Morgunblaðið - 01.02.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBROAR 1985
31
Könnun
Helgarpóstsins:
71,5% vilja
leyfa bjórinn
í SKOÐANAKÖNNUN, sem Helg-
arpósturinn gerði helgina 19.—20.
janúar og blaðið birti i gær, kemur
fram að 71,5% þeirra sem tóku af-
stöðu vilja leyfa sölu á bjór á íslandi
en 28,5% aðspurðra voru andvígir.
Það var fyrirtækið Skáís sem
framkvæmdi könnunina. Úrtakið
var 800 manns á öllu landinu, 400
karlar og 400 konur. Af þessum
fjölda voru 504 fylgjandi bjór, 201
á móti en 95 tóku ekki afstöðu.
Fleiri karlar en konur voru fylgj-
andi bjórnum.
í sams konar könnun sem Helg-
arpósturinn gerði árið 1983 voru
57,8% fylgjandi bjórnum en 42,2%
á móti. I könnun sem DV gerði
1984 voru 59,5% með bjórnum en
40,5% á móti.
BSRB for-
dæmir afnám
verðtrygg-
ingar launa
„VEGNA stórfelldrar kjaraskerð-
ingar mun launþegahreyfingin
halda áfram baráttu sinni fyrir
auknum kaupmætti launa með
endurskoðun samninga á þessu
ári,“ segir í kjaramálaályktun
bandalagsráðstefnu BSRB, sem
lauk á miðvikudag.
„Bandalagsráðstefnan for-
dæmir þá stefnu ríkisstjórnar-
innar að afnema verðtryggingu
launa á meðan aðrir þættir
efnahagslífsins eru bundnir
vísitölu. Þetta veldur fjölda
launafólks óleysanlegum fjár-
hagsvanda og gjaldþroti sífellt
fleiri heimila.
Vandi þeirra sem þurfa að
tryggja sér og sínum húsnæði er
hvað mestur.
Húsnæðislánakerfið þarf að
bæta verulega og breyta þannig
að velja megi um eigið eða
leiguhúsnæði. Verði þessar um-
bætur ekki gerðar mun skapast
algert neyðarástand í húsnæðis-
málum á næstu misserum.
Ráðstefnan telur það algjört
grundvallaratriði að verðtrygg-
ing launa verði ófrávíkjanleg
krafa í næstu kjarasamningum.
Bandalagsráðstefnan leggur
áherslu á, að samræmd kjara-
stefna og einhugur launafólks
er höfuðatriði í kjarabaráttunni
til þess að árangur náist.
Með samstilltu átaki verður
að bæta kjör launafólks."
Leiðrétting
í FRÉTT á bls. 2 í gær misritaðist
titill Andersons, hins nýja yfir-
manns varnarliðsins í Keflavík.
Anderson ber titilinn commodore,
sem að sögn menningarstofnunar
Bandaríkjanna jafngildir tign eins
stjörnu hershöfðingja, brigadier
general í landher og flugher.
bera óumdeflanlega
hæstu bankavextina
VEXTIR
Nú hækkum við vexti úr 34% á ári í 37%.
, .. Par sem vextir eru færðir tvisvar á ári verður ársávöxtunin
AYOXTUN 40,4%.
VERÐ-
BÓLGA
Verðbólguspá Seðlabanka íslands og Pjóðhagsstofnunar
gerir ráð fyrir 20% hækkun lánskjaravísitölunnar á árinu
1985, en við hana miðast vaxtakjör verðtryggðra reikninga.
VERÐ-
TRYGGING
Sparifé á 18 mánaða reikningum nýtur fullrar verðtryggingar.
Vaxtakjör eru borin saman við kjör 6 mánaða verðtryggðra
reikninga, en miðað við þessa spá, þurfum við tæplega á því
að halda!
VERTU
ÁHYGGJULAUS
Þetta er góður kostur fyrir þá sem vilja vera algjörlega
áhyggjulausir um sparifé sitt í 18 mánuði eða lengur.
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
VIÐ ÖNNUMST INNLAUSN
SPARISKÍRIEINA RÍKISSJÓÐS
'Vextir eru breytilegir til hækkunar
eða lækkunar samkv. ákvörðun Búnaðarbanka íslands
Lýðveldi eða leppríki
erlendra lánardrottna?
Bandalag jafnaöarmanna
landsfundur 1985
TlMABÆR