Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985 „Meirihlutaeign bæjar- sjóðs í BÚH óraunsæ" * — segir Sólveig Agústsdóttir, annar tveggja bæjarfulltrúa, sem ekki gerðist hluthafi á stofnfundi nýs útgerðarfélags í Hafnarfirði STOFNUN almenningshlutafélags um Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hef- ur verið til umræðu í fjölmiðlum að undanfornu og hefur þar m.a. komið fram, að allir bæjarfulltrúar gerðust hluthafar á stofnfundi félagsins að undanskildum tveimur. Annar þeirra er Sólveig Ágústsdóttir, bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og var hún innt eftir ástæðu fyrir þeirri ákvörðun hennar, að gerast ekki hluthafi í hinu nýstofnaða hlutafé- lagi, eins og aðrir fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins. Sólveig sagði m.a. að frá upp- hafi kjörtímabilsins hafi hún haft áhuga fyrir að losa bæjarsjóð Hafnarfjarðar undan ábyrgð á rekstri BÚH. „Bæjarútgerðin hef- ur um árabil verið rekin með tapi, og hefur tapið farið síversnandi á undanförnum árum, þar til svo var komið siðastliðið haust, að fyrirtækið komst í algjört greiðsluþrot. Rekstri togaranna var hætt og vinnsla fiskiðjuvers- ins stöðvaðist, þrátt fyrir að bæjarsjóður hafi lagt fram tugi milljóna á undanförnum árum í rekstur BÚH,“ sagði Sóveig m.a. „Á síðasta ári voru lagðar fram 14 milljónir króna og þar af 3,4 millj- ónir beint í launagreiðslur til starfsfólks nú í haust. Ég tel að skuldir þær, sem bærinn komi til með að yfirtaka, vegna rekstrar BÚH, séu nú komnar yfir 100 milljónir og eru ekki öll kurl kom- in til grafar. Ég hef lagt til við meirihluta bæjarstjórnar að auglýsa fyrir- tækið til sölu, en engan hljóm- grunn fengið. Síðastliðið vor kaus Sólveig Ágústsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirdi. síðan bæjarstjórn Hafnarfjarðar þriggja manna starfsnefnd, er fékk það verkefni að fara ofan í fjármál og rekstur BÚH. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að breyta um rekstrarform BÚH og stofna almenningshlutafélag. Lagði nefndin síðan fram tillögu til bæjarstjórnar um stofnun hlutafélags með 51% eignaraðild baejarsjóðs. Ég tel meirihlutaeign bæjar- sjóðs óraunsæja, en greiddi þó til- lögunni atkvæði ásamt 10 öðrum fulltrúum bæjarstjórnarinnar, fyrst og fremst til að koma hreyf- ingu á umræður um vandamál þau er steðja að rekstri BÚH. Ég hefði álitið skynsamlegra að bærinn hefði losað sig að fullu við alla ábyrgð eða átt til dæmis 20% til 30% í hinu nýstofnaða hlutafélagi, ef þess hefði verið óskað. Mig grunar einnig, að eigin fjárstaða hins nýstofnaða útgerðarfélags sé til muna lakari en fram hefur komið til þessa, meðal annars vegna ofmats á togara BÚH, eins og skýrt hefur komið fram í sölu og tilboðum samsvarandi togara Bæjarútgerðar Reykjavíkur um þessar mundir. Það var meðal annars af þessum ástæðum, að ég gerðist ekki hluthafi í hinu nýja almenningshlutafélagi," sagði Sól- veig Ágústsdóttir. Að telja rétt fram er leið til að komast hjá óþarfa áhyggjum og streitu sem jafnan fylgir óheilindum og óreiðu í fjármálum. Auk fjölmargra breytinga og Ieiðréttinga sem skattstjórar landsins gera á skattfram- tölum, tekur skattrannsóknarstjóri fjölda félaga og einstaklinga til sérstakrar rannsóknar á ári hverju. Árið 1984 voru 360 mál í athugun. Dæmi eru um að skattaðilar hafi verið rannsakaðir sex ár aftur í tímann og fengið skattahækkanir svo milljónum skiptir. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Þer líður betur með skattframtalið-og samviskuna-í lagi VK> MIMNUM & TILKVNNINCASKYLDUNA 6fiTN i' ‘ 1 ! • > . ^ ' É A 1 3 J 1 » * * * * m 1» n 13 >3 i< 11 (N (» ■ O « » » Jl v V S3-C- .'. © ItKjlillcíir t'IrPrPi siwstpito 0 ÍST Vestmannaeyjar: Dagatal til að minna á tilkynninga- skylduna Ve.stmannaeyjum, 29. janúar. KIWANISKLÚBBURINN Helgafell í Vestmannaeyjum hefur í samvinnu við Slysavarnafélag íslands gefið út dagatal sem dreift verður ókeypis um borð í öll skip íslenska flotans sem eru 12 lestir eða stærri. Dagatöl þessi eru sérlega gerð til þess að minna skipstjórnarmenn á Tilkynn- ingaskyldu íslenskra skipa og er þess vænst að þeim verði valinn staður í borðsal og brú skipanna, þannig að þau verði ávallt í sjónmáli áhafnarinnar. Útgáfa dagatala þessara er lið- ur í fjáröflun Helgafells og verður hagnaði varið til slysavarnamála. Það hefur ekki farið framhjá fólki sem fylgist með veðurfregnum í útvarpi að ekki líður svo dagur að ekki sé lesinn langur listi skipa sem beðin eru að tilkynna sig til næstu strandstöðvar Landsímans. „Megin tilgangurinn með útgáfu þessa dagatals er að minna á til- kynningaskylduna með áberandi hætti og það er von okkar að skip- stjórnarmenn taki þá áminningu til greina, þannig að auglýsingar eftir skipum sem hafa vanrækt að tilkynna sig hverfi með öllu úr út- varpinu," sagði Magnús Kristins- son, einn forvígismanna Helga- fells, þegar þetta ágæta framtak klúbbsins var kynnt fyrir frétta- mönnum. Dagatalið er veglegt og vandað, prýtt fallegum litmyndum frá sjávarsíðunni í hverjum mánuði eftir ljósmyndarana Sigurgeir Jónasson og Guðmund Sigfússon frá Vestmannaeyjum. Þá fylgja hverjum mánuði stuttar upplýs- ingar og áminningar um sjóslysa- varnir og björgunarstörf sem Hannes Þ. Hafstein hjá SVFf hef- ur tekið saman en hann var þeim Helgafellsfélögum mjög innan handar við framkvæmd verksins. Dagatölin eru prentuð hjá Odda hf. Þeir skipstjórnarmenn sem einhverra orsaka vegna ekki fá dagatöl send um borð í skip sín geta nálgast þau hjá Slysavarna- félaginu eða Helgafelli í Eyjum. Þess má geta í lokin að Tilkynn- ingaskyldan tók til starfa í maí 1968 en lög um framkvæmd henn- ar samþykkt á Alþingi 13. maí 1977. - hkj Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.