Morgunblaðið - 01.02.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
25
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands:
„Endurskoðum stefnuna
í kjarnorkuvopnamálum
- ef Pakistanar smíða kjarnorkusprengju“
Nýju Delhí, 31. janúar. AP.
RAJIV Gandhi, forsætisrádherra
Indlands, sem nú í vikunni var í
forsæti á fundi sex þjóðarleið-
toga um afvopnun, segir, að
Indverjar muni endurskoða af-
stöðu sína í kjarnorkuvopnamál-
um ef Pakistanar smíða kjarn-
orkuvopn.
„Það verður ekki aftur snúið
ef eitthvert ríki í þessum heims-
hluta kemur sér upp kjarnorku-
vopnum," sagði Gandhi í viðtali
við hið virta tímarit „India To-
day“ þegar hann var spurður
hvernig stjórn hans brygðist við
ef Pakistanar smíðuðu kjarn-
orkuvopn. „Við yrðum að endur-
skoða stefnu okkar í þessum
málum til að mæta ógnuninni,"
bætti Gandhi við.
Gandhi var í forsæti á fundi
sex þjóðarleiðtoga um afvopnun,
sem haldinn var í Nýju Delhí nú
í vikunni, en auk hans voru það
Evrópubandalagið:
Verðbólgan á
síðasta ári 5,5 %
Luxemborg, 31. janúar. AP.
VERÐBÓLGAN í löndum Evrópubandalagsins var að meðaltali 5,5% á síð-
asta ári en 7,2%árið 1983. Skýrði hagstofa bandalagsins frá þessu í dag.
í frétt hagstofunnar er raunar
bent á, að lægri verðbólgutala á
síðasta ári sé ekki síst að þakka
nýjum aðferðum við að reikna út
vöruverðslækkanir en hefði fyrri
aðferð verið notuð, hefði verðbólg-
an verið 6,4% í fyrra til jafnaðar.
í Bandaríkjunum var verðbólgan í
fyrra 3,9%, í Kanada 3,7% og í
Japan 2,6%. Á síðustu fimm árum
hefur vöruverð í Evrópubanda-
lagslöndum hækkað um 43,8%.
Vöruverðshækkarnir minnkuðu
mest í Luxemborg þar sem þær
voru 2,3% í fyrra en 8% 1983. Á
írlandi hækkaði vöruverð um
6,8% (10,3% 1983), á Ítalíu um
9,5% (12,6% 1983) og í Frakklandi
um 6,7% (9,3 1983). Fyrir önnur
aðildarlönd EB eru tölurnar þess-
ar: Vestur-Þýskaland 2% (2,6%),
Holland 2,7% (2,9%), Bretland
4,6% (5,3%), Belgía 5,3% (7,2%),
Danmörk 5,6% (6,0%) og Grikk-
land 18,1% (20,0%).
Litlar hækkanir og jafnvel
lækkanir í sumum löndum ollu
því, að í desember sl. hækkaði
vöruverð aðeins um 0,2% til jafn-
aðar.
Stjórn bresku kolanámanna:
Hafnar skilyrðis-
lausum viðræðum
London, 31. janútr. AP.
STJÓRN ríkisreknu kolanámanna í Bretlandi hafnaði í dag tillögu Samtaka
kolanámumanna um að haldinn yrði samningafundur í vinnudeilu þessara
aðila án nokkurra fyrirfram skilyrða.
Bréf þessa efnis var í dag sent
stjórn Samtaka kolanámumanna.
Segja fréttaskýrendur, að synjun-
in dragi mjög úr líkum á því að
lausn finnist á deilunni innan
skamms, eins og margir voru
farnir að gera sér vonir um.
Stjórn kolanámanna vill að leið-
togar kolanámumanna fallist á
það skriflega að réttlætanlegt sé
að loka kolanámum, sem ekki
skila arði, áður en til samninga-
fundar er boðað á ný. Segir hún
tilgangslaust að halda fund um
lausn námuverkfallsins, sem nú
hefur staðið í tíu mánuði, fyrr en
slík yfirlýsing liggi fyrir.
Noregur:
Atvinnuleysi 4,1 %
Ósló, 31. janúar. AP.
ATVINNULEYSI í Noregi í lok janú-
ar var 4,1 %af heildarvinnuaflinu, að
því er atvinnumálaráðuneytið til-
kynnti í dag, fimmtudag.
Hafði atvinnuleysi aukist úr
3,8% í lok ársins 1984, en lækkað
frá því í janúar sama ár, er það
var 4,7%.
í janúarlok voru 70.300 manns
skráðir atvinnulausir og hafði
fjölgað um 5.500 frá því í desem-
ber 1984, en fækkað um 9.400 frá
því í janúar það ár.
Af heildarfjölda atvinnulausra í
janúar sl. voru 43.800 karlar og
26.500 konur. 8.500 voru undir
tvítugu og hafði fækkað um 1.500
á árinu.
Fjölgunin frá desember 1984 til
janúar 1985 var sögð stafa að
verulegu leyti af árstíðabundnum
sveiflum í atvinnulífinu.
Rajiv Gandhi
þeir Olof Palme, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands,
Miguel de la Madrid, forseti
Mexíkó, Raoul Alfonsin, forseti
Argentínu, og Julius Nyerere,
forseti Tanzaníu. 1 lok fundarins
létu þeir frá sér fara yfirlýsingu
þar sem þeir hvöttu til að hætt
yrði smíði og tilraunum með
kjarnorkuvopn. Sexmenning-
arnir eða fulltrúar þeirra ætla
nú að ganga á fund leiðtoga
kjarnorkuveldanna fimm og
kynna þeim ályktunina.
Indverskir embættismenn
halda því fram, að Pakistanar,
sem hafa þrisvar sinnum háð
styrjöld við Indverja frá 1947,
séu nú um það bil að verða færir
um að smíða kjarnorkuvopn.
Ungfrú Frakkland, Isabelle Chaudieu, fagnar sigri 27. des. sl. með
kampavínsglas í hendi.
„Ungfrú Frakkland“
svipt titlinum
Paria, 31. jinnar. AP.
ÖNNUR þeirra stúlkna sem kosnar voru fegurðardrottningar í Frakk-
landi á síðastliðnu ári hefur verið svipt titlinum vegna þess að nektar-
myndir birtust af henni í franska tímaritinu „Lui“.
Minnir þetta á svipaðan at-
burð sem gerðist í fyrra, er
„ungfrú Bandaríkin", Vanessa
Williams, glataði titlinum, eftir
að myndir af henni ásamt ann-
arri konu birtust í tímaritinu
Penthouse.
„Ungfrú Frakkland", Isabelle
Chaudieu, 18 ára gömul ljós-
myndafyrirsæta, vann fegurðar-
samkeppni sem fram fór í des-
ember sl. Sú sem varð í öðru
sæti, Carole Tredille, sem einnig
er 18 ára gömul, var í dag,
fimmtudag, valin í stað Chaudi-
eu.
„Við verðum að beygja okkur
undir alþjóðlegar reglur í þessu
efni,“ sagði Michel Laparmenti-
er, fulltrúi fyrirtækisins sem
stóð fyrir keppninni.
l‘DEÍLfiMi3Íg
IfiESiTfUN
mMWPrnhíi
íáujíaöá^
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
City of Perth 8. febr.
Laxfoss 19. feb.
Bakkatoss 28. feb.
City of Perth 11. mar.
NEW YORK
City of Perth 6. feb.
Laxfoss 18. feb.
Bakkafoss 26. feb.
City of Perth 8. mar.
HALIFAX
Bakkafoss 4. mar.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss 3. teb.
Eyrarfoss 10. feb.
Álafoss 17. feb.
Eyrarfoss 24. feb.
FELIXSTOWE
Álafoss 4. feb.
Eyrarfoss 11. feb.
Álafoss 18. feb.
Eyrarfoss 25. feb.
ANTWERPEN
Álafoss 5. feb.
Eyrarfoss 12. feb.
Álafoss 19. feb.
Eyrarfoss 26. feb.
ROTTERDAM
Alafoss 6. feb..
Eyrarfoss 13. feb.
Álafoss 20.jan.
Eyrarfoss 27. feb.
HAMBORG
Álafoss 7. feb.
Eyrarfoss 14. feb.
Álafoss 21. feb.
Eyrarfoss 28. feb.
GARSTON
Fjallfoss 5. feb.
LISSABON
Vessel 27. feb.
LEIXOES
Vessel 28. feb.
NORÐURLÖND/-
EYSTRASALT BERGEN
Skógafoss 1. feb.
Reykjafoss 8. feb.
Skógafoss 16. feb.
Reykjafoss 22. feb.
KRISTIANSAND
Skógafoss 4. feb.
Reykjafoss 11. feb.
Skógafoss 18. feb.
Reykjafoss 25. feb.
MOSS
Reykjafoss 12. feb.
Reykjatoss 26. feb.
HORSENS
Skógafoss 7. feb.
Skógafoss 21. feb.
GAUTABORG
Skógafoss 6. feb.
Reykjafoss 13. feb.
Skógafoss 20. feb.
Reykjafoss 27. feb.
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 8. feb.
Reykjafoss 14. teb.
Skógafoss 22. feb.
Reykjafoss 28. feb.
HELSINGJABORG
Skógafoss 8. feb.
Reykjafoss 15. feb.
Skógafoss 22. feb.
Reykjafoss 1. mar.
GDANSK
Skeiðsfoss 1. feb.
ÞÓRSHÖFN
Skógafoss 13. feb.
Reykjafoss 20. feb.
3
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-íram ogtilbaka
fra REYKJAVIK
alla manudaga
ira ISAFIRÐI
alla þriöjudaga
íra AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
*