hjá andstæðingum fóstur- deyðinga, sú einkennilega árátta að slá um sig með Bibliutilvitnun- um i því skyni að réttlæta fostur- deyðingar (!!), og ennfremur var þarna að finna þá fjarstæðu- kenndu fullyrðingu, að í Mexíkó deyi árlega 140.000 konur vegna ólöglegra fósturdeyðinga (en þá fullyrðingu hafði ég aðeins séð einu sinni áður — í níðbréfi „J“ dags. 25.10. 1984). Ég taldi þá að sjálfsögðu líklegt, að hér væri um sömu manneskju að ræða. Fulla staðfestingu á því fékk ég, þegar ég veitti aftur eftirtekt nafninu „Sarah“ í siðara bréfinu, sem þessi persóna var svo væn að senda mér. Falsað nafn? Mér þótti nafnið „Sarah Jó- hanns“ í meira lagi grunsamlegt. Það ber enginn ættarnafnið „Jó- hanns“ á íslandi, og þegar ég fletti upp í Þjóðskrám 1975 og 1. des. 1983, var enga konu þar að finna með þessu nafni. Hins vegar var þar ein Sara (án h) Jóhannsdóttir (í Hafnarfirði). Ég hafði samband við hana í síma, en hún fullvissaði mig um, að hún væri alveg á móti „Sú fullyrðing, að fósturdeyðingar hafi alltaf átt sér stað orkar í sjálfri sér tvímælis, a.m.k. var tíðni þeirra fram yfir miðja þessa öld ekkert í líkingu við það óhugnanlega blóð- bað, sem nú fer fram í flestum löndum.“ fósturdeyðingum, hefði alls ekki skrifað þessi bréf og hefði aldrei ritað nafn sitt Sarah eða Sara Jó- hanns, heldur alltaf með fullu föð- urnafni að íslenzkum sið. Með því að hluti bréfanna var skrifaður á ensku, hafði ég sam- band við Útlendingaeftirlitið og spurðist fyrir um, hvort nokkur útlend kona með þessu nafni hefði komið til landsins. Þar fékk ég þau afdráttarlausu svör, að engin Sarah Jóhanns (né Sarah Jones eða Johnson) væri búsett hér á landi. Til hvers að svara? Af þessum athugunum er erfitt að fá aðra niðurstöðu en þá, að undirskriftin „Sarah Jóhanns" undir bréfinu í þætti Velvakanda 3. jan. hljóti að vera hrein nafna- fölsun. Málinu ætti í raun að vera lokið með þessu. Málflutningur þess, sem skrifar undir fölsku nafni, getur ekki talizt ýkja þungvægur eða jafnvel marktækur. En samt sem áður gætu sumir látið hann hafa áhrif á sig, „af því að rök eru þó atltaf rök og hafa sinn kraft fólginn í sjálfum sér, en ekki í því, hver það er, sem heldur þeim fram.“ Og með hliðsjón af því, að jafnvel svo barnaleg skrif eins og bréf „SJ“ geta ruglað einhverja lesendur í ríminu, kýs ég að svara hér nokkrum helztu „röksemdum" hennar. Málstaður hins ófædda barns hér á íslandi á ekki svo auð- velt uppdráttar, að óhætt sé að þegja þunnu hljóði við árásum óvina þess. Hrikalegasta vitleysan í bréfi „SJ“ var sú fullyrðing, að í Mexíkó deyi árlega „meira en 140.000 kon- ur vegna ólöglegra fósturdeyð- inga.“ Ef þetta væri staðreynd málsins um áhrif ólöglegra fóst- urdeyðinga, ættu forsvarsmenn „frjálslyndrar" löggjafar í þessu efni ekki í erfiðleikum með að sannfæra flesta um sinn mál- flutning. En sem betur fer eru þessar stjarnfræðilegu tölur hreinn uppspuni, eins og ég hef þegar leitt sterk rök að í greininni „Falsaðar tölur um fósturdeyð- ingar“ í Mbl. 10. þ.m. Hins ber svo einnig að minnast, að a.m.k. í þróuðum Evrópulönd- um er það orðin hrein goðsögn, að einhver reginmunur sé á „lögleg- um“ og ólöglegum fósturdeyðing- um, hvað snertir áhrif þeirra á mæðurnar. Það eru gjarnan sömu læknarnir, sem framkvæma hvort tveggja. Jafnvel „löglegar" fóst- urdeyðingar, framkvæmdar við fullkomnustu aðstæður, hafa mik- il áhrif á heilsu og frjósemi um- talsverðs hluta kvenna, einkum ungra stúlkna, eins og fram hefur komið við eftirrannsóknir. Með viðnámsleysi okkar gegn „frjálsu kynlífi" og sífjölgandi fósturdeyð- ingum hjá stúlkum undir tvítugu erum við að stuðla að vaxandi raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Þorlákshöfn Til sölu er viölagasjóðshús í Þorlákshöfn. Mjög vel viö haldiö. Laust nú þegar. Góðir greiösluskilmálar. Upplýsingar í símum 99- 1900 og 99-1999. Byggingarvöruverslun til sölu Lítil sérverslun meö byggingavörur til sölu nú pegar. Nánari upplýsingar veittar á skrirfstofu lög- manna, Skeifunni 11, Reykjavík, sími 687400. Jón Magnússon hdl., Sigurður Sigurjónsson hdl. húsnæöi óskast Gód 2ja—4ra herb. íbúö og gjarnan eitthvað af húsgögnum óskast til leigu í styttri eöa lengri tíma, reglusemi og fyrirframgreiösla í ísl. eöa erlendum gjaldeyri fyrir hendi. Tilboö óskast sent augl.deild. Mbl. merkt: „Góö íbúö — 10“ Iðnaðarlóðir iðnaðarhúsnæði Blikksmiöjan Vogur hf. óskar hér meö eftir aö komast í samband viö aöila sem vilja selja iönaöarlóöir meö eöa án húsa, sem allra fyrst og eigi síöar en laugardaginn 26. janúar nk. Viökomandi vinsamlegast hafi samband viö Brynjólf Jónsson, framkvæmdastjóra fjár- málasviös í síma fyrirtækisins eöa heimasíma 687604. Knattspyrnudeild Þróttar óskar eftir aö taka á leigu sem fyrst 2ja til 3ja herb. íbúö í Voga-, Langholts- eöa Laugar- neshverfi meö eöa án húsgagna. Frekari uppl. í síma 624694 á kvöldin. Húsnæði óskast Óskum eftir aö taka á leigu 80—100 fm iön- aöar- og skrifstofuhúsnæði á jaröhæð. Stór- ar útidyr æskilegar. Leigutími 1—2 ár. Uppl. í síma 72040 e. kl. 19.00. jíFélagsstarf Reykjaneskjördæmi Stjórn kjördæmisráðs minnir á fund meö öllum lormönnum fulltrúa- ráöa og sjálfstæóisfúluga í R.ykjnaskjördasmi i Sjálfstaeöishúsinu, Strandgögu 29, Hafnarfiröi, fimmtudaginn 24. janúar kl. 20.30. Ef formaóur getur ekki mætt, er þess vænst, aö hann sendi annan stjórnarmann á fundinn í sinn staö. Stjórn kjördæmtsráös. Ólafsvík — Ólafsvík Aðalfundur Aöalfundur Sjálfstæöisfólags Ölafsvikur og nágrennis veröur haldinn í Mettubúö fimmtudaginn 24. janúar 1985 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. ðnnur mál. Alþingismennirnir Friójón Þóröarson og Valdimar Indrióason mæta á fundinn. Félagar fjölmennió. Stjórnln. Selfoss — Selfoss Föstudaginn 25. jan. nk heldur sjálfstæöisfélagiö Óöinn fund á Tryggvagötu 8, kl. 20.30. Fundarefni: 1. Eggert Haukdal ræöir um orkumál. 2. Arni Johnsen ræöir um atvínnumál. 3. Þorsteinn Pálsson alþm. ræöir um stjórnarstefnuna. 4. Almennar umræöur um framsöguerindin og þingmennirnir svara fyrirspurnum. 5. Önnur mál. Fundarstjóri: Valdimar Bragason. Fundarritari: Dagfriöur Finnsdóttir. Allt sjálfstæöisfólk er hvatt til aö mæta og taka meö sér gesti. Heimdellingar í framhaldsskólum Fundur meö skólafólki veröur haldlnn i dag, fimmtudaglnn 24. janúar, i Valhöll aö Háaleitisbraut 1 og hefst hann kl. 20.30. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Hetmdaltur. Flokksstarf 1985 Dagskrá ráðstefnu um flokksstarf Sjálfstæöis- flokksins f Valhöll, 26. janúar 1985 Kl. 9.30 Ávarp Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæöisftokksins. Kl. 10.00 Kynning á hugmyndum um breyttar prófkjörsreglur. VII- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, lögfræöingur. Kl. 12.00—13.00 Hádegisveröur. Kl. 13.15 Flokksstarf og tæknlþróun. Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri. Kl. 13.40 Stutt erindi um: Markmiö fræöslustarfs Sjálfstæöisflokksins. Esther Guó- mundsdóttir, þjóöfélagsfræöingur. Boömiölun innan flokksins. Ásdís J. Rafnar, lögfræöingur. Kosningastarf. Sveinn H. Skúlason, framkvæmdastjórl. Einar K. Guófinnsson, útgeröarstjóri. Kl. 14.20 Stutt erindi um: Þróun dagblaöa og fjölmiöla. Styrmir Gunnarsson. ritstjóri. Ahrif frjáls útvarps i fjölmlölun. Einar K. Jónsson, framkvæmdastjóri. Nýjungar f útbreiöslumálum. Friörik Frlöriksson, framkvæmdastjórl. Kl. 15.00—15.20 Kaffihlé. Kl. 15.20 Umræóur. Hópstarf Kl. 18.30 Fundarlok. Kl. 20.00 Opiö hús í Valhöll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.