Morgunblaðið - 01.02.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
3
Morgunblaðið/ól.K.Mag.
Frá jarðvegsframkvæmdum við laxeldisstöðina sem SÍS er að reisa í sam-
vinnu við norskt fyrirtæki í Staðarlandi vestan Grindavíkur.
Laxeldisstöðin á Stað í Grindavík:
Norskt fyrirtæki
á helming hluta-
fjár á móti SÍS
SAMBAND íslenskra samvinnufé-
laga og samstarfsfyrirtæki þess eiga
51% í íslandslaxi hf. en það fyrir-
tæki stendur í framkvæmdum við
stóra laxeldisstöð í Staðarlandi vest-
an Grindavíkur. Norska fyrirtækið
Noraqua a/s á 49% hlutafjár en það
er Bskeldisfyrirtæki í eigu stærsta
byggingafyrirtækis Noregs, Sande-
gruppen a/s.
Þorsteinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri hjá SÍS, sagði í
samtali við blm. Mbl. að nú stæðu
yfir framkvæmdir við seiðaeld-
isstöð í Grindavík fyrir 500 þús-
und seiði. Ákvörðun um byggingu
hennar hefði verið tekin á grund-
velli arðsemi hennar einnar sér.
Hún gæti þó verið áfangi í stærri
stöð en engar ákvarðanir hefðu
enn verið teknar um framhaldið.
Seiðaeldisstöðin á að vera tilbúin í
niaí, að sögn Þorsteins, en í næsta
mánuði ætti að vera hægt að taka
á móti hrognum.
Aðspurður um hvað Norðmenn-
irnir legðu til sagði Þorsteinn að
fiskeldi væri mjög fjármagnsfrek-
ur iðnaður og legðu norsku sam-
starfsaðilarnir til fjármagn, auk
þekkingar á fiskeldi.
Viljum benda fólki á að
skattpeningarnir þeirra
nýtast til ýmissa hluta
— segir Höskuldur Jónsson ráðuneytis-
stjóri um auglýsingu fjármálaráðuneytisins
„Eiríkur, Auðbjörg, IJna og Ársæll
er fólk sem við höfum áhuga á að
landslýður kynnist,“ sagði Höskuld-
ur Jónsson, ráðuneytisstjóri, þegar
hann var inntur eftir auglýsingu fjár-
málaráðuneytisins, sem birtist í
Morgunblaðinu í gær.
Höskuldur sagði, að þessi fyrsta
auglýsing væri kynning á hjónun-
um Eiríki og Auðbjörgu og Unu og
Ársæli. „Þau munu eiga í aðskilj-
anlegum viðskiptum eftir því sem
líður á árið,“ sagði Höskuldur.
„Við ætlum að nota þetta ágæta
fólk til að vekja athygli á ýmsum
þáttum skattalaga og benda fólki
t.d. á að aðgæta það þegar það
stendur í viðskiptum, að reikn-
ingar eiga að vera númeraðir og
að það á að taka við reikningum.
Einnig mun það koma fram að það
er skattaeftirlit í landinu og eftir-
litsmenn frá því munu heimsækja
þau fyrirtæki sem bókhaldsskyld
eru. Aðaltilgangurinn er að benda
á að það er skattaeftirlit í landinu
og að skattgreiðslur þjóna ákveðn-
um tilgangi. Það eru ýmsir þættir
í þjóðlífinu sem ganga fyrir
skattpeningum landsmanna. Fólk
er því minnt á að eitthvað verður
úr þessum peningum þeirra og
þeir nýtast í þjóðfélaginu, t.d. í
skólakerfinu, heilsugæslunni eða
löggæslunni."
Höskuldur sagði, að í þessum
auglýsingum væri fjármálaráðu-
neytið ekki að gefa í skyn að
skattsvik almennings væru mikil.
„Það er sérstök nefnd sem er að
gera úttekt á því hvað skattsvik
séu mikil hér á landi. Við erum
eingöngu að benda fólki á að hafa
sitt bókhald í lagi, enda er betra
að byrgja brunninn áður en barnið
er dottið ofan í. Það getur alltaf
komið fyrir að fólk telji rangt
fram, en oftast er það vegna þess
að það veit ekki betur. Sumir
borga því lægri skatta af tekjum
sínum en aðrir," sagði Höskuldur
Jónsson að lokum.
Borgarlæknir:
Engin
inflúensa
SVO virðist sem óhætt sé að af-
skrifa þann möguleika að inflú-
ensufaraldur sé kominn upp á höf-
uðborgarsvæðinu, en getgátur hafa
verið uppi um það í fjölmiðlum að
undanrörnu. Að sögn Lúðvíks
Olafssonar, borgarlæknis, hafa á
þriðja hundrað sýni verið greind nú
síðustu daga, en í engum þeirra
hafa komið fram inflúensuveirur.
Lúðvík Ólafsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að sam-
kvæmt þeim sýnum sem greind
hafa verið væri aðallega um að
ræða þrjár tegundir veira, sem
orsökuðu sjúkdóma í öndunar-
færum, og virtist ein þeirra ætla
að verða yfirgnæfandi. Einnig
hefðu greinst bakteríur sem
orsaka hálsbólgu. Lúðvik sagði
ennfremur að sjúkdómar þeir, er
orðið hefði vart að undanförnu,
væru margir hverjir með inflú-
ensueinkennum, með hita og
beinverkjum, þannig að ekki
væri óeðlilegt að grunur um
inflúensufaraldur hefði komið
upp. Sýnagreiningin undanfarna
daga benti þó eindregið ti! að
ekki væri um inflúensu að ræða.