Morgunblaðið - 01.02.1985, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
Rauður khmeri veitir særðum félaga sínum aðhlynningu í Nong Samet-
búðunum.
Borga Víetnam-
ar vopn með
ódýru vinnuafli?
Tókýó, 31. janúar. AP.
JAPANSKA fréttastofan Kyodo
greindi frá því í dag, að Víetnamar
væru að undirbúa að senda verka-
fólk í stórum stíl til Sovétríkjanna
og annarra Austur-Evrópulanda til
„þjálfunar“.
í frétt Kyodo kom fram, að fyrri
hluta þessa árs væru 10.000 verka-
menn væntanlegir til Víetnam eft-
ir slíka „þjálfun" og 6—7000 til
viðbótar myndu feta í fótspor
þeirra og fara til austantjalds-
landanna og nema vinnulistina.
Sagði í frétt Kyodo, að vestræn
lönd hefðu skýringar á þessum
ferðalögum verkafólksins, Víet-
namar væru í raun að borga fyrir
vopn og fleira með ódýru vinnu-
afli, þar eð efnahagur landsins er
lélegu- og þeir geta ekki greitt
fyrir vopnin með gjaldeyri. Þessar
„þjálfunarferðir" víetnamskra
verkamanna hafa staðið yfir síðan
1980 og þegar mest hefur látið,
voru um 60.000 víetnamskir verka-
menn „í þjálfun" í Sovétríkjunum,
Ungverjalandi, Tékkóslóvakíu,
Búlgaríu og Austur-Þýskalandi.
Það hefur þó heldur dregið úr
þeim vegna ýmissa erfiðleika sem
verkafólkið hefur átt við að stríða
í hinum nýju heimkynnum.
N icaraguabæklingur
CIA selst geysivel
New York. 31. janóar. AP.
HEIMATILBÚIN útgáfa af bæklingi
bandarísku leyniþjónustunnar CIA,
þar sem aðalefnið er leiðbeiningar í
skæruliðahernaði í Nicaragua, selst
með afbrigðum vel í New York um
þessar mundir. Hér er um fjölritaða
útgáfu hins 44 síðna bæklings að
ræða og gáfu ónafngreindir aðilar
hann út til gamans að sögn eins
bókaverslunareiganda, sem hafði
selt 300 stykki á tveimur dögum.
Útgefendurnir nældu sér í
frumútgáfu hjá bókasafni þings-
ins og létu ljósrita hana. Voru
ljósritin síðan fjölrituð. Bókin
heitir „Sálfræðilegar aðgerðir í
skæruliðahernaði“ og fjallar um
það hvernig contra-skæruliðar í
Nicaragua eigi að fara að því að
knésetja stjórn sandinista. Meðal
efnis eru kaflar um hvernig skuli
ræna öllum háttsettum embættis-
mönnum stjórnarinnar, hvernig
skuli nýta sem best hræðslu þá og
ógn, sem skæruliðar skapa og
hvernig hægt sé að fá sem ríkast-
an árangur af því að myrða kvisl-
Harlech lávarður
inga. Bandaríska þingið komst að
því á síðasta ári, að nokkur þús-
und eintökum af bæklingnum
hefði verið dreift í Nicaragua i
trássi við bann stjórnvalda við að
CIA leyniþjónustan, aðstoðaði við
að fella sandinistastjórnina.
Harlech lávarður
lést í bflslysi
HARLECH lávarður, fyrrum sendi-
herra Breta í Bandaríkjunum, lést í
sjúkrahúsi í Lundúnum á laugardag-
inn af völdum meiðsla, sem hann
hlaut í umferðarslysi á fostudag.
Hann var 67 ára að aldri.
Harlech lávarður, öðru nafni
David Ormsby Gore, hlaut mennt-
un sína í Eton og á Nýja Garði í
Oxford. Hann var kjörinn á þing
fyrir íhaldsflokkinn 1950 og sat í
Neðri málstofunni í ellefu ár. Á
árunum 1957—1961 var hann að-
stoðarutanríkisráðherra Bret-
lands.
Árið 1961 var Harlech lávarður
skipaður sendiherra Breta í
Bandaríkjunum. Mjög náin vin-
átta tókst með honum og John F.
Kennedy, þáverandi Bandaríkja-
forseta, og er hann talinn„einhver
áhrifamesti erindreki Breta í
Bandaríkjunum. Árið 1967 fór
Harlech lávarður í ferðalag til
Kambódíu með Jacqueline, ekkju
Kennedys forseta, en Sylvia, eig-
inkona Harlechs, hafði látist
nokkrum mánuðum áður í umferð-
arslysi. Samdráttur þeirra Har-
Bretland:
London, 31. janúar. AP.
FJÖLDI vinnudaga sem töpuðust í
Bretlandi vegna verkfalla á síðasta
ári var hinn annar mesti frá því í
allsherjarverkfallinu 1926, að því er
atvinnumálaráðuneytið greindi frá í
gær, miðvikudag.
Þeir 26,56 milljón vinnudagar
sem töpuðust áttu að langmestu
leyti rót sína að rekja til verkfalls
námamanna, sem hófst 12. mars.
Flestir vinnudagar frá 1926 töp-
uðust árið 1979, er íhaldsstjórn
Margaretar Thatcher tók við völd-
um, eða 29,47 milljón dagar alls.
lechs lávarðar og Jacqueline vakti
mikla athygli fjölmiðla og var því
spáð að þau mundu ganga í hjón-
aband. Ári síðar gekk Jacqueline
hins vegar að eiga gríska skipa-
kónginn Aristóteles Onassis.
Harlech lávarður gegndi starfi
formanns breska kvikmyndaeft-
irlitsins þegar hann lést.
en þá höfðu geisað langvarandi
verkföll í tíð stjórnar
Verkamannaflokksins.
Árið 1926 fóru 162 milljónir
vinnudaga í súginn. Það ár var
gert allsherjarverkfall til stuðn-
ings námamönnum og stóð það í
níu daga. Verkfallsbarátta náma-
manna tók sex mánuði og bar eng-
an árangur.
f stjórnartíð Margaret Thatcher
hefur mjög dregið úr meiri háttar
verkfallsátökum þangað til í
fyrra.
Annar mesti fjöldi verk-
fallsdaga frá árinu 1926
Ustinov fyrirskipaði
banatilræðið við páfa
Sex dögum sfðar vissi ítalska leyniþjónustan af því að
sögn vikuritsins L’Europeo
Róm, 31. janúar. AP.
SEX dögum eftir að tyrkneski
hryðjuverkamaðurinn Mehmet Ali
Agca reyndi að ráða Pál páfa af
dögum á Péturstorginu í Róm, í
maí árið 1981, fékk ítalska leyni-
þjónustan vitneskju um, að leyni-
þjónusta sovéska hersins hefði
skipulagt banatilræðið. Sagði ít-
alska vikuritið L’Europeo frá
i í gær.
L’Europeo vitnar í leyniþjón-
ustuskýrslur frá 19. maí árið
1981 en þar kemur fram, að Dim-
itri Ustinov, fyrrum varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna,
sem nú er nýlátinn, hafi verið
frumkvöðullinn að samsærinu
gegn páfa. Hafi hann rætt og
lagt á ráðin um morðtilræðið á
fundi varnarmálaráðherra Var-
sjárbandalagsrikjanna í Búkar-
est, sem haldinn var í nóvember
Ustinov — „aðeins að særa páfa
svo hann væri ekki að flækjast
fyrir”.
Agca — Italska leyniþjónustan
vissi allt áður en hann leysti sjálf-
ur frá skjóðunni.
1980.
Vegna þessarar fréttar i
L’Europeo reyndi Ansa, ítalska
fréttastofan, að komast á snoðir
um tilvist skýrslunnar, sem vitn-
að var í, og skýrði svo frá því
seint í gærkvöldi og hafði eftir
heimildamönnum innan Sisma,
ítölsku léyniþjónustunnar, að
hún væri vissulega til og rétt eft-
ir henni haft.
í skýrslunni kemur fram, að
ástæðan fyrir því, að Sovétmenn
vildu myrða páfa, hafi verið
stuðningur hans við Samstöðu,
óháðu verkalýðsfélögin í Pól-
landi. „Var ákvörðuninni um
morðið fagnað ákaflega af
Austur-Þjóðverjum einum,"
hafði L’Europeo eftir skýrslunni
og bætti við:
„Vegna efasemda og undrunar
annarra bandamanna Rússa í
Varsjárbandalaginu lagði Ust-
inov áherslu á, og hamraði á því,
að ætlunin væri aðeins að særa
páfa svo hann væri ekki að
flækjast fyrir í nokkurn tíma.“
„Samkvæmt heimildum okkar
var banatilræðið við Pál páfa
skipulagt af GRU, leyniþjónustu
sovéska hersins, og að fyrirmæl-
um Ustinovs sjálfs," hefur
L’Europeo upp úr skýrslunni en
þar segir ennfremur, að GRU
hafi hjálpað Agca að flýja úr
tyrknesku fangelsi og - síðan
þjálfað hann og búið undir
ódæðisverkið.
V/Ð HLKYZVNIM BREYTTA. VEXTI Á
UXNIÆMDUM GJATnEYRISREIKIXIlXGUM
BANDARÍKJADOLLAR.......... 7,25%
ENSK PUND.................10,00%
DANSKAR KRÓNUR............10,00%
ÞÝSK MÖRK.................. 4,00%
BÍNAÐARBANKI íslands
TRAUSTUR BANKI