Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 26. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaösins Sovét- flaugin undir ísnum Helsinki, 31. janúar. AP. Kafarar úr finnska hernum fundu í dag meginhluta sovézku eldflaugarinnar, sem skotið var inn yfir Noreg og Finnland, á botni Inari-vatns, að sögn talsmanns finnska flughersins. Reynt verður að ná flauginni upp á morgun, fostudag. Kafararnir fundu flaugina í þriðju ferð sinni undir ísinn. Vegna kulda gátu þeir aðeins verið stutta stund í kafi í einu og hlýjuðu sér í upphituðu tjaldi á milli. Er meginhluti flaugarinn- ar rúmlega þriggja metra langur og 1,5 metrar í þvermál. _ AP/Símamynd TRJONA MARKFLAUGARINNAR Trjóna sovézku flaugarinnar, sem rauf norska og finnska lofthelgi á dögunum, á ísnum á vatninu Inari í einu af nyrstu héruðum Finnlands. Hermenn skoða flaugaroddinn. í gær fundu kafarar aðalhluta flaugarinnar á botni vatnsins og átti að gera tilraun í dag til þess að ná honum upp, svo og öðrum flaugarhlutum, sem fundust á botninum. Við leitina á vatnsbotni fund- ust mörg smærri brot úr flaug- inni, sem skotið var af sovézku herskipi við Norður-Noreg 28. desember sl. Trjóna flaugarinn- ar fannst á InarLvatni í gær og skammt frá henni dæld í 80 sentimetra þykkan ísinn á vatn- inu, sem benti til að meginhluta hennar væri að finna á vatns- botni. Lundúnablaðið The Daily Express sagði í dag að sovézka flaugin hefði stefnt til Ham- borgar eða Bremen í V-Þýzka- landi vegna rangra fyrirskipana til stýribúnaðar. Rússar hefðu skotið hana niður er mistökin komu í ljós. Talsmaður finnska hersins og talsmenn yfirvalda í Bonn, Washington og London vísuðu frétt blaðsins á bug og sögðu hana lýsa bezt þekkingar- leysi heimildarmanna blaðsins. Réttarhöld yfir Arne Treholt hefjast 25. febrúar: Ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og íraka Osló, 31. jftnúar. Kr» Jan Krik Laure frétUrilarft Arne Treholt fyrrum skrifstofu- stjóri í utanríkisráðuneytinu í Osló var í dag formlega ákæröur fyrir njósnir fyrir Sovétríkin árin 1973 til 1983 og írak 1981 til 1983. í tilkynningu Thorbjörns Gjölstad ríkissaksóknara segir MorgunblaAsinH. að Treholt sé ákærður fyrir brot á fjórum greinum hegningarlag- anna, fyrir trúnaðarbrot, fyrir að ljóstra upp um ríkisleyndarmál, svo og fyrir brot á refsilöggjöf er kveður á um þagnarskyldu þeirra sem aðgang hafa að leyndarmál- Svíar styðja verk unnið í þrælavinnu Stokkhólmi, 31. janúar. AP. VÍETNAMAR nota nauðungarverkamenn við hráefnisöflun og rekstur Bai Bang-pappírsverksmiðjunnar, sem reist var fyrir fé sænsku þróun- arstofnunarinnar, að því er stofnunin sjálf skýrði frá í dag. Stjórn Olofs Palme hefur hingað til engu skeytt um fullyrðingar borgaraflokkanna um nauðungarvinnuna. Nauðungarverkamönnunum, sem eru 6.500 talsins, er þröngv- að til að vinna við hörmulegar aðstæður. Flestir þeirra eru gift- ar konur, sem neyddar voru burt frá fjölskyldum sínum og hótað refsivist í endurhæfingarbúðum ef þær strykju úr vinnu, að sögn stofnunarinnar. Tóku um 1.000 verkamenn þá áhættu í fyrra og flýðu frá Bai Bang. Skýrsla stofnunarinnar verður birt opinherlega á föstudag. Er hún samin af tveimur ráðgjöfum stofnunarinnar, sem dvöldust í fimm mánuði með nauðungar- verkamönnunum. Helmingur kvennanna þjáðist að jafnaði úr malaríu vegna skorts á flugna- netum. Bjuggu þær í hrörlegum húsum á vinnustað. Fá nauðung- arverkamennirnir aðeins 10 daga frí á ári. Mun skýrslan ugglaust kynda enn frekar undir deilum í Sví- þjóð um hina umfangsmiklu þróunaraðstoð, sem Svíar veita Víetnömum. Aðstoð Svía nemur 365 milljónum sænskra króna á þessu ári, eða 1.650 milljónum íslenzkra. Mestur hluti fjárins hefur farið til reksturs Bai Bang-pappírsverksmiðjunnar og beinist gagnrýni stjórnarand- stöðuflokkanna fyrst og fremst að henni. Smíði verksmiðjunnar varð tvöfalt dýrari en kostnað- aráætlun gerði ráð fyrir og af- köstin minni en reiknað var með. Segja borgaraflokkarnir verk- smiðjuna illa rekna. um um landvarn- ir. Ákæruskjalið er í átta liðum. 1 því er að finna W nákvæma lýs- WÁ ingu á því hvaða leyndarmál Tre- holt seldi sov- ésku leyniþjón- ustunni, KGB, og Treholt leyniþjónustu fraks, hvenær hann afhenti upplýsingarnar og hvar. Verður skjalið birt í heild í heyranda hljóði í upphafi rétt- arhaldanna yfir Treholt, sem bú- ist er við að taki marga mánuði. Réttarhöldin verða opin í upp- hafi, en óljóst er að hve miklu leyti þau verða opin. Treholt er ákærður fyrir að hafa orðið sér úti um ríkisleynd- armál með ólöglegum hætti og fyrir að þiggja greiðslu fyrir að selja þau Rússum og írökum. Ákæruskjalið er ekki birt í heild að þessu sinni, að sögn saksókn- ara til að koma í veg fyrir að réttarhöld fari fram á síðum blaða áður en hin eiginlegu rétt- arhöld hefjast. Sækjendur í njósnamálinu hafa verið skipaðir ríkislög- mennirnir Lasse Qvigstad og Tor-Aksel Busch, en verjandi Treholts er Alf Underland. Skýrði hann skjólstæðingi sínum frá ákærunni þar sem hann sit- ur á bak við lás og slá í fangelsi í Drammen. Rússar svartsýnir Vínarborg, 31. jnnúar. AP. TALSMAÐFR V arsjárbandalagsins varaði við því í dag að viðræður stórveld- anna um fækkun herja í Mið-Evrópu kynnu að dragast fram yfir 1990 ef ríki AtlanLshafshandalagsins breyttu ekki um afstöðu í viðræðunum. Viðræðurnar hófust fyrst fyrir 11 árum og fór fyrsti viðræðu- fundurinn fram í dag eftir að Sov- étmenn samþykktu að hefja að nýju viðræður um takmörkun vígbúnaðar. Mikhail Kakeyev, talsmaður sovésku viðræðunefndarinnar, sagði tillögur NATO-ríkjanna í mörgu óaðgengilegar og að í þeim fælist engin von um árangur í ná- inni framtíð. „Án stefnubreyt- ingar Vesturveldanna gætum við haldið áfram í 20 ár.“ John Karch, fulltrúi Banda- ríkjamanna í Vínarborg, sagði að samkvæmt pottþéttum heimildum hefðu Varsjárbandalagsríkin 200.000 umframhermenn á samn- ingssvæðinu í Mið-Evrópu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.