Morgunblaðið - 01.02.1985, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
Lensidælur
Lensi- og sjódælur fyrir
smábáta meö og án flot-
rofa. 12 og 24 volt. Einnig
vatnsdælur (brunndælur)
fyrir sumarbústaöi, til að
dæla úr kjöllurum o.fl. 220
volt. Mjög ódýrar.
Atlas hf
Borgartún 24, sími 26755.
Pósthólf 493 — Reykjavík.
Háþrýstidælur, mótorar,
ventlar og stjórntæki í
vökvakerfi til sjós og
lands.
Eínkaumboö á íslandi.
Atlas hf
Borgartún 24, sími 26755. /
Pósthólf 493 — Reykjavík.
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskað er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager fiestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiösluskilmálar.
Atlas hf
Borgartún 24 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Roykjavik
Medic Alert stofnað á íslandi
— veitir sjúklingum
í fyrradag var haldinn stofn-
fundur Medic Alert á íslandi í
húsnædi Lionshreyfingarinnar í
Sigtúni, en samtökin eru starf-
rækt í 18 löndum. Tilgangur
Medic Alert er ad útbúa og starf-
rækja aðvörunarkerfi fyrir sjúkl-
inga með alvarlega sjúkdóma,
sem af einhverjum ástæðum gætu
veikst þannig, að þeir yrðu ófærir
um að gera sér grein fyrir veik-
indum sínum og þar af leiðandi
átt á hættu að fá ranga raeðferð.
Svavar Gestsson umdæmis-
stjóri gerði fyrst grein fyrir
sögu samtakanna, en Medic Al-
ert Foundation International
var stofnað í Turlock í Kali-
forníu í marz 1956 af Dr. Mar-
ion C. Collins, eftir að dóttir
hans hafði nærri látist vegna
ofnæmis fyrir stífkrampa-
sprautu. Medic Alert starfar nú
í fimm heimsálfum og undir-
búningur er hafinn að stofnun
deilda í fleiri löndum en þeim 18
sem þegar hafa tekið upp þessa
þjónustu.
Þá gerði Guðsteinn Þengils-
son læknir grein fyrir aðdrag-
anda að stofnun Medic Alert á
íslandi en hann var formaður
unairbúningsnefndar. Hug-
myndin var fyrst reifuð af Birni
Guðmundssyni fyrrverandi um-
dæmisstjóra á fundi í Lions-
klúbbi Kópavogs árið 1981. í
framhaldi af því var skipuð
nefnd er skyldi vinna að því að
koma þessari starfsemi á lagg-
irnar hér á landi.
Haustið 1982 kom Alfred
Holder forseti Medic Alert
Foundation International
hingað til lands og leitað var
eftir samvinnu við ýmis félög og
samtök sem talið var að snerti
þessi samtök sérstaklega. Á
umdæmisþingi Lions á Isafirði í
júní 1983 var samþykkt að
Lions stæði að undirbúningi
Medic Alert-deildar á íslandi.
Alfred A. Hodder forseti
Medic Alert International var
með bráða eða hættulega sjúkdóma ævilanga vernd gegn mistökum
Alfred A. Hodder afhendir Páli Sigurðssyni ráðuneytisstjóra fyrsta merki Medic Alert.
gestur stofnskrárhátíðarinnar
og gerði grein fyrir starfsemi
Medic Alert í öðrum löndum.
Hann afhenti Páli Sigurðssyni
ráðuneytisstjóra heilbrigðis-
ráðuneytisins fyrir hönd heil-
brigðisráðherra fyrsta merkið,
en þau eru fáanleg sem arm-
bönd eða hálsmen, oftast úr
stáli en einnig fáanleg úr gulli
og silfri. Á framhlið málmplötu
sem fylgir er skráð merki Medic
Alert, en á bakhliðinni eru upp-
lýsingar um viðkomandi sjúkl-
ing, sjúkdómsgreining og eða
meðferð plötuhafans. Þá er
skráð Medic Alert númer hans
og símanúmer vaktstöðvar.
Vaktstöðin er opin allan sól-
arhringinn og þangað má
hringja hvaðan sem er úr heim-
inum sjúklingum að kostnaðar-
lausu, til að fá nauðsynlegar
upplýsingar um sjúkdóm eða
meðferð.
Merkin eru fáanleg sem hálsfestar eða armbönd, úr stáli, gulli eða silfri.
Á framhlið plötunnar er merki Medic Alert en á bakhliðinni upplýsingar
um viðkomandi sjúkling, sjúkdómsgreiningu og meðferð.
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema
Félag raungreinakennara í
framhaldsskólum og íslenzka
stærðfræðafélagið efna um þessar
mundir til stærðfræðikeppni meðal
nemenda ( framhaldsskólum
landsins. Keppnin felst í því að
send hafa verið út 10 dæmi sem
nemendur eiga að glfraa við heima.
Upphaflega var áformað að dæm-
um yrði skilað þann 1. febrúar, en
skilafrestur hefur nú verið fram-
lengdur til 18. febrúar. Nemendur
mega skila lausnum á eins mörg-
um dæmanna og þeir vilja og sér-
stök viðurkenning verður gefin
fyrir frumlegar lausnir á einstök-
um dæmum.
Þeim sem beztum lausnum
skila verður boðið til lokakeppni
í Reykjavík, þar sem allir fást
við verkefni, en nú á ákveðnum
tíma. Stærðfræðafélagið sá um
samningu verkefna og fer yfir
úrlausnir, en Félag raungreina-
kennara dreifði verkefnum og
kynnti keppnina í skólum.
Keppnin er að fullu kostuð af
IBM á íslandi.
í sambandi við keppnina má
geta þess að íslendingum hefur
nú í fyrsta sinn verið boðið að
taka þátt í svonefndum ólymp-
íuleikum í stærðfræði, en þeir
eru alþjóðleg keppni nemenda á
framhaldsskólastigi. Næsta
sumar fer keppnin fram í Finn-
landi og verður það í 26. skipti
sem slík keppni fer fram. Þátt-
tökuþjóðir verða um 35 úr öllum
heimsálfum. Eru íslendingar
eina þjóðin, sem nú er boðin
þátttaka í 1. skipti en fjölmörg-
um umsóknum þjóða var hafnað.
Dæmin 10
1. Sýnið að e ^ 1+x ef x > -1.
2. Látum x1( x2, x3, yj, y2, y3 vera rauntölur
þannig að
Xj + x2 + x3 = 0,
' yi + y2 + y3 = 0,
x* + y2 = 1 fyrir k = 1,2,3.
Sýnið að punktarnir (xk, yk), k = 1,2,3, eru
hornpunktar jafnhliða þríhyrnings.
3. Látum n og k vera náttúrlegar tölur. Sýnið
að (n + l)2 gengur upp í tölunni nk + 1 þá og
því aðeins að n + 1 gangi upp í tölunni k.
4. Dragið línu gegnum
punktana (a,0), þar
sem a > 1, og (1,1), og
táknið skurðpunkt
hennar við y-ás með
(0,b). Finnið öll gildi á
a þannig að lengd
striksins frá (a,0) til
(0,b) verði 10.
5. Látum f vera gagntæka vörpun frá mengi
allra náttúrlegra talna í sjálft sig þannig að f
(n + 1) ^ f(n) + 1 fyrir öll n. Sýnið að f(n) = n
fyrir öll n. [Slík vörpun kallast gagntæk ef
(a, 0)
engar tvær ólíkar tölur varpast á sömu tölu,
og ef sérhver tala er mynd einhverrar tölu.]
6. Gefinn er þríhyrn-
ingur ABC. Látum X,
Y, Z vera punkta utan
við ABC þannig að
AXB, BYC og CZA séu
jafnarma þríhyrningar
og hornin AXB, BYC A
og CZA séu öll 120°.
Sýnið að þríhyrningur-
inn XYZ er jafnhliða.
7. Á hve marga vegu má skipta eitt þúsund
króna seðli í tíu króna, fimm króna og krónu
peninga?
8. Leysið jöfnuna
(3 + 2 /2)* + (3 + 2 V2)x = 4.
9. Sýnið að fallið
tw.
tekur allar rauntölur sem gildi ef a < c < b,
annars taki það öll gildi utan við bil af lengd-
inni 4 v/(a + c) (b + c).
10. Sýnið að talan 6 gengur upp í tölunni
25-7" + (25m) + 32
fyrir allar náttúrlegar tölur n.
Lausnir sendist Jóni Magnús-
syni hjá Raunvísindastofnun
Háskólans, Dunhaga 6, Reykja-
vík.