Morgunblaðið - 01.02.1985, Page 38

Morgunblaðið - 01.02.1985, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985 Minning: Þorgerður Jóhanna Magnúsdóttir í dag er til moldar borin Þor- gerður Jóhanna Magnúsdóttir, Hofsvallagötu 22, Reykjavík, sem lést aðfaranótt 24. janúar sl. á átt- ugasta aidursári. Þorgerður fædd- ist á Sléttu í Mjóafirði 24. nóv- ember 1905, en foreldrar hennar voru Magnús Jónsson sjómaður og kona hans, Anna Guðlaug Jóhann- esdóttir. Hún fluttist ung með for- eldrum sínum til Seyðisfjarðar og ól þar aldur sinn fyrstu árin, en tvítug fluttist hún búferlum til Reykjavíkur og bjó þar til ævi- loka. Seyðisfjörður átti alla tíð hug hennar, enda æskuminningin tengd þeim stað. I júnímánuði árið 1933 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Ásgeiri Matthíassyni blikksmið og stóð hjónaband þeirra í rúm fimmtíu ár, eða þar til yfir lauk. Segir það sína sögu. Þorgerður og Ásgeir bjuggu alla sína hjúskapartíð í vesturbænum í Reykjavík, lengst af á Hofsvalla- götunni. Þar uxu dæturnar úr grasi og þar var lífsbaráttan háð. Það var hvorki hátt til lofts né vítt til veggja í litlu íbúðinni í Verkó, en íbúðin var samt nógu stór fyrir húsráðendur til að una hag sínum vel, af þeirri nægju- semi og látleysi, sem er aðal- smerki alþýðufólks, eins og það best gerist. Og það var nógu stórt til að ljóma af göfuglyndi og vel- vild húsfreyjunnar út í allt og alla. Það féll aldrei styggðaryrði af vörum Þorgerðar gagnvart nokkr- um manni. Kröfurnar voru ekki aðrar en þær, að skulda engum neitt, vera sjálfri sér nóg og taka því sem að höndum bar. Tekjurnar voru ekki til skiptanna, þótt unnið væri myrkaranna á milli, og lífs- þægindin voru ekki önnur en þau, sem fólust í þeirri lífsfyllingu að bera höfuðið hátt. Það þarf ekki alltaf ytra prjál, sýndarmennsku eða gerviþarfir til að finna sér stað og stund. Þótt þau Þorgerður og Ásgeir hafi ekki gert víðreist um ævina og hafi ekki getað borist + Maðurinn minn og faðir okkar, SIGURGEIR KRISTJÁNSSON, lést i Borgarspítalanum miövikudaginn 30. janúar. Pernilla M. Ólsen og börn. Móðir okkar og tengdamóöir, KLARA SIGURÐARDÓTTIR, Skeggjagötu 3, lést þann 30. janúar sl. Steinar Magnússon, Anna Baldursdóttir, Klara M. Stephensen, Ólafur Stephensen. + Jaröarför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, HJARTAR ÖGMUNDSSONAR, fró Alfatrööum, fer fram frá Bústaöakirkju mánudaginn 4. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaöir. Asa Hjartardóttir, Ragnheiður Hjartardóttir, Helga Erla Hjartardóttir, Gunnar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUÐJÓNPÉTURSSON fró Kirkjubæ, Vestamannaeyjum til heimílis aö Heimahaga 3, Selfossi, veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minn- ast hins látna er bent á liknarstofnanir. Dagfrfóur Finnsdóttir og börn. + Móöir okkar, tengdamóöir amma og langarnma, GUÐLAUG JÓNDSÓTTIR, Holabraut 6, Keflavík, veröur jarösungin frá Kelfavikurkirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Guóriöur Guómundsdóttir, Jóhann Frióriksson, Róóhildur Guómundsdóttir, Hinrik Albertsson, Magnúsfna Guömundsdóttír, Jón Eysteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. mikið á var aldrei kvartað eða kveinað á því heimili. Hlutverkið var að veita en ekki þiggja, vinna en ekki vola, ala önn fyrir sér og sínum, en ekki krefjast einhvers, sem hvort eð er var ekki tiltækt. Á sínum yngri árum hafði Þorgerður yndi af ferðalögum og tvisvar um ævina komst hún til útlanda. Þær ferðir voru henni eftirminnilegar og ljúfar. Saga þess heimilis, sem Þor- gerður Magnúsdóttir stýrði, er saga hins fábrotna en heilsteypta alþýðuheimilis, sem eldri íslend- ingar þekkja vel til. Þar ríkir hóf- semd en örlæti, trygglyndi og heiðarleiki, góðar dyggðir, kurteisi og einlægni, sem margur gæti tek- ið sér til fyrirmyndar. Þorgerður var hin dæmigerða húsfreyja hversdagsins, sem kom börnum sínum til manns og þjóðinni til bjargálna. Þeir njóta ekki alltaf eldanna, sem fyrstir kveikja þá. Hún var fulltrúi þeirrar kyn- slóðar, sem bjargaði sér sjálf, upp- liföi kreppu og þröngan kost og skilaði sínum arfi möglunar- og æðrulaust. Hún sá dætur sínar fjórar, Dagmar, Guðfinnu, Önnu og Ásu, barnabörnin tólf og barnabarna- börnin tvö vaxa úr grasi, bjó manni sínum gott heimili og skildi sátt við lífið og tilveruna. Ævistarf Þorgerðar er óbrotinn og flekklaus minnisvarði um ís- lenska alþýðukonu, sem gegndi því mikilvæga hlutverki að vera sjálfri sér, eiginmanni og sínum nánustu trú til hinstu stundar. Blessuð sé minning hennar. Ellert B. Schram Halldóra Jóns- dóttir — Minning Ég get ekki látið hjá líða að minnast með örfáum orðum vin- konu minnar og mágkonu föður míns, Halldóru Jónsdóttur Hjálm- holti 6 Reykjavík, en hún lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund hinn 26. janúar, níutíu ára að aldri. Halldóra var fædd að Botni í Dýrafirði hinn 4. júní 1894, en fluttist að Hesti við Djúp barn að aldri og ólst þar upp, þar til leiðin lá að heiman, fyrst til ísafjarðar og síðar til Reykjavíkur. Á stríðsárunum fyrri giftist hún Eggert Jóhannessyni járnsmíða- meistara, þeim kunna hljómlistar- manni, og minnast margir eldri Reykvíkingar eflaust leiks hans með Lúðrasveit Reykjavíkur, en hann var cornet sólóisti sveitar- innar um árabil. Þau hjónin eignuðust 5 börn, þau Jóhannes hljóðfæraleikara, Guðbjörgu, en hún lést ung að ár- um 1945, Einar verslunarstjóra, Margréti húsmóður og söngkonu og Pétur sem fórst í bifreiðaslysi árið 1947, innan við tvítugs aldur. Eggert eiginmaður hennar lést árið 1940, aðeins 47 ára gamall. Ævi Halldóru var ekki alltaf dans á rósum, ástvinamissir og vafalaust erfið kjör, með þrot- lausri vinnu allt frá æsku. Eftir lát Eggerts rak hún í nokkur ár matsölu fyrir fastagesti á Laugavegi 49, en síðan starfaði hún við fatasaum hjá Föt hf. um margra ára skeið, en fatasaum lærði hún ung að árum. Á kreppuárunum og fram að stríðsárunum síðari fór Halldóra bæði í síldarvinnu á Siglufjörð, og hafði þá elstu börnin með sér, og einnig dvaldi hún sem kaupakona í sveit og kem ég þar að kynnum okkar sem urðu að kærri vináttu alla ævi. Það var alltaf sólskin þegar Halldóra kom til foreldra minna í sveitina og hjá okkur dvöldu öll börn hennar einhvern tíma á sumrum meðan þau voru ung og sum í kaupavinnu síðar. Halldóra var einhver glæsi- legasta kona sem ég minnist, björt á hörund, dökkeyg, með óvanalega fagurt svart liðað hár, og ekki hef ég séð íslenska búninginn fara betur á nokkurri annarri konu. Hún hafði stóra lund, ríka kímnigáfu og smitandi hlátur. Hún kunni ótal kvæði, hafði ágæta söngrödd sem hún beitti oft við störf sín. Mér eru í minni handtökin hennar við rakstur á engjum, og eins þegar hún tók sér fyrir hend- ur að þrífa óhreinan strák að kvöldi dags, það voru engin vettl- ingatök. Henni fórust öll störf einstak- lega vel úr hendi og mér fannst alltaf Ijóma af henni reisn og höfðingsskapur hvar sem hún fór. Alltaf var gist hjá Eggert og Halldóru ef farið var til Reykja- víkur, þótt margt væri þar í heim- ili og húsnæði ekki alltaf stórt. Það voru hátíðastundir. Við hjónin áttum því láni að fagna, að Halldóra kom og var hjá okkur hér á Selfossi orlofsnæturn- ar eins og það var kallað þegar hún var komin híjtt á áttræðisald- ur, og var mér þá dýrmætt að fá að ræða við hana, fræðast af henni og rifja upp gömlu góðu kynnin. Þeim fækkar nú óðum sem hafa lifað þessa tíma, síðan fyrir alda- mót, og þessu fólki ber heiður og þökk fyrir ævi sína og störf og allt það, sem það hefur gefið okkur. Halldóra verður jarðsett frá Fossvogskapellu í dag kl. 13.30. Blessuð sé minning heiðurs- konu. + Eiginmaður minn og faöir okkar, KRISTJÁN KONRÁDSSON, Sólbakka, Njaróvfk, veröur jarðsunginn frá Ytri-Njarövikurkirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Dagbjört Magnúsdóttir, Gunnar Kristjónsson, Alda Kristjónsdóttir Barbacci. + GUÐRÚN S. PÁLSDÓTTIR, Hvalsnesi, veröur jarösungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Guólaug Gísladóttir, Tómaa Grótar Ólason, löunn Gróa Gfsladóttir, Hjólmtýr Guömundsson, Sveinn G. Sveinsson, Jenslna Pólsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug vegna andláts móöur minnar, ÁRDÍSAR PÁLSDÓTTUR hórgreiöslukonu, Laugarnesvegi 96. Póll Hannesson og fjölskylda. Árni Guðmundsson ATHYGLI skal vakin i því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast i í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hidegi i minudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn litni ekki ivarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn litna eru ekki birt i minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Jarðarfarar- skreytingar Kistuskreytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin Gróörastöö viö Hagkaup, sími 82895.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.