Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUQAGUR 1. FEBRÚAR1985; 33 .««<• Kristín Jóna Stef- ánsdóttir — Minning Fædd 2. mars 1939 Dáin 23. janúar 1985 í dag kveðjum við hinztu kveðju Kristínu vinkonu okkar og sam- starfsfélaga, er lést í Landa- kotsspítala 23. janúar sl. Fyrir ári gekkst Kristín undir læknisaðgerð vegna þess sjúk- dóms er svo marga leggur að velli og læknavísindum hefur enn ekki tekist að vinna bug á. Þrátt fyrir að Kristín virtist nokkuð hress eftir aðgerðina, og vann öðru hvoru á vinnustað sínum Ási, náði sjúkdómurinn yfirhöndinni og hún fór á sjúkrahúsið öðru sinni í ágúst sl. Kristín Jóna Stefánsdótt- ir fæddist í Reykjavík 2. mars 1939 og var yngsta barn foreldra sinna, Oddnýjar Vilborgar Guð- jónsdóttur og Stefáns Hermanns- sonar stýrimanns. Hin eru Hrafn- hildur er bjó lengst af í Bandaríkj- unum og lést þar 1976, Jóhann hjúkrunarfræðingur og Hermann bankastarfsmaður. Stefán faðir Kristínar fórst með togaranum Gullfossi árið 1941 og stóð Oddný þá ein uppi með barnahópinn. Oddný lét ekki bug- ast þá fremur en ætíð síðan. Hún hafði í mörg ár matsölu á heimili sínu hér í borginni. Hafði „kost- gangara", eins og það var kallað. Þannig sá hún sér og sínum far- borða meðan börnin voru í heima- húsum og luku sínu námi. Kristín hóf nám í barnaskóla, en hennar námsdvöl varð einungis einn vet- ur, þar sem hún átti ekki samleið með jafnöidrum sínum í námi. Á þeim árum var hvorki stuðnings- né sérkennsla veitt þeim börnum er ekki gátu stundað hið hefð- bundna nám. Geta má nærri hve þungbær reynzla það hefur reynst mörgum foreldrum, að fá hvorki stuðning, né heldur þjálfun og kennslu við hæfi þessara barna sinna. Árið 1958 er Styrktarfélag van- gefinna í Reykjavík stofnað. Fljótlega eftir það fóru konurnar í félaginu að halda fundi mánaðar- lega. Mikill áhugi og baráttuhugur var í konunum á þessum árum, enda þekktu mæðurnar hvað best erfiðleikana og skilningsleysið á högum vangefinna. Oddný móðir Kristínar var ein af þeim mæðrum er sótti fundina trúfastlega frá upphafi. Fyrsta verkefni félagsins var að byggja og starfrækja dagheimili. Dagheimilið Lyngás tók til starfa 1961 og var ætlað börnum. Fljót- lega vistast Kristín í Lyngás, enda ekki í önnur hús að venda til þess LITGREINING MEÐ ___I CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AO VANDAORI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF. að fá kennslu og þjálfun. Þrátt fyrir það að heimilið hefði upp- haflega verið ætlað börnum, vist- uðust nokkrir unglingar og full- orðnir þar á þessum árum. Árið 1971 hefur Styrktarfélagið lokið byggingu annars dagvistar- heimilis í Reykjavík, ætlað ungl- ingum og fullorðnu fólki. Kennslu- og starfsþjálfunarheimilið Bjark- arás við Stjörnugróf tók á móti sínum fyrstu vistmönnum í nóv- ember 1971, og var Kristín ein af þeim þrettán er mættu fyrsta starfsdaginn. Við sem kynntumst og störfuðum með Kristínu í þau tíu ár er hún dvaldi í Bjarkarási og síðan síðustu þrjú árin í Ási, eigum margar góðar minningar. Við minnumst Kristínar sem leiðtoga. Hún vildi hafa forystu og tókst það prýðilega. Kristín var með afbrigðum kurteis og prúð í framkomu og það svo að eftirtekt vakti. Mikilvægur áfangi var það fé- lögunum í Bjarkarási er tólf þeirra hófu starf á verndaða vinnustaðnum Ási, Brautarholti 6, er Styrktarfélagið starfrækir. I þeim hóp var Kristín. Loks var þeim áfanga náð er stefnt hafði verið að undangengin ár. Að vera virkur í þjóðfélaginu. Starfa við þau viðfangsefni er geta og kraft- ar leyfðu. Taka við launum fyrir vinnu sína, sem og aðrir framleið- endur úti á hinum almenna vinnu- markaði. Félagar og samstarfsmenn Kristínar eiga mörg erfitt með að skilja, hvers vegna þrír félagar á besta aldri eru kallaðir burt svona hver á eftir öðrum, eða á tæplega einu ári. Hvers vegna var þeim ekki ætl- að lengra líf? Við söknum Kristínar. Hún skil- ur eftir sig ljúfar minningar sem við geymum. Það er mikill missir fyrir Oddnýju að sjá nú á eftir annarri dóttur sinni, ekki sízt Kristínu, en þær mæðgur bjuggu saman alla tíð. Starfsfólk Bjarkaráss og Áss, kennarar Þjálfunarskólans við Stjörnugróf, félagar Kristínar og samstarfsfólk, senda Oddnýju móður hennar svo og öðrum að- standendum, innilegar samúð- arkveðjur. Við viljum einnig þakka starfs- fólkinu á deild 3B, Landakoti, um- önnun þeirra og hlýju í garð Kristínar. Við vitum að þar leið henni vel. Blessuð sé minning Kristínar Stefánsdóttur. Gréta Bachmann Hafliði Hjartarson Hinn 28. febrúar 1941 fórst tog- arinn Gullfoss í hafi í ofsaveðri út af Snæfellsnesi. Með skipinu týnd- ist öll áhöfnin, 19 menn. Fyrsti stýrimaður á skipinu var Stefán Hermannsson 35 ára gamall, ætt- aður frá Seyðisfirði. Hann lét eftir sig konu, Oddnýju Guðjónsdóttur, ættaða frá Kotmúla í Fáskrúðs- firði, og fjögur börn, hið yngsta tæpra tveggja ára og hið elsta fjórtán ára. Nærri má geta, að þetta var reiðarslag fyrir konuna, sem nú stóð ein eftir méð börnin fjögur. En Oddný lét ekki bugast, fremur en mörg önnur sjómannskona, sem um sárt átti að binda á þess- um árum, þegar bæði styrjaldar- átök og harðviðri hjuggu stór skörð í raðir íslenskra sjómanna. Ein og óstudd kom hún börnum sínum til manns, þó lengst af væri þröngt í búi. Oddný hefur nú horft á bak tveimur dætrum sínum hverfa úr tölu lifenda. Elsta dóttir hennar Hrafnhildur Erla eða Stella, sem búsett var í Bandaríkjunum, lést árið 1977 og í dag er gerð útför yngstu dótturinnar, Kristínar Jónu. Kristín Jóna eða Stína eins og hún var jafnan kölluð, var alla tíð í heimili hjá móður sinni. Á barnsaldri veiktist hún mjög hast- arlega með þeim afleiðingum að hún tók ekki út eðlilegan andlegan þroska eftir það. Saga Stínu er því saga konu, sem fór á mis við flest það í lífinu, sem aðrir telja sjálfsagt að höndla. Stína gerði fáar kröfur til lífsins gæða og því þurfti ekki mikið til að gleðja hana. Hún vildi öllum vel og flestir báru gæfu til að endurgjalda einlægt og barns- legt viðmót hennar með hlýju og góðsemi. Nokkru eftir að starfsþjálfunar- og kennslustofnunin Bjarkarás í Stjörnugróf og síðar verndaður vinnustaður þar í næsta nágrenni tóku til starfa, gerðist Stína þar starfsmaður. Á þessum stöðum varð hún aðnjótandi kennslu og þjálfunar, sem gaf henni aukið sjálfstraust og kom henni til að líta á sjálfa sig sem gildan þegn í þjóðféiaginu. Eftir að Bjarkarás og vinnustaðurinn urði henni at- hvarf fór hún daglega „í vinnuna" sambærilega og aðrir sem á þön- um voru í kringum hana. Stína gerði ekki víðreist um ævina. Þó fór hún með vistfólki í Bjarkarási i orlofsferðir til Nor- egs og Spánar. Þessar ferðir víkk- uðu sjóndeildarhring hennar og urðu henni minning um ógleym- anlega röð ævintýra, sem hún vitnaði oft til. f Bjarkarási átti hún góða daga og skal starfsfólki og vinum hennar og félögum þökk- uð umhyggja, kennsla og félags- skapur, sem hún varð þar aðnjót- andi. Skyldfólki Stínu, tengdafólki og öðrum vinum hennar skal þökkuð ræktarsemi, sem það auðsýndi henni alla tíð og allt til hinstu stundar. Læknum og hjúkrunarfólki á Landakotsspítala er þökkuð góð umönnun sem Stína hlaut þar í baráttu við bráðan sjúkdóm. Ottar Kjartansson Garðar Magnm- son — Kveðjuorð Fæddur 28. júlí 1922 Dáinn 25. janúar 1985 í dag kveðjum við elskulegan afa okkar, Garðar Magnússon, sem lést skyndilega þann 25. janú- ar sl. 62 ára að aldri. Við afabörnin áttum svo margar gleðistundir með afa okkar þessi ár sem við fengum að njóta hans. Hann var ætíð tilbúinn að bregða á leik ef svo bar undir. Sérstaklega viljum við þó minn- ast sumarbústaðaferðanna sem voru og eru ógleymanlegar og allt- af hlökkuðum við til næsta Hver tilgangurinn er það skilj- um við ekki nú, en mestu máli skiptir að afa líði vel þar sem hann er nú hjá Guði. Með þessum fátæklegu orðum viljum við kveðja afa okkar. Missir elsku ömmu okkar er mikill og söknuðurinn sár. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (sd. 1886 — V. Briem). Afabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.