Morgunblaðið - 24.01.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
43
Sjónvarps-
fréttahetjur
Myndbbnd
Árni Þórarinsson
Sjónvarpsfréttafólk eru algengar
söguhetjur í bíómyndum enda
býsna atkvæðamikil stétt í ver-
unni, a.m.k. innan BSRB. Einkum
á þctta við um sæluríki sjónvarps-
ins, — Bandaríkin. Þar eru fram-
leiddar á hverju ári fleiri fleiri
myndir sem fjalla um þessa heim-
ilisvini alþýðunnar fyrir framan
kassann í stofunni, fólkið sem fær-
ir fréttirnar heim, gamlir kunningj-
ar og glansmyndir í senn. Þess eru
dæmi að fjallað er af einhverju
innsæi um líf og störf sjón-
varpsfréttafólks, en flestar eru
myndirnar þrillerar þar sem þess-
ar nýju fjölmiðlahetjur lenda í has-
ar og ævintýrum. Tvær spólur um
hættur sjónvarpsfréttamennskunn-
ar skulu nefndar í þessum pistli.
Eyes of a Stranger er gerð 1980
af Ken nokkrum Wiederhorn.
Fjöldamorðingi leikur lausum
hala í Miami. Sjónvarpsfrétta-
konan sem fylgist með rann-
sókninni kemst að því að morð-
inginn býr í sömu íbúðarblokk
og hún sjálf. Út frá þessum for-
sendum er spunnin hefðbundin
spennumynd um taugastríð
moröingjans og sjónvarpsfrétta-
konunnar. Fagvinna er í slöku
meðallagi, en margþvæld form-
úlan virkar samt á köflum. Eyes
of a Stranger skortir hins vegar
alla sálfræði; ekkert er reynt að
rýna í persónuleika morðingj-
ans, spá í hvers vegna hann gerir
það sem hann gerir. Og auðvitað
er sjónvarpsfréttakonan með
blinda og heyrnarlausa systur
sína á heimilinu sem fær bæði
sjón og heyrn til baka þegar
morðinginn brýst inn og reynir
að nauðga henni. Auðvitað!
The Howling er mun hnýsilegri
mynd um fjölmiðlung i lífs-
háska, þó ekki væri nema vegna
þess að leikstjórinn er Joe Dante
sem i fyrra varð heimsfrægur
fyrir einhverja mestu aðsókn-
armynd allra tíma, Gremlins.
Dante gerði þessa mynd 1980 og
annar handritshöfundanna er
John Sayles, sem síðan hefur
líka skotist upp á stjörnu-
himininn sem leikstjóri vestra.
Enn eina ferðina er söguhetjan
sjónvarpsfréttakona sem fjallar
um óðan morðingja í fréttatíma
sínum. Hún gengst inn á að
verða tálbeita fyrir lögregluna
til að lokka morðingjann í
gildru. Afleiðingin verður sú að
hún fær taugaáfall og fer til
hvíldar á afar sérkennilegt hæli
og tengjast þá hælið, yfirmaður
þess (leikinn af Patrick McNee)
og hin dularfullu morð með væg-
ast sagt lygilegum hætti. The
The Howling — er ekki kominn
tími til að sjónvarpsfréttamenn fái
áhættuþóknun?
Howling er ekki sálfræðiþriller,
heldur hrollvekja um gömlu
góðu varúlfasögnina og er mikið
fjasað um „villidýrið innra með
okkur". Svo virðist sem þeir
Dante og Sayles hafi ætlað sér
að athuga hversu glórulausa
dellu má prjóna svo lengi sem
vel er prjónað. Og víða er vel
prjónað í The Howling. I mynd-
inni er mikill hraði og drjúgur
óhugnaður og fólk breytist í var-
úlfa með afbragðs tækni og tölu-
verðum kynþokka. Þess má geta
að yfirmaður hælisins sem fyrr
var nefndur heitir í myndinni
doktor George Waggner, en það
er líka nafn leikstjórans sem
gerði frægustu varúlfamyndina,
The Wolf Man með Lon Chann-
eyX
Oðir morðingjar og varúlfar,
— það er vissara að vara sig,
Helgi E. Helgason og Sigrún
Stefánsdóttir a.m.k. á meðan
áhættuþóknun er ekki inni í
kjarasamningum BSRB.
Stjörnugjöf: Eyes of a Stranger*'/2
The Howling **
Ævisögur
Siglaugur Brynleifsson
Anthony West: Ileritage. Secker &
Warburg 1984.
Christopher Hibbert: The Making of
('harles Dickens. Penguin Books
1983.
Anthony West kallar bók sína
„skáldsögu", sem hún er í rauninni
alls ekki. Þetta eru minningar
hans um foreldra sína, sem voru
leikkonan Rebecca West og H.G.
Wells. Bókin kom út í Bandaríkj-
unum 1955 og nú fyrst á Englandi.
Foreldrarnir voru bæði einstak-
lega sjálfshverfir einstaklingar,
sóttust eftir frægð og peningum
og hugsuðu um það eitt að trana
sér sem mest fram að áliti höf.
Wells var meðal frægustu höfunda
samtímans og dáður sem slíkur,
Rebecca West var vel framagjörn
en þar að auki, eins og sonur
hennar lýsir henni, sjúklega fé-
gráðug og fordildarfull, afskipta-
söm um annarra hagi og til og
með illyrmi. Lýsing þessarar
kvenpersónu er vægast sagt
svakaleg. Hún virðist hafa reynt á
allan hátt að spilla fyrir syni sín-
um, illgirni hennar var sívökul og
helst hefði hún viljað hann dauð-
an.
Höfundur lýsir samskiptum
þessara persóna, lífsmáta þeirra
og hátterni og það er furðulegt að
höf. skuli ekki hafa orðið fyrir
meiri skakkaföllum í uppeldi, en
sjálfslýsing hans gefur tilefni til
að ætla. Hann skrifar formála
fyrir útgáfunni og segir þar að þó
móðir hans hafi verið fégráðug,
illmálg og lygin, þá hafi hún þó
ekki gengið eins langt og greifinn-
an af Macclesfield, sem vann að
því alla sína tíð að koma syni sín-
um í snöruna (þeir atburðir áttu
sér stað á 18. öld). Höfundurinn
lýsir æsku sinni og hinni stöðugu
baráttu við þessa afrækju eftir að
hann komst á legg. Ástæðurnar
fyrir hegðun hennar koma að vísu
fram í frásögninni, en aftur á móti
skortir lýsingu á þeim forsendum í
uppvexti hennar sjálfrar, sem
mótuðu persónuleika hennar.
Hibbert er stórvirkur höfundur
og meðal bóka hans hefur bókin
um Dickens hlotið góða dóma,
kom fyrst út 1967. Hér lýsir hann
æsku og uppvexti og lífshlaupi
skáldsins. Hann segir sögu Dick-
ens þegar færi gafst, með hans
eigin orðum eða með hliðstæðum
úr skáldsögum hans. Þetta er
mjög læsileg saga og byggð á ít-
arlegri heimildakönnun. Samtíma
skissur og myndir fylgja í texta og
sérprentaðar.
Þessar myndir eru margar tekn-
ar úr sögum Dickens og falla ein-
staklega vel að frásögninni og lýs-
ingum Dickens á samfélaginu sem
hann lýsir af slíkri snilld, að eng-
inn hefur gert betur.
Hollandspistill /Eggert H. Kjartansson
Tekið til í miðborg Amsterdam
Það er greinilegt að borgar-
stjórn Amsterdam er ákveðin í því
að gera það sem í hennar valdi
stendur til þess að leysa úr þeirri
flækju sem eiturlyfjavandamálið
þar í borg er í. Ný stefna hefur
verið tekin upp eftir að ríkis-
stjórnin hafnaði þeirri tillögu að
gefa eiturlyf til þeirra sem eru svo
illa farnir að þeirra eina leið til
þess að komast yfir eiturlyf er að
stunda smáglæpastarfsemi. Sú
áætlun sem nú hefur verið hrund-
ið í framkvæmd er að annars veg-
ar er tekið mun harðar á allri
ólöglegri verslun í eiturlyfjum og
hinsvegar er meiri og betri aðstoð
veitt til einstaklinga sem eru háð-
ir þessum lyfjum. Borgarstjóri
Amsterdam, Ed van Thijn, gerði
grein fyrir því á blaðamannafundi
fyrir skömmu að fjölgað hefði ver-
ið um helming hjá þeirri deild
lögreglunnar sem fer með rann-
sóknir á eiturlyfjamálum.
Einnig fara fram viðræður við
ríkisstjórnina um að auka mikið í
öllu lögregluliði borgarinnar, um
byggingu nýrra fangelsisklefa og
aukninu í dómarastéttinni. Borg-
arstjórinn sagðist vonast til þess
að með þessum aðgerðum væri
hægt að draga mjög mikið úr allri
smáglæpastarfsemi svo sem búða-
hnupli og bílaþjófnaði. í fram-
haldi af þessari ræðu um það sem
gert er hér í Amsterdam beindi Ed
van Thijn spjótum sínum að borg-
aryfirvöldum I stórborgum ná-
grannalandanna. Hann sagði m.a.
að vegna einstrengingslegrar
stefnu þeirra flýðu eiturlyfja-
neytendur til Amsterdam til að
lösna undan áhrifavaldi þeirra.
Þrátt fyrir þann fjölda sem komið
hefur frá öðrum löndum til Amst-
erdam er vandamálið þar engu
meira en í öðrum borgum, t.d.
Frankfurt. Það kom einnig fram á
þessum blaðamannafundi að
borgaryfirvöld I Amsterdam eru
betur I stakk búin en nokkru sinni
fyrr til að takast á við þetta al-
varlega vandamál. Þannig hefur
Zeedijk og næsta umhverfi verið
hreinsað og er í dag rétt eins ör-
uggt og Leidseplein eða Rem-
brantsplein. Um þessar mundir er
unnið að nýrri framkvæmdaáætl-
un, m.a. byggingu hótels auk
endurnýjunar eldri húsa.
Hollenska ríkisstjórnin hefur
ákveðið að gefa ferðamannaiðnað-
inum hollenska sem svarar 4
milljarða króna styrk. Ástæðan er
að ferðamannaiðnaðurinn er mjög
mikilvægur fyrir hollenskan efna-
hag sem sést best á því að um 6%
allra vinnufærra einstaklinga hér
vinna beint við hann. Erlendir
ferðamenn sem komu til landsins í
fyrra eyddu hér sem svaraði 60
milljörðum króna ef allt er talið
með. Ætlunin er að bróður-
parturinn af þessum 4 milljörðum
króna renni til Ferðaskrifstofu
ríkisins (Nederlands Bureau voor
Toerisme) sem mun nota þetta
fjármagn m.a. til að ýta undir
endurbætur ferðamannastaöa og
koma upp eða aðstoða við að koma
upp nýjum. Einnig verður mikil
áhersla lögð á kynningu Hollands
út á við sem ferðamannalands.
Ætlunin er að árið 1989 verði
ferðamannaiðnaðurinn betur í
stakk búinn til að taka stærri
hluta kostnaðarins á eigin herðar.
Frá því ári verður helmingur þess
fjármagns sem ætlað er til auglýs-
inga og alhliða landkynningar að
koma frá þeim aðilum sem hafa
beinar tekjur af ferðamönnum.
Til þess að vinna að aukinni
landkynningu hefur ríkisstjórnin
hér lagt til að í þeim löndum þar
sem Ferðamáiaráð Hollands er
ekki með eigin skrifstofur verði
sendiráðin styrkt með ferðamála-
fulltrúa. Samkvæmt þeim könn-
unum sem gerðar hafa verið og
niðurstöður liggja fyrir úr er gert
ráð fyrir að ferðamannaaukningin
verði um 10% á hverju ári fram til
1990. Þetta þýðir, að ef eingöngu
er litiö á Bandarikjamarkað fjölgi
ferðum þaðan til Hollands um
300.000 frá því sem nú er, og verða
um 800.000 árlega.
E.H.K.
VORTÍSKAN 1985
__ _
ll
i LA
án póstburðargjalds.
VORTÍSKAN ÍEVRÓPUÁ 600SÍÐUM
FYRIRAÐEINS 98. - KR.
Játakk! Vinsamlega
sendið mérnýja FREEMANS
pöntunarlistann í póstkröfu
fiiMfflfllíÍr
Natn:
Heimili:
■ Sendisttil FREEMANS
ofLondon c/oBALCOhf.
. Reykjavlkurvegi 66.
220 Hafnarfiröi, simi 53900.
Staður