Morgunblaðið - 24.01.1985, Side 50

Morgunblaðið - 24.01.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANOAR 1985 ást er ... fara í megrun. TM R«g U S Pat Off aii rtghts reserved • 1979 Los Angeies Times Syndicate Áður en við giftum okkur var þessi læradofi óþekkt fyrirbrigði. Með morgunkaffmu Nei, Lilli minn, þú getur ekki flett böfuðleðrinu af Higga, því ’ann er ekki með hárkollu eins og pabbi þinn! HÖGNI HREKKVÍSI Frá þjóðmálaumræðunni sem haldin var á Gauknum sl. sunnudag, þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna skiptust á stjórnmálaskoðunum. Prestar boði til trúmála- umræðu á veitingastöðum Kæri Velvakandi. Það telst til tíðinda að forystu- K.M. skrifar. Velvakandi. Sú var tíðin, að við áttum kost á amerisku sjónvarpi frá Keflavík- urflugvelli. Féll sumum dagskrá þess betur en hins íslenzka. Það bauð upp á skemmtilega tilbreyt- ingu og samkeppni við íslenzka sjónvarpið. En fámennur hópur öfgamanna reis öndverður og linnti ekki látum fyrr en „skrúfað var fyrir“ hið ameríska sjónvarp. Rökin voru þau, að íslenzk tunga og menning biði hnekki, ef lands- menn horfðu á amerískar kvik- myndir í öllum kvikmyndahúsum landsins og læsu amerísk blöð, tímarit og bækur, sem voru og eru til sðlu á hverju götuhorni. Slík var samkvæmnin hjá áróðurs- mönnunum. Nú er öldin önnur hjá þessu fólki. Það vill norskt sjónvarp. Okkur á ekki að stafa hætta af því, þótt Norðmenn séu okkar skæðustu keppinautar á öllum heimsmörkuðum og hafi reynzt flestum erfiðari í samningagerð- um. Bandaríkjamenn kaupa hins vegar obbann af framleiðslu okkar, og stórfyrirtæki, líkt og t.d. Flugleiðir, lifa í skjóli þeirra — með alls konar fríðindum og und- anþágum. Við Dómkirkjudyr á gamlársdag Magnús Guðbrandsson skrifar: Ég klambraði saman í gamni mínu þessari visu, að lokinni messu í Dómkirkjunni á gaml- ársdag, þar sem biskup íslands predikaði: Þarna stóðu hlið við hlið heigir Guðsmenn landsins og gesti kvöddu að klerka sið með kærleik handabandsins. Handabandi féll ég frá og freistingar gætti minnar að banka létt á bakið á biskupi þjóðkirkjunnar. menn í stjórnmálunum hafi komið saman á krá sl. sunnudag á Ameríska sjónvarpið kostar ekki neitt og ég tek það fram yfir norskt, franskt eða sjónvarp hvers annars þjóðernis — meðal annars málsins vegna. Norsku þurfum við ekki að læra vegna dönskunnar, frönsku skilur enginn hér, en ensku verður hver maður að kunna skil á. Hún er heimsmál. messutíma og skipst á skoðunum í pólitíkinni. Segir presturinn sem skrifar um þetta í NT að sunnu- dagurinn sé einkar heppilegur til svona nýmælis, enda „fátt betra í mátulegri þynnku en hlýða á væg skemmtiatriði”. Er nú brýn spurning, finnst undirritaðri, hvort það sé ekki næsta æskilegt að blessaðir prest- arnir taki við sér og færi kirkjurn- ar út til fólksins og boði til trú- málaumræðu á messutíma yfir laufléttum veitingum á veitinga- stöðum, svona til þess að sýna að þeir geti einnig verið „up to date“ og skemmtilegir. Eða hvað? Guðbjörg Þessir hringdu . . Bestu þættir sjónvarpsins Sigurfínnur Jónsson hringdi: Ég má til með að mótmæla skrifum Doktors M.K.H. í Vel- vakanda sl. föstudag, en þar kallar hann dýralífsmyndir sjónvarpsins lélegar og kýs held- ur Dallas eða Falcon Crest. Dýralífsþættir sjónvarpsins eru með því besta sem þar er sýnt og vildi ég óska að fleiri myndir væru sýndar en nú hefur verið. Þetta eru fræðandi og ákaflega vandaðir þættir og er mér með öllu óskiljanlegt hvern- ig fólk getur amast út í slíkt sjónvarpsefni. Með meiri fyrirvara Ein úti á landi hringdi: Ég vil taka undir það sem Duran Duran-aðdáandi skrifar í Velvakanda sl. sunnudag, þar sem hann leggur til að haldin verði Duran Duran-hátíð fyrir yngri en 16 ára. Auk þess þyrfti að auglýsa slíkt með meiri fyrirvara því að margir sem búa úti á landi hefðu viljað fara á hátíðina en sáu ekki auglýsinguna í tíma. Hélt uppi heiðri okkar Daði Bjarnason hringdi: Ég vil taka undir orð R.S. sl. fimmtudag þar sem bréfritari telur val íþróttamanns ársins rangt. Ásgeir Sigurvinsson er tví- mælalaust mjög góður knatt- spyrnumaður en hann vinnur öll sín afrek fyrir þýska félagið Stuttgart. Því finnst mér að Bjarni Friðriksson, júdókappi, hefði átt aö hljóta þann heiður að verða kosinn íþróttamaður ársins 1984. Hann hélt uppi heiðri Islendinga á Ólympíuleik- unum sl. sumar í Los Angeles. Engu breytt úr þessu Stúlka hringdi: Ég er mjög óánægð með að fólk skuli vera að amast út í kjör íþróttamanns ársins 1984. Þetta er búið og gert. Ásgeir og Bjarni eru báðir góðir en valinu verður ekki breytt úr þessu. Ameríska sjónvarpið í stað þess norska

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.