Morgunblaðið - 01.02.1985, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
13
Hjaltlendingar óska aðstodar
við uppbyggingu sjávarútvegs:
Erum fúsir að
veita þá aðstoð
— segir sjávar-
útvegsráöherra
„HJALTLENDINGAR hafa verið
að biðja um aöstoð við uppbyggingu
sjávarútvegsins og við sögðum þeim
að við værum fúsir til að veita hana.
Það stendur til að maður fari þangað
fljótlega þeim til aðstoðar," sagði
Halldór Asgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, í samtali við blm. Morgun-
blaðsins.
„Það komu hingað fyrir
skömmu menn frá Hjaltlandi til
að kynna sér sjávarútveg hér á
landi, en þeir eru nú að byggja upp
og bæta sinn eiginn fiskiðnað.
Þeim kom á óvart hvað íslend-
ingar voru komnir langt á þessu
sviði, svo sem framleiðslu á ýms-
um tækjum og þeim fannst gæða-
eftirlit okkar einnig mjög athygl-
isvert. Þess vegna hafa þeir beðið
okkur aðstoðar," sagði Halldór
Ásgrímsson.
Beiti mér ekki
fyrir afnámi
kostnaðar-
hlutdeildar
— segir Halldór
Ásgrímsson
„ÉG MUN ekki beita mér fyrir því,
að kostnaðarhlutdeild áhafna fiski-
skipa í rekstri skipanna verði felld
niður. Ef það yrði gert, myndi tapið á
útgerðinni aukast svo mikið, að það
yrðu ekki margir sjómenn, sem
hefðu vinnu á eftir,“ sagði Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra f
samtali við Morgunblaðið.
„Með því væri verið að stofna
sjávarútveginum í voða og þar
með afkomu sjómanna og ég get
ekki tekið undir það.
Við höfum verið í sambandi við
deiluaðila í kjaradeilu sjómanna
og útgerðarmanna og munum
hugsanlega grípa þar eitthvað inn
í verði þess óskað,“ sagði Halldór
ennfremur aðspurður um það,
hvort stjórnvöld myndu grípa inn
í samningaviðræðurnar, sem nú
standa yfir.
Landsbyggðar-
( kirkjur
Messur
sunnudag
EGILSSTADAKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messan á
sunnudag verður kl. 14.Sókn-
arprestur.
KIRK JUHVOLSPREST A-
KALL:Fundur um margvíslega
hjálp við vandamálum áfeng-
isneyzlu veröur í skólanum í
Þykkvabæ á laugardag kl. 16.
Á sunnudag verður sunnu-
dagaskóli í Hábæjarkirkju kl.
10.30 og guösþjónusta í
Árbæjarkirkju kl. 14. Á mánu-
dagskvöld kl. 20.30 býöur bíbl-
íuleshópurinn til samveru-
stundar í skólanum meö hvíta-
sunnufólki úr Kirkjulækjarkoti.
Söngur og samtal, kaffi og
kökur.
Auöur Eir Vilhjólmsdóttir
sóknarprestur
VÍKURPRESTAKALL: Kirkju-
skólinn í Vik á morgun, laug-
ardag, kl. 11. Guösþjónusta i
Víkurkirkju sunnudag kl.
14 Sóknarprestur.
V/SA
Gæði.nr.l
orramatur
Blandaður
súrmatur í$<“ „
(Lundabaggi-Sviðasulta-
Hrútspungar- Bringur-Lifrapylsa og blóðmör)
AÐEINS
2ja lítra fata
.Súrt . _ Nettó innihald ca. 1,3 kg.
hvalsrengi Blandaður súrmatur
^ • 1 f A P a ^ /\ nnrlöKonni CwiAncnUn ^ « « «
i bakka
.00
Pr-kg.
2ja lítra fata
m/mysu
Nettó innihald ca. 1,1 kg
(Lundabaggi — Sviðasulta
Hrútspungar— Bringur-
Lifrapylsa — Blóðmör)
Fatan
Þorrabakki
1 /iC-Wca.
143 500g,
Kynnum
og gefum
að smakka
í öllum
búðunum
Hreinsuð svið , . _, , K ,
QQ okkar gomsæta Þorramat
20 %
kyimingarafsláttun
Kynnum í Starmýri:
Columbia kaffi 20 % afsláttur
Kynnum í Austurstræti:
Cosas appelsínur aðeins kr. 39.00 pr. kg.
Kynnum í Mjóddinni:
Óla partýpizzur 20 % afsláttur
Mastró súpur frá Vilkó 20% afsláttur.
Sápugerðin Frigg kynnir:
íva þvottaduft, blautsápu, sápuúða ogtaumýki.
Harðfiskur 20% LÆGRA VERÐ
Opið til kl. 19 í Starmýri og Austurstræti,
en til kl. 21 í Mjóddinni
vidir
AUSTURSTRÆT117 — STARMYRI 2
MJÓDDINNI