Morgunblaðið - 01.02.1985, Síða 37

Morgunblaðið - 01.02.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBROAR 1985 37 Minning: Guðjón Jónsson bifreiðasmiður Fæddur 22. júní 1906 Dáinn 22. janúar 1985 f dag, föstudaginn 1. febrúar kl. 13.30, verður kvaddur í Bústaða- kirkju fyrrverandi vinnufélagi minn, Guðjón Jónsson. Hann var fæddur að Syðstu-Mörk, V-Eyja- fjallahreppi, sonur hjónanna Guð- bjargar Jónsdóttur og Jóns Jóns- sonar er þar bjuggu. 6 ára að aldri fór Guðjón í fóst- ur að Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, síðar lá leið hans til Vesmanna- eyja, þar sem hann lærði trésmíði og að námi loknu lá leiðin til Reykjavíkur. Fljótlega eftir komu sína til Reykjavíkur hóf hann störf hjá Agli Vilhjálmssyni hf. við smíði húsa á bifreiðir, þarna voru við vinnu margir húsa- og mublu- smiðir, sem síðar stóðu að stofnun Félags bifreiðasmiða ásamt öðr- um sem unnu við samskonar starf, og var Guðjón því einn af stofn- endum félagsins, en það var stofn- að 1938. Guðjón var í stjórn fé- lagsins sem gjaldkeri um árabil og var sæmdur gullmerki félagsins á 40 ára afmæli þess 1978 ásamt öðrum eftirlifandi stofnendum fé- lagsins. Ég kynntist Guðjóni þegar ég hóf störf hjá Agli Vilhjálmssyni hf. árið 1955, hann var þá verk- stjóri trésmíðaverkstæðisins. Við sem unnum á yfirbyggingaverk- stæðinu þurftum oft að leita inn á hans yfirráðasvæði og reyndist hann mér ávallt vel. Guðjón var samviskusamur starfsmaður og gerði ekkert að óathuguðu máli og vildi hag fyrir- tækisins sem bestan, hann sá um smíði húsa fyrirtækisins við Laugaveg og Grettisgötu og einnig allt viðhald á húseignum þess, en Guðjón vann hjá fyrirtækinu um hálfrar aldrar skeið og lauk sinni starfsævi þar. Guðjón var kvæntur Margréti Þórðardóttur af Lækjarbotnaætt og lifir hún mann sinn. Þau eign- uðust 3 börn, sem öll eru á lífi, en þau eru Þórður Rafn, fæddur 14. apríl 1937, Katrín Hlíf, fædd 13. júní 1945 og Jón Hlíðar, fæddur 9. mars 1953. Fyrir um það bil 15 árum gekkst Guðjón undir mikla aðgerð, en hann var fljótlega kominn til starfa aftur, nokkrum árum síðar fékk hann hjartaáfall en jafnaði sig að nokkru eftir það og var kominn til starfa innan tíðar, því það að hætta vinnu var ekki í huga Guðjóns fyrr en í fulla hnefana. En hans mesta áfall í lífinu var þegar kona hans Margrét missti heilsuna, það var mikil sorg því hún hafði verið stoð hans og stytta, ekki síst eftir að hann missti heilsuna. Nú var svo komið að þau gátu ekki haldið heimili vegna sjúk- leika beggja og ekki reyndist unnt að fá vistun fyrir þau á hjúkrun- arheimili hér í borg, en úr rættist þó að nokkru er þau fengu pláss á dvalarheimili utan borgarinnar. Síðastliðið sumar efndi Félag bifreiðasmiða til hinnar árlegu sumarferðar með eldri félaga og var Guðjón með að vanda því hann naut þessara ferða með sínum gömlu félögum innilega og var jafnan manna fyrstur að tilkynna þátttöku sína í þær ferðir. Þegar við kvöddum Guðjón kátan og hressan í lok ferðar grunaði okkur ekki að þetta yrði hans síðasta sumarferð með okkur. Síðustu mánuðina dvaldi Guð- jón á heimili sonar síns Þórðar Rafns, og konu hans, en Guðjón lést á St. Jósefsspítala í Hafnar- firði 22. jan. sl. Ég þakka Guðjóni 30 ára samstarf og sendi eftirlif- andi konu hans, börnum, tengda- börnum og barnabörnum innileg- ar samúðarkveðjur frá mér og konu minni, einnig sendi ég samúðarkveðjur fyrir hönd Félags bifreiðasmiða með þökk fyrir sam- fylgdina. Ásvaldur Andrcsson t dag, 1. febrúar, kveðjum við í Bústaðakirkju kl. 13.30 móður- bróður minn Guðjón Jónsson, húsa- og bifreiðasmíðameistara. Hann var sonur hjónanna Guð- bjargar Jónsdóttur Guðmunds- sonar á Keldum af Víkingslækjar- ætt og Jóns Jónssonar Jónssonar, bónda Mið-Skála, sem bjuggu þá í Syðstu-Mörk, V-Eyjafjallahreppi. Af sex systkinum er yngsti bróðir- inn Björgvin einn á lífi. Ingibjörgu systur hans og móður minni fylgd- um við síðasta spölinn fyrir rétt- um tveimur vikum og á undan eru gengin Guðmundur, dáinn 1981, og Olafía fyrir mörgum árum. En þegar yngsti bróðirinn fæddist dó tvíburi við hann og móðirin af barnsburðinum. — Það kom upp í huga minn eitt kvöldið er ég fletti Þyrnum, Ijóðabók Þorsteins Erl- ingssonar og ég las þar að amma Þorsteins og seinni maður hennar hefðu boðið sonarsyni hennar fóstur hjá sér í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, en Þorsteinn var fædd- ur í Stóru-Mörk. Hvort afa mínum hefði verið boðið fóstur fyrir börn- in sín, þegar hann missti konuna þá fannst mér þetta vers úr erfi- ljóðum Þorsteins Erlingssonar um Guðbjörgu lýsa þessu best: Og hann sýndist einsamall, hvar sem hann er. En horfði’ hann á barnið, sem kvakandi fer í fangið á föður og móður. Þó losnar um tárin, þau læðast á kinn, þá lítur hann tvístraða hópinn sinn, og þurrkar á hvörmunum hljóður. Og hann afi minn mátti taka hest sinn og hnakk, fara út yfir vötn að biðja um fóstur fyrir börnin sín. En hvort sem var, þá fékk Guðjón fóstur í Hlíðarenda- koti í Fljótshlíð hjá þeim sæmd- arhjónum Guðríði Jónsdóttur og Árna Ólafssyni, þó að sjálfsagt væri erfitt fyrir sex ára barn að koma til nýrra foreldra og systk- ina, þá hefur Guðjón samlagast hópnum í Hlíðarendakoti, en börn hjónanna voru fjórar dætur og einn sonur — og ljóðið hans frænda hans Þorst. Erlingssonar — en Jón á Mið-Skála og Þuríður móðir Þorsteins voru systkin. Fedd 3. mars 1904 Dáin 25. janúar 1985 í dag fer fram frá Bessastaða- kirkju útför Bryndísar Arngríms- dóttur, er síðast var búsett í Há- koti á Álftanesi, ásamt systur sinni Dagbjörtu, er saknar nú sárt góðrar og umhyggjusamrar syst- ur. Dísa Arngríms, eins og kunnug- um og skyldfólki var tamast að nefna hana, ólst upp í stórum systkinahópi hjá foreldrum sín- um, Jóönnu Magnúsdóttur og Arn- grími B. Arngrímssyni á stóru Hellu á Hellissandi. Látnir eru bræðumir þrír, Guðjón, Sæmund- ur og Jóhannes, en eftir lifa þrjár systranna, Sólborg, Guðrún og Dagbjört, ásamt fósturbróður sín- um Kristjáni Oddssyni. Fjölskyldan flutti suður til Hafnarfjarðar, en svo nokkru sfð- Fyrr var oft í koti kátt, krakkar léku saman, þar var löngum hlegið hátt, hent aö mörgu gaman átti oft við enda mikil eining við fósturbróðurinn hjá þeim systkin- um. Margar ferðirnar kom hann austur, eins og við sögðum í Hlíð- inni, á Morris-bílnum sínum með fjölskylduna, þegar hann var fluttur til Reykjavíkur. Ungur að árum fór Guðjón til Vestmannaeyja fyrst á vertíð eins og flestir úr sveitinni, en fljótlega fór hann að læra húsasmíði og fullnuma í þeirri iðn flyst hann til Reykjavíkur og fer að vinna hjá Agli Vilhjálmssyni og lærir að auki bifreiðasmíði, sem þá var ný iðn, bílaöldin rétt að byrja í land- inu og ökuskírteini Guðjóns er að- eins númer 1762, það voru ekki all- ir með ökupróf þá. Skildum við átta okkur á þessu í dag? Guðjón kvæntist árið 1935 Margréti Þórðardóttur frá Þóroddsstöðum í Grímsnesi, mik- illi myndarkonu og byrjuðu þau búskap á Laugavegi 82 og bjuggu þar lengi. Það áttu margir leið um Laugaveginn og gott var að lfta inn hjá þeim hjónum, þar var rausn í ranni, seinna byggðu þau Hvassaleiti 42 og fluttu þangað. Börn þeirra eru Þórður Rafn húsasmíðameistari, kvæntur Jón- ínu Björnsdóttur iðjuþjálfa, hann á þrjá syni frá fyrra hjónabandi. Katrín Hlíf kaupmaður, gift Há- koni Sigurðssyni kaupmanni, eiga þau eina dóttur, og Jón Hlíðar, sölumaður, kvæntur Sigrfði Sig- urðardóttur afgreiðslumanni, eiga þau tvo syni, en misstu tvfbura- dreng við yngri soninn. Guðjón frændi minn eins og öll mín föður- og móðursystkin hafa verið ein órofa heild í öllu mínu lffi. Hvað þessi systkin héldu vel saman sem ekki einu sinni voru öll alin upp í sömu sveit. Þegar ég átti ar að Landakoti i Bessastaða- hreppi, þar sem tekið var til við mikla ræktun og síðan byggingar á jörðinni, en síðasti ábúandi þar var Sæmundur, einn bræðranna. Alla tíð voru bræðra- og systra- böndin sterk og heimilisbragur til fyrirmyndar. Var gott og hollt að k.vnnast sliku afbragðs fólki, og ber svo sannarlega að þakka það. Öll voru þau systkin dugmikil og samhent við vinnu og vand- virkni viðbrugðið. Æskuheimilið var þvf góður skóli, en kannski stundum strang- ur, svo sem þá var títt. Ekki giftist Bryndís, en hún átti stóran frændgarð og reyndist þar hjálpfús og ráðholl og sannarlega fögnuðu börnin vel, er Dfsu frænku bar að garði og nú að leið- arlokum eru þakkir færðar, góðri frænku. heima í Fljótshlíðinni og Margrét og Guðjón komu keyrandi austur f bílnum sínum birti yfir öllu. Það var hátíð í bæ og þá var það ekki síður eftir að ég átti heima í Reykjavík og styttra var á milli vina, enda ferðirnar margar til þeirra hvort sem sérstakt tilefni var til eða ekki. Ekkert afmæli, ferming eða jólaboð gat byrjað fyrr en Margrét og Guðjón frændi voru mætt og löngu eftir að ég stofnaði mitt eig- ið heimili og afmælisdagurinn minn að kvöldi kominn og ekki bólaði á þeim hjónum hringdi ég að vita hvað væri að, þau voru þá að passa litlu dótturdótturina, en þau drifu sig og tóku þá litlu með og afmælisdeginum mínum var borgið eins og svo oft fyrr og síðar. Mig undrar það oft eins og þau hjón unnu bæði langan vinnudag, hvað þau voru dugleg að gleðja aðra með nærveru sinni. Guðjón vann hjá Agli langa starfsævi. Hann var ekki hávaða- maður hann frændi minn, og fór ekki geyst, en allt sem hann hafði hönd á var af smekkvísi og vand- virkni unnið, enda sérstakt snyrti- menni með sjálfan sig og allt í kringum sig. Ég leit með lotningu á heimili þeirra hjóna, það var svo fint eins og sagt var í gamla daga. Hann frændi smíðaði húsgögnin sín sjálfur, enda voru þau vönduð og falleg. Þó Guðjón færi ungur frá Hlíð- arendakoti var hann bundinn þeim stað sterkum böndum. Ekki held ég það hafi liðið svo sumar að hann færi ekki eina eða fleiri ferð- ir þangað að heimsækja fóstur- Minning: Fædd 7. mars 1907 Dáin 22. janúar 1985 Mig langar að minnast tengda- móður minnar í örfáum orðum. Við bjuggum f sama húsi í mörg ár 1 og höfðum daglegan samgang. Aldrei fann ég fyrir kynslóðabili á milli okkar en leit á hana sem bestu vinkonu. Marci var 77 ára þegar hún lést. Hún bar aldurinn vel, hafði fág- aða framkomu og glaðlegt viðmót. Henni var annt um útlit sitt og gat verið glæsileg þegar hún skartaði sínu besta. Það var ævinlega sérstök -eisn yfir henni. Það var margt í fari hennar sem ég mat mikils. Gott var að leita til hennar ef sérstök vandamál komu upp, bæði var hún orðvör og skiln- ingsrík, og vil ég þakka henni margar góðar stundir sem við átt- um saman. Mér þykir svipminna Bryndís Arngrimsdóttir var i mjög heilsteypt kona, enda alin upp við trúrækin móðurbarm og gat svo sannarlega tekið undir með sálmaskáldinu: móður sína, sem var þar lengi ekkja og þær fóstursystur sem bjuggu í sveitinni. Farinn að heilsu dreif hann sig enn austur að Hlíðarendakoti. Ég minnist þess þegar ég barn að aldri var send erinda að Hlíðar- endakoti og mátti ekki slóra, þá kom húsfreyjan Guðríður út á hlað með fulian disk af góðgæti að gefa krakkanum, sem var jú ekki langt að kominn, það fór ekki gestur hjá garði í Hlíðarendakoti, hvorki ungur né aldinn, án þess að þiggja beina. Mér fannst hann frændi hafa tekið eitthvað slíkt í arf frá æskuheimilinu. Þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið helsjúkan réttum sólarhring áður en hann fór í ferðina miklu spurði hann mig oftar en einu sinni hvort ég hafi nú fengið einhverja hress- ingu. Enginn ratar ævibraut öllum skuggum fjarri, sigurinn er: að sjá í þraut sólskinsbletti stærri. (Þorst. Erlingss.) Það slitnar hlekkur við vista- skipti hvers og eins af vegfarend- um okkar við slíka kveðjustund sem í dag. En ég finn okkur sem eftir stöndum um stund, standa þéttar saman, það þakka ég ekki síst frænda mínum Guðjóni. Hér við skiljumsk ok hittast munum á feginsdegi fira. (Sólarljóð.) Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir umhverfið eftir að hún er horfin og kveð ég hana með söknuði. Selma Sigurjónsdóttir Ég gleðst af því ég guðs son á hann gaf mér sig og allt um leið, er bæta fátækt mína má, og minni létta sálarneyð (H.H.) Sitt kristna samfélag rækti hún í kirkju sinni og kristilegu félagi ungra kvenna, KFUK. Kristni- boðsstarfið úti á heiðingjaakrin- um bar hún mjög fyrir brjósti og það væri því vel við hæfi, að þeir er heiðra vildu minningu hénnar minntust Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Systurnar þrjár sem eftir lifa og fósturbróðirinn kveðja nú systur sína með þakklæti fyrir allt sem hún var þeim og þeirra heimilum, en svo var kærleikur Bryndísar mikill í verki, að erfitt er að koma orðum við. Þannig er og um börn og barna- börn systkina hennar, sem nú sakna frænku sinnar. Persónulega færi ég og fjölskylda mín Bryndísi — Dísu frænku — þakkir fyrir kærleika og umhyggju við fjöl- skyldu mína og það gjörum við öll i þessari stóru fjölskyldu. Blessuð sé minning Bryndisar Arngrímsdóttur. J.P. Brgndís Ásgríms- dóttir — Minning Ingibjörg Guðjóns- dóttir Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.