Morgunblaðið - 01.02.1985, Síða 41
MORGUNBLAÖIÐ, PO&TUÐAGUfí }. F-EBRÚAR 1985
Afmæliskveðja:
Ölvir Karlsson
oddviti sjötugur
Sveitarhöfðingi og félagsmála-
frömuður, Ölvir Karlsson, bóndi
og oddviti í Þjórsártúni, Ása-
hreppi, er sjötugur í dag. Hann er
Skagfirðingur að ætt og uppruna,
fæddur 1. febrúar 1914 að Tyrf-
ingsstöðum í Akrahreppi, sonur
Lilju Jóhannsdóttur og Karls
Hallgrímssonar. Ölvir ólst upp í
Eyjafjarðarsýslu hjá föður sínum
og ömmu, stundaði nám í Lauga-
skóla í tvo vetur, en fór síðan á
Lýðháskólann í Askov á Jótlandi
og vann á jóskum búgarði.
Heimkominn leitaði hann fyrir
sér um jarðnæði á heimaslóðum,
en fékk enga jörð til kaups eða
ábúðar. Árið 1943 flyst Ölvir, þá
nýkvæntur konu sinni, Krist-
björgu Hrólfsdóttur frá Ábæ í
Skagafirði, suður að Þjórsártúni í
Ásahreppi og hefja hjónin búskap
þar. Þjórsártún var nýbýli úr
landi Kálfholts, sem þá var
prestssetursjörð. Fyrstur byggði
Þjórsártún ólafur ísleifsson
(1859—1943), gáfumaður og lækn-
ir góður, sem stundaði lækningar í
Árnes- og Rangárvallasýslum.
Mikill ljómi lék um þennan stað í
hugum Sunnlendinga bæði vegna
vinsælda læknisins og hinna fjöl-
mennu héraðsfunda, sem þar voru
haldnir, en Þjórsártún er mið-
svæðis á Suðurlandi. Merk félög
og félagasamtök voru stofnuð þar,
t.d. Búnaðarsamband Suðurlands,
Sláturfélag Suðurlands og Fram-
sóknarflokkurinn. Búnaðarfélag
íslands hélt þar mörg námskeið og
Héraðssambandið Skarphéðinn
var stofnað þar og lengi voru
íþróttamót sambandsins haldin
þar.
Þrátt fyrir frægð Þjórsártúns,
gat jörðin ekki talist nein sérstök
kostajörð — lítil ræktun og hús
farin að láta á sjá. Til þess að gera
langa sögu stutta, má með sanni
segja, að Ölvir hafi breytt býli
sínu í hlunnindajörð og hvað
snerti húsakost og ræktun í eitt af
stórbýlum Suðurlands. Síðar gerði
hann býlið að ættaróðali, svo að
niðjar þeirra hjóna tengdust
staðnum traustum böndum. I öll-
um þessum framkvæmdum á
Kristbjörg, kona Ölvis, sinn mikla
og góða þátt ásamt börnum þeirra
hjóna.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. Hlutur Ölvis í félagsmálum
er kapítuli út af fyrir sig og ekki
ómerkari. Hann hefur skipað sér
þar í sveit, sem sannfæring hans
býður að horfi til heilla fyrir land
og þjóð. Fjöldi félaga og félaga-
samtaka hafa átt hug hans allan
og hefur Ölvir átt sæti í stjórn
þeirra eða verið stjórnarformaður
í lengri eða skemmri tíma.
Þessi skulu nefnd: Kaupfélag
Rangæinga, skólanefnd Ása-
hrepps og síðar Laugalandsskóla í
Holtum, einnig í byggingarnefnd
þess skóla, hreppsnefnd Ása-
hrepps og síðar oddviti hreppsins,
Mjólkurbú Flóamanna. í stjórn
Sambands sunnlenskra sveitarfé-
laga í 11 ár, þar af 10 ár formaður.
Mótaði Ölvir að verulegu leyti
stefnu sambandsins og átti mik-
inn þátt í uppbyggingu þess. í
stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga
frá 1967. í hlut Ölvis kom að sjá
um málefni er varða rekstrar-
kostnað hinna ýmsu skóla og
snerta verulega hagsmuni strjálb-
ýlisins. Þá hefur Ölvir setið í
fjölda nefnda og ráða á vegum
ríkis og sveitarfélaga, m.a. skipu-
lagningu raforkumála. Þá hefur
Ölvir verið í stjórn veiðifélaga og
fiskiræktarfélaga.
Af þessari upptalningu sést, að
Ölvir hefur komið víða við í fé-
lagsmálum og lagt mörgum góðum
málum lið með gjörhygli sinni og
atorku. Þó er enn eitt ótalið, sem
ég hygg, að sé ölvi kærast allra
verkefna á félagsmálasviðinu, en
það er stofnun Iðnþróunarsjóðs
Suðurlands, sem nú þegar hefur
lagt grundvöll að margvíslegri
uppbyggingu í atvinnulífi á Suður-
landi. Var Ölvir aðalhvatamaður
að stofnun sjóðsins og liggja nú
fyrir drög að frumvarpi til laga
um iðnþróunarsjóði, sem lagt
verður fyrir Alþingi. Ef að lögum
verður, munu orkuframleiðslufyr-
irtæki í hverjum landshluta
greiða gjald til sjóðsins af heild-
arsöluverði orku. Er hér um að
ræða gífurlegt hagsmunamál
strjálbýlisins.
En hver er Ölvir Karlsson, per-
sóna hans og gerð? Því hygg ég, að
skólabróðir hans frá Laugaskóla,
Erlingur Davíðsson, svari best í
þætti sínum í bókinni „Aldnir
hafa orðið“, auk þess sem verkin
tala. Hann segir m.a.: „ ... hann
vex af erfiðum viðfangsefnum og
eflist við hverja raun, getur jafn-
vel orðið harðvítugur málafylgju-
maður, þegar mikið liggur við, en
er maður hversdagsgæfur og sam-
vinnuþýður. Ljóst er, að fólk
treystir honum til forystu fjöl-
margra mála. Metnaður hans,
vitsmunir og dugnaður hafa
reynst góðum málum mikiis virði
á fjölmörgum sviðum menningar
og framfara. Þessir ágætu eigin-
leikar eiga vonandi eftir að nýtast
vel og lengi bæði honum sjálfum
og samfélaginu til heilla um
ókomna tíð.“
Undir þessi orð vil ég taka heils-
hugar og margir fleiri í sveit og
héraði og Suðurlandi öllu. Ég sam-
gleðst Ölvi og fjölskyldu hans og
óska þeim öllum heilla og blessun-
ar í bráð og lengd.
Hannes Guðmundsson,
Fellsmúla.
Þegar komið er að Þjórsárbrú
að vestan blasir við stórbýlið
Þjórsártún austan brúarinnar.
Þangað er staðarlegt heim að líta,
þar sem reisulegt íbúðarhúsið ber
við himin, og þaðan er víðsýnt til
allra átta. í Þjórsártúni búa heið-
urshjónin Kristbjörg Hrólfsdóttir
og Ölvir Karlsson, oddviti Ása-
hrepps, sem í dag fyllir sjöunda
áratuginn.
Þau Kristbjörg og Ölvir eru
bæði Skagfirðingar að uppruna,
en Ölvir ólst upp í Eyjafirði og á
Akureyri. Á ungtingsárunum var
hann í Laugaskóla, en hleypti
heimdraganum og hélt til Dan-
merkur til náms í lýðskólanum í
Askov og starfaði síðan um tíma á
józkum búgarði.
Þau Kristbjörg og Ölvir hafa
búið alla sína búskapartíð í Þjórs-
ártúni eða rúma fjóra áratugi og
unað þar vel hag sínum. Ölvir hef-
ur sagt frá því, að ekki hafi verið
spáð vel fyrir búskap þeirra í upp-
hafi. Á þeirri jörð gæti enginn
maður lifað af búskap enda jörðin
þá í eyði og niðurníðslu. En þau
hjónin hafa svo sannarlega af-
sannað þessar hrakspár. Þau hafa
ræktað og hýst jörðina þann veg,
að bú þeirra var um langt skeið
með þeim stærstu á Suðurlandi,
og er þá mikið sagt. Börn þeirra
hafa dyggilega aðstoðað þau við
búskapinn.
Margur maðurinn hefði talið
það ærið lífsstarf að koma upp
stórbúi og reka það með mynd-
arskap í áratugi. En því var ekki
svo farið um Ölvi Karlsson. Hann
er félagslyndur að eðlisfari og hef-
ur haft sérstaka ánægju af félags-
störfum, enda látið að sér kveða á
þeim vettvangi, svo að um hefur
munað. Engan mann hefi ég á
ævinni þekkt, sem hefur fórnað
jafnmiklu af tíma sínum og
starfsorku til félagsstarfa í þágu
samborgara sinna eins og Ölvi
Karlsson. Hann er jafnan boðinn
og búinn til slíkra starfa þegar til
hans er leitað.
Ég hefi átt þess kost síðastlið-
inn hálfan annan áratugað að
...............— 4lr-
starfa með afmælisbarninu að
ýmiss konar félagsmálum fyrir
Samband ísl. sveitarfélaga, en
hann hefur átt sæti í stjórn þess
og fulltrúaráði á þessu tímabili og
í ýmsum stjórnum og nefndum á
þess vegum, svo sem stjórn Lán-
asjóðs sveitarfélaga og samstarfs-
nefnd samkvæmt grunnskólalög-
um, þar sem hann hefur unnið
geysimikið starf, ekki sízt í þágu
hinna dreifðu byggða. En Ölvir
hefur ekki látið þar við sitja.
Sveitungar hans og Sunnlend-
ingar hafa kallað hann til starfa.
Ilann hefur setið í hreppsnefnd
Ásahrepps í áratugi lengst af sem
oddviti hreppsnefndar með allri
þeirri vinnu, sem því starfi fylgir.
Hann var einn af stofnendum
Sambands sunnlenzkra sveitarfé-
laga og lengi formaður þess. Hann
hefur átt sæti í stjórnum búnaðar-
félags, kaupfélags, veiðifélaga og
Mjólkurbús Flóamanna, svo
eitthvað sé nefnt, en þessi upp-
talning er langt frá því að vera
tæmandi. Manni virðist Ölvir oft
margra manna maki og undrast,
að hann skuli komast yfir öll þessi
störf. Og alltaf er Ölvir sama
prúðmennið, rólegur en ákveðinn
og fylgir þeim málum fast eftir,
sem hann berst fyrir. En Ölvir
hefur ekki verið einn í lífsbarátt-
unni. Auk barnanna hefur hans
ágæta og dugmikla kona staðið
dyggilega við hlið hans við bú-
skapinn og stutt hann í hans
margvíslegu félagsstörfum. Verið
bæði bóndinn og húsfreyjan, þeg-
ar Ölvir hefur þurft að vera að
heiman.
Á þessum merku tímamótum
flyt ég Ölvi Karlssyni beztu af-
mælis- og árnaðaróskir stjórnar
og starfsliðs Sambands ísl. sveit-
arfélaga og þykist raunar viss um
að íslenzkir sveitarstjórnamenn
muni taka undir þær heillaóskir.
Þá færi ég Ölvi mínar persónulegu
afmælisóskir og konu minnar og
óska honum, konu hans og öllu
skylduliði, alls hins bezta á
ókomnum árum og þakka honum
einstaklega ánægjulegt samstarf á
liðnum árum, samstarf, sem aldrei
hefur borið skugga á.
Magnús E. Guðjónsson
Ölvir Karlsson og frú taka á
móti gestum á afmælisdaginn að
Laugalandi í Holtum frá kl. 19.
Sjálfsvirðing
Réttlæti
BANDALAG JAFNAÐARMANNA -
LANDSFUNDUR AÐ HÓTEL
LOFTLEIÐUM
í kvöld setjum viö fundinn og tökum þingmennina til bæna.
Á morgun ræöum viö pólitík í þremur málstofum. Viö gagnrýnum, mörkum fyrstu
sporin og setjum framtíöinni markmiö.
Á sunnudaginn ræöum viö skipulagsmál, drögum saman stefnu næsta árs og
greiöum atkvæöi um þaö sem ástæöa er til.
TREYSTU EKKI Á AÐ LESA UM FUNDINN f MÁLGÖGNUM FJÓRFLOKKANNAI
MÆTTU EÐA HRINGDU OG FÁÐU SEND ÖLL GÖGN FUNDARINS
Barnagæsla á staönum
BANDALAG JAFNAÐARMANNA, SÍMI 21833.