Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBROAR 1985
Þorramatur að þjóð-
legum sið í Naustinu
„Þurr skyldi þorri,/ þeysin góa,/
votur einmánuður/ og þá mun vel
vora“ segir í gömlu kvæði og að
þessu leyti hefur þorrinn ekki
brugðist vonum landsmanna enn
sem koraið er. Veitingahúsið
Naustið ætlar heldur ekki að
bregðast gestum sínum á þorran-
um en nú er liðinn rúmur aldar-
fjórðungur síðan Halldór Gröndal,
þáverandi veitingamaður í Naust-
inu, tók upp á þeim þjóðlega sið að
hafa íslenskan mat á boðstólum á
þessum árstíma.
Með þorrakomunni var blaða-
mönnum að venju boðið að gæða
sér á þorramatnum í Naustinu
og sagði þá Ómar Hallsson, veit-
ingamaður, nokkuð frá tildrög-
um þessa siðar, sem á stuttum
tíma hefur skotið föstum rótum
með þjóðinni. Var síðan matur-
inn borinn fram í trogum og svo
vel úti látinn, að jafnvel hraust-
ustu matmenn þurftu ekkert að
óttast. Hefur það að sögn ómars
ekki átt minnstan þátt í vinsæld-
um hans auk þess sem sú breyt-
ing hefur orðið með árunum, að
ungu fólki er ekki lengur fram-
andi íslenskur matur. Þannig
var þó komið á sínum tíma þegar
Naustið tók upp á þessari menn-
ingarlegu nýbreytni.
Aðföngin í þorramatinn eru
ættuð úr ýmsum landshlutum en
veitingamennirnir á Naustinu
sjá sjálfir um að tilreiða hann.
Er hafist handa við það um
mánaðamótin september-
október og byrjað á súrsuninni
en við hana er notuð mysa, sem
ein getur tryggt rétta súrbragð-
ið. Óþarfi ætti annars að vera að
tína allt til, sem finna má í trog-
unum, lundabagga, hrútspunga,
sviðakjamma, harðfisk, flat-
brauð og annaö góðgæti, en
Ómar vildi láta þess getið, að
súrsuðu selshreifarnir eru
komnir vestan úr Breiðafirði og
af Vestfjörðum og þaðan er líka
hárkarlinn, sem vill standa dá-
lítið í sumum en öðrum finnst
ómissandi með viðeigandi veig-
um.
íslenskur matur virðist falla
fleirum vel í geð en fslendingum
og sagði ómar, að sér hefði kom-
ið á óvart hvað útlendingum lík-
aði hann vel. Það hefði líka sitt
að segja, að þegar fólk kæmi á
erlenda grund vildi það reyna
eitthvað nýtt, eitthvað sem væri
öðruvísi en það ætti að venjast
og minnti það á land og þjóð.
Morgunblaðið/RAX
Ómar Hallsson, veitingamaður f Naustinu, hugar að þorramatnum í
geymslum Naustsins ásamt matreiðslumönnum sínum.
Smiöjuvegi 1,% Kópavogi
Föstudagur: ^ . | iJBPP'
Gömlu dansarnir 21—02. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur
og syngur. Skemmtiatriöi. Nú veröur stanslaust fjör. Aög. 150 kr.
Laugardagur: Hljómsveitin Goðgá. Skemmtikraftar:
kl. 22—03: Bjössi Bolla og töframaðurinn Ágúst ísfjörö.
Aög. 150 kr.
Sunnudagur kl. 21.00—00.30.
Samkvæmisdansar, diskótek. Aög. 120 kr
Vínveitingar ekki enn
aem komið er.
Snyrtilegur klæðnaður.
Aldurstakmark 18 ára.
Sími 46500
leópurínN
ON °G
NVAONVJ
JÖSSl
aldrei betri,
skemmta í kvöld og
hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar.
KÓPAKRA
OPIN FRÁ
KL. 20. ,
AUÐBREKKA 12, KÓPAVOGI. SÍMI 46244.
Ræðst við í nýju ölstofunni: Frá vinstri: Pálmi Lórensson, veitingamaður,
Pálmi Gunnarsson, hljómlistarmaður, Sigmar Pálmason, bílstjóri og fyrrver-
andi útherji, og Ragnar Sigurjónsson, hljómlistarmaður.
Vestmannaeyjar:
• •
Olstofa opnuð
í Gestgjafanum
Vestmannaeyjum, 29. janúar.
SÍÐASTLIÐINN föstudag opnaði Gestgjafinn í Vestmannaeyjum aftur eftir
gagngerðar endurbætur sem gerðar hafa verið á staðnum. Gestgjafinn er
velþ«-kktur og gamalkunnur matsölustaður en með þeim breytingum sem
gerðar hafa verið hefur staðurinn verið færður í nýtískuiegt horf og þjónar nú
jöfnum höndum sem vandaður matsölustaður og „pöbb“ í hærri gæðaflokki.
Mjög vel hefur til tekist með
innréttingar á staðnum en þær
eru að mestu leyti frá trésmiðj-
unni Árfelli hf. í Reykjavík en
smekkleg og þægileg húsgögn
koma frá Meiði. Við breytingarnar
hefur verið saminn nýr matseðill
fyrir staðinn og boðið er uppá
freyðandi „öllara" auk allra al-
mennra veitinga.
Það var ekki annað að sjá en
Vestmannaeyingar tækju þessum
nýja stað vel, því fullt var út úr
dyrum öll kvöld á helginni. Stað-
urinn rúmar vel á annað hundrað
manns. Um helgina skemmti
þarna nýtt söngtríó sem mun
koma fram á Gestgjafanum um
helgar í vetur. Tríóið kallast
Náttsól og er skipað þeim Sigurrós
Ingólfsdóttur, Rut Reginalds og
Sigurgeir Jónssyni. Náðu þau upp
feiknagóðri stemmningu á föstu-
dagskvöldið þegar útsendari Mbl.
var að kynna sér staðinn í boði
húsráðenda.
Það eru hjónin Pálmi Lórensson
og Mary Sigurjónsdóttir sem reka
Gestgjafann og þau reka einnig á
sama stað skemmtistaðinn Skans-
inn og hið vandaða Hótel Gest-
gjafinn. Mjög góð aðsókn hefur
verið að Skansinum síðustu helg-
arnar og þar ríkjandi mikið fjör.
Á Skansinum spilar fyrir dansi
mjög góð hljómsveit Pálma
Gunnarssonar sem nefnist Ex-
port. Upp á síðkastið hafa komið
fram með hljómsveitinni þeir
bræður Helgi og Hermann Ingi
STAÐUR MEÐ NYJU
ANDRÚMSLOFTI
Hljómsveitin Fjörorka
sér um fjöriö í kvöld.
Kráarhóll opnar kl. 18.00. Mætið í betri fötunum.
Aldurstakmark 20 ár. Boöiö veröur upp á
'ii Skiphóls-kokteilinn milli
kl. 10—11.30.
Stóphrll