Morgunblaðið - 01.02.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
7
Hafskip telur eng-
in vandkvæði á
að sjóbúa gámana
Ráðuneytið bíður umsagnar dýralæknis
„ÉG SIT uppi með hestana hérna í Reykjavík, skipið farið og
verkfallið skollið á. Kg verð að reyna að koma þeim upp í
sveit,“ sagði Herbert Olason frá Akureyri í samtali við Mbl.,
en hann og Reynir Aðalsteinsson eru eins og kunnugt er að
undirbúa stofnun reiðskóla í Þýskalandi en hafa ekki fengið
að flytja hesta sína þangað með gámum vegna ákvæða í
gamalli reglugerð.
Umsókn Herberts og Reynis um
undanþágu til að flytja hrossin út
með gámum til reynslu er enn til
umfjöllunar í landbúnaðarráðu-
neytinu. Ráðuneytið óskaði um-
sagnar dýralæknis sem ekki hafði
borist ráðuneytinu í gærdag.
Herbert sagði að ef hrossin kæm-
ust ekki út á næstunni yrðu þeir
félagar fyrir milljónatjóni og það
myndi tefla stofnun reiðskóla
þeirra í algera tvísýnu.
Gunnar Bjarnason, hrossaút-
flutningsráðunautur, skrifaði
ráðuneytinu bréf á sínum tíma
þar sem hann mælti eindregið
með því að flutningur með gámum
yrði leyfður og viðskiptaráðuneyt-
ið hefur samþykkt útflutninginn.
Birgir ómar Haraldsson, skipa-
verkfræðingur hjá Hafskip, segir í
Hugmyndir um frjálsan inn-
flutning olíu til fiskiskipa:
Er andvígur
slíkum
hugmyndum
— segir sjávarútvegsráö-
herra, ætti ekki að hafna
þeim að óathuguðu máli
segir forsætisráðherra
„ÉG ER andvígur hugmyndum
um frjálsan innflutning olíu til
flskiskipa. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem ég hef, eru olíu-
viðskiptin við Sovétríkin, ef
eitthvað er, hagstæðari en þau
olíuinnkaup, sem átt hafa sér
stað annars staðar. Viðskiptin
við Sovétríkin byggja á mjög
gömlum merg og hafa átt sér
stað í um 30 ár,“ sagði sjávar-
útvegsráðherra, Halldór Ás-
grímsson, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Þau byggjast upp á því, að
við kaupum af þeim og þeir af
okkur. 90% af því, sem við
kaupum af þeim, er olía. Nú er
framundan nýr fimm ára
samningur við Sovétmenn, þar
sem við erum almennt að biðja
um að þeir kaupi meira af
okkur. Við þau skilyrði er frá-
leitt að tala um minni olíu-
kaup af þeim. Ég teldi það
vera mjög andstætt hagsmun-
um sjávarútvegsins að draga
úr þessum olíukaupum. Þessi
olía hefur ekki verið dýrari en
annars staðar og við höfum
selt þeim sjávarafurðir og ég
sé engin merki þess, að aðrir
markaðir séu tilbúnir til að
taka við þeim afurðum eins og
nú standa sakir,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson.
Morgunblaðið innti forsæt-
isráðherra álits á hugmyndun-
um um frjálsan olíuinnflutn-
ing til fiskiskipa. Hann hafði
eftirfarandi að segja um þær:
„ef útgerðin getur flutt inn
ódýrari olíu en olíufélögin þá
ætti ekki að hafna því að óat-
huguðu máli“.
umsögn sem hann gaf um þessa
flutninga að beiðni Herberts, að
hann teldi engin vandkvæði á að
sjóbúa hestagámana tryggilega á
þilfari ms. Skaftár en leggur ekki
dóm á líðan hestanna þar. Hann
telur gámaskip Hafskips hentug
til flutningsins þar sem þau hafi
verið sérstaklega styrkt til flutn-
ings slíkra gáma og gámunum sé
aðeins raðað í einni hæð á þilfari.
Hafskip er eina skipafélagið
sem er með beinar áætlunarsigl-
ingar héðan til Hamborgar, þaðan
sem styst er til búgarðsins sem
Herbert og Reynir hafa tekið á
leigu. Ekki er hægt að flytja hest-
ana i lestum skipanna þar sem
þau eru alltaf með kísilgúr í lest-
unum. Þess má geta að hesta má
flytja í lestum skipa allt árið og
fór til dæmis mun smærra skip
fullt af afsláttarhrossum til
Belgiu fyrr í vetur á vegum Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
og annað sl. sumar.
Sveinn Björnsson listmilari við eitt verka sinna, sem hann nefnir „Steinatóna“.
Morgunblaðift/Árni Sæberg
Sveinn Björnsson list-
málari á Kjarvalsstöðum
SVEINN Björnsson, listmálari,
opnar á morgun málverkasýningu á
Kjarvalsstöðum. Sýningin er í tilefni
60 ára afmælis listamannsins. Hún
verður opnuð klukkan 16 og verður
opin alla daga frá klukkan 14 til 22.
Sveinn Björnsson sýnir 54
myndir málaðar á tveimur síðustu
árum í Krísuvík, þar sem lista-
maðurinn hefur hús á leigu frá
Hafnarfjarðarkaupstað. Sýningin
verður opin til 17. febrúar næst-
komandi.
EIN BESTU
BÍLAKAUPIN í DAG!
MAZDA 323 Saloon Deluxe árgerð 1985
er ríkulega útbúinn 5 manna bíll, meö nægu plássi
fyrir fjölskylduna og farangurinn.
Viö getum nú boöiö þennan veglega bíl á
mjög hagstæðu veröi.
Opið laugardaga frá kl. 10-4
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Hestaflutningur Herberts og Reynis til Þýskalands: